Dagblaðið - 10.12.1980, Síða 14
14
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1980.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1980.
15
Iþróttir
Iþróttir
iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
Rut Ölafsdóttir, FH, bezt 1 800 m. Systir hennar Ragnbeiðiir
setti fslandsmet í 1000 m og 1500 m innanhúss.
Coventry City
í fyrsta sinn
í undanúrslit!
— sigraði Watford 5*0 í enska deildabikamum í gær
Coventry tryggði sér i fyrsta skipti i
97 ára sögu félagsins rétt í undanúrslit í
keppni, þegar liðið sigraði Watford 5-0
i gærkvöld i enska deildabikarnum.
Jafntefli varð í fyrri leik liðanna i Wat-
ford, 2-2, en i gær var aðeins eitt lið á
vellinum, Coventry. í undanúrslitum
leikur liðið við Wesl Ham og Coventry
hefur aldrei áður komizt svo langt i
keppni. Lengstum leikið i neðri
deildum ensku knattspyrnunnar frá 2.
deild niður í fjórðu. 1967 komst liðið
hins vegar i 1. deild undir stjórn Jimmy
Hill, sjónvarpsmannsins kunna nú, og
hefur haldið sæti sinu þar síðan.
Coventry hóf leikinn við Watford í
gær af miklum krafti og strax á fimmtu
mín. skoraði Peter Bodak hreint frá-
bært mark. Tók knöttinn niður með
skalla og skoraði viðstöðulaust. Eitt
fallegasta mark, sem sézt hefur í
Coventry. Áhorfendur heldur betur
með á nótunum — meiri áhorfenda-
fjöldi en áður á leiktímabilinu. Þar af
sex þúsund frá Watford. Siðan fylgdu
tvö mörk hjá Coventry fyrir hálfleik.
Fyrst skoraði Mark Hateley og síðan
Gary Thompson eftir snjallan undir-
búning Gerry Daly. Þannig stóð þar til
á 80. mín. að Steve Hunt skoraði
fjórða mark Coventry. Hateley, 18 ára
sonur Tony Hateley þess fræga knatt-
spyrnumanns hér á árum áður, skoraði
fimmta markið á 85. mín.
í undanúrslitum leika liðin heima og
að heiman á tímabilinu frá 12. janúar
til 9. febrúar. West Ham og Coventry
leika annars vegar, Liverpool —
Manch. City hins vegar, um réttinn til
að leika í úrslitum keppninnar á
Wembley í marz.
Chesterfield tryggði sér rétt i úrslit
skozk-enska bikarsins í gær. Gerði þá
jafntefli við Bury. Vann samanlagt 3-2.
Ingemar Stenmark
strax á sigurbraut
Sænski skíðasnillingurinn, Ingemar
Stenmark, sem sigraði bæði í svigi og
stórsvigi á vetrar-ólympíuleikunum í
ár, byrjaði vel í gær, þegar fyrsta svig-
keppni heimsbikarsins í vetur var háð í
Madonna á Italíu. Sigraði.
Strax í fyrri umferðinni náði Sten-
mark forustunni. Keyrði á 48,99 sek.
og var hálfri sekúndu á undan landa
sínúm Stig Strand, sem var óvænt í
öðru sæti. í síðari umferðinni náði
Paul Frommelt, Lichtenstein, beztum
tima en tókst ekki að ógna sigri Sten-
mark. Svíinn sigraði á 1:41,05 min.
Frommelt annar á 1:41,62 mín. Júgó-
slavinn Krijac varð þ'riðji, Strand
fimmti. Núverandi meistari, Andreas
Wenzel, Lichtenstein, féll úr i fyrri um-
ferð. Stenmark hafði enga möguleika
að sigra í keppninni á síðasta keppnis-
tímabili, þar sem hann keppti ekki i
bruni. Nú hefur reglunum verið breytt
og Stenmark er talinn hafa mesta
möguleika til sigurs. „Möguleikar
minir hafa aukizt — einnig annarra,”
sagði Stenmark í gær. „Hverra?”
spurðu þá blaðamenn. „Ingemars,
Ingemars, Ingemars,” sagði þá einn
blaðamaðurinn en Stenmark brosti þá
bara.
Brad Miley blakar knettinum ofan i körfu KR-inga i gærkvöld. Hann var langbeztur i
leiknum og átti stærstan þátt í sigri Vals. DB-mynd S.
óiafur Unnsteinsson - Frjáisar íþróttir 1980 Af rekaskrá kvenna í f r jálsum íþróttum 1980
Frjálsíþróttakonur í f ramför
5:15.1 Guðrún Magnúsdóttir UÍA
5:15.3 Linda B. Loftsdóttir FH
5:17.0 HelgaGuðmundsdóttirUMSB
5:17.0 Laufey Kristjánsdóttir HSÞ
Mín. 3000 m
9:36.0 Lilja Guðmundsdóttir ÍR
11:30.4 Sigurbjörg Karlsdóttir UMSE
11:32.4 Linda B. Loftsdóttir FH
11:50.4 Rakel Gylfadóttir FH
12 36.4 Sólveig Kristjánsdóttir UMBK
12:46.8 Þórunn Rakelsdóttir FH
Frjálsíþróttakonur eru í stöðugri fram-
för. Næsta ár keppa þær 1 EM-bikarkeppni
í 4. sinn. Liðið stóð sig bezt árið 1977 í
Sölleröd í Danmörku. Ingunn Einarsdóttir
ÍR var þá yfirburðakona — og sigraði i 100
m grhl. meðal annars Margit Hansen Dan-
mörku, ! Norðurlandamethafann í grein-
inni. 13.56 sek. áriö 1974. Hana þjálfaði ég
1973 — 1974 og setti hún 3 Danmerkurmet
undir minni leiðsögn.
Ingunn setti einnig íslandsmet í 400 m.
Sigraði á 55.3 sek., sem ennþá er íslands-
met og hljöp 100 m á 11.8 sek. Með
frammistöðu sinni einnig í boðhl. átti hún
stærslan þátt í því að ísland sigraði Grikk-
land öllum að óvörum og komst í undan-
úrslit í EM-bikarkeppni.
Lilja Guðmundsdóttir ÍR sigraði í 800 m
á íslandsmeti 2:06.2 mín., sem stendur
ennþá, og varð 3. í 1500 m. Þórdís Gísla-
dóttir ÍR sigraði grísku stúlkuna í hörku-
keppni um 3. sætið í hátökki og setti
Íslandsmet 1.76 m. Liðið var skipað að
öðru leyti þeim systrunum Láru og Sigrúnu
Sveinsd., Á. Sigurborgu Guðmundsd., Á,
Thelmu Björnsdóttur UBK Sigríði
Kjartansdóttur, Maríu Guðnadóttur KA
og HSH og Guðrúnu Ingólfsdóttur USÚ.
Þess skal getið að íngunn Einarsdóttir
Setti 45 Íslandsmet utanhúss á árúhuth
Í969—1979. Éihhig 18 met í boðhl. og 12
irioáttíiussqiet:
Lilja Guðmuridsdóttir ÍR hefur sett 25
íslandsmet utanhúss og 1.3 inni. Lára
SvpinSd, Á 19 Íslandsmet utanhúss og 15
inni. Sigrún Sveinsdóttir 7 íslandsmet
utanhúss og 8 inni. Þórdís.Gíslasóttir ,ÍR 7
hástökksmet útj og 10 inni, Sigurborg
Guðmundsdóttir eitt úti og 3 ipni auk boð-
hlaupa.
Þegar litið er á 10 manna afrekaskrá
ársins séstaO margar efnilegar afrekskonur
aðeins 13—16 ára eru á uppleið. Þannig að
eftir 2—4 ár ætti landsliðið að vera sterk-
ast, sé rétt á spöðunum haldið. Af þeim
sem skipuðu liðið 1977 eru aðeins Þórdís
Gíslad. ÍR. Sigríður Kjartansdóttir, María
Guðnadóttir og Guðrún Ingólfsdóttir í
góðri æfingu i ár. Haldi þær eldri áfram og
taki fram skóna á ný og skerpi formið með
hinum yngri frjálsíþróttakonum, þá verður
landsliðið mjög gott innan fárra ára.
Helga Halldórsdóttir KR er orðin
hlaupastjarna á Norðurlandamælikvarða.
Sló i gegn í ár og setti íslandsmet i 200 m,
300 m, langstökki og 100 m grhl. Sigriður
Kjartansdóttir KA náði 55.6 sek. i Kali-
forníu og nálgast met Ingunnar Einars-
dóttir, 55.3., sek., i 400 m Þuríður Jóns-
dóttir og Kristín Halldórsdóttir KA feta í
fótspor þeirra.Oddný Árnadóttir ÍR hefur
tekið stórstígum framförum.
Margar kornungar 13—14 ára stúlkur úr
Ármanni eru á framfarabraut undir leið-
sögn þjálfara sins, Stefáns Jóhannssonar.
Þær náðu frábærum tíma í 4 x 100 m
boðhl., 50,4 sek., sem er einn bezti timi á
Norðurlöndum í 13—14 ára fl. Fremstar
eru Jóna Björk Grétarsdóttir, Geirlaug
Geirlaugsdóttir, Kristbjörg Helgadóttir og
Aðalheiður Hjálmarsd. Svsturnar úr
FÚ, Ragnheiður og Rut Óialsdaítur, eru í
stöðugri framför og vekja alls staðar
athygli fyrir fallegan hlaupastíl. Ragn-
heiður Ólafsdóttir setti íslandsmet í.1000
m, 2:50.8 mín., ,í Vestur-Þýzkalandi og
nálgast Norðurlandametið 2:46.0 mín,
Eirmig, íslandsmet innanhúss í 1500 m,
4:23,5 mín„ og bætti einnig met Lilju
Guðmundsdóttir t, þeirri grein, sem var
4:27.5 mín. Myndir birtust af Ragnheiði í
víðlesnasta frjálsíþróttablaði heimsins,
„Leichtathletich,” tvívegis í sumar í sigur-
hlaupum. Systurnar nálgast einnig met
Lilju í 800 m, 2:06.2 mín. Kornungar
stúlkur i FH fylgja þeim eftir.með Lindu B.
Loftsdóttur 12 ára fremsta í flokki ÍR -
stúlkurnar settu met í 4 x 200 og 1000 m
boðhl.
Hér kemur þá afrekaskráin í hlaupun-
um. Rétt er að taka fram að talið er, að
handtímataka gefi 0.24 sek. betri tíma en
rafmagnstimataka.
sek. 100 m
12.26 Helga Halldórsdóttir, KR
12.30 Oddný Árnadóttir, ÍR
12.64 Jóna B. Grétarsdóttir Á
12.65 Sigríður Kjartansdóttir, KA
12.6 Þuríður Jónsdóttir, KA
12.6 Geirlaug Geirlaugsdóttir, Á
12.6 Guðrún Harðardóttir, ÍR
12.6 Kristín Halldórsdóttir, KA
12.6 Svafa Grönfeldt, UMSB
12.6 Hólmfríður Erlingsdóttir, UMSE
Handtímataka (meðvindur).
11.8 Helga Halldórsdóttir, KR
12.2 Oddný Árnadóttir, ÍR
12.2 Geirlaug Geirlaugsdóttir, Á
12.2 Helga D. Árnadóttir, UBK.
Sek. 200 m
24.96 Helga Halldórsdóttir KR
25.0 Sigríður Kjartansdóttir ÍR
25.54 Oddný Árnadóttir ÍR
26.35 Kristih Halldórsdóttir KA
26.38 Hólmfriður Erlingsdóttir UMSE
26.49 BryndísHólm
26.56 Svafa Grönfeldt UMSB
26.4 Ragna Erlingsdóttir HSÞ
26.5 Valdís Hallgrímsdóttir KA
Meðvindur
24.4 Sigríður Kjartansdóttir KA
24.4 Helga Halldórsdóttir KR
25:3 ÞórdisGísladóttir ÍR
Sek. 300 m
39.3 Helga Halldórsdóttir KR
41.3 Thelma Björnsdóttir UBK
42.6 Hólmfríður Erlingsdóttir UMSE
42.7 Valdís Hallgrímsdóttir KA
43.0 HrönnGuðmundsdóttirUBK
43.1 Geirlaug Geirlaugsdóttir, Á
43.3 Þuríður Jónsdóttir, KA
44.4 Kristín Halldórsdóttir, KA
45.2 Elín Viðarsdóttir, KR
45.9 Linda B. Loftsdóttir, FH
46.0 Kristín Guðmunsdóttir, KA
Mín. 800 m
2:07.6 Rut Ólafsdóttir FH
2:07.7 Ragnheiður Ólafsdóttir FH
2:11.1 Lilja Guðmundsdóttir ÍR
2:18.9 Thelma Bjömsdóttir UBK
2:23.8 Sigurbjörg Karlsdóttir UMSE
2:23.9 Sigriður Kjartansdóttir KA
2:24.2 Helga Halldórsdóttir KR
2:24.4 Guðrún Karlsdóttir UBK
2:24.4 Valdís Hallgrímsdóttir KA
2:27.0 Hrönn Guðmundsdöttir UBK
Mín. 1000 m
2:50.8 Ragnheiður Ólafsdóttir FH
3:19.3 Linda B. Loftsdóttir FH
3:19.7 Thelma Björnsdóttir UBK
3:35.8 Rakel Gylfadóttir FH
3:45.8 Helga Loftsdóttir FH
3:49.0 Linda B. Ólafsdóttir FH
Sek. 400 m
55.6 Sigríður Kjartansdóttir KA
56.15 Helga Halldórsdóttir KR
56.81 Oddný ÁrnadóttirÍR
57.96 Rut Ólafsdóttir FH
58.4 Lilja Guðmundsdóttir ÍR
59.30 Hrönn Guðmundsdóttir UBK
59.8 Ragna Erlingsdóttif HSÞ
60.05 Ragnheiðúr Jónsdóttír KSK
60.1 Valdís Hallgrímsdóttir KA
60.7 Guðrún Hárðardóttir ÍR
«1? Ouðrfln HiviÁirdlö'.lif IR
Mín. 1500 m
4:22.7 Ragnheiður Ólafsdóttir FH
4:28.6 LiljaGuðmundsdóttirÍR
4:31.0 Rut Ólafsdóttir FH
5:02.7 Sigurbjörg Karlsdóttir UMSE
5:03.6 Guðrún Karlsdóttir UBK
5:10.6 Þórunn Sigurðárdóttir'KA
Sek. 100 m grhl.
13.8 Helga Halldórsdóttir KR
14.1 Þórdís Gísladóttir ÍR
15.5 Kristbjörg Helgadóttir Á
15.5 Ragna Erlingsdóttir HSÞ
15.5 Hólmfrlður Erlingsdóttir, UMSE
'16.06 Valdís Hallgrimsdóttir , KA
16.13 Sigurbjörg Guðmundsdóttir, KR
16.74 Hjördis Árnadóttir, UMSB
16.7 Árney Magnúsdóttir, Uf A
17.0 Aðalheiður Hjálmarsdóttir, Á
17.1 Ouðrún E. Höskuldsdóttir, UMSÉ
Meðvindur.
13.7' Helga Halldórsdóttir KR
15.6 Valdis HallgrímSdóttir KA
■ Valdi-i Halli'rlnmlóitlt K A
Sek. 4x 100 m boðhlaup
49.06 Landssveit
49.8 ÍR
50.4 Ármann
50.59 KA
50.84 KR
50.94 UMSK
4 x 400 m boðhlaup
3:54.8 Landssveit
1000 m boðhlaup
2:19.2 ÍR
2:20.3 KA
2:22.0 FH
2:23.0 KR
Helga Halldórsdóttir, KR
bezt I spretthlaupunum.
KR-ingar ekki nógu Yow-
kvæðir og vonimar fuku
—Valsmenn lögðu KR að velli, 76-71, í úrvalsdeildinni í körfu og fátt getur nú
komið í veg fyrir sigur Njarðvíkur
KR-ingar fyrirgerðu að öllum líkind-
um möguleikum sínum á íslands-
meistaratitlinum i körfuknattleik er
þeir biðu lægri hlut fyrir Valsmönnum,
sem eru jafnvonlitlir um titilinn, i Höll-
inni i gærkvöld. Lokatölur urðu 76-71
„Get ekkert
sagt um málið”
DB hafði í gær tal af Bob Starr og
innti hann eftir því hvort James Breeler
myndi mæta til leiks með Ármanni
gegn ÍS á morgun í leiknum, sem skipt
gæti sköpum fyrir félögin. „Ég get í
raun ekkert sagt um málið ennþá,”
sagði Bob Starr og svör Guðmundar
Sigurðssonar voru á sömu leið.
-SSv.
Alan
Sunderland í
3ja leikja bann
Alan Sunderland, miðherji Arsenal,
var í gær dæmdur í þriggja leikja
keppnisbann. Var rekinn af velli gegn
Aston Villa í Birmingham á dögunum.
Þá var Charlie George, Southampton,
dæmdur í 400 sterlingspunda sekt
vegna framkomu við Ijósmyndara í leik
Norwich og Southampton í Norwich í
september.
Bill Rafferty, Newcastle — áður
Wolverhampton — var í gær seldur ti)
Portsmouth í 3. deild fyrir 80 þúsund
sterlingspund. Sterkur miðherji.
Val í vil eftir að staðan hafði verið 40-
39 Hlíðarendaliðinu í vil.
Greinileg taugaveiklun var á meðal
leikmanna beggja liða er leikurinn
hófst og spennan setti mörk sín á gæði
leiksins. Mikið var um mistök og vit-
leysur en munurinn varð aldrei mikill.
Valsmenn höfðu þó oftast yfirhöndina
en aldrei munaði miklu.
f upphafi siðari hálfleiksins náðu
Valsmenn fljótt 9 stiga forskoti og
hvernig sem KR-ingar reyndu tókst
þeim ekki að minnka muninn nema
niður í 3 stig, 66-63. Valsmenn gáfu sig
hvergi og geta fyrst og fremst þakkað
Brad Miley, sem átti stórleik, sigurinn.
Hann stóð sig hreint út sagt frábærlega
í vörninni og fór svo illa með Keith
Yow, sem venjulega er manna grimm-
astur undir körfunni, að hann hrökkl-
aðist út á völl og reyndi þaðan með litl-
um árangri.
Garðar hélt KR á floti í fyrri hálf-
leiknum með frábærum leik en datt
síðan verulega niður í þeim siðari,
hverju sem um er að kenna. Jón
Sigurðsson var sterkur eins og hans er
von og vísa en það dugði KR ekki að
þessu sinni. Leikmenn gerðu sig seka
um allt of mikið af vitleysum og því fór
sem fór.
Jón Steingrímsson átti stórgóðan leik
hjá Valsmönnum. Skoraði reyndar
ekki mikið en stóð mjög vel fyrir sínu
bæði i vörn og sókn. Þá var Kristján
sterkur og Ríkharður fór i gang í s.h.
en Torfi var ólíkur sjálfum sér.
Karfa íkvöld:
Fram-ÍBK
Einn af úrslitaleikjum 1. deild-
arinnar í körfuknattleiknum verður
háður i kvöld. Þá leika Fram og Kefla-
vík kl. 20.00 í Hagaskóla. Búast má við
skemmtilegum og tvísýnum leik hjá
þessum efstu liðum deildarinnar.
Allar „stjömur”
Schalke til söíu
Schalke 04, frægasta knattspyrnu-
félag Vestur-Þýzkalands gegnum árin
á nú i miklum fjárhagserfiðleikum.
Það svo að aliir beztu leikmenn félags-
ins hafa verið settir á sölulista. Þá á að
selja til að minnka skuldirnar.
Fyrir keppnistímabilið hótaði þýzka
knattspyrnusambandið félaginu að það
yrði að hætta í Bundeslígunni vegna
geysilegra skulda — þriggja milljóna
marka. Formanni félagsins, Hans
Joachim Fenne, tókst þá að fá stjórn
knattspyrnusambandsins til að skipta
um skoðun. Nú er hins vegar allt komið
í sama farið aftur hjá Schalke. Það er i
næstneðsta sæti í deildinni með níu stig
eftir 15 umferðir. Aðsókn lítil.
Leikmennirnir, sem settir hafa verið
á sölulista eru Rolf Rússmann, 30 ára,
sem lék í HM-liði V-Þýzkalands 1978,
markvörðurinn Norbert Nigbur, 32
ára, sem hefur leikið í vestur-þýzka
landsliðinu, Wolfram Wuttke, 19 ára,
og austurríski landsliðsmaðurinn Kurt
Jara, 30 ára. Talið er nær öruggt að
Russmann, mjög sterkur varnarmaður,
fari til Borussia Dortmund fyrir 800
þúsund mörk. Sem kunnugt er eru þeir
Atli Eðvaldsson og Magnús Bergs hjá
Borussia.
Stigin: Valur: Brad Miley 24, Krist-
ján Ágústsson 18, Ríkharður Hrafn-
kelsson 12, Jón Steingrímsson 8, Torfi
Magnússon 4, Jóhannes Magnússon 4,
Þórir Magnússon 4, Gylfi Þorkelsson
2. KR: Keith Yow 18, Jón Sigurðsson
18, Garðar Jóhannsson 18, Ágúst
Líndal 8, Bjarni Jóhannesson 4, Geir
Þorsteinsson 3, Eiríkur Jóhannesson 2.
- SSv.
Sigurður Sveinsson.
„Tek ekki tilboði í vetur"
— segir Sigurður Sveinsson, leikmaðurinn skotharði
„Nei, það hefur enginn frá Danker-
sen haft samband við mig — að
minnsta kosti ekki ennþá,” sagði
Þróttarinn skotharði, Sigurður Sveins-
son, þegar DB ræddi við hann i gær-
kvöld. Samkvæmt öruggum fréttum,
sem DB hefur fengið, benti Vlado
Stenzel, landsliðseinvaldur Vestur-
Þýzkalands, forráðamönnum Danker-
sen á Sigurð nokkru eftir landsleiki
íslands og V-Þýzkalands hér í Reykja-
vík á dögunum. Dankersen, sem
gengur ekki of vel í Bundeslígunni, er
talið hafa mikinn áhuga á að fá Sigurð
til sin.
„Þó ég fengi boð frá félaginu nú
mundi ég ekki taka því á þessu leik-
tímabili — það er í vetur. Hins vegar er
aldrei að vita hvað maður gerir næsta
haust en eins og málin standa er ég
ekkert að hugsa um Dankersen eða
önnur erlend félög,” sagði Sigurður
ennfremur.
Þess má geta, að þeir Axel Axelsson
Stórsigur
KRáíS
KR-dömurnar í körfunni eru ekki
auðsigraðar og það fengu stöllur þeirra
úr ÍS að reyna fyrir helgina. KR sigraði
65—47. Sigur KR byggðist mest á yfir-
burðum þeirra Lindu Jónsdóttur og
Maríu Guðnadóttur en þær skoruðu öll
stig KR utan 8. Linda var með 33,
María 23. Salína, Eria, Arndís og Sig-
rún allar með 2 stig hver. Fyrir ÍS skor-
aði Kolbrún 18, Þórdís 8, Anna Björg
6, Þórunn 5, Guðríður 4 og Kolbrún 2.
og Ólafur H. Jónsson léku lengi með
Dankersen — urðu Þýzkalandsmeistar-
ar með félaginu en eru nú báðir komnir
heim.
Þegar Sigurður Gunnarsson, lands-
liðsmaðurinn ungi í Viking, fór til
Bayer Leverkusen í haust var það eftir
ábendingu fráStenzel. -hsím
Kenny Dalglish, ein skærasta stjarna
Liverpool í dag.
„LiverpooJ—alltaf á toppnum”
Saga ensku meistarama
frá þvífyrir aldamót
Fyrir stuttu kom út bókin „Liver-
pool — alltaf á toppnum” í þýðingu
Sigurðar Sverrissonar, iþróttafréttarit-
ara hér á DB. Hagprent gefur bókina
út. Eins og titill bókarinnar gefur til
kynna er hér á ferðinni bók um ensku
meistarana og spannar hún allt aftur til
ársins 1892, er féiagið var stofnað.
Það eru vart nokkur áhöld um að
Liverpool er yfirburðalið í ensku knatt-
spyrnunni og hefur haldið sér á toppn-
um lerigur en dæmi eru til í Énglándi.
Síðustu tveir áratugirnir hafa verið við-
burðaríkastir i sögu félagsins og undir
leiðsögn þeirra Bill Shankly og Bob
Páisléý hefur félagið náð að skrifa nafn
siti á blöð sögunnar með frábærum af-
rekum sinum.
Úm helmingur bókarinnar fjallar um
„gullöld” Liverpool, þ.e. síðustu 18—
20 árin en fyrri hlutinn, sem er fyrir
margra hluta sakir e.t.v. enn áhuga-
verðari, greinir frá stofnun og upp-
gangi félagsins á síðasta áratug 19.
aldarinnar og fram eftir 20. öldinni.
Flestir þeir leikmenn er gert hafa garð-
inn frægan hjá félaginu eru nefndir í
bókinni þó svo mönnum eins og Elisha
Scott, Billy Liddeli og Kevin Keegan
o.fl. sé e.t.v. gert hærra undir höfði en
öðrum. Fjöldi myndaerí bókinni.
Liverpool er rótgróið félag í sögu
enskrar knattspyrnu og við lestur bók-
arinnar má í raun kynnast sögu hennar
frá 1892. Þar skiptast á skin og skúrir
og ekki fer á milli mála að þarna er
harðsvíruðbarátta.
Bók þessi kemur út á réttum tíma því
Liverpool hóf keppnistímabilið i haust
með 4 meistaratitla á sl. fimm árum í
pokahorninu og trónir nu efsj {'1.'
deildinni. Auk meistaratitlanna hefur
Liverpool unnið flesta þá titla sem
keppt er um í evrópskri knattspyrnu og
Ieikmenn félagsins hafa í fjögur skipti á
st. sex árum verið kjörnir knattspyrnu-
menn ársins af íþróttafréttamönnum í
Englandi. Þá kusu leikmenn ensku
deildanna Terry McDermott leikmann
ársins í fyrra. Það er því af nógu aéf
taka þegar flett er í gegnum bókina.
Ekki verður þó skilið við þessa
annars ágætu bók, án þess að minnast
á vægast sagt hroðvirknislega og t)ö.tur-
lega prentvillu fremst í bókinni. Þar
segir að Sigurður Sveinsson (ekki
Sverrisson) hafi þýtt bókina og skritað
eftirmála. Slikar villur eiga ekki að geta
átt sér staðí bókaútgáfu.
- hsím.
Knattspyrnufíð
í annarrí deildí Færeyjum
óskar eftir þjálfara sem þarf að spila með næsta sumar.
Uppl. i sima 76629 næstu kvöld.