Dagblaðið - 19.02.1981, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1981.
5
SvavarGestssonfélagsmálaráöherra:
MEdNATRHNÐ AÐ ÁTTA SK
Á ÞVÍ HVE TJÓNB ER MIKID
—tryggingafélögin verða að draga lærdóma af fárviðrinii.
endurskoða 1% un vidlagatryggingu
„Bjargráðasjóður getur lítið og
hefur ekki getað í mörg ár svo það er
engin ný frétt. Hann hefur aldrei
getað neitt nema ríkisstjórnin kæmi
til aðstoðar,” sagði Svavar Gestsson
félagsmálaráðherra i gær. Eins og
fram kom í DB i gær mæltist stjórn
Bjargráðasjóðs til þess að félags-
málaráðherra tæki afleiðingar
tjónsins af fárviðrinu aðfaranótt
þriðjudags til sérstakrar meðferðar.
Annað hvort yrði að útvega tómum
Bjargráðasjóði fé, eða breyta lögum
um viðlagatryggingu.
„Þetta mál verður athugað en
ekki út frá þessari bókun Bjargráða-
sjóðs, enda er þetta mikið stærra
mál,” sagði ráðherrann. ,,í fyrsta
lagi verða menn að gera sér grein
fyrir tjóninu og því hve mikið var
tryggt. Þá verður að sjá að hve miklu
leyti tryggingafélögin geta lært af
þessum hlutum. Það er greinilegt að
af þeim þarf aðdraga lærdóma.
Síðan kemur að Viðlagatryggingu
íslands. Hún tekur ekki til óveðurs
og ég geri ráð fyrir því að óveðrinu
hafi verið sleppt vitandi vits þegar
þau lög voru samþykkt, þó ég viti
ekki hvað réði því. Það er
nauðsynlegt að taka afstöðu til þess
hvort menn vilja endurskoða lögin.
Þá er það mál sem ég hef verið
með í undirbúningi um hvort hægt sé
að tryggja meiri háttar
mannvirki hér á landi gegn náttúru-
„Bjargráðasjóður hefur aldrei getað
neitt nema rikisstjórnin komi til
aðstoðar. Það er ekki ný frélt,” segir
Svavar Gestsson, félagsmála-
ráðherra. •
DB-mynd S.
hamförum, t.d. virkjanir. Ég skipaði
menn í það mál fyrir 10 mánuðum.
Það er dæmi um það fyrirhyggjuleysi
sem menn sýna, að ég sendi öllum
fjöimiðlum fréttatilkynningu um
þelta efni, en það þótti þá ekki
eindálks virði. Menn átta sig ekki
fyrr en þetta er komið inn á borð.
Það er útiiokað að bæta þetta
tjón að fullu og við getum ekki gert
ráð fyrir fullum bótum. Það verður
'að meta hvert einstakt tilvik, auk þess
sem tryggingar bæta eitthvað.
Þetta er flókið mál og tekur tíma.
Það er því ekki hægt að segja fyrir
um hvenær niðurstaða liggur fyrir.
Tryggingafélögin þurfa að athuga
endurtryggingar, en meginatriðið er
að átla sig á því hve tjónið er mikið.
Það stendur næst sveitarfélögunum
að gera það og þau myndu síðan
senda skýrslur til ráðuneytisins. Og
auðvitað bera sveitarfélögin hluta af
Ijóninu sjálf,” sagði Svavar Gests-
son, félagsmálaráðherra.
-JH.
Alusuisse-
skýrslan
væntanleg
ívikunni
— viðræður st jórnvalda
ogsvissneskafyrir-
tækisins ínæsta
mánuði
„Við höfum óskað eftir skýrslu um
þætti sem varða afkomu íslenzka ál-
félagsins,” sagði Hjörleifur Guttorms-
son, iðnaðarráðherra, í viðtali við DB.
Hann kvaðst hafa óskað eftir skilum á
skýrslunni fyrir janúarlok síðastliðin en
frestur hefði verið veittur til miðs
febrúarmánaðar. Von er því á
skýrslunni þessa dagana.
„Engar viðræður eru í kringum
þessa skýrslu við Alusuisse. Hún
verður að sjálfsögðu skoðuð mjög
gaumgæfilega hér,” sagði Hjörleifur.
Hann kvað ekki ólíklegt að hún yrði
send endurskoðunarfyrirtækinu
Coopjer & Lybrand í London til
athugunar og álits.
Cooper & Lybrand er stórt fyrirtæki
og hefur áður komið við sögu vegna
reikninga ísal, t.d. 1973-’74.
Viðræður eru hins vegar fyrirhugað-
ar einhvern tíma í marzmánuði
um mikilvæg atriði í samskiptum ísal
og íslenzkra stjórnvalda, sem varða
framtíð fyrirtækisins.
-BS.
Suðurland
prentað
á Hellu
Prentsmiðjan á Hellu, Helluprent,
virðist vera að ná sér á strik eftir
erfiðleika fyrr í vetur. Verkefni hafa
aukizt, og má nefna prentun Suður-
lands, blaðs sjálfstæðismanna í kjör-
dæminu, en það hefur hingað til ver-
ið prentað í Prentsmiðju Suðurlands
á Selfossi.
Hjá fyrirtækinu starfa nú þrír
prentarar og í ráði er að fjölga starfs-
fólki. Búið er að ráða nýjan fram-
kvæmdastjóra, Valdimar Bragason,
en hann vann áður hjá Prentsmiðju
Suðurlands. Tók hann til starfa 5.
febrúar sl.
-KMU/H.T, Hellu.
ui irM\7Kin
tlUvNYNI/
Góð hugmynd getur fært þér mikið fé, gangi
þér vel í samkeppni Útvegsbankans um
hugmynd að nýrri sjónvarpsauglýsingu.
öllum er heimil þátttaka.
Fyrstu verðlaun eru kr. 2.000.“
önnur verðlaun eru kr. 1.000.-
Þriðju verðlaun eru kr. 500.-
Nánari upplýsingar í bæklingi sem liggur frammi í öllum
afgreiðslum bankans.
\pað
samkePP01'