Dagblaðið - 14.10.1980, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980.
Él Salvador:
Umbótasinnuð herforingja-
stjóm færist til hægri
[ — skipting jarðnæðis hef ur þó haldið áf ram og stuðningur við vinstrimenn í rénun
— þúsundir hafa fallið fyrir morðsveitum vinstri- og hægrimanna
i
i;
!
i
i
i
V
Hinn 15. nóvember á l'yrra ári.
þegar hópur ungra herforingja í El
Salvador gcrði friðsamlega byltingu
þar i landi lofuðu þeir að koma á.
friði og réttlæti. Þótti þá timi lil
kominn að steypa hægrisinnaðri
stjórn Carlos Humberto Romero
hershöfðingja. Herforingjarnir ungu
voru taldir tiltölulega frjálslyndir.
stjórnin neitað en á síðustu
mánuðum hefur frjálslyndum her-
foringjum með ráðagerðir um ýmsar
úrbætur verið ýtt til hliðar og aðrir
og þröngsýnni setzt i sæti þeirra í
stjórninni.
Bandarikjastjórn var hlynnt
byltingunni hinn 15. nóvember
síðastliðinn. Siðan hefur hún talið
Likkistusmiði r hafa nóg að gera i löndum eins og El Salvador þar sem byssurnar
auka dánartiðnina um mörg þúsund manns á ári. Verið er að aka kistum að lik-
húsi i San Salvador.
Skipuð var ríkisstjórn sem skipuð
var bæði óbreyttum borgurum og
hermönnum. Hún átti að konia
lögunt á og reglu, stöðva alla starf-
semi sem braut í bága við almenn
mannréttindi. Auk þess var ætlunin
að draga úr alls konar spillingu i
landinu og auka tekjur og bæta kjör
almennings.
Stundum reynist góður ásetningur
ekki nóg. Sagt er að ástandið í E!
Salvador, sem er í Mið-Ameríku,
haft enn versnað í valdatíð her-
foringjanna ungu. El Salvador er
fáækt land og þar eru ibúar mjög
margir miðað við stærð landsins og
núverandi afkomumöguleika þar.
Ýmsir þeir er berjast fyrir
umbótum í El Salvador hafa áætlað,
og þá farið varlega í sakirnar, að ekki
færri en fimm þúsund manns hafi
fallið í bardögum á milli vinstrisinn-
aðra skæruliða og öryggislögreglu
rikisstjórnarinnar frá því að núver-
andi stjórn kom til valda.
Helzta ástæðan fyrir þvi að svo er
nú komið i El Salvador er talin sú að
hægrimenn reyna allt sem þeir geta til
að halda efnahagslegum og pólitísk-
uin völdum í landinu og að vinstri-
menn eru jaftiákveðnir í að ná
völdum með hvaða ráðumsem tiltæk
og nauðsynleg eru.
Kirkjunnar menn í El Salvador og
jýmsir aðrir álíta að ástandið i landinu
jhafi meðal annars versnað vegna þess
jað ríkisstjórn hinna ungu herforingja
hafi sífellt hneigzt meir og meir til
fylgis við hægrimenn. Auk þess hafi
jtengsl öryggislögreglunnar og skæru-
liðasveita hægrimanna aukizt stöðugt
að sögn. Eru þær sveitir sagðar eiga
sök á dauða um það bil tveggja
þriðju þeirra fimm þúsund manna
sem fallið hafa síðan núverandi
sljórn komst til valda.
Þessum ásökunum hefur ríkis-
sig tilneydda til að styðja fremur við
bakið á hægrisinnaðri öflunum i El
Salvador, sem hún álilur þó skárri af
tveimur slæmum kostum. Robert
While sendiherra Bandarikjanna þar
hefur þó látið hafa eftir sér að ef
stjórnvöld rjúfi ekki tengsl sín við
sveitir hægrimanna sein stundað hafa
morð á undanförnum mánuðum þá
hljóti framtíð núverandi stjórnar að
vera i mikilli óvissu.
— Stjórnin verður að gera sér Ijóst
að innan hennar eru eyðandi öfl sem
munu valda því að hún mun falla
verði ekkert að gert, sagði sendiherr-
ann.
Að sögn erlendra sendimanna í
San Salvador þá hafa í það minnsta
tvær hægri herforingjabyltingar
jafnvel þrjár runnið út i sandinn á
síðastliðnu ári. Þær hafa mistekizt
vegna þess að Bandaríkjastjórn hefur
hótað því að stöðva alla aðstoð við El
Salvadoref bylting-verður gerð.
Fyrrum forseti hins fimm manna
byJtingarráðs herforingjanna kom í
veg fyrir síðustu byltingartilraun sem
gerð var í maí síðastliðnum. Heitir
hann Majano og er liðsforingi.
Skipaði hann svo fyrir að leiðtogar
byltingartilraunarinnar skyldu fang-
elsaðir og dregnir fyrir dóm. Það
varð ekki vegna andstöðu hægrisinn-
aðra herforingja sem komu i veg fyrir
það og tókst einnig að hrekja Majano
úr embætti forseta byltingarráðsins.
Hann hélt þó áfram sæti sínu i
ráðinu vegna stuðnings Bandaríkja-
stjórnar.
Majano liðsforingi var talinn helzti
talsmaður þeirra umbóta sem gera
átti í landbúnaðarmálum og banka-
málum i El Salvador snemma á
þesssu ári. Með því átti að jafna
lekjuskiptinguna og aðstöðuna í
landinu og lægja þær ófriðaröldur
‘sem hafa risið vegna félagslegs
ójafnræðis.
Landbúnaðarráðuneytið í San
Salvador hefur gefið upp að síðan
skipting jarðnæðis hófsl í sveitum
landsins hafi um það bil tvö þúsund
býlum verið úthlutað meðal einnar og
hálfrar milljónar bænda. Hver jörð
er meira en 250 ekrur (100 hektarar)
að meðaltali. Samkvæmt opinberum
lölum telst helmingur af hinum 4,5
milljónum íbúa El Salvador til
bænda eða-smábænda og vinnuhjúa.
Mjög margir þeirra eru án nokkurs
jarðnæðis.
Stjórn herforingjanna ungu stefnir
að því að skipta um það bil sextiu af
hundraði jarðnæðis milli 80% af
hinum jarðnæðislausu bændafjöl-
skyldum.
Samkvæmt fregnum frá El Salva-
dor virðist svo sem skipting jarð-
næðisins hafi gengið mun friðsam-
legar fyrir sig en ráð var fyrir gert i
upphafi. Miðað við ástandið i land-
inu hafaálök vegna þess orðið litil.
Vinstrisinnar er sagðir óttast að
góður árangur jarðnæðisskiptingar-
innar muni verða til þess að draga
muni úr áhrifum þeirra meðal al-
mennings i landinu. Þeir treysti sér
hins vegar ekki til að berjast á móti
skiptingunni þar sem þá óttist þeir að
missa fylgi fjölda fólks.
Andstaða landeigenda sem áður
fyrr áttu allt það jarðnæði sem nú er
verið að skipta meðal smábænda
hefur einnig verið minni en búizt var
við. í hópi landeigendanna eru bæði
menn sem fallizt hafa á að þeir verði
að deila jarðnæðinu með fátækari
löndum sínum til að friður komist á i
landinu og síðan aðrir sem treysta á
að það land sem tekið hefur verið af
þeini með valdboði muni endur-
heimtast aftur þegar sönn hægri-
stjórn kemur til valda.
Snemma á þessu ári sameinuðust
nær allar vinstri hreyfingar i landinu
undir einu merki til að öðlast meira
afl í baráttunni við stjórnina og
hægriöflin. Þar með sameinuðust
allar skæruliðahreyfingar vinstri-
manna eða hryðjuverkasveitir þeirra
ef menn vilja fremur kalla þær það.
Voru þær undir sérstakri stjórn en
stjórnmálahreyfing vinstrimanna var
síðan undir annarri stjórn.
Þrátt fyrir sameininguna þá greinir
hina ýmsu vinstrimenn á bæði mál-
efnalega og einnig um baráttuað-
ferðir. .Svo virðist sem fylgismönn-
um þeirra hafi nokkuð fækkað á
síðustu mánuðum.
Skæruliðasveitir þeirra hafa ekki
afl til að berjast gegn hinni vel þjálf-
uðu og vel vopnum búnu öryggis-
lögreglu stjórnarinnar. Stjórnmála-
lega hefur vinstri mönnum mistekizl
á síðustu mánuðum og orðið fyrir
áföllum. Bezta dæmið um þaðer hve
lítinn hljómgrunn hvatning þeirra til
fólks um að taka þátt í allsherjar-
atkvæðagreiðslu fékk fyrir nokkrum
vikum.
Arturo Rivera y Damas erkibiskup
i San Salvador hefur látið hafa eftir
sér að hann teldi litla þátttöku í alls-
herjarverkföllunum ekki vera sér-
staka traustsyfirlýsingu við stjórn
landsins. Þessi litla þátttaka væri til
komin af þörf almennings fyrir frið í
El Salvador. Ástæðan fyrir því að
fleslir létu vera að styðja verkföllin sé
sú að þeir vilji að eðlileg leið finnist
svo að morðurn verði hætt.
Satnt sem áður halda morðin
áfram. Taka skæruliða á verk-
smiðjum og sendiráðum heldur
áfram. Bifreiðar eru brenndar auk
strætisvagna og vöruhúsa. Mannrán
verða sífellt tíðari.
Mörg erlend sendiráð í höfuðborg-
inni San Salvador hafa lokað skrif-
stofum sínum. Þeir ibúar sem geta
hverfa á brott. Ferðamannaiðnaður
og fjárfestingar af ýmsu tagi hafa
nær algjörlega lagzt niður. Fjármagn
er flutt á brott þar sem það er fremur
utan hættusvæða.
Samkvæmt opinberum tölum er
talið að verðbólga í El Salvador verði
45% á þessu ári en í fyrra var hún
30%. Almennt er þó talið að raun-
veruleg verðbólga í lándinu sé nærri
lagi að vera 100%.
Erlendar skuldir aukast stöðugt en
á sama tima hefur dregið úr út-
flutningi. Fidel Chavez utanrikisráð-
herra El Salvador hefur sagt að
framtíð Mið-Ameríku muni ráðast
verulega af því hvernig málin skipast
þar í landi.
Ef vinstrimenn nái völdum í El
Salvador sé liklegt að það muni verða
til þess aðstjórn Nicaragua muni fara
enn nteir til vinstri en þegar er. Auk
þess ntundi það valda því að vinstri-
hreyfingum i löndum eins og
Honduras, Costa Rica og Guatemala
mundi vaxa fiskur um hrygg. Stjórnir
þessara ríkja allra eiga við að stríða
skæruliðahreyfingar vinstrimanna.
(Reuter)
Oftlega hefur komið til skotbardaga á götum San Salvador og á myndinni sést er
aldraður maður sem særzt hefur er borinn á brott.
Móðir og dóttir leita skjóls bak við litinn flutningabfI á meðan vinstrimenn og
öryggislögregla stjórnarinnar skiptast á skotum.