Dagblaðið - 06.02.1981, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1981.
3
MISBEITING VALDSI
Spurning
dagsins
Örn Svavarsson, Arnartanga 78 Mos-
fellssveit, skrifar:
Næringaraukaefni svo sem vítamín
og steinefni hafa verið flutt inn hér-
lendis í a.m.k. 30 ár. Tollþjónar hafa
flokkað þessa vöru undir 30. kafla
tollskrárinnar, eins og einnig er gert
erlendis. Fyrir fáeinum mánuðum
fékk Jón Mýrdal deildarstjóri í tollin-
um nokkur sýnishorn af slíkum efn-
um, sem hann ákvarðaði í þennan
kafla.
4. feb. sl. ætlaði ég að leysa út
sendingu með þessum vörum, en þá
neitaði Jón Mýrdal að afgreiða hana,
því nú eigi þessar vörur kannski að
fara í annan tollflokk, í staðinn fyrir
30. kafla með 15% tolli, á að reyna
að koma vörunum 1 21. kafla með
rúmlega 120% aðflutningsgjöldum.
Neitun á afgreiðslu á vörum sem
eru í réttum tollflokki, er mjög ger-
ræðisleg misbeiting valds þessa emb-
ættismanns. Fyrir mig er þetta
ómældur kostnaður og fjárhagslegur
skaði. Ef tollgæzlan vinnur að ein-
hverjum breytingum, á hún að gera
það án þess að valda innflytjendum
fjárhagslegu tjóni. Eðlilegt væri líka
að tilkynna slíkar breytingar með
góðum fyrirvara, þannig að hægt sé
að haga pöntunum í samræmi við
gildandi reglur. Það eru forkastanleg
vinnubrögð að breyta tollflokkum
þegar vara er komin til landsins, og
eins og i þessu tilfelli tvöfalda verð
hennar, sem gerir hana ill- eða jafn-
vel óseljanlega. Þegar ég benti Jóni
Mýrdal á þetta og óskaði eftir af-
hendingu vörunnar, sagði hann orð-
rétt: „Ekki til að meina,” og hló.
Þetta er vald embættismannsins.
DB hafði samband við Jón Mýrdal
deildarstjóra en hann kvað sér
óheimilt að svara bréfinu.
Hvað er Samhygð?
Gísli Páll Jónsson, Akanesi, hringdi:
Mig langar til að biðja DB að
koma á framfæri nokkrum spurning-
um fyrir mig varðandi samtök sem
nefna sig Samhygð. Margt finnst mér
óljóst við þessi samtök og held ég að
það gæti orðið fróðlegt fyrir fólk að
fá eitthvað á hreint um þessi samtök.
1. Við hverja á að hafa samband ef
óskað er eftir þátttöku í Sam-
hygð?
2. Hvert er markmið þessara sam-
taka?
3. Þarf að greiða gjald fyrir þátt-
töku í þessum samtökum?
4. Eru þessi samtök trúarlegs eðlis?
5. Hvaðan eru þessi samtök upp-
runnin?
6. Hvað nefnast samtökin á erlendu
máli?
Deilur hafa verið uppi um það hvort ekki væri hollara fyrir landann að neyta
náttúrulegra bætiefna frekar en tilbúinna.
Finnur þú fyrir því
að daginn sé farið
að lengja?
Valgerflur Eriingsdóttir skrifstofu-
stúlka: Já, ég er mun hressari og betri á
fætur á morgnana.
Karl Jóhann Karlsson tæknlfræðingur:
Já, já, auðvitað. Það munar strax um
það þó ekki hafi mikið bætzt við.
Flvturðu inn vörur f rá
Svíþjóð?
„FOB VASTERVIK"
Gæti það lækkað
innkaupsverðið?
HAFSKIP HF. hefur um sextán ára skeið haldið uppi
reglubundnum siglingum til Svíþjóðar, nú vikulega til
Gautaborgar og hálfsmánaðarlega til Halmstad.
HAFSKIP HF. hefur nú bætt við nýjum viðkomustað, nú
á austurströnd Svíþjóðar, VÁSTERVIK, og verður viðkoma
þar á 25 daga fresti. Borgin er staðsett miðja vegu milli
Stokkhólms og Helsingborgar, en á því svæði eru
f jölmargar verksmiðjur, sem selja þekktar vörutegundir til
íslands.
Tilgangur okkar með því að bæta VÁSTERVIK við aðra
viðkomustaði HAFSKIPS í Svíþjóð, er að sjálfsögðu að
bæta þjónustuna. Þannig geta nú innflytjendur, sem kaupa
vörur frá VÁSTERVIK svæðinu gert samanburð á verði á
innfluttri vöru'frá Svíþjóð. Athugið hvort hagkvæmara sé
að kaupa vöruna „EX FACTORY” eða „FOB VÁSTERVIK'
Allar frekari upplýsingar eru fúslega veittar
í Markaðsdeild Hafskips hf. í síma 21160.
:h:
HAFSKIP HF.
Hafnarhúsinu, v/Tryggvagötu,Sími 21160
M.S.LANGÁ
13.febrúar1981
13. mars 1981
Umboðsmaður
í VÁSTERVIK:
Knut Sjögren A/B
S 59301 VÁSTERVIK
P. O. Box 11,
Telex: 3912
Sími: 0490-301 30
Inger Arnholtz sjúkraliði: Já, það
fmnst mér. Ég er miklu frískari i gang á
morgnana.
Magnús Magnússon lifeyrisþegi: Já, ég
er allur miklu léttari.
Magnús Ármannsson tamningamaður:
Já, dagurinn nýtist manni betur.
Guðbjörg Ólafsdóttlr, húsmóðir m.m.:
Já, það finnst mér. Dagurinn nýtist
betur.