Dagblaðið - 14.10.1980, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 14.10.1980, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980. \ Kjallarinn JónasJónasson b) Uppbætur. Hér er eflaust um útflutningsbæturnar að ræða. Þær eru á fjárlögum 8,4 milljarð- ar. Samtals eru þetta 10,7 milljarðar, sem vissulega má telja beinan stuðning við landbúnaðinn. Þó að auðvitað komi sá stuðningur að verulegum hluta neytendum til góða í lægra vöruverði. c) Niðurgreiðsliir. Hvaða niður- greiðslur eru ákveðnar vegna bænda? Hvenær hafa bændur eða þeirra forsvarsmenn beðið um auknar niðurgreiðslur á land- búnaðarvörur? Niðurgreiðslur á landbúnaðarvörum eru eins og al- kunna er spil stjórnarvalda með vísitölu framfærslukostnaðar til þess að halda niðri vísitölu kaup-' gjalds. Þær fara eins og augljóst er inn á og út af reikningi skattgreið- enda og neytenda, sem eru nú einu sinni sami hópurinn i megin dráttum. Meira að segja bændur og fólk þeirra eru bæði skatt- greiðendur og neytendur í þjóð- félaginu en það gleymist nú ansi oft. Niðurgreiðslur á land- búnaðarvörur eru fyrst og fremst aðferð stjórnarvalda til jöfnunar álifskjörum. Bændur skiptir það hinsvegar miklu hvernig niðurgreiðslum á vörur þeirra er háttað þvi hefur aldrei verið neitað og þeir hafa hvað eftir annað óskað eftir þvi að fá að fylgjast með í spilinu vegna þess hve rokk fram og aftur með hlutfall niðurgreiðslna getur farið illa með markað þeirra. Til þessara margumræddu niður- greiðslna á landbúnaðarvörur eru ætlaðar á fjárlögum 24,4 milljarðar. „Svo er það þessi almenna þjónusta, að hafa samgöngur um landið og leiða um það rafmagn, er það nú orðinn „úthalds- kostnaður” við landbúnaðinn?” Hættið að tala um niðurgreiðslur á vöru- verði sem styrk til bænda ] Að framansögðu er Ijóst að engin glóra er í því að Ieggja þetta allt saman og telja allt úthaldskostnað vegna landbúnaðarins. Það er fullkomin rangfærsla og ósvífni af versta tagi að reikna niður- greiðslur á vöruverði sem styrki til ibænda. Þeir sem finna stöðugt þörf hjá sér að vera að skrifa um land- búnað ættu að venja sig af þessum ósið í eitt skipti fyrir öll, þeim mundi ' líða betur á eftir. Ósvrfnar dylgjur Þá er það niðurlagið á málsgrein- inni: ,,Eru þá ótalin lánin, jöfnunar- gjöldin, samgöngurnar og raf- magnið.” Hvaða nöfn ætti helst að gefa slíkum málflutningi sem þessum? Ekkert er sagt beinum orðum en því meira gefið i skyn. Dylgjur eru vægasta orðið. Dylgjur um að lán til bænda séu byrði á skattþegnum, um að greiða þurfi ómældar fúlgur í jöfnunargjöld, að kostnaður við samgöngur i landinu eigi að skrifast á reikning landbúnaðar og þá væntan- lega allar samgöngur jafnt i lofti á landi og sjó og svo rafvæðing landsins. Það er erfitt að sjá með vissu hvað maðurinn meinar og þvi ekki létt að gefa skýringar þó skal það reynt. Lánin. Eins og nú háttar nýjum lánum til landbúnaðarins er hvergi um neitt „niðurgreitt” fjármagn að ræða. öll lán til landbúnaðarins eru að fullu verðtryggð og bera auk þess hliðstæða vexti og teknir eru almennt í landinu af stofnlánum. Land- búnaðurinn hefur um þetta fylgt öðrum atvinnuvegum. Það fjármagn sem Stofnlánadeild fær frá riki, frá framleiðendum og sem gjald á búvörur, fer allt í að borga af eldri skuldum deildarinnar. Jöfnunargjöldin. ,,Nú gerðuð þér mig heimaskitsmát”, sagði Jón Hreggviðsson við frúna úti í Kaup- mannahöfn forðum dag. Hér verður beinlínis að auglýsa eftir því hvaða jöfnunargjöld maðurinn getur átt við, sem flokka mætti undir úthalds- kostnað við landbúnaðinn borinn lupp af ríki og skattgreiðendum. 4) Listin sem skálkaskjól. Ef listin þróast ekki í nánum tengslum við samfélag sitt hættir listamaðurinn að hafa nokkrar skyldur. Hann fer að ala sig upp sjálfur; það sem hann gerir verður list og list verður það sem hann gerir. Vandamálið felst í því að taka sig nógu hátíðlega. Telji einhver í alvöru að hann sé listamaður, er hann orðinn það. Þannig verður listin skálkaskjól klaufa og athvarf sérvitr- inga. Og skilji almenningur ekki lista- manninn verður það almenningsins sök. Listamaðurinn verður hvort tveggja í senn skjólstæðingur sinn og dómari. , S) Alltogekki neitt. Vaxi listin frá umhverfinu hættir henni til að stefna í tvennar öfgar. Annars vegar verður listín svo fram- andleg að hugsunin, ef einhver er, skilst ekki. Hins vegar verður listin .svo gagnsæ að hún hættir að hafa neitt að segja. í seinna tilvikinu rennur listin saman við veruleikann, verður hluti af honum i stað þess að túlka hann. Núorðið getur t.d. það að byggja sér hús verið „gerningur” og húsið sjálft „umhverfislist”. Þannig verður listin hvort tveggja í senn, allt og ekki neitt. 6) List og andi. Sumir afneita því að listin geti verið marksækin. Allar . tilraunir listamanna til að beina list sinni í einhvern farveg fyrirfram, eru i þessari skoðun af hinu illa. Lista- menn „fái andann yfir sig" og þurfi til að ná slikum transi að vera frjálsir og óháðir öllu og öllum.' Þessu er því til að svara, að þótt erfitt sé og jafnvel óhugsandi að setja allri list_markmið fyrirfram, ræðst '„andinn” sem listamenn fá yfir sig af aðstæðunum sem þeir búa við! Sá listamaður sem lifir og starfar i þröngri klíku listamanna fær öðru- vísi „anda” yfir sig en listamaðurinn sem lifir og starfar i nánum tengslum við samfélag sitt. Og það sem meira er: í seinna tilvikinu gengur leik- mönnum yfirleitt betur að hafa gagn af listinni. Að tala um að „fá andann yfir sig” sem einhvers konar loft- sendingu er auðvitað markleysa ein. Hugmynd eða hughrif eiga beina eða óbeina stoð í þeim veruleika sem hugsandi maður lifir í. \\arircn Hverjir eiga að njóta samfélagsþjónustu og hverjir eru óverðugir? Svo er það þessi almenna þjónusta, að hafa samgöngur um landið og leiða um það rafmagn, er það nú orðinn „úthaldskostnaður” viðland- búnaðinn? Hvílikur hugsunarháttur? Er ekki vega- og samgöngukerfi landsins gert jafnt fyrir alla lands- menn og notað af öllum landsmönn- ;um éftir því sem menn eiga erindi eða •og ekki siður hafa áhuga á að skoða landið. Er ekki vegakerfi Vesttjarða jafnt fyrir þorpin og bæina og sveitirnar svo dæmi sé tekið? Það sem fyrst og fremst hefur ráðið því hvernig samgöngukerfi landsins hefur verið byggt upp er „þörfin” fyrir sam- göngur, þar hefur fólksfjöldi og umferðarþungi skapað forgangs- röðunina. Mjög svipuðu máli skiptir um rafmagnið. Þeir sem fjærst búa þéttbýli og dreifðast biðu lengst eftir þessari sjálfsögðu samfélagsþjón- ustu. Að sjálfsögðu helgast þetta af því að því dreifðari sem byggðin var því dýrara var þetta á hvern íbúa. En hvar átti að draga mörkin? Hverjir áttu að koma i hóp fyrsta flokks þegna og hverjir að vera í kuldanum? Þarna er fráleitt að hægt sé að draga nokkur hagkvæmnismörk og segja hingað og ekki lengra. Það er enginn bær um að dæma hvaða byggðarlög eða hverskonar eru „baggi” á þjóðfélaginu. Ef gera ætti það alfarið upp og meta hver væru í þeim skilningi veitendur og hver þiggjendur, yrði að tína býsna margt á vogarskálarnar og allsendis óvíst á hvern hallaði að lokum. Slíkur samjöfnuður væri raunar harla fánýtur. Við getum hvorki lifað ;i þessu landi án borgar né sveita, hvorki án þorpa né kaupstaða og okkur vegnar ekki vel nema hinar ýmsu stéttir og fólk i hinum ýmsu byggðarlögum sýni nokkurn skilning :á þörfum og aðstöðu hvers annars. Skrif Jónasar Kristjánssonar um landbúnaðarmál eru lítið grunduð, þau eru ekki sanngjörn, þau eru ekki góðgjörn og síst til þess fallin að leiða til nokkurs góðs. i Jónas Jónsson Kjallarinn Rúnar Vilhjálmsson 7) Listamaðurog kennari. Sé listin tjáningarform hugsunar er hún um leið tæki í þágu mannsins til að efla þroska sinn tilfinningalega og I vitsmunalega. Listin gerir manninum kleift að skynja, skilja og tjá sjálfan sig og umhverfið eftir leiðum, sem vegna formgerðar eru frábrugðnar talmáli og ritmáli hvunndagsins. Vegna þess að formgerðir listarinnar eru ólíkar gerir það listamanninum kleift að tjá hugsun sem oft á tíðum er ekki hægt að koma orðum að. Hér er um mikilvægt atriði að ræða. Á sama hátt og kennari hefur þær skyldur við nemendur að búa orðum sínum þann búning að þeir skilji svo þcir megi þroskast, þá hefur lista- maður þær skyldur að búa listformi sínu þann búning að hann hafi eitt- hvað að segja og geti eitthvað sagt. Mannlegur þroski er að nokkru undir listinni kominn. í þessari stað- reynd felst ábyrgð listamannsins sem listamanns. Þá ábyrgð má hann ekki sniðganga. Og hinn íslenski lista- maður er ekki að skapa list fyrir París eða 21. öldina. Hann er að skapa list fyrir íslendinga í dag. - Rúnar Vilhjálmsson.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.