Dagblaðið - 20.01.1981, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 20.01.1981, Blaðsíða 10
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1981. lOi-... DB á ne ytendamarkaði Dóra Stefánsdóttir® Spörum orkuna: Hrogn og lifur Meira að segja hann Óli Pill litli Einarsson veit að þegar hann eldar matinn á ekki alltaf að hafa fullan straum á öllum eldavélarhellum. Þegar soðið er i pottunum er bæði betra og ódýrara að minnka strauminn. DB-mynd Einar Ólason. á leigu Skíðaíþróttin er vinsæl þessa dagana þar sem snjór hefur víðast' verið mikill og góður. En skíði eru fremur dýr og menn tíma varla að kaupa sér þau upp á von og óvon. Því hlýtur að vera góður markaður fyrir það að leigja út skiði. Það er einmitt það sem Tjaldaleigan er að gera þessa dagana. Þann annan janúar opnuðu þeir skíðaleigu í húsi sínu við Umferðar- miðstöðina. Hægt er að fá hvers konar svigskiði svo og gönguskíði, skíðaskóaf öllum stærðum og stafi. Opið er daglega frá klukkan 10— 12 og 13—18 virka daga og 9— 14 og 18—20 um helgar. Endurgjald fyrir svigskíði ásamt stöfum og skóm er 90 krónur fyrir fyrsta leigudag og 50 krónur fyrir hvern dag eftir það. Gönguskíði ásamt stöfum og skóm er hægt að fá á 80 krónur fyrsta daginn og 40 krónur eftir það. Síminn hjá skíðaleigunni er 13072. -DS. UPPÞVOTTAVEUN DYRUST í REKSTRI Ráð til raforkusparnaðar 1. Þrepastilli á eldavélarhellu skal stilla á hæsta straum þar til suða kemur upp, eftir það nægir lægsti straumur. Hitastilli skal stilla strax á það hitastig sem óskaðer eftir. 2. Pottar og pönnur eiga að vera með sléttum og þykkum botni. Pottar meö kúptum botni þurfa allt að helmingi meiri orku. Pottar og pönnur eiga að þekja alla plötuna. Fjórðungur orkunnar fer til spillis ef pottur sem er 16 sentimetrar í þvermál er látinn á 18 sentimetra plötu. Lokið á pottinum þarf BLÓMAHORNIÐ að vera hæfilega þétt. Til að viðhalda suðu þarf þrisvar til fjórum sinnum meiri orku ef lokið er ekki á. 3. Nóger aðnota 1—3 desilítraaf vatni viðsuðu á kartöflum ogöðru grænmeti. 4. Bezt er að þiða frosinn mat í ísskápnum. Það þarf meiri orkuog tekur allt að þriðjungi lengri tima að matreiða frosin matvæii. Athugið að frosið grænmeti er bezt að matreiða beint. 5. Reynum að nýta ofninn vel, t.d. með því að baka og steikja samtímis rétti sem þurfa sama hitastig. Hitinn kemur í veg fyrir að réttirnir fái bragð hver af öðrum. Orkan nýtist einnig betur ef steikt er og bakað hvað á eftir öðru. Grillun á mat (glóðarsteiking) er orkufrek. T.d. þarf tvisvar til þrisvar sinnum meiri orku við að grilla kjúkling en að steikja hann í potti. 6. Ef vafi leikur á steikingartima þá er gott að nota steikhitamæli. Allar steikur- og ofnrétti má setja í kaldan ofn. Steikningartíminn lengist um 5—10 min. en orkan nýtist betur. 7. Auk orkunotkunar viftunnar eykur hún loftskiptin i íbúðinni, þannig að kostnaður við hitun vex. 1 stað loftsins sem viftan blæs út þarf ferskt loft. Þegar viftan er í gangi fæst rétt loftræsting ef eldhúsglugginn er lokaður, en þess í stað haft opið inn i annað herbergi hússins, þar sem gluggi er opinn. Nauðsynlegt er að hreinsa siuna í viftunni reglulega, t.d. mánaðarlega. 1 flestum viftum er spjald sem opnast þegar viftan er í gangi, ef spjaidið opnast ekki þá er viftan óstarfhæf, og ef spjaldið lokast ekki myndast dragsúgur og upphitunarkostnaður eykst. 8. Uppþvottavél er meðal orkufrekustu heimilistækjanna. Það sparar orku að setja hana ekki í gang fyrr en hún hefur verið fyllt alveg. Hagkvæmt getur verið að handþvo potta og aðra stóra hluti sem taka mikið pláss i vélinni. í einn uppþvott í vél með 60°C heitu vatni fara um 2,5 kWh af rafmagni. Á hita- veitusvæðum er sjálfsagt að athuga hvort tengja má uppþvottavélina við heitá vatnið, við það sparast rafmagn sem annars færi í að hita vatnið. Á skiðum ikemmti ég mér segir I visunnl. En skifli eru fremur dýr nema þau séu tekin á leigu. DB-mynd Hörflur. Skíði AECHMEA FASCIATA Blómsturananas Blómsturananas er ættaður frá Brasilíu. Til er fjöldinn allur af fallegum afbrigðum sömu tegundar. Plantan er falleg allt árið og hefur pípulaga blaðkrans. Blómsturanan-i asinn blómstrar á vorin með skærblá-1 um blómum. Þegar blómin visna skrýða bleik bikarblöð plöntuna uml það bil í hálft ár. Blómsturananas þrífst bezt á björtum stað, því að þá. verða litir blaðanna tærastir, en samt sem áður er hann ekki vandfýsinn á birtuskilyrði. Oft heyrist kvartað yfir' þvi að blóm þrifist ekki í heitu stofulofti, en það á ekki við um blómsturananasinn. Yfir sumarið er plantan vökvuð ríkulega og áburðar- upplausn gefin öðru hverju. Yfir veturinn er dregið úr vökvun, en gæta skal þess að blaðbikarinn í miðju plöntunnar sé fylltur með vatni allt árið. Plantan þrífst bezt í mold, sem lítillega er blönduð með sandi eöa vikri og er umplantað á vorin. Blómsturananas er hægt að fjölga með græðlingum af hliðarsprotum. Þeir eru skornir í burt þegar þeir hafa: náð u.þ.b. 15 sm lengd. Skerið þá ofan frá þannig að ræturnar skaðist ekki. Sprotunum er stungið i potta og geta blómstrað næsta vor. Þrífst bezt á björtum, stafl. Vökvið 1 blaflbikar- inn, vökvið moldina litifl. Vökvið rikulega yfirsumarið. Áburðarupplausn gef- in öðru hverju yfir sumarið. Þrífst vel f heitu stofu- lofti. 1 Nú er mikil sælutíð fyrir margan. matmanninn sem vel kann að meta hrogn og lifur. Þetta tvennt fæst núorðið víða í fiskbúðum og jafnvel kjörbúðum. Hrognin kosta núna 20 krónur kílóið og lifrin það sama. Þetta er ekki beint ódýr matur en ákaflega hollur og góður. Flestir sjóða ugglaust hrognin og lifrina í saltvatni i svo sem kortér. Sums staðar er það siður að sjóðá fisk með en annars staðar ekki. Köld hrogn er líka hægt að steikja eða borða niðursneidd með fersku grænmeti ef það fæst. Ef steikja á hrognin er þeim velt upp úr krydduðu raspi eða hveiti og steikt eins og fiskur. Laukur er steiktur með. Góðar kartöflur eru ómissandi með þessum lostæta mat en því miður virðist nokkur hörgull á þeim hjá Grænmtisverzlun land- búnaðarins. Hvers konar grænmeti, sérleganýtt ereinniggott meö. N Hjördis Þorbjörnsdóttir fisksalii heldur þarna á gimilegum hrognum oglifur. DB-mynd Bj. Bj. Það hefur ekki verið talin ástæða margir hræddir um að of stór til að gefa börnum mjög mikið af skammtur gæti valdið vítamíneitrun. lifur á unga aldri. Hún er auðug af En jafnvel ungbörnum er hollt að fá

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.