Dagblaðið - 02.03.1981, Side 1
7. ÁRG. — MÁNUDAGUR 2. MARZ 1981 - 51. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl ll.-AÐALSlMl 27022.
Krafa tögmams blaðamanna DB að þeim sé óskylt að svara spumingum rannsóknarlögreglustjórans:
Trúnadarsamband blaða-
manna tryggir ritfrelsi
sem vemdað er ístjómarskrá landsins
í greinargeröum sem lögmaður
blaðamanna DB, Atla Steinarssonar
og Ómars Valdimarssonar, lagði
fram í Sakadómi Reykjavíkur i
morgun, gerði hann þær kröfur að
úrskurðað verði að þeim, þ.e. blaða-
mönnunum, sé óskylt að svara þeim
spurningum sem beint var til þeirra af
hálfu rannsóknarlögreglustjóra ríkis-
ins í réttarhaldinu sl. föstudag varð-
andi heimildarmenn að frétt i DB 31.
janúar sl. í frétt um bruna í Kötlufelli
Vísaði lögmaðurinn til þess að
óheimilt væri að krefja menn vitnis-
burðar í opinberu máli nema eitthvert
afbrot hafi verið framið. Svo væri
ekki í þessu máli.
Þá vísaði hann til siðareglna blaða-
manna, sem leggja þeim þær skyldur
á herðar að gefa ekki upp heimildar-
menn sína, ef þeir æski þess. Það séu
augljósir hagsmunir. Annað myndi
skerða stórlega möguleika blaða-
manna til fréttamiðlunar og verða
þannig ritfrelsi því sem verndað er
með stjórnarskrá lýðveldisins alvar-
legur fjötur um fót.
Hugsanlegir hagsmunir sem
skylduðu til frávika frá þessari
meginreglu væru alls ekki ftnnanlegir
í þessu máli. Almannahagsmunir hafi
hér á engan hátt verið fyrir borð
bornir.
Hins vegar séu augljósir hagsmunir
almennings á því að hafa til sín upp-
lýsingastreymi, ekki sízt þær sem
upplýsingar um störf stjórnvalda séu
trygging almennings fyrir réttum
stjórntökum og til styrktar lýðræðinu
i landinu og hemill á gjörræðislegar
ákvarðanir og athafnir handhafa
opinbers valds.
Af tilefni sem lögmaðurinn telur
gefið með því að krafizt sé svars um
það, hver eða hverjir hafi talað við
íbúa Kötlufells 11 og slökkviliðs-
menn, spyr hann meðal annars, hvort
það varði orðið við lög að blaðamenn
Vigdís komin
Gunnar Thoroddsen farínn
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom
heim úr vel heppnaðri opinberri
heimsókn til Danmerkur í gærdag.
Tveir af þremur handhöfum forseta-
valds tóku á móti henni á Keflavíkur-
flugvelli, þeir Jón Helgason forseti
Sameinaðs Alþingis og Björn
Sveinbjörnsson forseti Hæstaréttar
(mynd). Gunnar Thoroddsen var ekki
viðstaddur, hann fór til Kaupmanna-
hafnar i gærmorgun til að sitja þing
Norðurlandaráðs sem hefst þar í borg í
dag. Heimsókn forsetans til Dan-
merkur hefur orðið tilefni meiri
umræðu um fsland og f slendinga i Dan-
mörku en elztu menn muna — og muna
þeir þó sitt af hverju. Ekki sízt vakti
athygli kryddsíldarfundurinn sem
sýndur var í íslenzka sjónvarpinu í gær-
kvöldi. Þær Vigdís og Margrét
Alexandrína Þórhildur Ingiríður
drottning þóttu standa sig með af-
brigðum vel. Danir sjónvörpuðu beint
frá fundinum og endursýndu filmuna
einu sinni. Auk þess hafa ótal erlendar
sjónvarpsstöðvar falazt eftir filmunni
til sýningar.
-ARH/DB-myndir Sig. Þorrl.
geti snúið sér til almennings og spyrji
um atburði sem hafa gerzt og menn
kunna að hafa verið vitni að?
Lögmaðurinn krafðist þess að um-
getinn forstöðumaður trúarsafnaðar
mætti fyrir sakadómi í morgun.
Hafnaði dómari þeirri kröfu. -BS
ÚrskurðurSakadéms
Reykjavíkur;
Blaöamenn J
skyldaðirtil
aðgefaupp
heimildar-
menn
— úrskurðirnir kærðir
til Hæstaréttar
Með úrskurðum Sakadóms
Reykjavíkur í morgun voru teknar til
greina kröfur rannsóknarlögreglu-
stjóra rikisins í þá átt, að blaöamenn
DB, Atli Steinarsson og Ómar Valdi-
marsson fréttastjóri, skyldu svara
spurningum þeim um heimildarmenn
sem krafizt var.
Þegar í stað tilkynnti lögmaður
þeirra, Skúli Pálsson hrl., að úr-
skurðirnir yrðu kærðir og þeim
skotið til Hæstaréttar íslands. Slík
kæra úrskurðanna tveggja frestar
framkvæmd og fullnustu.
Dómari var Hjörtur Aðalsteins-
son, ftr. yfirsakadómara. -BS.
FHðsamlegt
á Alþingi
Friðsamlegt verður væntanlega á
Alþingi næstu daga, meðan þing
Norðurlandaráðs stendur.
Fundir falla niður í dag, en hefjast
aftur á morgun. Ætlunin er að taka
fyrir þau mál sem litlum deilum
valda, meðan svo margir þingmenn
eru fjarstaddir á þingi Norðurlanda-
ráðs. -HH.
Slösuðust
íBláf jöllum
Tveir menn slösuðust talsvert í
Bláfjöllum í gærdag. Kunnur skíða-
maður var undanfari i braut og kom
á mikflli ferð niöur brekku og í
loftinu yfir hengju. Hengjan byrgði
honum sýn, þannig að hann sá ekki
mann sem stóð neðan hennar.
Árekstur varð því ekki umflúinn.
Maðurinn, sem stóð neðan
hengjunnar fótbrotnaði illa og hinn
skarst talsvert i andliti og missti
tennur.
Sjúkrabíll átti í nokkrum
erfiðleikum með að komast, vegna
mikils umferðaröngþveitis. Aðeins
ein akrein er upp í fjöllin ’og mikill
fjöldi skiðamanna á ferð í góðviðrinu
ígær -JH