Dagblaðið - 20.01.1981, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 20.01.1981, Blaðsíða 4
4 f Vangaveltur um stjómmál —í tilefni af niðurstöðum skoðanakömunar Dagblaðsins um fylgi ríkisstjómarinnar — Ertu fylgjandi eða andvig(ur) rfkisstjórninni? spurðu starfsmenn Dagblaðsins pétur & pál víðs vegar um land í skoðanakönnun blaðsins fyrr í janúarmánuöi. Sem fyrr voru 600 manns spurðir þessarar spurn- ingar og niðurstaðan varð sú að 61.5% viðmælendanna studdu ríkisstjórnina, 20.8% voru henni andvígir og 17.7% óákveönir. Það þýöir að þrir af hverjum fjórum sem taka afstöðu segjast fylgja ríkisstjórninni að málum. í september 1980 var hugur kjós- enda skoðaður með sams konar spumingu og jafnstóru úrtaki i könnun á vegum Dagblaðsins. Þá studdu 41.2% stjórnina, 25.8% voru andvígir og 33% óákveðnir. Séu niðurstöður beggja kannana skoðaðar í samhengi vekur fyrst athygli að ríkisstjórnin virðist hafa fjölgað þeim sem skipa stuðnings- mannaklúbb hennar. Er ástæða til að ætla að svo sé? Hvers vegna? Hvað er það í stefnu og starfi rikisstjórnarinnar sem hefur orðið þess valdandi að fylgi færðist á milli ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu á fáeinum mánuðum? Dagblaðið hafði samband við nokkra menn sem vegna áhuga og/eða atvinnu velta vöngum yfir hræringum i stjórnmálaheiminum og bað þá að veita lesendum hlut- deild í þeim vangaveltum. -ARH. Inga Jóna Þórðardóttir framkvæmda- stjóri Sjálfstæðisf lokksins: FÓLK TILBÚIÐ AÐGEFA STJORNINNI TÆKIFÆRI —tiladgeraeitthvað „Samkvæmt skoðanakönnun DB, þegar ríkisstjórnin var mynduð, naut hún stuðnings 70,8% kjósena en and- vig voru 8%. Skoðanakönnunin í september sýndi mjög breytta stöðu þar sem ekkert hafði þá komið frá ríkisstjórninni. Nú aftur á-móti, þegar sett hafa verið bráðabirgðalög og birt áætlun um efnahagsaðgerðir sem í veigamiklum atriðum er óljóst hvernig framkvæma skuli, endur- heimtir stjórnin að hluta til fylgi sitt. Þetta gefur til kynna að fólk er tilbúið að gefa ríkisstjórninni tæki- færi til að gera eitthvað,” sagði Inga Jóna Þórðardóttir framkvæmda- stjóri Sjálfstæðisflokksins. ,,Nú þegar ríkisstjórnin kemur fram með sínar fyrstu aðgerðir hefur hún glatað stuöningi fjölmargra þeirra sem studdu hana í byrjun. Eftirtektarvert er hversu miklu stærri hópur er nú andvígur rikisstjórninni en var í febrúar sl., eða 20,8%. Sú túlkun DB að miða við þá sem segja annaðhvort já eða nei er óeðlileg þar sem hlutfall óákveðinna í skoðana- könnunum gefur ýmislegt til kynna,” sagði Inga Jóna Þórðardóttir. -ELA. Inga Jóna Þórðardóttlr: Óeðlilegt að mlða aðeins við þá sem taka afstöðu. DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1981. Bragi JAsepsson: Rikisstjórnin hefur gott lag á mörgum málum mlðað við aðstæður. Bragi Jósepsson lektor íKemarahá- skólanum: FÓLK VILL EKKISTJÓRN- ARKREPPU , ,Ég sé ekki ástæðu til að rengja út- komuna í skoðanakönnuninni. Kannanir ykkar hafa gefið glettilega góða útkomu, að minnsta kosti þær sem hægt hefur verið að sannreyna í kosningum,” sagði Bragi Jósepsson lektor i Kennaraháskólanum. Bragi fylgir Alþýðuflokknum að málum og starfar fyrir flokkinn í nefndum á vegum Reykjavikurborgar. ,,Mér kæmi ekki á óvart að fylgi ríkisstjórnarinnar væri jafnmikið og könnunin sýnir nú. Hins vegar gerði Dagblaðið sams konar könnun i september í fyrra og þá kom mér á óvart að rikisstjórnin fékk ekki meira fylgi en raun varð á. Ég vil þó jafn- framt taka skýrt fram að ég tel könnun um fylgi við ríkisstjórnina ekki gefa mynd af stöðu stjórnmála- flokkannasjálfra. Það er margt sem spilar inn í þegar menn meta ríkisstjórnina. Við lifum á slæmum tímum og fólk vill hafa ríkisstjórn, hvaða nafni sem nefnist, í stað þess að upplifa stjórnarkreppu og kosningar. Ég vil láta stjórnina njóta sanngirni og segi að hún hafi gott lag á mörgum málum miðað við aðstæður. Kjarni málsins er sá að spurningin er ekki endilega um það hvað flokkarnir heita heldur hvers konar samsteypustjórnir eru mynd- aðar. Núverandi samsteypa virðist hafa tekizt vel. Hún er anzi seig og margt vinnur með henni. Af viðtöl- um mínufn við fólk ræð ég að mikill meirihluti sjálfstæðismanna standi frekar með ríkisstjórninni heldur en stjórnarandstöðu Sjálfstæðisflokks- ins. Menn eru logandi hræddir við að stjórnin springi og vilja það ekki. Mjög margir eru tilbúnir að leggja hart að sér til að bæta ástandið hjá okkur,” sagði Bragi Jósepsson. -ARH. Jón Sigurðsson rítst jórí Tímans: Fólkið vill gefa rík- isstjóminni óvenju- lega gott tækHæri vilja og stuðnings meðal almennings og það er þeim mun merkilegra sem verðbólga er mikil. Aðgerðirnar fela í sér kjaraskerðingu og stærsti stjórn- málaflokkur landsins er klofinn í af- stöðu. Það fer ekki á milli mála að fólkið vill gefa ríkisstjórninni alveg óvenjulega gott tækifæri til að koma stefnu sinni í framkvæmd. Að þessu leyti t.d. hafa orðið alger stakkaskipti i afstöðu fólksins á örfáum árum. Ríkisstjórnin hlýtur að nota þessa frábæru aðstöðu til að vinna af kappi að undirbúningi enn frekari aðgerða til þess að tryggja varanlegan árangur,” sagði Jón Sigurðsson ritstjóri Tímans. „Reynslan hefur sýnt að það hefur verið hægt að taka mark á skoðana- könnunum DB. Ég geri ráð fyrir að það sama eigi við í þetta sinn enda þótt ég viti ekki um aðferðir blaðsins við framkvæmdina. Ríkisstjórnin og stjórnarflokkarnir hljóta að taka niðurstöðunum af mikilli ánægju. Það er greinilegt aö aðgerðir ríkis- stjórnarinnar njóta yfirgnæfandi vel- K Jón Sigurðsson ritstjóri: Alger stakkaskipti i afstöðu fólks á örfáum árum. Svanur Krist jánsson lektor í stjómmálaf ræðum: Menn lýsa van trú á stjómar- andstöðunni „Þessi útkoma ríkisstjórnarinnar er marktækari en niðurstöður fyrri kannana um fylgi ríkisstjórnarinnar vegna þess að nú liggur eitthvað ákveðið fyrir um stjórnarstefnuna. Menn eru ekki lengur aðeins að tjá feginleika sinn yfir að myndun ríkis- stjórnarinnar yfirleitt tókst,” sagði Svanur Kristjánsson lektor í stjórn- málafræðum við félagsvísindadeild Háskóla tslands. ,,Ég held þó að menn ættu að fara varlega í að eigna ríkisstjórninni skil- yrðislaust svona mikið fylgi kjós- enda. Margt spilar ábyggilega inn í þegar menn svara spurningu um af- stöðu sína. Ég er ekki viss um að þeir' - sem svara jákvætt séu allir ánægðir með stjórnina. Þeir vilja þó gefa henni kost á að reyna sig og eru ánægðir með að hún reynir eitthvað ' að gera þrátt fyrir allt. Síðast en ekki sízt geta menn á þennan hátt lýst vantrú á stjórnarandstöðunni. Það má spyrja sem svo: Hvaða kostir bjóðast aðrir en núverandi ríkis- stjórn? Ég tel að einhverjir lýsi sig fylgjandi ríkisstjórninni af því þeim lízt ekki á hina kostina. Stjórnarand- staðan er mun sundurlausari en hún var. Sjálfstæðisflokkurinn er klofn- ari en nokkru sinni fyrr og skemmst

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.