Dagblaðið - 02.03.1981, Page 4

Dagblaðið - 02.03.1981, Page 4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. MARZ 1981. DB á ne ytendamarkað/ Og þá er það sprengidagsmaturinn... Á morgun boröa allir yfir sig Óhælt er að taka hressilega til matar sins á morgun, sprengidag. Saltkjöt og baunir, það er réttur dagsins. DB-mynd Sigurður Þorri. Áttu vonágestum... v Binna-rækju- kokkteill þykir sérlega góður Jóhanna í Keflavík hringdi til okkar á Neytendasíðuna og sagðist vera að leita sér upplýsinga um rækjukokkteil sem birtist í viðtali í Vikunni við Binna í Blómum og ávöxtum. Hún sagðist lengi vel hafa geymt þessa uppskrift þar sem hún væri með afbrigðum ljúffeng, en nú væri hún búin að tapa henni. „Mér datt í hug þar sem þessi kokkteill var mjög góður að Neytendasíðan gæti birt hann og þar með gefið fleirum kost á að reyna kokkteilinn,” sagði Jóhanna. Við fórum að sjálfsögðu strax á stúfana, höfðum samband við Sigurð Hreiðar ritstjóra Vikunnar og eftir hálftíma hafði hann fundið hinn ljúf- fenga Binna-rækjukokkteil. Og hann er þásvona: 200 gr majones 1 msk. Mangó-chutney ca 2 dl soðin hrisgrjón 400 gr rækjur Chilisósa salatblöð harðsoðin egg steinselja Mangó-chutney hrært saman við majonesið (hafið ekki stóra bita af chutneyinu). Bætið hrísgrjónunum út, í og síðan rækjunum. Bragðbætið með Chilisósu. Síðan er þetta sett á salatblöð og skreytt með eggjabát, sítrónusneið og örlitlu af kavíar. Fallegast er að nota kampavínsglös undir rækjukokkteilinn. Ef einhver vill vita í hvaða Viku uppskriftin birtist skal þess getið að það var í 52. tbl. 1976. -ELA. í morgun hafa vafalaust margir verið flengdir með vendi á meðan þeir lágu í svefnrofunum í bólunum. Þeir morgunglöðu með vendina hafa siðan fengið að borða sig sadda af rjómabollum. Á morgun borða menn hins vegar yfir sig af saltkjöti og baunum. Sprengidagur er þriðju- dagur í föstuinngangi. Kaþólskar þjóðir gera sér nokkra glaða kjöt- kveðjudaga áður en fastan hefst. Þrátt fyrir að við föstum ekki næstu vikurnar hefur það jafnan verið til siðs hér á landi að hafa salt- kjöt og baunir á sprengidag og ein- hvern tímann var það þannig að sá sem sprakk fyrst fékk túkall að laun- um. Sjálfsagt kunna allir að elda salt- kjöt og baunir, en yngstu húsmæð- urnar eru kannski ennþá óklárar og þess vegna birtum við hér uppskrift- ina svo ekkert fari nú á milli mála á morgun. Hvernig eldum við saltkjöt og baunir? Leggiö svokallaðar hálfbaunir í bleyti (þær eru þurrkaðar í pökkum) strax í 'kvöld. í Hússtjórnarbókinni segir að nota eigi 200 gr af baunum og 1 1/2 1 af vatni. Baunasúpan þarf aðsjóðaí 1 1/2 til 2 klukkustundir og athugið að e.t.v. þarf að bæta vatni út í svo baunirnar brenni ekki við. Gott er að hafa rófur með og sjóða þær í baununum og sjóða 2—3 bita af kjötinu með i baunapottinum. Er þá vissara að salta súpuna varlega. Þá er laukur einnig ómissandi og er hann skorinn þrisvar til fjórum sinnum yfir, en ekki i sneiðar. Það af saltkjötinu, sem ekki er soðið með í súpunni, er soðið sér í potti. Margir vilja hafa kartöflur í Víðir, Starmýri 2 Kjötmiðstöðin Laugalæk Straumnes, Vesturbergi Nóatún, Nóatúni 17 Melabúðin, Hagamel Nesval, Melabraut Kópavogur, Hamraborg Holtanaust, Smárahvammi 2, Hf. jafningi með saltkjötinu og sleppa þá gjarnan baunasúpunni. Auðvitað er ekkert til fyrirstöðu að hafa hvort tveggjameð. Hvert er verðið á sprengidagsmatnum? Við spurðumst fyrir í nokkrum verzlunum hvert verðið væri á salt- kjöti, rófum og baunum og virtist það mjög svipað alls staðar. Eins og sjá má er verðið nokkuð misjafnt á baununum, en það gæti stafað af þvi að tegundirnar eru ekki þær sömu. Og hér kemur þá verðið: Saltkjöt Rófur Baunir 32,05 5,60 5,95 pakki 32,00 5,50 2,60 poki 36,00 5,50 4,20 pakki 31,50 6,20 5,50 pakki 32,05 5,60 5,50 pakki 32,05 5,60 5,50 pakki 32,05 5,50 5,95 pakki 32,05 5,60 5,95 pakki Afskorin blóm dásamleg en fölna því miður f Ijótt Skiptið oft um vatn í blómavösunum, það getur verið hinn versti mengunarvaldur Á dögunum barst mikið af blóm- vöndum og skreytingum á heimilið vegna stórafmælis. Það er dásamlegt að hafa heimilið skreytt með afskorn- um blómum. En því miður er sú ánægja frekar skammvinn því blómin fölna fljótt. Á tæpri viku voru þau visnuð og þurfti að henda þeim út. — Að vísu voru það aðeins túlípan- arnir og írisarnir sem voru visnaðir. Við fleygðum jreim því en bjuggum til nokkrar skreytingar úr því sem enn var lifandi, tujugreinum, mímósu, forsythiu og ilmgreinum. — For- sythian og mímósan eru báðar með gulum blómum. Þau síðarnefndu fölna en blómin á fyrrnefndu grein- unum verða smám saman græn og duga þvílengur. Benda má á að afar nauðsynlegt er að skipta daglega um vatnið í blóma- vösunum. Það mengast ótrúlega fljótt og ekki er mikil prýði að grugg- ugu vatni í blómavasa. Einnig er hentugt aö skola blómleggina aðeins, sérstaklega ef vatnið hefur náð að fúlna. -A.Bj. Sýnishorn af tveimur skreytingum, sem við bjuggum til úr grænum jurtum, sem lifðu eftir að afskornu blómin voru visnuð. I skreytingunni til vinstri er ekkert nema tuja sem stungið er ofan f oasis. DB-myndir Bjarnleifur. « Visnuð blóm óhreinka mikið í kringum sig. Þess vegna fórum við með eina körfuna út á tröppur og hreinsuðum úr henni þar. Blm. heldur á forsythiugrein sem notuð var i aðra skreytingu. Gulu blómin á henni verða smám saman að litlum grænum blöðum, sem gefa okkur talsverðan vorsvip i stofurnar okkar á þessum langa vetri. — Að sjálfsögðu geymum við körfurnar eftir að búið er að fjarlægja blóma- skreytinguna. Þær má nota undir handavinnu, ávexti eða heimatilbúnar blómaskreytingar, jafnvel nr þurrkuðum blómunt! /

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.