Dagblaðið - 19.02.1981, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 19.02.1981, Blaðsíða 14
14 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 19.81. d Iþróttir Iþróttir Eþróttir iþróttir Iþró URVALSDBLDARDRAUMUR IBK LÍKAST HL FOKINN Framarar tryggðu sér að likindum sæti i úrvalsdeildinni næsta vetur er þeir unnu aðalkeppinauta sína, Kefla- vik, með 86 stigum gegn 75 i Haga- skólanum i gærkvöld. Sigur Framara var öruggur allan siðari hálfleikinn og Keflvikingar komust aldrei nær þeim en nam 8 stigum. Þar með verða Kefl- vikingar likast tll að dúsa einn vetur til i 1. deildinni en lið þeirra myndi þó sóma sér prýöilega í úrvalsdeildinni — rétt eins og lið Fram. Leikurinn var mjög spennandi allan fyrri hálfleikinn og skiptust liðin á um að hafa forystu nær allan timann og munaöi aldrei nema 1—3 stigum með fáeinum undantekningum þó. Keflavík leiddi um tíma 16—13, en á næstu tveimur mín. skoruðu Framarar 8 stig og komust í 21 —16. Þessi munur var einnig í hálfleik er liðin gengu til bún- ingsklefanna, 41—36. Fram skoraði fyrstu tvær körfur síðari hálfleiksins og komst síðan mest í 73—58. Á tímabili náðu Keflvíkingar aö hleypa smáspennu í leikinn en það var mest fyrir hetjulega baráttu Stefáns Bjarkasonar. Hittni Framara var svo miklu betri en Keflvíkinga og þeir voru mun harðari i fráköstunum enda flestir mun hærri en mótherjarnir. Þetta tvennt skipti sköpum og Keflavik náði ekki að brúa bilið. Fjórir leikmenn Fram báru af í gær og þó einkum reyndar þrir. Val Bracey, Viðar Þorkelsson og Símon Ólafsson. Þorvaldur Geirsson var ekki eins áber- andi en átti góðan leik í vöm. Hjá Keflavík var það Axel Nikulásson, sem mest kvað að í leiknum. Jón Kr. Gísla- son náði sér aldrei á strik. Ráðlegt hefði verið að hvíla hann um tíma, en Jón lék nær allan leikinn. Terry Read skoraði 27 stig, en einhvern veginn fannst manni að hann sæist aldrei. Stigin. Fram: Val Bracey 29, Simon Ólafsson 22, Viðar Þorkelsson 17, Þor- valdur Geirsson 11, Bjöm Magnússon 4, Björn Jónsson 2, Ómar Þráinsson 1. Keflavik: Terry Read 27, Axel Nikulás- son 18, Jón Kr. Gíslason 9, Stefán Bjarkason 8, Björn V. Skúlason 4, Viðar Vignisson 4, Óskar Nikulásson 3, Brynjar Jónsson 2. Dómarar vom þeir Jón Otti Ólafsson og Kristbjörn Albertsson. -SSv. sem heita Olafur Kate Bush í miðri Viku För til Kúbu Jón Baldursson við prentvél þá sem hann vinnur við f Exeter Newcas —Sí&3Öí4-0í5l nnferð ígærkvöld. LeikurviðTottev Smáliðið Exeter City úr 3. deild vann stórsigur á Newcastle f 5. umferð ensku bikarkeppninnar f gær. Sigraði 4—0 i Exeter og leikur við Totten- ham i 6. umferð á White Hart Lane i Lundún- um. Fimmtiu ár eru nákvæmlega siðan Exeter hefur náð svo góðum árangri i bikarkeppninni. Komst f sjöttu umferð 1931. Yfir 18 þúsund áhorfendur vom á leikvellin- um í Exeter i gærkvöld. Margir komust ekki inn á völlinn. Allt uppselt og fögnuður áhorfenda var gífurlegur i leikslok. Reyndar allan timann á meðan á leiknum stóð. Liðið léku á laugardag í Newcastle. Þar var jafntefli 1—1. Það var Peter Hatch, sem lék Newcastle-vörn- ina öðrum fremur sundur og saman í gærkvöldi. Á 13. mín. hafði hann reyndar heppnina með sér, þegar hann skoraði beint úr hornspyrnu. Á 20. min. skoraði Ian Pearson annað mark Exeter eftir frábæran undirbúning Hatch — og Peter Rogers skoraði þriðja mark Exeter á 42. min. Áður hafði Peter Hatch splundrað vörn New- castle. Leikmenn Newcastle, eins frægasta bikar- félags Englands, vom algjörlega yfirspilaðir og hefðu hæglega getað tvöfaldað markatöluna. Þeir létu sér þó aðeins eitt mark nægja til viðbót- ar. Martyn Rogers skoraði fjórða markið tveimur minútum fyrir leikslok. f fjórðu umferð- inni sló Exeter Leicester City úr 1. deild út. Sigraði 3—1 á heimavelli eftir að jafntefli varð fyrst í Leicester. Róðurinn verður erfiðari í BasláBelg Landslið Belgiu i knattspymu, sem komst i úr- slit i Evrópukeppninni sl. sumar, lenti i hinu mesta basll i HM-leiknum við Kýpur i Briissel i gær. Sigraði þó 3—2. Leikurinn er i 2. riðll og þessi úrslit eru mildð áfaU fyrir Belgiumenn þvi markamismunur gæti ráðið úrslitum i riðlinum. Frakkar og Írar hafa rótburstað Kýpurbúa i sinum leikjum. Lið Belgíu fékk þó fljúgandi start. Skoraði tvö mörk á fyrstu 11 mínútunum. Fyrst Gerard Plessers á 6. mín. og síðan Erwin van der Berg á 11. mín. Belgía hafði mikla yfirburði og það kom eins og köld vatnsgusa á áhorfendur og leikmenn, þegar Lysandrou minnkaði muninn í 2—1 á 41. mín. og ekki nóg með það. Fivos Vrahimis jafnaði fyrir Kýpur á 60. mín. Sendi knöttinn i autt markið hjá Jean-Marie Pfaff, sem hafði orðið að yfirgefa markið, þegar annar leikmaður Kýpur haföi komizt frír inn fyrir

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.