Dagblaðið - 14.10.1980, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 14.10.1980, Blaðsíða 2
2 Rikisstjórn dr. Gunnars Thoroddsen daginn sem hún var mynduð, ásamt þáver- andi torseta, dr. Kristjáni Eldjárn. DB-mynd: Bj. Bj. RÍKISSTJÓRNIN LÆWREKKI REKA Á RBDANUM — varhugaverður áróður andstæðinga hennar ,,Einn af 81% þjóðarinnar" skrifar: Þær raddir heyrast alltaf öðru hverju sem telja að ríkisstjórnin hafi ekki lagt nelít af mörkum i efnahags- málum heldur séu þau látin reka á reiðanum. í framhaldi af sjónvarps- viðtali um daginn rinnst mér rétt að itreka eftirfarandi: Kikisfjjárinálin eru efnahagsmál og liklega einn mikilvægasti þáttur þeirra. Rikisstjórn Gunnars Thor- oddsen hefur komið þeim í gott jafn- vægi og skuldasöfnun rikissjóðs er hætt. Það dregur úr verðbólgu eða magnar hanaa.m.k. ekki. Kjarasamningarnir eru líka efna- hagsmál og enginn smáþáttui i þeim flokki. Minnisstætt er a.m.k. hvernig sólstöðusamningarnir svokölluðu hjá stjórn Geirs Hallgrimssonar mögn- uðu verðbólguna á skömmum tíma. Ríkiss tjórn Gunnars Thoroddsen hefur náð raunhæfum kjarasamning- um við opinbera starfsmenn sem ekki eru verðbólguhvetjandi. Bankaútlán eru efnahagsmál. Til skamms tíma héldu viðskiptabank- arnir úti óheftri lánastefnu og sóttu jafnharðan meira fé til Seðlabankans í formi yfirdráttar en það kallar á aukna seðlaprentun og þarmeð aukna verðbólgu. Ríkisstjórnin hefur fyrirskipað Seðlabankanum að tak- marka þessi útlán og herða á eftirliti með viðskiptabönkunum. Þaðdregur mjög úr verðbólgu. Þessi þrjú dæmi sýna vonandi efa- semdarmönnum að það er ekki rétt að ríkisstjórnin láti efnahagsmálin reka á reiðanum. Almenningur skyldi gjalda varhug við að trúa athuga- semdalaust ' þessunt málflutningi. Þet ta er venjulegur áróður. The Beatles — John, Ringo, Paul og George. Vonlaus útsendingar tími Bítlaþáttanna Híihmnnumli hringdi: | Nú er hafinn flutningur á þáttum um Bítlana í útvarpi. Nefnast þeir. Fjórir piltar frá Liverpool og er það; Þorgeir Ástvaldsson sem stjórnar þeim. Einn stór galli er þó á þessum þáttum en sá er útsendingartíminn. Þátturinn er fluttur á laugardags- kvöldum kl. hálf tiu, einmitt þegar flestir unnendur Bitlanna eru að gera eitthvað annað. Á þessum tíma hlusta liklega fáir á útvarpið, fólk horfir á sjónvarpið eða er úti að skemmta sér á laugardagskvöldum. Nær væri að flytja þættina á útsendingartíma vikulokaþáttarins. DAGBLAÐIÐ. ÞRIDJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980. BILUÐ FRÉTTA- MENNSKA EÐA BILUÐ KLUKKA? Atli Rúnar Halldórsson skrifar: ,,Biluð klukka orsakaði ósigurinn gegn Kína” segir í fyrirsögn greinar á íþróttasiðu Vísis á föstudaginn þar sem sagt er frá tapleik íslands gegn Kína í körfubolta kvöldið áður. í iþróttafrétum Moggans er tapið af- sakað með sömu skýringum: ,,Áttu Islendingar möguleika á því að komast yfir, höfðu knöttinn síðustu sekúndurnar, en þar sem veggklukka Laugardalshallar var biluð, var engin leið fyrir leikmenn að átta sig hversu mikill (eða litill) tími var eftir.” Og Þjóðvilji litli er lika svolítið svekktur: ,,Það sem orsakaði að íslenzku strákarnir í íslenzka liðinu reyndu ekki körfuskot var að þeir vissu ekki hvað tímanum leið því klukkan i Laugardalshöll var biluð.” Þá vita menn það. Fjöregg íslenzka landsliðsins í körfubolta er klukkugrey sem lætur lítið fara fyrir sér uppi á vegg í Laugardalshöll! Án gamans: Hver græðir á svona heimskubulli og „skýringum”?? Lesendur? íþróttamenn? Kannski íþróttafréttamenn? Tæplega. En svona fer stundum fyrir þeim sem lengst ganga í þjóðrembingsskrifum (við erum alltaf mestir og beztir hvað sem tautar og raular). Fyrir hvern stórleikinn á fætur öðrum erum við aumir lesendur íþróttafrétta rækilega búnir undir sigur okkar manna og það raunar oftast talið sjálfsagt að sigurinn sé borðliggjandi eða þvi sem næst. Ef sigurinn vinnst þá er breiðsíðunum beitt og lýsingarorðin hvergi spöruð. Tapið er hins vegar gjarnan útskýrt eitthvað út í himin- blámann, eins og núna þegar klukkan i Höllinni gerðist „fimmta herdeild" Kínverja í islenzka körfuboltaliðinu. Getur ekki bara verið, eins og ég þóttist lesa út úr skrifum Dagblaðsins og Tímans um leikinn við Kína, að gestirnir hafi einfaldlega verið dálitið klárir körfuboltamenn? Og það sé meira að segja frekar góð frammistaða hjá íslandi að ná svo jöfnum leik við þá? Það skyldi nú vera! (Jr landsleik tslands og Kfna. Prúðu leikarana strax eftir fréttimar —Á döfinni getur beðið Birna Jóhannsdóttir hringdi: Mig langar til að koma þeirri ósk á framfæri við sjónvarpið að Prúðu leikararnir verði færðir til aftur á sinn gamla tíma, þ.e.a.s. strax eftir fréttir. Nýr þáttur, Á döfinni, hefur verið settur í dagskrána á undan Prúðu leikurunum en . sá þáttur höfðar aðeins til fullorðinna. Það ætti því ekki að skipta miklu máli hvenær hann er sýndur en börnin hins vegar vilja sjá Prúðu leikarana og eru víst alveg orðin nægilega óþolinmóð að þurfa að bíða allan fréttatímann þt) annar liður bætist, ekki við.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.