Dagblaðið - 20.01.1981, Blaðsíða 1
7. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1981 — 16. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AÚGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI1L—AÐALSÍMI 27022.
DB-mynd: Einar Ólason.
Katrín dregin af strandstað
Kröflusvæðið:
„Krítísk
staða”
— Almannavamirí
viðbragðsstöðu
„Það er komin kritísk staða
hér,” sagði Bára Björgvinsdóttir
jarðfræðingur á skjálftavaktinni i
Mývatnssveit í morgun. Land
hefur aldrei náð meiri hæð á
Kröflusvæðinu en nú, þannig að
búast má við kvikuhlaupi þá og
þegar.
„Kvikuhlaup getur komið
hvenær sem er, en það getur
einnig dregizt í mánuð,” sagði
Bára. „Við erum alltaf til taks og
almannavarnarkerfið tilbúið.”
„Það var gert gott skipulag hér
í nóvember um brottflutning
fólks og fleira ef gos kæmi upp í
byggð,” sagði Jón E. Friðriksson
sveitarstjóri Skútustaðahrepps í
morgun. „Þetta skipulag er enn i
gildi. Hér eru vísindamenn á
staðnum og aukin vakt i Kröflu-
virkjun. Þá eru komnir sjálfrit-
andi mælar víða, þannig að við
teljum okkur nokkuð örugga.
Það sem veldur okkur mestum
ótta núna er ótrygg veðrátta og
samgönguerfiðleikar.” .jh
Óttaztumkanad-
ískaflugvél
Leit stendur nú yfir að kanda-
dískri flugvél með tveim mönnum
innanborðs. Síðast spurðist til
hennar um kl. 18 í gærkvöldi og
var hún þá yfir radíóvitanum í
Prins Christians fjörð '|1
Grænlandi. Eldsneytisbirgðír
vélarinnar dugðu til flugs til kl.
hálf tvö i nótt en vélin hafði
áætlað að lenda í Reykjavík rétt
fyrir kl. 22 í gærkvöldi. Hún var á
leið frá Goose Bay í Labrador.
Vélar frá Varnarliðinu og
Landhelgisgæzlunni héldu til leit-
ar í gærkvöldi en ekkert hefur enn
spurzt til hennar. Veðurskilyrði á
leitarsvæðinu eru afleit, mikið
hvassviðri og ísing upp í 14.000
feta hæð en vélin hafði áætlað að
fljúga í 11.000 feta hæð.
Flugvélin er af gerðinni Cessna
402, tveggja hreyfla og 8 sæta.
-KMU.
Vélbáturinn Katrín frá Vestmanna-
eyjum var dregin á flot af strand-
staðnum vestast á Skeiðarársandi um
hálfsexleytið í gærkvöld. Mynd þessi
var tekin svo sem hálfri klukkustund
áður. Er blaðamaður og ljósmyndari
DB flugu yfir strandstaðinn var þar sex
til sjö vindstiga norðanátt og mikið
brim og aðstæður allar til björgunar
hinar erfiðustu. En skömmu síðar tókst
að láta björgunartaug reka frá Katrínu
yfir í Þórunni Sveinsdóttur, sem lónaði
þarna nokkra metra í burtu. Tókst að
koma bátnum á flot í fyrstu tilraun. ÁT
— sjánánarábls. 11
Miklir efnahagserfiðleikar mæta Ronald Reagan
— sem í dag tekur við forsetaembætti Bandarík janna — sjá erl. f réttir á bls. 6-7