Dagblaðið - 14.10.1980, Síða 17

Dagblaðið - 14.10.1980, Síða 17
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980. 17 liósmyndadellu „Ljósmyndaáhuginn kom með táningaaldrinum og síðan hef ég verið með ólæknandi ljósmynda- dellu. Ég hef haldið tvær Ijósmynda- sýningar i Unuhúsi 1969 og í Galleri Sólon Islandus 1977. Núna er ég að vinna ákveðið verkefni sem ég vonast 'til að sýna einhvern tímann,” sagði Rúnar Gunnarsson nýráðinn dag- skrárgerðarmaður hjá sjónvarpinu. Rúnar Gunnarsson starfaði sem blaðaljósmyndari á Alþýðublaðinu og hjá tímaritinu Fálkanum áður en hann hóf starf sem kvikmyndatöku- maður hjá sjónvarpinu við stofnun þess 1966. „Mér fannst það vera framhald af blaðaljósmyndun að fara til sjónvarpsins sem kvikmynda- tökumaður. Það má segja að ég hafi verið tengdur myndrænni hlið fjöl- miðla frá þvi ég var unglingur,” sagði Rúnar sem nú er 35 ára. ,,Jú, það eru mörg verkefni sem ég er að vinna núna bæði skemmtiþættir og þættir með tónlistarefni. Starf dagskrárgerðarmanns er i rauninni framkvæmdastjórn á framleiðslu sjónvarpsþátta og starfið er mjög skemmtilegt. Hvað ég verð lengi í þessu er ómögulegt að segja um, enginn veit sina ævina fyrr en öll er.” Rúnar stjórnaði lengi útsendingum á fréttum og i tvö ár stjórnaði hann útsendingum á íþróttaþáttum Bjarna Felixsonar. Núna er hann sem sagt á kafi í dagskrárgerðinni, en hann lók við starfi Egils Eðvarðssonar. -ELA. Jóhann Konráðsson, kona hans og fjögur börn þeirra syngja inn á plötu Jóhann Konráðsson og kona hans Fanney Oddgeirsdóttir. Auk þeirra syngja fjögur börn þeirra með á nýrri plötu sem væntanleg er með fjölskyldunni. DB-mynd: Guðmundur Svansson. ASGEIR TÓMASSON Heiðursgestur SATT-kvöldsins annað kvöld verður Dato Triffler frá Húsa- vik. Hann flytur frumsamið efni. DB-mynd: Einar Ólason. Rúnar Gunnarsson dagskrárgerðarmaður hjá sjónvarpinu: „Ég er með ólœknandi Ævisaga Ólafs Thors jyrir jól? Matthías Johannessen, rithöfundur og ritstjóri, hefur um árabil unnið að ritun ævisögu Ólafs Thors. Er verk þetla orðið svo mikið að vöxtum, að áhöld eru talin á þvi, hvort unnt er að gefa þaðút nema í tveim bindum. Það er Almenna bókafélagið, sem ;gefur verkið úl Hcyrzt hefur að nú hafi verið. og sé raunar enn, róið á bæði borð til þess að minnsta kosli fyrra bindið geti komið út fyrir jólin, — eða jafnvel allt ritið. Halldór hættirhjá USIS Halldór Valdimarsson blaðamaður hefur sagt upp starfi sínu hjá Menn- ingarstofnun Bandarikjanna á íslandi, USIS, frá og með næstu ára- mótum. íslenzkir blaðamenn hafa notið að- stoðar Halldórs og góðrar samvinnu1 þann tíma sem hann hefur starfað hjá þessari stofnun. Hefur hann verið boðinn og búinn þegar til hans hefur verið leitað um upplýsingar og fyrir- greiðslu. Af margþættum ástæðum fyrir uppsögn Halldórs vegur sú þyngst að • hann hefur hug á að afla sér mennt- unar i blaðamannaháskóla og þá lík- lega á einhverju Norðurlandanna. Stéttabaráttan í skattinum Síðbúin skattalög hafa valdið starfs- fólki skattstofanna ótöldum óþægind- , um í allt sumar. Nú keyrir þó um þver- bak og segja sumir að allt sé i grænum sjó út af áætlun á þá fagmenn og sér- fræðinga, sem reki sjálfstæðan rekstur og séu í vinnu hjá sjálfum sér, ef svo másegja. Hér er átt við lögfræðinga með starfsstofur, bílstjóra, málara, múrara og fleiri iðnaðarmenn og menntastéttir, svo einhverjir séu nefndir. Utan við þetta standa svo bændur með ákaflega mismunandi ástæður, einkum vegna mismunandi mikilla skulda, sem hafa áhrif áskattmatið. Skattstofurnar telja sér heimilt að áætla kr. 8.1 milljón í laun hjá ofan- greindum starfsstéttum. Hittir þetta menn misjafnlega og sagt er, að athugasemdum linni ekki og mikill erill séaf þessari tilhögun. í fyrsta fundarhléi, sem gert var á nýbyrjuðu Aþingi, kom úlpuklæddur maður askvaðandi að Jakobi Jónssyni, yfirþingverði. Heimtaði hann þá þegar viðtal við Sighvat Björgvinsson, . alþingismann. „Það þýðir ekkert að koma i þetta hús froðufellandi af áhuga,” sagði Jakob sallarólegur um leið og hann jvísaði komumanni i áltina að þing- flokksherbergi Alþýðuflokksins. „Hér er það ekkert nema þolinmæðin ein, sem þrautir vinnur allar,” sagði Jakob og brá hvergi. ,,Ég hélt að það væri verið að gera grín að mér, þegar hann Snorri Hans- son plötuútgefandi sló á þráðinn til mín og stakk upp á því að fjölskyld- an tæki höndum saman um að gera eina hljómplötu,” sagði Jóhann Konráðsson söngvari er fréttaritari DB á Akureyri ræddi við hann. „Þegar i ljós kom að honum var blá- köld alvara var ekki um annað að ræða en að skjóta á fundi og ræða tnálið. Okkur leizt öllum vel á þetta áform Snorra, en þrjú systkini báðust undan að vera með.” Auk Jóhanns syngja því á plötunni Fanney Oddgeirsdóttir.kona hans, og börn þeirra, Jóhann Már, Anna Maria, Svavar og Kristján. „Þeir Jóhann og Svavar lögðu mikið á sig til að æfa undir upptökuna,” sagði Jóhann Konráðsson. „Jóhann býr i Litla-Dal i Skagafírði og Svavar í Keflavík í Húnavatnssýslu. Þeir bræður þurftu að aka til Dalvíkur, þar sem undirleikarinn býr og þurftu þeir að aka alllanga leið til að æfa sig.” Þriðji sonurinn, Kristján, kom síðan óvænt inn í myndina. Hann kom óvænt í heimsókn frá ítaliu, þar sem hann er við söngnám, og var þegar í stað gripinn til upptökunnar. — Rætt var við Kristján á Fólk-siðu DB fyrir nokkru. „Við hjónin erum nú komir á sjötugsaldurinn og nokkuð er l'ðið siðan ég söng síðast opinberleia,” sagði Jóhann Konráðsson. Fanney kvaðst syngja í Gígjunni á veturna og hafa verið meði henni frábyrjun. „Ég byrjaði tólf ára gömul að syngja í kirkjukór á Grenivík,” sagði hún. „Einnig sungum við bæði smá- vegis með karlakór Akureyrar. Söngurinn hefur alltaf verið mikill hjá okkur.” — Síðasta platan sem Jóhann Konráðsson söng inn á var hljóðrituð árið 1962. Þessi nýja fjölskylduplata, sem áreiðanlega er hin fyrsta sinnar teg- unar hérlendis, er væntanleg á markað í næsta mánuði. Hún var hljóðrituð í Studio Bimbó á Akur- eyri. •G. Svans, Akureyri. Rúnar Gunnarsson hefur starfað hjá sjðnvarpinu frá stofnun þess 1966. DB-mvnd Sig. Þorri. ^mm^mmmmmmm^m^mmmmmm^mm^^^mmmmmmm^m^^mmm"mmmmmmm^^^^^^^^^^^^^^^^^“ Tónlistarmenn af lands- byggðinni í meirihluta á nœsta SATT-kvöldi að tónleikarnir eru að sjálfsögðu ætlaðir öllum þeim, sem áhuga hafa á flutningi lifandi tónlistar. Skemmtunin annað kvöld hefst slundvíslega klukkan níu með leik Jazz-kvartetts Reynis Sigurðssonar. Tónlistarmenn utan af landi verða i meirihluta á næsta skemintikvöldi Samtaka alþýðutónskálda og -tón- listarmanna (SATT). Það verður haldið á Hótel Borg annað kvöld. Fram koma Jazz-kvartett Reynis ■Sigurðssonar, hljómsveitin Tíbrá frá Akranesi ásamt Valgeiri Skagfjörð (Og Dato Triffler frá Húsavík, sem verður heiðursgestur kvöldsins. Með Reyni leika í Jazz-kvartettin- um þrír liðsmenn Þursaflokksins, þeir Ásgeir Óskarsson, Tómas Tómasson og Þórður Árnason. Kvartettinn átti að koma fram á síð- asta SATT-kvöldi, en af þvi gat ekki orðiðaf óviðráðanlegum orsökum. Tibrá frá Akranesi er talin af kunnugum mjög efnileg hljómsveil., Hún flytur sína eigin dagskrá og leikur auk þess undir hjá Valgeiri Skagfjörð. Hann gat sér gott orð með ' hljómsveitinni Cabaret á árunum 1976—77 og lék einnig með Haukum um tíma. Valgeir starfar nú sem tón- listarkennari á Akranesi. Heiðursgestur kvöldsins, Dato Triffler, mun flytja yigið efni. SATT-kvöldin eru orðin fastur liður í skemmtanahaldi höfuðborgar- innar. Stefna samtakanna er sú, að. að minnsta kosti ein hljómsveit utan af landi leiki á hverju skemmtikvöldi. [Stjórn SATT vill vekja athygli á því •

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.