Dagblaðið - 21.11.1980, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1980.
8
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
TÍMAMÓTISAMSKIPT-
UM RÍKIS OG KIRKJU
— Reiknað með að kaþólskur maður verði skipaður í stjóm Póllands
Wysinski kardinUi, æðsti maflur
pólsku kirkjunnar.
Miklar líkur eru taldar á aö pólska
stjórnin muni á næstunni skipa ka-
þólskan mann í embætti varaforseta
landsins. Ef af þvi veröur er það eins-
dæmi i kommúnistaríki og mundi
marka þáttaski) i sambandi ríkis og
kirkju i Póllandi.
Heimildir greina að Jerzy Ózdow-
ski, þingmaöur kaþólskra samtaka,
verði skipaður í stöðuna, jafnvel
þegar á morgun. Sem kunnugt er þá
er kaþólska kirkjan mjög öflug í Pól-
landi og kannski hvergi öflugri en
einmitt þar. Rikisstjórn Póllands
hefur skorað á kirkjuna og hin sjálf-
stæðu verkalýðssamtök að leggja
sitt af mörkum til að leysa þann
vanda sem við er að fást í efnahags-
og þjóðlífi Póllands.
Alþjóðlegu verkalýðssamtökin
hafa fagnað samkomulagi pólsku
ríkisstjórnarinnar og hinna sjálf-
stæðu verkalýðssamtaka.
Við mikinn efnahagsvanda er nú
að etja i Póilandi og kemur hann i
kjölfar mikils uppskerubrests í land-
inu. Þannig hefur kartöflu- og korn-
uppskera verið mun minni en búizt
hafði verið við og sömu sögu er að
segja af sykurframleiðslunni. Pól-
verjar hafa að undanfömu fengið
mikil lán á Vesturlöndum og hafa
Sovétmenn lýst yfir óánægju sinni
með það.
REUTlR
Reagans. Hann átti fund með Reagan um sfðustu helgi.
Reagan hugar
að ráðherrum
Talið er að þess sé ekki langt að
bíða að Ronald Reagan, nýkjörinn
Bandaríkjaforseti, tilkynnti hverjir
verði ráöherrar í stjórn hans. Mest er
spennan í sambandi við hver hljóti
embætti utanríkisráðherra. Þar eru
einkum nefnd þrjú nöfn; Alexander
Haig, fyrrum yfirmaður herafla
NATO i Evrópu, öldungadeildar-
þingmaöurinn Henry Jackson, sem
raunar er demókrati, og Georg P.
Schultz, fyrrverandi fjármálaráð-
herra. Einnig hefur Kissinger verið
nefndur sem hugsanlegur möguleiki
en hann er þó talinn fremur ólíklegur
þar sem helztu ráðgjafar Reagans eru
honum andsnúnir. 1 önnur embætti
má nefna að John Connally, fyrrum
ríkisstjóri í Texas, þykir koma til
greina sem fjármálaráðherra.
Samkomulag
Bandaríkja
og Noregs
Bandaríkin og Noregur hafa komizt
að samkomuiagi um staðsetningu
bandarískra hergagna í Noregi, sem
yrðu notuð af bandarískum hersveitum
ef til óvæntrar árásar á Noreg kæmi,
að því er Thorvald Stoltenberg, varnar-
málaráðherra Noregs, greindi frá í gær.
Samkomulag þetta, sem kemur i kjöl-
far margra ára rannsókna og við-
ræðna, verður undirritað í Brussel i
næsta mánuði.
Eþíópía:
Sovézkum
læknum
sleppt
2 sovézkir læknar, sem verið hafa í
haldi skæruliða í Norður-Eþíópíu í
rúma fjóra mánuði hafa nú verið látnir
lausir. ,,Eftir nákvæma rannsókn
höfum við komizt að því að læknarnir
voru ekki beinlínis viðriðnir hernað svo
að við höfum ákveðið að skila þeim,”
sagði talsmaður skæruliðanna.
Richard Burton:
Ég á konu
minni líf-
ið að launa
,,Ég á konu minni lifið að launa.
Það er henni að þakka að ég hef sigrazt
á áfengisböli mínu, sem var að gera út
af við mig,” segir Richard Burton,
kvikmyndaleikarinn góðkunni um
eiginkonu sína, Susan, sem áður var
gift kappaksturskappanum James
Hunt. „Þegar ég hitti Suan hafði ég
gefizt upp í baráttunni við áfengið en
hún hjálpaði mér til að sigrast á
erfiðleikunum,” segir Burton.
Sýningum
erhætt
— á einni dýrustu
kvikmynd allra tíma
Frestað hefur verið að leigja út stór-
myndina Heaven’s Gate eftiraðhún
fékk slæma umsögn kvikmyndagagn-
rýnenda í New York. Kvikmynd þessi
er ein sú dýrasta sem nokkru sinni
hefur verið framleidd og nemur
kostnaður við hana um 36 milljón doll-
urum.
Mýndin tekur þrjár og hálfa klukku-
stund í sýningu og var henni stjórnað af
Michael Cimino, sem vann óskarsverð-
laun á síðasta ári fyrir beztu leikstjórn í
Deer Hunter eða Hjartarbananum eins
og sú mynd hefur verið nefnd á
íslenzku. Cimino hefur farið fram á að
myndin verði ekki sýnd aftur fyrr en
hann hafi gert á henni ákveðnar lag-
færingar.
Sjálfstæðu
verkalýðs-
félögin fá
aðgang að
fjölmiðlum
Hin sjálfstæðu og nýstofnuðul
pólsku verkalýðssamtök unnu einnj
sigurinn í viðskiptum sinum við pólsk'
stjórnvöld I gær er hin opinbera frétta-|
stofa PAP tilkynnti, að talsmenn
samtakanna muni koma fram í pólska!
ríkisútvarpinu á morgun. Það hefur|
verið ein af kröfum hinna sjálfstæðu
verkalýðssamtaka, að þau fái aðgang
að fjölmiðlum. Nú hafa þau einnig í
hyggju að gefa út eigið málgagn, sem
koma á út vikulega.
Ullman
hafnaði
tilboði
Bergmans
Liv Ullmann hefur hafnað boði
fyrrverandi eiginmanns síns, Ingmars
Bergman, um að leika í nýjustu mynd
hans, Fanny og Alexander. Eins og
DB hefur áður greint frá hefst taka
myndarinnar í Svíþjóð á næsta ári.
Hins vegar hefur dóttir þeirra Liv og
Ingmars fengið hlutverk í myndinni.
Dóttirin Linn er aðeins fjórtán ára,
,,en hún bað um hlutverkið og ég gei
ekki neitað,”sagði Bergman á blaða-
mannafundi um síðustu helgi.
Liv Ullmann.
Lin Piao hugðist
myrða Maó formann
— Réttarhöldin yfir f jórmenningaklíkunni hafin
Lin Piao, þáverandi forsætisráð-
herra Kína, ætlaði árið 1971 að myrða
Maó Tsetung formann og standa síðan
fyrir byltingu í landinu með aðstoð
hersins. Ástæðan var sú, að Lin Piao
sárnaði mjög að hafa ekki verið valinn
forseti landsins. Þetta kemur fram i
réttarhöldum þeim sem nú fara fram
yfir fjórmenningaklíkunni svonefndu í
Kína. Réttarhöldin hófust í gær.
Auk fjórmenningaklíkunnar svo-
nefndu voru sex aðrir sakborningar
leiddir fyrir rétt í gær þar sem þeir eru
sakaðir um að hafa átt þátt í dauða 35
þúsund manns ásamt bandamönnum
sínum.
í ákærunni segir að það hafi verið til-
gangur Lin Piaos að koma nýrri stétt
manna til valda í landinu. Réttarhöldin
munu fara fram í tvennu lagi, annars
vegar gegn Jiang Qing ekkju Maós og
öðrum fylgismönnum fjórmenninga-
klíkunnar og hins vegar gegn mönnum
úr klíku Lin Piaos.
Að sögn kinverskra fréttamanna
brustu nokkrir sakborninganna í grát
annað slagið, þar á meðal Jiang Qing,
ekkjaMaós.