Dagblaðið - 20.02.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1981. 15
Hvað er á seyðium helgina?
Messur
Lesmessa og fyrirbænir fimmtudagskvöld 26. fcbrúar
,kl. 20:30. Sr. Arngrimur Jónsson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Fjölskylduguðsþjónusta
i Kópavogskirkju kl. 11 árd. Fullorðnir eru hvattir til
aö koma með börnunum til guðsþjónustunnar. Sr.
'Árni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Barnasamkoma kl. II.
Sigurgeir Sigurgeirsson, Jón Stefánsson. Sigurður
Haukur og fleiri sjá um stundina. Guðsþjónusta kl. 2.
[Organleikari Jón Stefánsson. Prestur sr. Sig. Haukur
Guðjónsson. Tekið á móti framlögum til Bibliufélags-
ins. Kirkjukaffi á vegum Kvenfélagsins kl. 2. Sóknar-
nefndin.
.LAUGARNESKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. II.
Messa kl. 14. Margrét Hróbjartsdóttir safnaðarsystir
predikar. Tekið á móti framlögum til Biblíufélagsins.
Þriðjud. 24. febr.: Bænaguðsþjónusta kl. 18. altaris-
ganga og aískulýðsfundur kl. 20:30. Föstud. 27. fcbr.:
Siðdegiskaffi kl. 14:30. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 10:30 árd. Messa
kl. 2. Sr. Frank M. Halldórsson. Kirkjukaffi. Munið
bænamessur á fimmtudagskvöldum kl. 20:30.
SELJASÓKN: Barnaguðsþjónusta að Seljabraut 54
kl. 10:30. Barnaguðsþjónusta i Ölduselsskóla kl.
10:30. Guðsþjónusta aðSeljabraut 54 kl. 2. Biblíudag-
urinn. Gideonfélagar kynna starfsemi sina. Geirlaug-
ur Árnason predikar. Sóknarprestur.
SELTJARNARNESSÓKN: Guðsþjónusta kl. II
árd. i Félagsheimilinu. Sr. Guðmundur Óskar Ólafs-
son.
FRlKIRKJAN I REYKJAVIK: Guðsþjónusta kl. 2
Organleikari Siguröur Isólfsson. Prestur sr. Kristján
Róbertsson.
FRlKIRKJAN I HAFNARFIRÐI: Barnatiminn er
kl. .10:30. Guðsþjónusta kl. 14. Dr. Þórir Kr. Þórðar
son ræðir um Bibliuþýðingar. útgáfu Bibliunnar og
notkun. Jón Mýrdal organleikari leikur verk eftir
Bach frá kl. 13:30. Eftir messu er kynnisferð til
Kaþólsku kapellunnar i Garðabæ. Safnaðarstjórn.
FlLADELFlA: Sunnudagaskólarnir byrja kl. 10.30.
Almenn guðsþjónusta kl. 20. Ræðumaður Jónas
Gislason ritari Bibliufélagsins. Fjölbreytlur söngur.
Fórn til Biblíufélagsins.
NÝJA POSTULAKIRKJAN, Háaleitisbraut 58:
Messa sunnudag kl. 11 og 17. Kaffi eftir messu.
Sýningar
Listasöfn
LISTASAFN ALÞÝÐU, Grensásvegi 16: Sýning á
verkum i eigu safnsins. Opið 16—20 virka daga. 14—
20 um helgar. •
NÝLISTARSAFNIÐ, Vatnsstig 3b: Gjörningavika.
19.—25. feb. Gjömingar fluttir kl. 20 á hverju kvöldi.
I kvöld (föstudagl: Kristinn G. Harðarson og Sveinn
Þorgeirsson. Laugardagskvöld: Bjarni Þórarinsson og
Halldór Ásgeirsson. Sjá grein aðofan.
GALLERÍ LANGBRÓK, Amtmannsstig 1: Grafik.
textíll, keramik o.fl. Opið 12—18 alla virka daga.
ÁSGRÍMSSAFN, Bergstaðastræti 74: Ný sýning á
verkum Ásgrims. Opið þriðjud.. fimmtud. og laugard.
kl. 13.30-16.
GAl.LERl KIRKJUMUMR, Kirkjustræli 10:
Sigrún Jónsdótlir. batik. kirkjumunir o.fl. Opið 9— 18
virka daga. 9—16 um helgar.
GALLERÍ LÆKJARTORG, Hafnarstrati 22:
Jóhann G. Jóhannsson. málverk, ísl. Ijóðabækur.
hljómplötur. Opiðá venjul. verzlunartima.
KJARVALSSTAÐIR: Vestursalur: Guðmundur Ár
mann og Sigurður Þórir. Vinnan — Fólkið — Landið.
Málverk. grafik og teikn. Opið 14—22 alla daga.
Lýkur sunnudagsk völd.
Hann dreymdi um
aðnálangt
—en vonbrígðin ýttu honum út í sjálfsblekkinguna
Willy Loman farandsali stendur á
þeim tímamótum sem bíða okkar
allra: að þurfa að horfast í augu við
að vera orðinn gamall og útslitinn.
Og öll leggjum við upp í lifið með
drauma um frægð og frama, ef ekki
fyrir okkur sjálf, þá fyrir börnin
okkar. Og það hefur Willy líka gert.
En það var eitthvað sem fór úr-
skeiðis, eitthvað sem hann gerði vit-
laust, og hér situr hann að leiðarlok-
um: Sem starfskraftur er hann á leið-
inni á öskuhaugana, sem faðir væg-
ast sagt misheppnaður, því synirnir
eru ráðleysingjar, og sem eigin-
maður, ja, konan hans er jafn þreytt
og gráhærð og hún er þolinmóð.
Leikritið „Sölumaður deyr”
fjallar um þennan mann og drauma
hans um að ná langt í lífinu, draum-
ana sem aldrei rættust.
Þetta leikrit er vafalaust einn af há-
punktunum i bandarískri leikritun
eftir seinni heimsstyrjöld. Það hefur
notið mikillar alþýðuhylli, en um leið'
er því líkt við Hamlet og aðra harm-
leiki heimsbókmenntanna.
Persónuleiki Willys, farandsalans,
er mótsagnakenndur. Hann er frem-
ur veiklyndur maður og hefur gripið
til þess ráðs að reyna að blekkja bæði
sjálfan sig og aðra þegar illa gengur.
Hann er heldur ekkert sérstaklega
gáfaður. En þegar hann er kominn i
þá raun að verða að horfast í augu
við að allar vonir hans eru brostnar
þá er örvænting hans hræðileg. Því
þrátt fyrir sina mannlegu galla þá
hefur hann verið einlæglega heill í
draumum sínum um bjarta framtið
— og þá kannske ekki sízt fyrir hönd
fjölskyldunnar. Það er ekki hægt að
þjást eins og Willy gerir nema hafa
stóra sál.
Og um leið og Arthur segir söguna
af Willy Loman er hann líka að tala
um einstaklinginn í nútíma þjóðfé-
laginu og hvernig honum gengur að
lifa samkvæmt forskriftum tímans:
„Brostu, vertu vinsæll og vinnu-
samur og áður en þú veizt af verður
þú orðinn ríkur.” Dæmið er bara því
miður ekki svona ein falt!
Loman-fjölskyldan enn nokkuð bjartsýn, þó sjálfsblekkingarinnar sé þegar farið að gæta: Svnirnir verða að sjálfsögðu
iþróttahetjur, segir faðirinn. (Frá v. Margrét Guðmundsdóttir, Andri Örn Clausen, Hákon Waage og Gunnar Eyjólfsson.)
DB-mynd: Bjarnleifur.
En um það má ræða lengi hvað
Willy og þar með nútimamaðurinn
gerði eiginlega skakkt. Það verður
mjög spennandi að sjá hvernig til
tekst með flutning á verkinu en þetta
gæti orðið svipmesta leiksýning
Þjóðleikhússins í vetur.
Gunnar Eyjólfsson fer með hlut-
verk sölumannsins hrjáða, en Andri
öm Clausen og Hákon Waage leika
hina rugluðu syni hans. Margrét
Guðmundsdóttir er eiginkonan, en
Bryndís Pétursdóttir huggun og til-
breyting á söluferðum. Árhi
Tryggvason leikur eina vin hans, og
Randver Þorláksson skólabróður
strákanna, en Róbert Arnfinnsson
bróðurinn sem hvarf og talinn er hafa
fundið demantsnámur i Afríku.
Smærri hlutverk eru i höndum Jóns
S.Gunnarssonar, Þórunnar Magneu,
Bessa Bjarnasonar, Sigriðar Þor-
valdsdóttur og Eddu Þórarinsdóttur.
Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson,
þýðandi dr. Jónas Kristjánsson, for-
stöðumaður Árnastofnunar, leik-
myndin er eftir Sigurjón Jóhannsson,
búningar eftir Dóru Einarsdóttur.
Lýsing er í umsjá Kristins Daníels-
sonar, en tónlistin er sérstaklega
samin af Áskeli Mássyni.
Frumsýningin er annað kvöld kl.
átta.
-IHH
Guðsþjónustur i Reykjavíkurprófastsdæmi sunnudag-
inn 22. febrúar 1981.
BIBLlUDAGURINN
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barnasamkoma i safn
aðarheimili Árbæjarsóknar kl. 10:30 árd. Guösþjón
usta i safnaðarheimilinu kl. 2. Tekið á móti gjöfum til
Hins islenzka Biblíufélags. Kirkjukaffi Kvenfélags Ár
bæjarsóknar eftir messu. Sr. Guðmundur Þorsleins-
son.
ÁSPRESTAKALL: Messa að Norðurbrún I kl. 2. Sr.
Árni BergurSigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Barnasamkoma kl.
10:30. Guðsþjónusta kl. 14 i Breiðholtsskóla. Sr. Lár
us Halldórsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnasamkoma kl. II. Guðs-
þjónusta kl. 2. Félagsstarf aldraðra cr á miövikudög-
um milli kl. 2 og 5 siðd. Sr. Ólafur Skúlason.
DIGRANESPRESTAKALL: Barnasamkoma i safn-
aðarheimilinu við Bjarnhólastig kl. 11. Guðsþjónusla i
Kópavogskirkju kl. 2. Sr. Þorbergur Kristjánsson.
DÓMKIRKJAN: Kl. 11 messa. Sr. Jón Bjarman. Kl.
2 messa. Sr. Þórir Stephensen. Fermingarbörn flytja
bæn og texta. Þess er vænzt að fermingarbörn og að
standendur þeirra komi til messunnar.
LANDAKOTSSPlTALI: Kl. 10 mcssa. Organleikari
Birgir Ás Guðmundsson. Sr. Þórir Stephensen.
ELLIHEÍMILIÐ GRUND: Guðsþjónusta kl. lOárd.
i umsjá sr. Arngrims Jónssonar.
FELLA- OG HÓLAPRESTAKALL: Laugardaeur:
Barnasamkoma i Hólabrekkuskóla kl. 2 e.h. Sunnu-
dagur: Barnasamkoma i Fellaskóla ki. 11 f.h. Guös
þjónusta i safnaðarheimilinu að Keilufelli I kl. 2 e.h.
Sr. Hreinn Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasamkoma kl. II. Guðs
þjónusta kl. 2, altarisganga. Skátar koma i heimsókn.
Almenn samkoma nk. fimmtudagskvöld kl. 20:30. Sr.
Halldór S. Gröndal.
HALLGRtMSKIRKJA: Bibliudagurinn. Messa kl.
11. Biskup Islands. herra Sigurbjörn Einarsson, pre-
dikar. Sr. Karl Sigurbjörnsson þjónar fyrir altari.
Messa kl. 2. Kirkjukaffi að lokinni messu. Sr. Ragnar
Fjalar Lárusson. Þriðjud. 24. febr: Fyrjrbænaguðs-
þjónusta kl. 10:30 árd. Beðiðfyrirsjúkum. Kirkjuskóli
barnanna er á laugardögum kl. 2 í gömlu kirkjunni.
LANDSPlTALINN: Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. II. Sr.
TómasSveinsson. Messa kl. 2. Sr. Arngrimur Jónsson.
Gjömingar f ramdir
í Nýlistarsafninu
Fremur hljótt hefur verið um Ný-
listarsafnið við Vatnsstíg það sem af
er þessu ári, eftir góða byrjun i haust.
Nú hyggst sýningarnefnd safnsins
hefja starfsemina með gjörningaviku
og fór fyrsti gjörningurinn fram i
gærkvöldi. Um gjörninga segir ann-
ars í upplýsingum frá Nýlistarsafn-
inu: ,,Með orðinu performance
(gjörningur) er átt við hugtak . . sem
felur i sér athöfn, óháða tíma, efnis-
notkun og umfangi, — athöfn einnar
manneskju eða fleiri. Gjörningurinn
kemur í kjölfar hinna svokölluðu
„happenings” (uppákoma) sem voru
litt undirbúnar athafnir.”
í sérflokki
Við þetta má bæta að þótt gjörn-
ingar séu oftast flokkaðir með mynd-
listum, þá eru þeir í raun í sérflokki
og taka mið af leiklist, tónlist, mynd-
list og dansi. Gjörningar hófu innreið
sína hingað með tilkomu Nýlistar-
deildar Myndlista- og handíðaskól-
ans árið 1977 og öðru hvoru hafa þeir
verið framdir við ýmis tækifæri.
Er skamms að minnast röð gjörn-
inga sem fluttir voru á Fríkirkjuvegi
snemma á síðasta ári, en þeir voru
allir ljósmyndaðir og gefnir út á bók
undir nafninu „Around perfor-
mance”. Ætlunin er að gjörningar
Nýlistarsafnsins verði sömuleiðis
festir á filmu eftirkomandi kyn-
slóðum til glöggvunar.
Á hverju kvöldi
Flutningur gjörninganna hófst sem
sagt í gærkvöldi með upptroðslu
Ólafs Lárussonar og verða þeir
haldnir á hverju kvöldi kl. 20Fram á
miðvikudagskvöld. Aðgangseyrir er
enginn. Þátttakendur verða þessir:
Föstudagur: Kristinn G. Harðarson
og Sveinn Þorgeirsson, laugardagur:
Bjarni Þórarinsson og Halldór Ás-
geirsson, sunnudagur: Sigríður Guð-
jónsdóttir og Eggert Einarsson,
mánudagur: Lars Emil, Kristján St.
Jónsson og Haraldur I. Haraldsson,
þriðjudagur: Erlingur P. Ingvarsson,
Árni Ingólfsson, Ragna Hermanns-
dóttir, miðvikudagur: Kristín
Magnúsdóttir og Finnbogi Péturs-
son.
Yfirgripsmikið
Þetta er yfirgripsmesta gjörninga-
hátíð sem hér hefur verið haldin og
upplagt tækifæri fyrir óinnvigða að
kynna sér þetta tjáningarform. Flutn-
ingsmenn hafa nær allir talsverða
reynslu í gjörningum og hafa jafnvel
framið þá á erlendri grundu.
- AI
Einn aðstandenda Nýlistarsafnsins og þátttakenda I gjörningavikunni, Árni Ing-
ólfsson. fremur gjörning að Korpúlfsstöðum sl. sumar.
Þjóðleikhúsið f rumsýnir Sölumaður deyr eftir Arthur Miller annað kvöld: