Dagblaðið - 22.01.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1981.
3
ættum að gleyma blessuðum manninum
þá ættum við að taka hann að okkur
en það er ekki vandinn, heldur það
að það eru fleiri þúsund Gervasonar
til i heiminum. Ef við veitum þessum
manni landvist, hvað þá með alla
hina? Og þessir sem settust að í isl.
sendiráðinu í París. Því skyldum við
ekki veita þeim landvist líka? Hvað
segir blessunin hún Guðrún þá?
Ég er ein af þeim sem voru á móti
komu víetnamska flóttafólksins
hingaö, því þetta fólk er svo
gjörólikt okkur í eðli, skapi, siðum
og háttalagi sem komið hefur í ljós.
En við höfum veitt þessu fólki land-
vist, og þá verðum við að reynast því
vel. Því öll verðum við að takast
saman á við vanda okkar og gerðir.
Svo finnst mér að ef fieiri mál lík
þessum ber á góma, þá eigi þjóðarat-
kvæðagreiðsla fullan rétt á sér, en
ekki hafa málið í höndum fáeinna
manna, sem vilja láta mikið á sér
bera. Með beztu kveðju, íslandi allt.
Steinunn Geirsdóttir skrifar:
Ég ætla að skrifa fáein orð í
þennan dálk sem mér fínnst alveg
ómissandi.
Og svo ég kóróni nú allt þá ætla ég
aðeins að tala um þennan Gervasoni,
sem fer nú að verða nóg komið af. Ég
held að við Islendingar ættum bara
að gleyma þessu máli og láta bless-
aðan manninn Iönd og leið. En ef við
ætlum að vera kristilegar manneskjur
Patrick Gervasoni
Kjarn-
orku-
blúsar-
arnir
— eru frábærir
Blúsari hringdi:
Ég fór á hljómleika í Sigtúni sl.
fimmtudagskvöld. Þar spiluðu meðal
annars hljómsveitin Kjarnorku-
blúsararnir. Mér fannst þessi hljóm-
sveit alveg frábær og það voru
greinilega fleiri á sömu skoðun. Ég
skrapp fram í anddyri og þar heyrði
ég fólk sem var nýkomið spyrja hvort
Þursaflokkurinn væri að spila þegar
það heyrði hljóminn í Kjarnorku-
blúsurum. Það er ekki leiðum að
líkjast.
Mér finnst Kjamorkublúsaramir
mjög sérstök hljómsveit og það sem
greinir hana m.a. frá öðmm
svipuðum hljómsveitum er að hún er
með hljómborð sem gefur tónlistinni
svolítið sérstakan blæ. f lögum og
textum sinum eru þeir að mótmæla
hernaði hvar sem er í heiminum. Og
tónlist þeirra er eins og nafnið gefur
til kynna kraftmikið blúsrokk. Ég
vonast bara til að fá að sjá þessa
hljómsveit oftar.
Teg. 1265 ^
Litur Ijósbrúnt
Stœrðir 37-41
Tog. 1267
Litur Ijósbrúnt
StœrAir 37-40
Teg. 1780 |
Litir rauðbrúnn, svartur
Stærðir 36—39
Tog. 1566
Litur rauðbrúnt/svart
Loðfóðraðir, leður
Stærðir 36-41
Hljómsveitin Kjarnorkublúsararnir.
Póstsendum
Höfum mikið
úrval af
stökum pörum
á mjög hagstœöu
verði
Laugavegi 11 Rvík, sími 21675,
og Vestmannaeyjum, sími 1826.
Sérstakt tilboð til
mánaðamóta
GISLI SVAN
EINARSSON
(--------V
Spurning
dagsins
iS -------i
Ertu búin(n)
að fá nóg af
snjónum?
Jóhanna Eriendsdóttir afgrelðslu-
maður: Já, og þó, það er svo sem allt i
lagi með snjóinn. Ég hef ekki óþægindi
afhonum.
Bjarni Guðmundsson lagerstjóri: Nei,
aldrei nóg af snjó.
Jóhann Friðgeirsson sjómaður: Nei,
ekki svo. Það skiptir mig ekki svo
miklu máli.
Þröstur Sigurðsson bilstjóri: Já, ég hef
samt ekki teljandi óþægindi af snjón-
um.
Hjörtur Haraldsson: Já, svona
nokkurn veginn. Vona að hann fari að
hypja sig.
BrynJaMagnúsdóttir:Nei, ég fer á skíði
í snjónum, svo mér leiöist ekkert.