Dagblaðið - 14.10.1980, Side 9

Dagblaðið - 14.10.1980, Side 9
mm DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980. '9 Gefnir hafa veríð út eins dollars seðlar i Bandaríkjunum með myndum af fjörutfu þekktum stjörnum, — þar á meöal Frank Sinatra, Elvis Presley, Ronald Reagan og Elton John. Seðlar þessir eru seldir á fimm dollara stykkið. Elton John íblaðaviðtali: Karólína prinsessa sækirloks um lögskilnað Elton John. Fjögur hundruð þúsund manns komu að Central Park í New York. Karólína prinsessa af Mónakó hefur loksins farið fram á lögskilnað frá eiginmanni sínum, Philippe Junot. Með þvi hefur hún gert að engu þann orðróm að hún hafi ætlað að leita til Vatikansins um ógildingu á hjónaband- inu. Talsmaður furstans af Mónakó sagði í blaðaviðtali að Karólína hafi sótt um lögskilnað tíu dögum eftir að lokatil- raunin var gerð til að sætta þau hjónin. Það reyndist ekki unnt. Nokkur aldursmunur er á þeim hjónum Karólinu og Junot. Hún er 23ja ára og hann fertugur. Foreldrar hennar settu sig mjög á móti hjúskapnum á sínum tíma. Karólína lét það þó ekki á sig fá og giftist Junot 28. júní 1978. Þau bjuggu aðallega í Mónakó og París. Nánir vinir prinsess- unnar segja að hún hafi tiltölulega fljótt gerzt leið á ,,jet-sett” iifnaðinum í kringum mann hennar. Hún hélt sig þvi talsvert heima við á meðan Junot stundaði næturlífið óspart og fór oft til i útlanda. Þau hættu að búa saman i ágúst sl. Hefði ekkert á móti þvf að eignast þyrlu Liza Minelli varð að hætta við tónleika sfna i Boston vegna magaverkja. Á sjúkrahúsi kom i Ijós að hún er vanfær. Tveggja vikna hlé verður því á hljóm- leikahaldi hennar. Liza Minelli ísjúkrahús vegna óléttu i stað þessaðsyngja álónleikumeins og til stóð, lagðist söng- og leikkonan Liza Minelli inn á sjúkrahús, þegar hún kom til Bostonborgar i Bandarikj- unum. Fyrst i stað var vandlega þagað yfir því hvað að henni gengi, en loks gat framkvæmdastjórinn hennar ekki staðizt kröfur aðdáenda söngkonunnar og gaf út yfirlýsingu: Liza Minelli er ófrisk og ætlar að taka lifinu með ró næstu tvær vikurnar. Þessi yfirlýsing þaggaði niður í aðdáendaskaranum, sem þegar var búinn að tryggja sér aðgðngumiða að tónleikum Lizu Minelli. Hún er nú á tónleikaferð um Bandarikin og ætlar að halda henni ótrauð áfram að •vikunum tveimur liðnum. „Það er samkvæmt eindregnum ráðleggingum lækna Lizu, sem við látum hana hvíla sig í Boston,” sagði Jerry Roberts framl.væmdastjóri hennar. — Liza Minelli hefur að minnsla kosli tvisvar misst fóstur. Er hún hafði kvartað um magaverki stuttu eftir komuna til Boston var hún þegar rannsökuð á spítala þar. Niðurstaða þeirrar rannsóknar var að hún væri orðin ófrísk á ný. ,,Þú getur ekki tekið þá með þér héðan,” eru einkunnarorð Eltons John. Þar á hann við peningana sína. Og fyrst þeir eru ekki gjaldgengir í öðrum heimi er um að gera að eyða sem mestu á meðan maður getur hérna megin grafar. ,Mig langar ekkert til að eignast snekkju. Mér leiðast snekkjur. Ég hefði hins vegar ekkert á móti þyrlu, en ég er smeykur um að ég eigi ekki fyrir lienni. Jú, sennilega gæti ég kríað út fyrir einni en ég býst við að bókhaldar- inn minn ræki þá upp ramakvein,” sagði Elton John í nýlegu blaðaviðtali, þar sem peningaeyðsla hans barst í tal. Ég er þó hættur að eyða eins miklu og ég gerði,” sagði hann ennfremur. „Ég átti það til að kaupa Rembrandts- málverk í jólagjöf handa vinum mín- um. Það var kannski ekki alveg það gáfulegasta sem maður gat varið pen- ingunum til. Eg fjárfesti litið sem ekkert. Ég á bara húsið mitt og hluti, sem ég hef safnað að mér. Einhvern tíma keypti ég nokkur hlutabréf samkvæmt ráð- leggingu vinar míns. Viku seinna voru þau fallin í verði og hafa einhverra hluta vegna ekki náð sér upp aftur.” Risavaxið plötusafn Söfnunarástríða Eltons John er við- fræg. Hvar sem hann kemur kaupir hann hina óliklegustu hluti, en mest þó hljómplötur. „Mér þykir óskaplega vænt um plöt- urnar mínar,” sagði hann í viðtalinu. „Ég er ólikur flestum i poppbrans- anum að þvi leyti að ég þigg ekki plötur frá útgefendunum, heldur kaupi ég þær. Ég á sennilega um það bil fimmtiu þúsund LP plötur núna — er það kannski heimsmet? — og guð má vita hve margar smáskífur. Ég geymi plöturnar í sérstöku safni. Fyrsta herbergið sem ég lét innrétta þegar ég keypti húsið mitt var reyndar- plötugeymslan.” Fyrir nokkru kom út ný LP plata með Elton John. Hún nefnist 21 At 33. Á henni er meðal annars að finna lagið Little Jeanie, sem notið hefur mikilla vinsælda viða um heim að undanförnu. Elton er einnig byrjaður að skemmta á hljómleikum að nýju. Um miðjan siðasta mánuð kom hann fram á úti- hljómleikum í Central Park í New York. Fjögur hundruð þúsund manns komu til að sjá og heyra poppstjörn- una, sem kom fram klædd eins og önd. Kynvillan Á síðasta ári tilkynnti Elton John að hann væri kynvilltur. „Viðhorf fólks gagnvart mér hefur ekkert breytzt síðan ég gaf þessa yfir- lýsingu,” segir hann. Það þarf heldur enginn að hafa áhyggjur af mér. Ég er alltaf sami gamli Elton John.” Robert Mitchum er alveg að gefast upp á FayeDunaway Kvikmyndaleikarinn Roberl Mitchum er i sannleika sagt alveg að gefast upp þessa dagana. Hann er staddur i Mexikó, þar sem upptökur á nýrri sjónvarpskvikmynd um Juan Peron og Evu konu hans fara fram. Mitchum á að leika Peron og Faye Dunaway Evu. Og það er einmitt Fave sem fer svo óskaplega í taugarnar á Mitchum. Það eru geðvonzkuköst leikkon- 'unnar sem fara svona með skapið á Mitchum. „Ég verð að fá mér langar gönguferðir daglega til að róa mig niður,” sagði hann i samtali við banda- riskan blaðamann. „Annars er rnikil hætta að mér yrði á að missa annan fótinn af krafti í bakhlutann á henni.” Robert Mitchum verður að taka á allri sinni stillingu til að missa ekki fótinn i aftur- endann á mótleikkonu sinni, Faye Dunaway. Börn Peters Sellers óánægð með hungur lúsina sem þau fá Börmn þrjú, sem leikarinn Peter Sellers eignaðist draga mjög í efa rétt- mæti erfðaskrár þeirrar, sem hann lét eftir sig. í henni er hverju þeirra þriggja ætluð upphæð, sem nemur tæplega einni milljón íslenzkra króna. Ekkja Sellers fær aftur á móti í sinn hlut rúmlega fimm milljarða. Talsmaður systkinanna þriggja, umboðsmaðurinn Don Short, segir óliklegt að þau ákveði að höfða mál til ógildingar erfðaskránni. „Þau vilja aðeins fá i sinn hlut sanngjarna upp- hæð af því sem faðir þeirra lét eftir sig,” segir Short. Elwood Rickless, lögfræðingurinn, sem sér um að hver fái sitt af eigum leikarans, sagði er hann var spurður álits á kröfu systkinanna: „Þetta eru algjörlega nýjar fréttir fyrir mér.” Hann neitaði að láta hafa meira eftir sér um málið. Börn Peters Sellers eru Michael, 26 ára; Sarah, 23 ára og Victoria, 15 ára. Þau eru þessa dagana að vinna að bók um föður sinn. Að sögn Dons Short halda þau því fram að gifting hans og Lynne Frederick myndi hafa endað með skilnaði von bráðar hefði hann ekki látizt snögglega. Frú Frederick er jafngömul Michael Sellers. Brezk blöð höfðu eftir Lynne Frederick um þetta mál að börn eigin- manns hennar heitins ættu að „virða óskir hans. Hvers vegna geta þau ekki látið minningu hans í friði?” Lynne Frederick bætti því við að Sellers hefði gefið hverju barna sinna tuttugu þúsund sterlingspund er þau náðu 21 ársaldri. Börn Peters Sellers þrjú eru ákaflega óánægó meó upphæðina sem hann arfleiddi þau að. Ekki er þó búizt við að þau höfði mál til ógildingar erfðaskránni.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.