Dagblaðið - 02.03.1981, Síða 3

Dagblaðið - 02.03.1981, Síða 3
3 DAGBLADID. MÁNUDAGUR 2. MARZ 1981._ Loðnuveiðar: ALLTOF STORT STÖKK —að fá aðeins að veiða helming þess sem við veiddumí fyrra Sjómaður hringdi: Ég vil gagnrýna skipulagið á loðnuveiðunum ef skipulag skyldi kalla. Ég er á svokölluðu loðnuskipi. Nú erum við komnir i höfn, búnir að binda landfestar og er ekki útlit fyrir að þær verði leystar á næstunni. Það eru ca 14 stór loðnuskip sem. ekki er hægt að nota til annarra veiða. Þessi skip verða að deila hinum takmarkaða loðnukvóta með minni skipum sem snúa sér nú þegar þau eru búin með kvótann sinn að þorskveiðum. Það sem ég vil gagnrýna er í fyrsta lagi kvótinn fyrir skip eins og þetta sem ég er á, það er allt of stórt stökk að fá aðeins að veiða helming þess sem við veiddum í fyrra. í öðru lagi, að þegar við erum að binda skip okkar við bryggju þá eru minni skipin, sem hafa setið við sama borð og við í loðnuveiðum, að skipta yfirá troll. Þetta verður sjávarútvegsráðuneyt- •ið að taka með í reikninginn þegar kvótaerúthlutað. «C Óli Óskars RE-175 er einn af stóru loðnuskipunum. DB-mynd S. Raddir lesenda Karli flnnst gjaldmiðilsbreytingin ganga erfiðlega fyrir sig. Bjórinn verði seldur f Ríkinu 1814—9990 skrifar: Þegar rætt er og skrifað um hvort selja eigi bjór hér á landi, koma and- stæðingar bjórsölu alltaf með þær mótbárur að tilkoma bjórsins muni auka fyllirí hjá unglingum. Þetta finnst mér reginfirra. Bjórinn ætti auðvitað að selja í áfengisverzlunum rikisins eins og annað áfengi. Ég fæ ekki séð að bjór- inn geti valdið meiri vandræðum en léttvinið sem er selt þar nú. Þá geta eingöngu þeir sem náð hafa tvítugs- aldri keypt bjórinn og þá er ekki auð- veldara fyrir unglinga að nálgast bjórinn en sterk vin. Skiptum alfarið yf ir f nýkr. hættum að nota gkr, Karl hringdi: Það vekur athygli mína að þegar verið er að tala um verðmæti í fjöl- miðlum er nær alltaf notaðar gkr. Þetta finnst mér ekki ná nokkurri átt, við komumst aldrei yfir þessa gjald- miðilsbreytingu ef það leggjast ekki allir á eitt um að nota nýkr. Ég vinn sjálfur i verzlun og finn það vel hvað fólk er óöruggt, sérstak- lega þegar um er að ræða hærri upp- hæðir. Hundraðföldun krónunnar hefur farið fram, og við verðum að fara að sætta okkur við það. Nýja sawnavélin, sem gerir alla saumavirmu auðveldari en áður: NECCHI siloiq NECCHI SlLTJia saumavélar eru búnar öllum kostum eldri véla auk ýmissa nýjunga. Með NECCHI S1LL7K3 saumavél er unnt að sauma nánast hvaða efni sem er - allt frá þunnum teygjuefnum til þykkra gallabuxnaefna. NECCHI S1LTJK3 saumavélar eru búnar mynsturveljara með liteinkenni. Þetta einfalda fyrir- komulag gerir allar stillingar við val á saumgerð fljótlegri og öruggari en áður hefur tíðkast. NECCHI SllZJia saumavélar eru með sérstökum búnaði, þannig að nálin hreyfist með því sem nast fullum krafti á hvaða hraða sem er.Þannig er unnt að sauma jafrrvel mjög þykk efni á litlum hraða. NECCHI SlLTJia saumavél vegur aðeins um 12 kg með tösku og öllum fylgihlutum. Hún er því sérlega létt í meðferð og flutningi. Nákveemt eftirlit við framleiðslu og sölu ásamt traustri þjónustu tryggja hámarksnotagildi NECCHI saumavéla. NECCHI SlLTJia saumavélum fylgir nákvcemur leiðarvísir á íslensku um notkun og viðhald. Útsölustaðir víða um land. Einkaumboð á íslandi: FÁLKIN N Suðurlandsbraut 8 - sími 84670 Spurning dagsins Eru bakaðar bollur á þínu heimili fyrir bolludag? Hjálmtýr Heiðdal auglýsingateiknari: Já, stundum. Haukur Vallýsson, nemi HI: Já, það er að minnsta kosti reynt. Anna Sigurðardóltir, starfsstúlka: Já, það hef ur alltaf verið gert. Hugrún Þorgeirsdótlir, húsmóðir m.m: Það getur verið, ég hef nú eiginlega hugsað mér það. Sigurður Magnússon, vinnur hjá Reykjavikurborg: Nei, það hefur aldrei verið, enda er ég einn og hef aldrei lagt úti mikinn bakstur. Kristbjörg Gunnarsdóttir húsmóðir: Já, það hefur alltaf verið gert.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.