Dagblaðið - 10.02.1981, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1981.
G
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Sovétmenntaður hershöfðingi íforsætisráðherrastól:
Nýr forsætisráö-
herra í Póllandi
— Allsherjarverkfall í héraðinu Jelenia Gora
Varnarmálaráðherra Póllands,
hinn sovétmenntaði hershöfðingi
Wojciech Jaruzelski, var í gærkvöld
valinn forsætisráðherra Póllands
eftir að Jozef Pinkowski sagði af sér
því embætti í kjölfar nær stöðugra
verkfalla i landinu að undanförnu.
Jaruzelski er fyrsti herforinginn sem
gegnir embætti forsætísráðherra Pól-
lands frá stríðslokum og er hann
fjórði maðurinn sem gegnir þessu
embætti á aðeins einu ári.
Það var miðstjóm Kommúnista-
flokksins sem ákvað á fundi sínum í
gærkvöld'að leggja til við þingið að
Jaruzelski yrði skipaður í embættið.
Á fundinum var sett fram mjög hörð
gagnrýni á Einingu, samtök hinna
sjálfstæðu verkalýðsfélaga í landinu,
vegna ófriðarins á vinnumarkaði
landsins að undanförnu.
Á sama tíma og hin 140 manna
miðstjórn flokksins kom saman, kom
til verkfalls í enn einu héraði
landsins, héraðinu Jelenia Gora í
suðurhluta landsins. Smærri verkföll
voru einnig í ýmsum borgum landsins
og mótmælaaðgerðir stúdenta
oreiddust einnig út.
Hinn nýi forsætisráðherra
Póllands er talinn hófsamur og er
sagður hafa verið andsnúinn því að
valdi yrði beitt í verkföllunum á
síðastliðnu sumrí sem leiddu til stofn-
unar fyrstu sjálfstæðu verkalýðs-
félaganna í Austur-Evrópu.
Fjórmenningaklikan svonefnda sem myndað hefur sósialdemókratfskt ráð innan
Verkamannaflokksins brezka sem augljóslega mun leiða til klofnings hans. Frá
vinstri eru William Rodgers, Shirley Williams, Roy Jenkins og David Owen. Shirley
Williams, sem talin er höfuðpaurinn i „fjórmenningaklikunni”, sagði sig i gær úr
framkvæmdastjórn Verkamannaflokksins og sakaði hann um að hafa gengið of langt
til vinstri.
Dwyer
err enn
i Iran
—hafðitýnt
vegabréfi sínu
Banariski fréttamaðurínn Cynthia
Dwyer er enn i Teheran en búizt er við
að hún fái í dag að halda úr landi
áleiðis til Bandaríkjanna.
í gær var talið að ekl^rt væri því til
fyrirstöðu að hún fengi að fara úr landi
en brottför hennar var frestað í gær er
flugvallarstarfsmenn neituðu að hleypa
henni um borð í flugvélina þar sem hún
hafði týnt vegabréfi sínu. Svissneski
sendiherrann í Teheran, sem gætir
hagsmuna Bandaríkjanna í íran,
sagðist vonast til að Dwyer fengi að
fara úr landi innan sólarhrings.
Hún var handtekin í Teheran i mai í
fyrra, sökuð um njósnir. Dómstóll
komst að því í síðustu viku að hún væri
sek og dæmdi hana í niu mánaöa fang-
elsi. Jafnlangt gæzluvarðhald hennar
dróst frá þannig að hún taldist hafa
tekið út refsingu sína.
Brezkir og sænskir diplómatar
halda enn áfram tilraunum sínum til að
fá látna lausa fjóra Breta, sem verið
hafa i haldi í íran síðan í ágúst síðast-
liðnum.
El Salvador:
Ekkertlát
á vopnaskaki
Að minnsta kosti átján manns biðu
bana er áætlunarbifreið varð fyrir vél-
byssuskothríð skammt fyrir utan
borgina Suchitoto, norðvestur af
höfuðborginni San Salvador.
Á sama tíma var ráðizt á rafveitu
borgarinnar og nokkur önnur fyrir-
tæki.
Að sögn lögreglunnar er talið að hér
hafi skæruliðar vinstri manna verið að
verki. Um síðustu helgi lýsti stjórn
landsins því yfir, að hún hefði fullkom-
lega bælt niður alla mótstöðu vinstri
manna kringum Suchitoto en þeir hafa
löngum látið mjög til sin taka á því
svæði.
Það sem af er þessu ári hafa um 1500
manns látið lifið í borgarastyrjöldinni í
EI Salvador. Á síðastliðnu ári er talið
að um 13 þúsund manns hafi fallið.
Valery Giscard d’Estaing forseti Frakklands og Helmut Schmidt kanslari Vestur-Þýzkalands hafa undanfarna daga ræðzt
við f París og ásamt háttsettum embættismönnum beggja þjóðanna. Báðir leggja þeir áherzlu á að Ronald Reagan verði ekki
einum látið eftir að marka stefnu Atiantshafsbandalagsins gagnvart Sovétmönnum. Það kemur fram i sameiginlegri yfir-
lýsingu þjóðanna sem send var út að viðræðunum loknum. Þar vara þeir meðal annars við þvi, að slökunarstefnan þoli ekki
fleiri áföll.
Kúbumenn
genguút
Á ráðstefnu óháðra ríkja, sem
hófst í gær réðst utanríkisráð-
herra Singapore, Suppiah Dhana-
balan, harkalegaá Kúbumenn, og
lét í ljós efa um, að þeir ættu
heima i samtökum óháðra ríkja
þar sem þeir styddu Sovétrikin.
Þrír fulltrúar Kúbu gengu út úr
fundarsalnum i mótmælaskyni
við ræðu utanrikisráðherrans.
Kúbumenn eru nú I forsæti
samtaka hinna 96 óháðu ríkja.
Framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, Kurt Waldheim, er
væntanlegur til Nýju Delhí f dag
þar sem ráöstefnan fer fram og er
talið, að hann muni beita sér fyrir
viðræðum írana, Pakistana og
Afganistan um lausn Afganistan-
málsins. franir hafa hins vegar
þegar lýst þvi yfir, að þeir muni
ekki taka þátt í neinum viðræðum
um Afganistanmálið meðan
sovézkar hersveitir eru i landinu
og leppstjórn jveirra þar við völd.
Vissir þú
að það eru 10 þúsund félagar í VR?
Magnús Ág. Magnússon,
fjármálastjóri
skipafélags.
Kristín Brynjólfsdóttir,
flugafyreiðslumaður.
Haukur Haraldsson,
afyreiðslumaður
í kjötverzlun.
Ása Gunnarsdóttir,
símavörður
á bifreiðastfíð.
Jón Magnússon,
afyreiðslumaður
í varahlutaverzlun.
Þau eru í stærsta launþegafélagi landsins,
Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur
vióskipti
&verzlun
T7T> _ 1 • H 1* /»i ' i 1 /■ i
/»/n /
REUTER