Dagblaðið - 10.12.1980, Blaðsíða 20

Dagblaðið - 10.12.1980, Blaðsíða 20
20 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1980. FÁKS- FÉLAGAR Haldinn verður fræðslufundur fimmtudaginn 11. desem- ber kl. 20.30 í félagsheimili Fáks. Þar fjalla Ólafur Guðmundsson fóðurfræðingur, Haraldur Sveinsson og Bjarni Björnsson um fóðrun hrossa í máli og myndum. HESTAMANNAFÉLAGIÐ FÁKUR 1 nMMMMTY ur■ v M. Benz 309 rútubíll árg. ’71. Hvítur og rauður með sœtum fyrir 21 mann. Vökvastýri, ekinn 114 þús. km á vél. Möguleiki á góðu verði. Til sýnis á staðnum. jýf lillji !í:!í!! i 111 l |,< 11 ! M 111, .iiii 1111.1! iiiill SKEIFAN 5 — SÍMAR 86010 og 86030 Jólagjöf barnsins Þetta er 5. árið sem við bjóðum þessi vönduðu úr. Verð 19.500 Skífa Indíáni Hjóla skautam. Fótboltam. Svissnesk gæði Kaupin eru 9 bezt,|þar sem þjónustan er mest ■ 15 steina skólaúr fyrir stelpur og stráka. ■ Vatnsvarin, höggvarin og óslítanleg fjöður. ■ 1 árs ábyrgð. ■ Merkið tryggir gæðin. Póstsendum Úr og skartgrípir Jón og Óskar Laugavegi 70, sími 24910 Hljómsveitin Bakkabræður og brœðurnir Kertasníkir og Skyrgámur koma á jólatrésskemmtanir með söng, hljóðfæraleik, glens og gaman. Upplýsingar hjá Q- auglýsingaþjónustu Dagblaðsins í síma 27022 og í síma 31421 á kvöldin. I Menning Menning AÞUSUND OC EINN MÁTA MADDITT Höfundur: Astrid Lindgren. Myndskreyting: Ílon Wikland. Þýðing: Sigrún Arnadóttir. Mál og Menning 1980. Madditt og Beta búa á Sólbakka. Þar búa líka mamma og pabbi, Alla vinnukona, hvolpurinn Snati og ketUingurinn Gosi. Madditt sem er sjö ára, lætur sér detta ýmislegt í hug sem hún framkvæmir fyrr en hendi er veifað og Beta sem er aðeins fimm ára fylgir systur sinni eftir, þó svo henni finnist stundum uppátæki Maddittar glæfraleg. Ertu klikkuð, Madditt, ertu snarklikkuð, kveinar Beta, þegar Madditt bisar og togar hana með sér í ferðalag uppá þakið á eldiviðarskúrnum. Ertu klikkuð, Madditt, segir Beta þegar Madditt ætlar að stökkva í regnhlíf niður af þakinu á eldiviðarskúrnum. Madditt hafði heyrt um mann sem henti sér út úr flugvélinni sinni í stórri regnhlíf. Auðvitað skilur hún að það er ekki hægt að fljúga um allar trissur í regnhlíf eins og Óli lok- brá gerir, en það virðist vera heillaráð að nota regnhlíf, ef maður þarf að komast til jarðar úr flugvél. Eða. . . úr einhverjum öðrum háum stað. Og skúrþakið er hár staður. Ertu snar- klikkuð, segir Beta, þegar Madditt stendur yst á mænisásnum og spennir út stóru, svörtu regnhlifina. Iss, þetta er ekkert hættulegt, segir Madditt, þó henni finnist reyndar býsna langt til jarðar. En ef hægt er að stökkva út úr flugvél sem er þúsund metra uppi í loftinu, þá hlýtur að vera hægðarleikur að komast þannig ofan af eldiviðar- skúr. Prutt, prutt, prutt, segir Madditt og hermir eftir flugvél. Hún stikar beint út í loftið. Síðan heyrist dynkur. Madditt rotast og þarf að liggja i rúminu í fjóra daga og kemst þar af leiðandi ekki með i skólaferðalagið. Og þá verður Madditt svo ofboðslega öskuþreifandi vond og orgar svo það heyrist um allt húsið. \ Bók menntir Valdís Óskarsdóttir En í raun og veru er það ekki Madditt sem liggur í rúminu og orgar, það er eintóm sjónhverfing. Þetta er enginn annar en hann Óláta- belgur. Hann kemur í heimsókn þegar Madditt og Beta eru ekki eins þægar og ætlast er til. Og á meðan Ólátabelgur ólátast í gervinu hennar Maddittar, verður hún að halda sig uppi í reykháfnum þangað til honum þóknast að hypja sig. Betu finnst bara gott að Ólátabelg- ur skyldi koma í dag. Þvi þá er það hann sem finnur til í höfðinu og gubbar en Madditt situr uppi í reyk- háfnum og lætur sér líða vel. Ríkharður Einn daginn syngur Madditt: Komdu, Adolfína, komdu, Adolfína, hér er kætin og galsinn. Mamma hennar verður ekki par hrifin og spyr Madditt hver hafi kennt henni þennan vitlausa slagara. Madditt getur ekki sagt mömmu, að hann hafi hún lært heima hjá Abba Níelsar sem býr í húsinu við hliðina á þeim, þvi mömmu er eitthvað í nöp við fjölskylduna þar. Svo Madditt segir að Ríkharður hafi kennt henni slagarann. Hver er þessi Ríkharður, spyr Beta. Madditt svarar því til að Ríkharður sé bekkjabróðir hennar og í ljós kemur að hann er óttalegur pöru- piltur. Hann étur karamellurnar sem Madditt ætlar að gefa Betu. Hann hendir annarri bomsunni hennar Madditt úti skurð, það er honutii að kenna að stærðar blekblettur kemur í nýja kjólinn hennar. Það er hann sem fleygir reikningstöflunni hennar útí vegg til að prófa hvort hún sé sterk tafla (það var hún ekki). Ríkharður krotar alskegg á drottninguna i bók Maddittar og étur strokleðrið hennar. Það ætti að rassskella Ríkharð, segir Beta í hvert skipti sem Madditt segir frá þessum makalausa Ríkharði og uppátækjum hans. Pabbi segir að Ríkharður sé ekki með réttu ráði og mamma ætlar að tala við kennslukonuna um strák, en hún hefur svo mikið að gera að hún kemur því ekki í verk. En þegar Madditt kemur heim einn daginn, hefur Ríkharður klippt topp á hana með handavinnuskærun- um hennar og þá er mömmu nóg boðið og segist ætla að tala við kennslukonuna á morgun. Beta segir að það eigi að rassskella Ríkharð en þá tilkynnir Madditt að Ríkharður sé hættur í skólanum. Nokkrum dögum seinna hittir mamma kennslukonuna og þá kemur i Ijós að það hefur aldrei verið neinn Rikharður. Þetta er bara brot af því sem Madditt tekur sér fyrir hendur í sög- unni, því einsog áður sagði, þá hugkvæmast henni uppátækin fyrr en hendi er veifað. Að standa fyrir sínu í fyrra skiptið þegar ég las Madditt, fannst mér einsog allar barnabækur væru orðnar eins. Sama tuggan upp aftur og aftur. Fyndin, sniðug og skemmtileg uppátæki framkvæmd af fyndnum, sniðugum og skemmtilegum krökk- um í fyndnu, sniðugu og skemmti- legu umhverfi, skrifuð á fyndinn, sniðugan og skemmtilegan hátt af mismunandi fyndnu, sniðugu og skemmtilegu fólki. í nokkra daga gekk ég um grufi- andi og komst loks að þeirri niður- stöðu, að ef til væru þúsund og einn krakki og þúsund og eitt uppátæki og þúsund og einn rithöfundur, þá væri hægt að segja sögur á þúsund og einn máta. Svo las ég Madditt uppá nýtt. Astrid Lindgren hefur sagt; að verða fullorðinn er það sama og verða leiðinlegur, vanabundinn og hugmyndasnauður. Sé þetta rétt, þá hefur Astrid Lindgren tekist blessunarlega að losna við að verða fullorðin, því sögur hennar bera þess engin merki að hún sé leiðinleg, vanabundin og hugmyndasnauð — þvert á móti. En það er lika annað sem Astrid hefur og kemur vel fram í bókinni um Madditt. Það er innsæi í hugarheim og tilfinningalíf barna og sé maður ekki sjálfur búinn að gleymá þvi að einu sinni var maður lítill, þá trúi ég ekki öðru en maður finni eitthvað af sjálfum sér í Madditt og Betu. Bókin um Madditt var gefin út í Svíþjóð 1960 en samt bendir ýmislegt til þess, að sagan sé skrifuð þó nokkuð fyrr og dreg ég þá ályktun af prýðisgóðum myndskreytingum Ilon Wikland svo og öðru sem kemur fram í texta bókarinnar. En það rýrir ekki gildi sögunnar um Madditt, heldur sýnir fram á, að góð barnabók stendur fyrir sínu, þó svo að umhverfi og venjur breytist.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.