Dagblaðið - 30.09.1980, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1980.
Hluthafa-
fundur
Boðað er til almenns hluthafafundar í Flug-
leiðum hf. miðvikudaginn 8. október nk. kl.
14.30 í Kristalsal Hótels Loftleiða í Reykjavík.
Dagskrá:
1. Umræður og ákvörðun um framhald Norður-Atlants-
hafsflugs Flugleiða hf. milli Luxembourgar og Banda-
ríkjanna.
2. Tillaga til breytingar á 4. gr. samþykkta félagsins um
heimild til aukningar hlutafjár félagsins.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir
hluthöfum á aðalskrifstofu félagsins Reykja-
víkurflugvelli, frá og með 1. október nk., og lýk-
ur afhendingu þriðjudaginn 7. október.
Þeir hluthafar sem hafa í hyggju að láta umboðs-
mann sækja fundinn fyrir sina hönd skulu leggja
fram skrifleg og dagsett umboð. Fyrri umboð
gilda ekki.
Stjórn Flugleiða hf.
Menningarsjóður
Norðurlanda
Verkefni Menningarsjóðs Norðurlanda er að stuðla að nor-
rænni samvinnu á sviði menningarmála. í þessum tilgangi
veitir sjóðurinn styrki til norrænna samstarfsverkefna á
sviði vísinda, fræðslumála og almennrar menningarstarf-
semi.
Á árinu 1981 mun sjóðurinn hafa til ráðstöfunar 8,5
milljónir danskra króna. Af þessu fé er hægt að sækja um
styrki til norrænna samstarfsverkefna sem unnin eru í eitt
skipti fyrir öll. Einnig má sækja um styrki til verkefna sem
taka lengri tíma og þá fyrir ákveðið reynslutímabil.
Umsóknir ber að rita á umsóknareyðublöð sjóðsins og er
umsóknum veitt viðtaka allt árið. Umsóknir verða af-
greiddar eins fljótt og hægt er, væntanlega á fyrsta eða
öðrum stjórnarfundi eftir að þær berast.
Frekari upplýsingar um starfsemi sjóðsins veitir Norræna
menningarmálaskrifstofan, Snaregade 10, DK—1250
Kaupmannahöfn sími (01)114711.
Umsóknareyðublöð fást á sama stað og einnig í mennta-
málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími
25000.
Stjórn Menningarsjóðs Norðurlanda.
TO YOTA-SALURINN
Nýbýlavegi $ fíportinu)
AUGLÝSIR:
°JO/ð
*/.
S.
Toyota Crassida '78, ekinn 56þús. km, verð 6,1 millj.
Toyota Cressida station 78, ekinn 84þús., verð 5,7 miiij.
Toyota Cressida station 78, ekinn52þús., verð 5,8 millj.
Toyota Cressida 78, ekinn58þús., verð 6 miiij.
Toyota Cressida 77, ekinn33þús., verð 5,8 millj.
Toyota Carina 77, ekinn 51 þús., verð 4,5 millj.
Toyota Carina 77, ekinn 78þús., verð 4,5 miiij.
Toyota Carina 76, ekinn 65 þús., verð 3,8 miiij.
Toyota Corolla KE30 78, ekinn 18 þús., verð 5,1 miiij.
Toyota Corona Mark II77, ekinn 60þús., verð 4,6 millj.
Toyota Starlet '80, ekinn 6þús., verð 5,7miiij.
Toyota Crown 71, upptekin vól, upptekin sjátfskipting, nýspraut-
aður, verð 2,3 miiij.
TOYOTA-SALUMNN
NÝBÝLA VEGI8, KÓP. SÍMI44144.
Styrjöld írans og íraks:
Orðrómur um her-
íhlutun fíota
Bandaríkjanna
— búizt við tilkynningu frá Hvíta húsinu í dag
— dregur úr bardögum á milli herjanna
Sterkur orðrómur var um það í
Washington í morgun að stjórnvöld í
Bandaríkjunum mundu ætla að beita
sér fyrir alþjóðlegum flotaaðgerðum
til að verja siglingaleiðir um Hormuz-
sund í Persaflóa. Var jafnvel rætt um
þann möguleika að bandarísk herskip
mundu standa einhliða að slikum
aðgerðum.
Þessar aðgerðir ef framkvæmdar
yrðu mundu verða gerðar i ljósi
þeirra miklu alþjóðlegu olíuhags-
muna sem eru í húfi ef tekur fyrir
siglingar olíuskipa um þessi mikil-
vægu sund vegna styrjaldar írans og
íraks á þessum slóðum.
í gær kallaði Jimmy Carter Banda-
ríkjaforseti leiðtoga þingmanna á
sinn fund og skýrði þeim frá afstöðu
stjórnar sinnar í málefnum sem varða
styrjöld írans og íraks. Vakti þessi
fundur athygli og var boðað til hans
með litlum fyrirvara. Er búizt við að
opinber yfirlýsing um væntanlega
aðgerðir verði gefin út í dag. Tals-
menn Bandaríkjaforseta reyndu þó í
gær að draga úr þeim orðrómi sem
var á lofti um hugsanlegar hernaðar-
aðgerðir.
Dregið hefur verulega úr hernaðar-
brölti herja beggja deiluaðila við
Persaflóa. Kemur það í kjölfar þess
að kröfur á alþjóða vettvangi um að
samið sé um vopnahlé hafa orðið
sífellt háværari.
Talsmenn íraks segja að þeir hafi
tryggt stöðu sína á öllum vígstöðvum
og hafi náð þeim hernaðarmark-
miðum sem að hafi verið stefnt.
Zia forseti Pakistans ræddi við
Saddam Hussein forseta íraks í gær-
kvöldi. Áður hafði hinn síðarnefndi
sent skilaboð til Kurt Waldheim aðal-
ritara Sameinuðu þjóðanna þar sem
hann sagðist vera reiðubúinn til að
hætta bardögum.
Samkvæmt fregnum frá íran
leggja hersveitir þeirra höfuðáherzlu
á að verja olíusvæði í Khuzestan sem
eru efnahagslífi landsins mjög mikil-
væg. Her íraks hefur þegar komizt
töluvert inn í hérað þetta.
Oliuhreinsunarstöðvarnar i Abadan eru þær stærstu sinnar tegundar í heiminum og mjög mikilvægar fyrir efnahagslif Irans.
Loftárásir flughers traks hafa nú valdið því að öll starfsemi í Abadan hefur stöðvazt og er óvisst hvenær oliuhreinsun hefst
þar aö nýju.
Efnahagsbandalagið:
Vilja bann við
hormónagjöfum
til sláturdýra
Landbúnaðarráðherra Efnahags-
bandalagsins komu saman til fundar í
Brussel í dag. Helzta viðfangsefni
ráðherranna verður að ákveða
aðgerðir til að koma í veg fyrir
aukningu á hormónagjöfum til
sláturdýra rétt áður en þau eru leidd
til slátrunar.
Verulega hefur dregið úr neyzlu
kálfa- og nautakjöts í mörgum
ríkjum bandalagsins á undanförnum
vikum. Einkum á þetta við um
Frakkland. Gerðist þetta í kjölfar til-
kynningar frá samtökum neytenda
um að kjötátið gæti hugsanlega verið
heilsuspillandi vegna of mikils
hormónainnihalds.
í gær sendi nefnd á vegum
neytenda innan Efnahagsbanda-
lagsins frá sér yfirlýsingu þar sem
þess var krafizt að hætt yrði að
borða nautakjöt í löndum þess. Væri
það eina ráðið til að fá framleiðendur
til að draga úr hormónagjöfum.
Opinber mál hafa verið hafin fyrir
dómstólum á Ítalíu og í Belgíu og
Frakklandi til að fá sönnur á að háski
geti stafað af hormónum í kjöti
sláturdýra. Er þess einnig krafizt að
sams konar reglur verði settar i öllum
ríkjum bandalagsins um hve gefa
megi mikiðaf hormónum.
Auk þess að ræða um nautakjöts-
framleiðsluna munu landbúnaðar-
ráðherrarnir ræða um lambakjötið
og reyna að komast að sameiginlegri
niðurstöðu um framtíðarstefnu í
þeim málum. Er stefnt að því að auka
ræktun fjár og draga fremur úr
innflutningi dilkakjöts.
Ðeilur um innflutning á lamba-
kjöti og smjöri frá Nýja Sjálandi
munu þó að líkindum gera málið
erfiðara. Frakkar hafa til dæmis
krafizt þess að sett verði sérstök
takmörk á innflutning dilkakjöts
þaðan.