Dagblaðið - 06.02.1981, Side 14
22
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1981.
Gert er ráð fyrir hvassri
norðvestanátt sem snýst (norðanátt
þegar líður á daginn um sunnan og
vestanvort landið. Á Noröur- og
Austurlandi er og verður allhvöss
noröaustanátt með áljum. Einnig
veröa ál sunnaniands þegar líöur á
daginn.
Klukkan 6 var norövestan 5, skaf-
renningur og -1 stíg ( Reykjavlt,
vetan 7, skýjað og -3 á Gufuskálum,
vestan 4, ái og -3 stíg á Galtarvita,
vestan 2, snjókoma og -2 stíg á
Akureyri, norðvestan 4, él og -3 stíg á
Raufarhöfn, haagviöri, él og 1 stíg á
Dalatanga, vestan 6, skýjað og 4 stíg
á Höfn og vestan 10, él og 0 stíg á
Stórhöfða.
í Þórshöfn var rigning og 8 stig,
skýjað og -1 stíg ( Kaupmannahöfn,
þoka og -7 stíg (Osló, iéttskýjað og -6
stíg ( Stokkhólmi, skýjað og 7 stíg I
London, skýjað og 7 stíg ( Hamborg,
skýjað og 2 stíg ( París, léttskýjað og
1 stíg ( Nladrid, léttskýjað og 8 stíg (
Lissabon og skýjað og 8 stig ( Nevv
York.
V i ■■■✓
Guflný Sveinsdóllir frá Sæbóli, sem
lézt 25. janúar, fæddist 14. júní 1882 á
Gili í Svartárdal í Austur-Húnavatns-
sýslu. Foreldrar hennar voru Sveinn
Sigvaldason og Ingibjörg Hannes-
dóttir. Á unglingsárum sínum var hún í
vinnumennsku hjá séra Stefáni
Magnúsi Jónssyni. Árið 1904 giftist
Guðný Magnúsi Dósóþeussyni. Bjuggu
þau á Sæbóli í Aðalvík og áttu 7
dætur. Árið 1932 missti Guðný
manninn og fluttist þá til ísafjarðar þar
sem hún vann m.a. á sjúkrahúsinu.
Þórey Þorsteinsdóttir kaupkona, sem
lézt 29. janúar, fæddist 6. júlí 1901 á
Eyrarbakka. Foreldrar hennar voru
Margrét Jónsdóttir og Þorsteinn Þor-
steinsson. Á unga aldri fluttist Þórey
með foreldrum sínum til Keflavíkur.
Þórey vann verzlunarstörf, m.a. hjáO.
Johnson og Kaaber og svo um árabil
verzlun Marteins Einarssonar. Hún var
stofnfélagi i ungmennafélaginu í Kefla-
vík og var m.a. gerð að heiðursfélaga
þar á 50 ára afmæli félagsins. Árið
1931 giftist Þórey Sigurði Sigurðssyni.
Stofnuðu þau verzlunina Þorsteinsbúð
sem hún rak allt til dauðadags. Þau
áttu 3 börn.
Sigrún Einarsdóttir lézt i Sjúkrahúsi
Vestmannaeyja 3. febrúarsl.
Jóna Jónsdóttir frá Munaðarnesi í
Árneshreppi, lézt á Elliheimilinu
Grund, 4. febrúar.
Stefanía G. Stefánsdóttir frá Eskifirði,
Bauganesi 15, lézt í öldrunardeild
Landspítlans, Hátúni 10 B, 4. febrúar
sl.
Þorgeir Bjarnason bóndi, Hærings-
stöðum, verður jarðsunginn frá
Gaulverjabæjarkirkju, laugardaginn 7.
febrúar kl. 14.
Karólína Kristjánsdóttir, Vatnsnesvegi
25 Keflavík, verður jarðsungin frá
Keflavíkurkirkju laugardaginn 7.
febrúar kl. 14.
Jónina Kristjánsdóttir Þórshöfn, sem
lézt 27. janúar, fæddist 31. maí 1896 á
Seyðisfirði. Foreldrar hennar voru
Kristján Jónsson og Sigríður Jóns-
dóttir. Jónína bjó mestan hluta ævi
sinnar á Þórshöfn en árið 1944 fluttist
hún til Reykjavíkur. Árið 1917 giftist
hún Jóhanni Tryggvasyni og áttu þau 2
dætur.
Iþróttir
Sundmót Ægis
verður haldið i Sundhöll Reykjavikur dagana 9. og 10.
febrúar næstkomandi.
Keppt verður í eftirtöldum grcinum:
Mánudaginn 9. febrúar:
1500 m skriðsund karla
1500 m skriðsund kvenna
þriðjudaginn 10. febrúar:
400 m fjórsund karla
400 m fjórsund kvenna
200 m bringusund karla
200 m bringusund kvenna
200 m skriðsund karla
100 m skriðsund kvenna
200 m baksund karla
200 m baksund kvenna
200 m flugsund karla
100 m flugsund kvenna
4 x 100 m skriðsund karla
4 x 100 m fjórsund kvenna
Þáttöku skal skila á timavarðarkortum SSÍ fyrir
laugardaginn 7. febrúar til Kristins Kolbeinssonar,
Granaskjóli 17 Rvk, sími 10963, cða Guðfinns ólafs
sonar, Gyðufelli 10 Rvk. simi 72379. Með þálttöku
skulu fylgja 5 nýkr. fyrir hvcrja grein.
Styrkir úr Rartnsóknarsjóði
IBM
Nýlcga var úthlutað i áttunda sinn slyrkjum úr Rann-
sóknarsjóði ÍBM vegna Reiknistofnunar Háskólans.
Alls bárust 10 umsóknir og hlutu 7 umsækjendur
slyrk úr sjóðnum, samtals kr. 45.000. Styrkina hlutu:
Raunvísindastofnun Hákólans, Ágúst Kvaran, Ingvar
Árnason og sigurjón N. Ólafsson, skr. 5.000, til
tölvuvinnslu á litrófsmæligögnum vegna rannsókna i
ólífrænniefnafræði.
Ásbjörn Jóhannesson. Rannsóknastofnun byggingar
iðnaðarins, kr. 5.000, til aö aðlaga reiknilikan fyrir
ákvarðanir um hagkvæmasta viðhald vega á Islandi.
Jóhann Axelsson og Sigfús Björnsson, Rannsóknar-
stofu Hl í lífeðlisfræði, kr. 10.000, til lifeðlisfræðilegs
samanbúrðar á tslendingum og islenzka þjóðarbrotinu
i Kanada.
Jón óttar Ragnarsson og Erla Stefánsdóttir, Efna-
fræðiskor Háskóla Islands, kr. 10.000, til úrvinnslu
gagna um mataræði Islcndinga úr búrcikningakönnun
Hagstofunnar.
Kristján Kristjánsson, Sigmundur Guðbjarnason(og
Sigurjón N. Ólafsson, Raunvisindastofnun Háskól-
ans, kr. 5.000. til kaupa á svonefndu SIMCA-forrita-
safni fyrir munsturgreiningu á niðurstöðum efnagrein
inga.
Magnús B. Jónsson, Bændaskólanum á Hvanneyri.
kr. 5.000, til útreikninga á kynbótum á islenzka naut-
gripastofninum m.t.t. bæði mjólkur- og kjötfram-
lciðslu.
Sigrún Klara Hanncsdóttir, Félagsvisindadeild Há
skólans, kr. 5.000, til aðsetja upp forrit fyrir tölvuleit í
gagnabanka vegna kcnnslu svo og tölvusetningu is-
lenzkra heimilda.
Nýr eigandi
Hár-Hússins
Þann 19. janúar sl. tók Jan við rekstri Hár-Húss.
Skólavörðustíg 42.
Jan er tslendingur i aðra ætt en tók mcistarapróf i
hárskurði og hárgreiðslu erlendis. Hann hefur starfaö
erlcndis og á Islandi hefur hann starfað sl. þrjú ár.
Simi í Hár-Húsinu er 10485.
Sígild tónlist í hljóðvarpi
Heldur var þrettándinn þunnur hjá
þeim hljóðvarpsmönnum í gær-
kvöldi. Satt að segja setti að mér
kviða þegar ég var búinn að játast
undir að hlusta á dagskrá hljóðvarps-
ins.
Hljóðvarpskvöldið hófst^hjá mér
þegar Vettvangsþáttur þeirra Sigmars
B. og Ástu var u.þ.b. hálfnaður.
Ósköp léttur og meiniaus þáttur en ég
verð þó að segja að söknuður er að
Víðsjár-þáttum fréttastofunnar. Oft
er talað um að sígild tónlist tröllríði
hljóðvarpinu. Ég tók lauslega saman
hlutfall þessarar tónlistar í dag-
skránni i þessari viku. Hlutfallið er
allt frá því að vera um 15% í 25%
Ekki eru það nein ósköp. En sé litið á
útsendingartímann lítur málið öðru-
vísi út. Oft eru kvöldtónleikar á bezta
útsendingartímanum. Hápunktur út-
sendinga sígildrar tónlistar er þó á
fimmtudagskvöldum og var gær-
kvöldið sízt af öllu undantekning frá
þessari reglu. í nærri því einn og hálf-
an tíma frá kl. 20—21.30 fluttu
starfsmenn tónlistardeildar landslýðs
boðskapinn. Hafa menn þessir ekki
séð hlustjndakönnunina er gerð var
hér um árið eða eru þeir eins og strút-
urinn, stinga höfðinu í sandinn? Af
því sem á undan er sagt má ekki
draga þá ályktun að ég sé á móti sí-
gildri tónlist, síður en svo. En hvað
sjálfan mig snertir finnst mér betra
að bregða plötu á fóninn og þá um
leið að velja mér þá tónlist sem mig
langar til að hlusta á í það og það
skiptið. Einhverjum kann að detta í
hug að maðurinn sé, þar með að
mæla með því að fólk kaupi sér
plötuspilara og útvarpið leggi niður
útsendingar á sígildri tónlist. Nei,
síður en svo, en væri ekki rétt að taka
upp meiri tónlistarfræðslu. Fyrir
u.þ.b. tíu árum var þáttur í umsjón
Jóns Stefánssonar söngstjóra sem hét
Þetta vil ég heyra. Þáttur Jóns varð
til þess að ég fór að hlusta meira á
sígilda tónlist. Að vísu eru stórgóðir
þættir Atla Heimis Sveinssonar á
laugardögum en þáttur með léttu
rabbi um tónlist og höfunda hennar
væri ekki síður þarfur þeim sem eru
að byrja að hlusta á sígilda tónlist.
Starfsmenn tónlistardeildar: Út-
varpshlustendur eru síbreytilegur
hópur og þeir sem hlusta í dag eru
ekki þeir sömu og hlusta á morgun.
- JSB
Fordæming á setningu
bráðabirgðalaganna
Stjórn og trúnaðarmannaráð Trésmiðafélags Reykja-
víkur fordæmir harðlega síendurtekna ihlutun
stjórnvalda I gildandi kjarasamninga, cins og gert var
með setningu bráöabirgðalaganna um sl. áramót.
Einnig mótmælir fundurinn þeim vinnubrögðum
stjórnvalda, að þrátt fyrir marggefnar yfirlýsingar
þeirra um samráð við verkalýðshreyfinguna eru slik
samráðaðengu höfð.
Slík vinnubrögðsem þessieru fordæmanleg.
Að visu eru gcfin fyrirheit þess efnis að sú skcrðing
visitölubóta nú í byrjun árs, sem lciðir af lögunum
skili sér siðar á árinu vegna afnárns skcrðingarákvæða
„Ölafslaga” á vísitölu, með skattalækkun og fleiri
fyrirheitum, sem koma fram í efnahagsáætlun ríkis-
stjórnarinnar.
Verkalýðshreyfingin hlýtur að vera tortryggin á
þessar aðgerðir og að þær skili þeim kaupmætti sem
nýgerðir kjarasamningar tryggðu. Fundurinn telur að
því aðeins verði hægt að una þessum aðgerðum án
mótaðgerða að í raun verði um sama kaupmátt að
ræða og samningar tryggðu.
Af framansögðu hefur fundurinn allan fyrirvara á'
um þessar ráðstafanir stjórnvalda og áskilur sér fyllsta
rétt til nauðsynlegra aðgerða til þess að tryggja um-
saminn kaupmátt.
Stjórnmétafundir
Alþýðubandalagið
Kópavogi
heldur árshátíð
sína laugardaginn 7. febrúar og hefst hún á þorramat
kl. 19.30. Þá verðaskemmtiatriðiogdans.
Alþýðuflokkurinn
í Reykjavík: \
Borgarframkvæmdir 1981
Stjórn fulltrúaráðs Alþýðuflokksins í Rcykjavik efnir
til kjördæmisþings um borgarframkvæmdir I98l í
Kristalsal Hótels Loftleiða laugardaginn 7. febrúar nk.
Rétt til þingsetu eiga allir aðalfulltrúar og varafull-
trúar i fulltrúaráðinu sem og allir trúnaðarmenn Al-
þýðuflokksins i borginni i siðustu kosningum.
Dagskrá þingsins vcrður i aðalatriðum á þcssa leið:
Kl. 10.00: Þingsetning. Sigurður E. Guðmundsson,
formaður fulltrúaráðsins.
Kl. 10.10: Menningarmál og asskulýðsmál í borginni:
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, stjórnarformaður. Kjarvals-
staða og formaður Æskulýðsráðs.
Kl. 10.30: Atvinnumál í Reykjavík: Björgvin Guð-
mundsson borgarfulltrúi, stjórnarformaður BÚR og
formaður hafnarstjórnar.
Kl. I0.50: Húsnæðismál i borginni: Sigurður E. Guð-
mundsson varaborgarfulltrúi, stjórnarformaður Bygg-
ingasjóðs Reykjavíkurborgar og stjórnarmaður í
Stjórn verkamannabústaöa i Reykjavik.
Kl. 11.10: Skipaö i starfshópa.
Kl. 12—I3.I5: Matarhlé.
Kl. 13:15— 15.30: Starfshópar starfa.
Kl. 15.30— 17: Starfshópar skila áliti. Umræður.
Kl. 17.00: Þingslit.
Fundarstjóri verður Ragna Bergmann, varafor-
maður Verkakvennafélagsins Framsóknar og fulltrúa-
ráðs alþýðuflokksfélaganna i Reykjavik.
Þingfulltrúar eru beðnir um að koma tilkynningum
um þátttöku sína í þingstörfunum á skrifstofu Alþýðu-
flokksins, simi 15020.
Félög sjálfstæðismanna
í Breiðholti
boða til hverfafundar i félagsheimilinu að Seljabraut
54 laugardaginn 7. febrúar og hefst fundurinn kl. 14.
Borgarfulltrúarnir Davið Oddson, Magnús L.
Sveinsson og Albert Guflmundsson mæta á fundinn
og hafa framsögu um stefnu Sjálfstæðisflokksisn i
borgarmálum. Að loknum framsöguræðum munu
borgarfulltrúarnir svara fyrirspurnum.
Fundarstjóri fHreiðar Jónsson klæðskerameistari.
FundarritararKristján Guðbjartsson fulltrúi og Guð-
rnundur H. Sigmundsson kaupmaður.
Ibúar hverfanna eru hvattir til að fjölmenna.
Alþýðubandalagið
á Akranesi
Opið hús verður i Rein laugardaginn 7. febrúar frá kl.
13.30. Gísli Sigurkarlsson kennari les úr Ijóðum sinum
og situr fyrir svörum. Hjálmar Þorsteinsson leikur
tónlist milli atriða.
Launþegafélag
sjálfstæðisfólks
á Suðurnesjum
heldur fræðslufund laugardaginn 7. febrúar í sam-
komuhúsinu í Garðinum. Fundurinn hefst kl. 14.00.
Frummælandi verður prófessor Sigurður Lindal. Um-
ræður og fyrirspurnir.
Aðalfundur Framsóknar-
félags Eyrarsveitar
verður haldinn sunnudaginn 8. febr. kl. 14 í kaffistofu
Hraðfrystihúyss Grundarfjarðar. Grundarfirði.
Fundarefni: l. Venjulega aðalfundarstörf. 2.
Hjálmar Gunnarsson kynnir hreppsnefndarstörf.
Alþýðubandalagið
Selfossi og nágrenni
Garðar Sigurðsson alþingismaður verður með viðtals-
tima að Kirkjuvegi 7 laugardaginn 7. febrúar kl. 14.
Miðstjórnarfundur
Alþýðubandalagsins
Miðstjórn Alþýðubandalagsins kemur saman til
fundar í kvöld, föstudag, kl. 20.30 í fundarsal Sóknar
að Freyjugötu 27. Fundinum verður framhaldið á
morgun samkvæmt nánari ákvörðun miðstjórnar.
Á dagskrá fundarins er flokksstarfið, framkvæmda-
áætlun i orkumálum, stjórnmálaviðhorfið og þingmál.
Sjálfstæðisfélag
Miðneshrepps
Aðalfundur verður haldinn sunnudaginn 8. febrúar
kl. 14 í barnaskólanum.
Fundarefni: l.Venjuleg aðalfundarstörf. 2. önnur
mál.
Garðabær —
Bessastaðahreppur
Fundur um bæjarmálin verður haldinn laugar-
daginn7. febr. kl. 14 i Goðatúni 2.
Bridgespilarinn
Út er komið fyrsta bindi og jafnframt fyrsta tölublað
af Bridgespilaranum sem er nýtt bridgeblað. I blaðinu
er m.a. sagt frá úrslitum í bikarkeppni BSl 1980, viðtal
við Þorgeir Eyjólfsson forseta BSÍ, pistill frá Bridge-
félagi Akurcyrar og Guðmundur P. Arnarson skrifar
við viðvörunarregluna. Einnig eru nokkrir fastir
þættir i blaðinu, svo sem verðlaunaþrautir, Hvað seg-
irðu? og sagnakeppni. Úlgefandi og ábyrgðarmaður er
Páll Bergsson. I ritstjórn eru Guðmundur Páll Arnar-
son, Guðmundur Sv. Hermannsson, Páll Bergsson,
Jón Baldursson og Vigfús Pálsson.
Hver
saknar
hjólbarða
og f elgu?
Rannsóknarlögreglan er með hjól-’
barða og felgu af tveggja dyra bíl í
vörzlu sinni. Hjólbarðanum og felg-
unni var stolið á Laufásvegi eða þar i
kring 7. janúar sl. Ef einhver saknar
slikra hluta ætti hann að hafa samband
viðRLR.
GENGIÐ
GEIMGISSKRÁNING Ferðamanna-
Nr. 25 — 5. febrúar 1981. gjaldeyrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarikjadollar 6,230 6,248 6,873
1 Sterlingspund 14,884 14,727 16,200
1 Kanadadollar 5,221 5,237 5,760
1 Dönskkróna 0,9563 0,9591 1,0550
1 Norskkróna 1,1621 1,1655 1,2821
1 Saansk króna 1,3659 1,3699 1,5069
1 Finnsktmark 1,5467 1,5511 1,7062
1 Franskur franki 1,2740 1,2777 1,4055
1 Belg. franki 0,1830 0,1835 0,2019
1 Svissn. franki 3,2385 3,2478 3,5726
1 Hollenzk florina 2,7063 2,7142 3,9856
1 V.-þýzkt mark 2,9366 2,9451 3,2396
1 (tölsk l(ra 0,00618 0,00620 0,00682
1 Austurr. Sch. 0,4148 0,4160 0,4576
1 Portug. Escudo 0,1119 0,1122 0,1234
1 Spánskurpesetí 0,0744 0,0746 0,0821
1 Japansktyen 0,03088 0,03097 0,03407
1 Irskt pund 10,935 10,967 12,064
SDR (sórstök dráttarróttindi) 8/1 7,7273 7,7496
* Breyting frá siðustu skróningu. Simsvari vegna gengisskróningar 22190.