Dagblaðið - 14.10.1980, Síða 4

Dagblaðið - 14.10.1980, Síða 4
4 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980. BÍLA- MÁLARAR! Viljum ráða bílamálara og aðstoðarmann á málningarverk- stæðið. Uppl. hjá verkstjóranum. Egill Vilhjálmsson h/f. Laugavegi 118. — Sími 22240. Verksmiðju- vinna Viljum ráða lyftaramann. Æskilegt að hann hafi lyftarapróf. Jafnframt vantar nokkra menn til verksmiðjustarfa. Mötuneyti á staðnum, ódýrt fæði. Komið á afgreiðsluna og talið við Halldór. Fyrirspurnum ekki svarað í síma. Kassagerð Reykjavíkur Kleppsvegi 33. Bœkur til sölu fré 1601-1978 Nýkomið einstakt safn fágætra og gamaila bóka, erlendra ferðabóka um ísland, fornritaútgáfa og ótal margt fleira, nefnum m.a.: Árbækur Ferðafélags Islands, allt frumprent, ósnert eintök 1928—1978, Landnám Ingólfs l—3, þættir úr sögu Reykjavíkur, Ódáðahraun 1—3, Islendingar I Danmörku eftir Jón biskup Helgason, Árbækur Reykjavikur eftir sama, Gerska ævintýrið eftir Halldór Laxness, Jarðskjálftar á Suðurlandi eftir Þorvald Thoroddsen, Grund í Eyjafirði, afmælisrit til Einars Arnórssonar og Ólafs Lárussonar, Hamar og sigð eftir sr. Sigurö í Holti, Aldarfar og örnefni 1 Önundarfirði, Hestar eftir Theódór og Hestar eftir Daníel, Bókin um veginn, Alþingisbækur tslands 1,—9. bindi, Biblia, Kaupmh. 1813 (svok. „Grútarbiblía”), Lýðveldishátiðin 1944, Flateyjar- bók 1 —4, Rangárvellir eftir Helgu Skúladóttur, Fra Islands Næringsliv eftir Bjarna frá Vogi, Barðstrendingabók, Sæmundar-Edda, Kh. 1787, Landnámabók 1—3, útg. Finns Jónss., Grágás 1—2, Árna Magnússonar útgáfan, Kh. 1829, Die Bodenkultur Islands, Berlin 1912, Origines Is- landicae, útg. af Guðbrandi Vigfússyni, Corpus Poeticum Boreale, útg. af sama, Hervararsaga ok Heiðrekskongs, Kh. 1785, The Industrial arts of Scandinavia in the Pagan Times eftir Hildebrand, Peasant art in Sweden, Lapiand and Iceland, Den Islandske Lov, Jons Bogen fra 128, Kh. 1763, Íslenzkir annálar, Kh. 1847, tslands Landnámabók, Kh. 1774, Laxdæla, Kh. 1826, Nials-saga, Historia Niali et filiorum, Kh. 1809, Inscription runique du Piré eftir Rafn, Heimskríngla 1—3, hin glæsilega folioútgáfa Kh. 1777—1783, Sturlunga-Saga, útgáfa Bókmenntafélagsins 1817— 1820 i glæsibandi, Vfgaglúms Saga, Kh. 1786. Ennfremur ailar helztu ferðabækur erlendra manna um lsland, m.a. Mackenzie, Henderson, Horrebow, Troil, Gaimard, Anderson, Burton, Hooker og fjöldi annarra. Hér eru boðnar fram bækur sem ekki hafa sézt hér eða er- lendis um áratuga skeið. Kaupum og seljum allar íslenzkar bækur og flestar erlendar. Gefum út verðskrá um íslenzkar bækur. Þeir sem óska geta fengið hana senda. Vinsamlegast hringið, skrifið eða litið inn. - GAMLAR BÆKUR OG NÝJAR - Bókavaröan Skðlavörðustíg 20, Reykjavfk, sími 29720 Ragnar reiknar með 3,8 millj- arða afgangi DB svipti á laugardaginn hulunni af fjárlagafrumvarpinu og sagði frá aðalatriðum þess. Frumvarpið var svo lagt fram í gær. Eins og DB skýrði frá miðast frumvarpið við, að verðbólga á næsta ári verði yfir 40 prósent, eða nánar tiltekið 42%. Niðurstöðutölur frumvarpsins eru 61,5 prósent hærri en niðurstöðu- tölur frumvarps Tómasar Árnasonar vóru fyrir sléttu ári. Niðurstöðu- tölurnar fela í sér 54,1 prósnt hækkun frá fjárlögum ársins í ár og 43,5 prósent hækkun frá áætlaðri út- komu ársins. í frumvarpinu er gert ráð fyrir, að 12 milljörðum verði varið til efna- hagsráðstafana á næsta ári, eins og DB hefur einnig áður skýrt frá. Heildartekjur frumvarpsins eru 7.1 milljarði meiri en heildargjöldin. Þegar tekið hefur verið tillit til lána- hreyfinga, er reiknað með, að greiðsluafgangur verði rúmir 3,8 milljarðar á næsta ári. Heildartekjur ríkissjóðs eiga sam- kvæmt frumvarpinu að verða 28,5 prósent af brúttó þjóðar- framleiðslunni. Þá er miðað við, að framleiðslan vaxi um eitt prósent að raungildi á árinu 1981. Hlutfall tekna ríkis af framleiðslunni er svipað og er í ár, að því er segir í greinargerð fjár- lagafrumvarpsins. Skattvísitalan er í frumvarpinu ákveðin 145 stig, og er það heldur minni hækkun en nemur hækkun kauptaxta milli áranna 1979 og 1980 en meiri hækkun er verðbólga næsta árs er talin verða. -HH. ENGINN HALLI ÍÁR? Fjármálaráðherra telur, að ríkis- sjóður verði í ár, 1980, rekinn halla- laus. Fyrirliggjandi áætlanir benda til þess, að innheimtar tekjur rikissjóðs nemi í ár 372 milljörðum króna og út- gjöldin nemi svipaðri upphæð. Innstreymi og útstreymi á lána- hreyfingum er svipað, og væntir fjár- málaráðherra þess því, að ríkis- sjóður verði hallalaus árið 1980, bæði í rekstrarlegu og greiðslulegu tilliti. -HH. Mikil aukning til lista Framlög ríkisins til lista aukast stórlega samkvæmt fjárlaga- frumvarpinu, annað árið í röð. Liðurinn, „listir, framlög” hækkar úr 480 milljónum króna í 859 milljónir eða um 79 prósent, sem er talsvert umfram verðbólguna. -HH. Ragnar Arnalds fjármálaráðherra ásamt nokkrum nánustu samstarfsmönnum — Lóðvfk Jósefssyni, Baldri Óskarssyni og Ólafi Ragnari Grímssyni. DB-mynd: Bj. Bj. 5% hækkun tekjutryggingar — stóraukin f ramlög til byggingarsjóða í áætlun um útgjöld til trygginga- mála er gert ráð fyrir sérstakri 5 prósent hækkun tekjutryggingar frá miðju ári 1981 til viðbótar við almenna hækkun tryggingabóta i samræmi við verðlagsbreytingar. Jafnmikil hækkun tekjutryggingar kom til framkvæmda í ár. Komandi hækkun tekjutryggingar er hluti af ráðstöfunum félagslegs eðlis, sem tengjast yfirstandandi kjarasamningum. í fjárlagafrumvarpinu er einnig stefnt að verulegri aukningu á fram- lögum til félagslegra íbúðabygginga. í því skyni eru fjárframlög og fjár- öflun til Byggingarsjóðs verkamanna stóraukin. Byggingarsjóður ríkisins og Byggingarsjóður verkamanna eiga að hafa alls tití ráðstöfunar 40 milljarða króna árið 1981. Til ráðstöfunar i ár hafa sjóðirnir 23 milljarða. -HH. opinn daglega Prentvillupúkinn komst heldur betur í feitt í laugardagsblaðinu. Hann forfærði þriðjung af grein um nýtt húsnæði flóamarkaðs Sambands dýra- verndunarfélaga, þannig að með myndunum birtist aðeins fyrsti hluti greinarinnar. Við birtum hér frekari upplýsingar um flóamarkaðinn t Hafnarstræti 17. lítið því velunnarar sambandsins eru fjöimargir og eru rausnarlegir í gjöfum siiuim. Á fióamarkaði Dýraverndunarsam- bandsins má fá nánast allt sem nöfnum tjáir að nefna, húsgögn, bækur, skrautmuni, verkfæri, eldhúsáhöld, fatnað og margt fleira. -A.Bj. Ætlunin er að fióamarkaðurinn verði opinn alla virka daga kl. 14—18 og er gjöfum veitt móttaka á sama tíma. Undanfarin tvö ár hefur verið rekinn flóamarkaður á vegum Sam- bands dýraverndunarfélaga íslands að Laufásvegi 1, en það húsnæði var alitof Jómnn 8öi«n*«n, formaður 8ambanda dýravamdunaffétaga og Sótvatg Thaódóradóttlr, aam srati é I vornrtjóm aambandslns, aru þama I nýja húsnssðinu að Hafnarstrssti 17. DB-mynd: Elnar ólason.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.