Dagblaðið - 20.01.1981, Blaðsíða 18
18
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1981.
Veðrið
Spéð er austanátt um alt land,
rigning eða siydda á Suðuriandl og 1
skýjað fyrir noröan.
Kkukkan 6 var sunnan 4, slydda og
1 stig I Reykjavfc, austan 6, hriö og -
3 stig á Gufuskákim, austan 2, skýjað
og —4 á Qaltarvita, hœgviðri, skýjað
og —5 stig á Akureyri, austangola,
skýjað og —1 stlg á Raufarhöfn, hæg-1
viðri, skýjað og 1 stig á Dalatanga, I
austan 4, skýjað og —2 stig á Hðfn og |
suöaustan 8, rigning og 3 stig á Stór- ■
höfða.
( Þórshöfn var skýjað og 4 stig,
skýjað og —3 stig í Kaupmannahöfn,'
skýjað og —18 stig í Osló, snjókoma i
og —11 í Stokkhólml, skúrir og 2 stig I!
London, þoka og —2 stig í Hamborg,
snjókoma og 0 stig í Parfs, láttskýjað;
og —3 stig f Madrid, þoka og 4 stig í
Lissabon og láttskýjað og 2 stig I
Krlslján Tómasson, sem lézt 12. janúar
sl„ fæddist 21. júní 1894 á Eskifirði.
Foreldrar hans voru Guðbjörg Eiríks-
dóttir og Tómas Magnússon. Kristján
fór ungur á sjóinn en síðan hóf hann
verzlunarstörf og vann lengst hjá
Markúsi Jensen sem rak verzlun á Eski-
firði. Loks gerðist Kristján starfsmaður
hjá útibúi Landsbankans á Eskifirði.
Hann var í hreppsnefnd eitt kjörtíma-
bil og var m.a. einn af stofnendum
björgunarsveitarinnar Brimrúnar á
EskiFiröi. Kristján var kvæntur Guð-
rúnu Árnadóttur og áttu þau 2 börn.
Davið Daviðsson, Sellátrum Tálkna-
firði, sem lézt 11. janúar sl., fæddist
26. ágúst 1903 að Kvigindisdal i Pat-
reksfiröi. Foreldrar hans voru Davíð
Jóhannes Jónsson og Elín Ebenesar-
dóttir. Davíð var ungur settur í fóstur
til Ólafs Ásbjörnssonar og Kristinar
Magnúsdóttur. Um tvitugt heldur
Davið suður til að stunda sjómennsku,
m.a. í Vestmannaeyjum. í um 11 ár var
hann skipverji á togurum Ólafs Jó-
hannessonar. Árið 1937 tekur hann við
formennsku verkalýðsfélagsins á Pat-
reksfirði, einnig var hann 1 hrepps-
nefnd. Árið 1940 varð Davíð verkstjóri
í nýju frystihúsi á Patreksfirði. Árið
1942 fluttist hann til Tálknafjarðar þar
sem hann bjó til dauðadags. Á Tálkna-
firöi var hann í ýmsum nefndum á veg-i
um hreppsins og vann mikið á vélum,
Ræktunarsambandsins. Árið 19261
kvæntist Davíð Sigurlínu Benedikts-
dóttur, áttu þau 3 börn en hún lézt árið
1941. Árið 1943 kvæntist Davíð seinni
konu sinni, Guðrúnu Einarsdóttur, og
áttu þau 4 börn. Guðrún átti 4 börn frá
fyrra hjónabandi.
Bálför Steingríms Guðmundssonar1
prentsmiðjustjóra fer fram frá Foss-
vogskirkju miðvikudaginn 21. janúar
kl. 15.
HólmfrMor KrbUnsdóttir frá Núpi,
sem lézt 10. janúar sl., fæddist 19.
september 1898. Foreldrar hennar voru
Rakel Jónasdóttir og Kristin Guðlaugs-
dóttir. Hólmfriður fór til Sviþjóðar og
nam handavinnukennslu og stundaði
kennslu eftir heimkomuna. Hólmfríður
var ógift.
Guörúa Hdga Guðmundsdóttir, sem
lézt 11. janúar sl., fæddist 23. marz
1900. Foreldrar hennar voru Guðrún
Gestsdóttir og Guðmundur Brynjólfs-
son. Guðrún fór í Húsmæðraskólann á
ísafirði. Guðrún var tvígift. Fyrri
maður hennar var Jón Kristjánsson og
áttu þau eina dóttur. Jón lézt eftir
stutta sambúð þeirra. Síðan giftist
Guðrún Hannesi Magnússyni og áttu
þau eina dóttur. Þau Helga og Hannes
studdu mjög stofnun Óháða
safnaðarins í Reykjavík. Guðrún var
líka virkur félagi í Slysavarnafélagi
íslands. Síðustu árin var hún á dvalar-
heimilinu Hrafnistu í Reykjavík.
Guðmundur Brynjólfsson, Sölvhóls-
götu 12 Reykjavík, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 21.
janúar, kl. 10.30.
Bálför Helga Jónssonar, Austurbrún 6,
hefur farið fram í kyrrþey.
Páll Björnsson frá Gilsárvöllum lézt að
Reykjalundi 7. janúar sl. Jarðarförin
hefur farið fram.
Helga Sigurðardóttir lézt í Landakots-
spítala mánudaginn 19. janúar sl.
Ólafur S. Ingólfsson sölumaður, Ara-
túni 16, Garðabæ, sem lézt 16. janúar
sl., verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju 26. janúar kl. 13.30.
FÍSNAR-félagar
Þorrablótið vcrður haldið 31. janúar i Snorrabæ kl.
19. Þátttaka tilkynnist til Andrcu. s. 84853. Sigur
bjargar. s. 77305 eða Bcrgþóru. s. 78057 fyrir 25.
janúar.
Læða í óskilum
Ung. alsvört læða er i óskilum á Vitastig 17. Þar hcfur
hún verið í u.þ.b. viku. Eigandinn cr vinsamlcgást
bcðinn að vitja hennar sem fyrst cða hringja i sima
14496.
Af fimbulfambi
og ruslatunnutónlist
Það var ekki að sjá að skraptíð
væri hjá fréttamönnum Útvarpsins í
gærkvöldi. Enda bullandi fréttir
innanlands og utan. Fréttatíminn
klukkan sjö bólgnaði svo mikið út að
þeir sem sátu undir ósköpunum frá
upphaFt til enda, höfðu aðeins fáein-
ar mínútur upp á að hlaupa til að
koma sér fyrir 1 sjónvarpsstólnum og
meðtaka nýja fréttabunu.
Af nógu var að taka: 52 gíslar að
losna frá klerkunum í íran, Rónaldur
Reigan frumskógarpólitíkus að
setjast 1 stól í hvítu húsi fyrir vestan
haFtð og Karter að kveðja. Sá síðar-
nefndi hafði það af að spæla Rónald
á síðustu metrunum og getur brosað
breitt yftr því lengi lengi eftir að
hann horfist í augu við gráan
hnetuhversdagsleikann á ný.
Af orku- og iðnaðarmálum flutti
Útvarpið okkur bombufréttir.
Hjörleifur orku- og áliðnaðar-
ráðherra var sagður á förum í
opinbera heimsókn til Noregs í dag
og skilur okkur hin eftir í orku-
kreppu. Stóriðjuverin sunnanlands
og vestan- ganga á hálfum dampi og
við, verðum að spara og spara raf-
magnið svo ekki fari allt til fjandans.
Svo var það frétt af strandi Vest-
mannaeyjabátsins, sem Ómar gerði
reyndar mjög góð sjónvarpsskil síðar
um kvöldið.Og slðast en ekki sízt var
aldeilis dásamlegt viðtal framsóknar-
kommans Helga H. (sbr. orðbragð
Svarthöfða) við Ellert Schram úr KR,
ritstjóra og útvarpsráðsmann. Ellert
var svekktur og sár vegna þess að'
Andrés vildi ekki ráða frétta-
mennina, sem Ellert og félagar í Út-
varpsráði mæltu með. Frétta-
maðurinn vitnaði í leiðara, ritstjóra-
spjall og gvöð má vita hvað úr Visi á
laugardaginn til að fá ritstjórann til
að skýra betur fimbulfamb sitt. En
svörin voru loðin, innihaldið á svart-
hausavísu eitthvað á þá leið að
kommadót úti í bæ haFi fjarstýrt
Andrési, kommadót sé í hverju skoti
á fréttastofunni, kommadót hér og
þar og alls staðar. Þeir hafa verk að
vinna við landhreinsun, hvor á sínum
stað, Rónaldur bóndi í Hvíta húsinu
og Ellert.
Hvernig sem á því stóð, þá tókst
kommadótinu á fréttastofunni að
búa til ágætis fréttatíma einu sinni
sem oftar í gærkvöldi — reyndar
pínulítið á kostnað ónefnds ritstjóra
úti í bæ.
Ef ekki hefði komið til skylduseta
við útvarp og sjónvarp, hefði ég
liklega látið gott heita, eftir að
fréttatímum á báðum stöðum lauk,
og snúið mér að öðru. En þá hefði,
Aðalsteinn menningarskipper orðið
svekktur. Og frekar en sitja uppi með
bæði hann og Ellert í bullandi
svekkelsi hélt ég áfram að hlusta og
glápa fram eftir kvöldi. Það var ekki
mikil skemmtiseta. Á því eru þó und-
antekningar. Mikil seinkun útvarps-
dagskrár varð til þess að mér
auðnaðist að hlýða á þátt Jökuls
Jakobssonar um ruslatunnutónlist og
fuglakvak. Mér þótti alltaf gaman að
setjast við útvarpstækið þegar dag-
skrárliðir Jökuls voru sendir út.
Þáttur hans brást mér ekki. { honum
ræddi stjórnandinn við Ólaf nokkurn
Stephensen, sem birti brot úr viðtali
sínu við Ásu Guðmundsdóttur
Wright á Trinidad. Gamla konan
talaði furðugóða íslenzku en var að
Frumskógapólitikus býóur góóan dag
og setzt að 1 hvftu húsi til fjögurra ára.
sögn þekktust fyrir það á heima-
slóðum að aka Landroverjeppa um
göturnar og sinna ekki umferðar-
reglum. Svo reyndi ég að sameina
það að hlusta á Lög unga fólksins (er
satt að segja eilítið veikur fyrir
poppi) og horfa á Víkinga glutra
niður sigri gegn sænskum í Bjarna
þætti Felixssonar. Furðuleg úrslit
þegar haft er 1 huga að Víkingarnir
voru þó búnir að margvinna leikinn á
íþróttasíðum blaðanna undanfarna
daga.
Brezk kvikmynd, Ég er hræddur
við Virginíu Woolf, var næst á sjón-
varpsdagskránni. Tveggja orða um-
sögn nægir um hana: Ævintýralega
leiðinleg. Og þar setti ég punktinn.
Kvikmynd um gúmbjörgunarbáta
freistaði hreint ekki.
Ríkisverksmiðjur:
ALLT KL0SSFAST 0G
VERKFALL NÁLGAST
Samningaviðræður vegna starfs-
^manna í ríkisverksmiðjunum halda á-
fram í dag. Verður nú lagt allt kapp á
að leita leiða til lausnar deilunni þar
sem verkfall kemur til framkvæmda
á miðnætti annað kvöld. Ekki er þó
ástæða til að ætla að samningur sé
rétt handan við hornið þar sem allt
stóð fast í gær þrátt fyrir sáttatillögu
sem fram kom um helgina. Mest er
þrefað um það hvernig verkstjórar og
vaktstjórar skuli metnir í launaflokka
samkvæmt nýju flokkakerfi.
-ARH.
98- og 99-svæðinu cinnig valiðsjálfvirkl til útlanda, að
undanskildum notcndum i Þingcyjarsýslum, sem til-
heyra sjálfvirku langlinustöðinni á Húsavik, en áætlað
er. að framkvæmdum þar verði lokið um næstu
mánaöamót.
Simnotendum cr vinsamlegast bcnt á leiðarvisi um
notkun sjálfvirka simans á bls 10— 12 í símaskránni.
Tonleikar
Furitíir
Kvenfélag Bæjarleiða
Félagsfundur verður þriðjudaginn 20. janúar kl. 20.30
að Ásvallagötu 1.
Kvenfélagið Fjallkonurnar
Vinnufundir fyrir basarinn verða öll þriðjudagskvöld
frá kl. 20-23 i Fellahelli.
L Aðalfundir
Knattspyrnudeild Víkings
heldur aðalfund sinn þriðjudaginn 20. jan. 1981 i
Félagsheimili Vikings v/Hæðargarðkl. 20.00.
Kvennadeild Barð-
strendingafélagsins
heldur aðalfund sinn þriðjudaginn 20. janúar kl. 20.30
i Domus Medica.
Ralf Gothóni
Sjálfvirkt val til útlanda
Sjálfvirkt val til útlanda hófst 6. október 1980 fyrir
notendur á 91-svæðinu. Síðan hefur verið unnið að
því að veita notendum annarra svæða sömu þjónu^tu.
Geta nú notendur sjálfvirka slmakerfisins á 96-. 97-.
í Norræna húsinu
1 kvöld kl. 20.30 lcikur finnski pianólcikarinn Ralf
Gothóni píanósvltur eftir Leos Janacek (Grónar
götur). Einojuhani Rautavaara (2. pianósvita) og
Modcst Mussorgski (Myndir á sýningu).
Drengimir sem auglýst var eftir f morgun:
Fundust í kjall-
ara í Haf narfirði
— eftir að hafa verið týndir síðan á sunnudag
Drengirnir tveir, 12 og 13 ára, sem kjallara einum í norðurbæ Hafnar-
lögreglan í Hafnarfirði auglýsti eftir í fjarðar heilir á húfi. Ekki var vitað í
útvarpi í morgun komu í leitirnar morgun hver tilgangur drengjanna
skömmu eftir að tilkynningin var var eða hvar þeir höfðu verið allan
birt. Drengirnir höfðu verið týndir timann.
síðan á sunnudag. Þeir fundust í -ELA.
GENGIÐ
, GENGISSKRÁNING Ferðamanna
NR. 11 — 18. JANÚAR1981 gjaldoyrir
Einingkl. 12.00 .-Kaup Sala Sal. v
1 Bandarikjadollar 6,230 6,248 6,873
1 Steriingspund 14,946 14,948 16,488
1 Kanadadollar 5,227 6,242 6,708
1 Dönskkróna 1,0033 1,0082 1,1088
1 Norsk króna 1,1878 1,1912 U103
1 Sœnskkróna 1,3943 1,3983 1,5381
1 Finnskt mark 1,5974 1,6021 1,7823
1 Franskur franki W70 1,3409 1,4750
1 Belg. franki 0,1921 0,1927 0,2119
1 Svissn. franki . 3,4100 3,4198 3,7618
1 Hollenzk florina 2,8409 2,8491 3,1340
1 V.-þýzktmark 3,0884 3,0973 3,4070
1 ítölsk líra 0,00856 0,00867 0,00723
1 Austurr. Sch. 0,4381 0,4374 0,4811
1 Portug. Escudo 0,1158 0,1161 0,1277
1 Spánskurpesetí 0,0788 0,0770 0,0847
1 Japansktyen 0,03074 0,03082 0,03390
1 irsktpund 11,554 11,687 12,748
SDR (sérstök dróttarróttindi) 8/1 7,8981 7,9209
* Breyting fró siðustu skróningu. Símsvari vegna gcngisskróningar 22190.