Dagblaðið - 02.03.1981, Síða 8
8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. MARZ 1981.
(______________Erlent______________Erlent_______ Erlent Erlent _____________)
Egyptar
höfnuðu
tilboði
Israels
Vikuritið Mayo, sem er málgagn
stjórnarflokks Anwars Sadats, forseta
Egyptalands, skrífaði í gær að Egyptar
hefðu hafnað boði ísraelsmanna um
verulega tilslökun til þess að binda
enda á viðræður um sjálfstjórnarmál
Palestíumanna.
Blaðið segir að tilboðið hafi verið
sett fram af landbúnaðarráðherra ísra-
els, Ariel Sharon. Hafi hann flutt þetta
boð sendiherra Egyptalands i fsrael
ásamt með loforði um að viðræðunum
yrði lokið áður en kosningar færu fram
í ísrael í júní.
Sharon tjáði sendiherranum Saad
Mortada, að Menachem Begin, for-
sætisráðherra ísraels, væri reiðubúinn
að halda viðræðunum áfram og slaka
verulega á fyrri kröfum ísraels. Lagt
var til að viðræðunum yröi lokið í
síðasta lagi 26. maí næstkomandi.
Sharon lét þess ekki getið í hverju til-
slökun ísraelsmanna væri fólgin.
Stjórnvöld í Kairo munu hafa
hafnað boðinu vegna þess að þau
kærðu sig ekki um að dragast inn í
kosningabaráttuna í ísrael.
Viðræðurnar um sjálfstjórnarmál
hinna 1,2 milijóna Palestínumanna sem
búa á vesturbakka Jórdanár sigldu i
strandífyrra.
Sex bandarískir hemaðarráðgjafar til El Salvador.
Hemaðaraðstoð Banda-
ríkianna við stióm
vador eykst enn
Stjórn Ronalds Reagan hefur stigið
skref I þá átt að auka hernaðaraðstoð
viö E1 Salvador með þvi að senda sex
hernaðarráðgjafa til þessa stríðs-
hrjáða Mið-Amerfkurikis.
Bandariskir hernaðarráðgjafar í E1
Salvador eru nú orðnir 25 talsins.
Talsmaður bandariska utanríkisráðu-
neytisins neitaöi að tjá sig um fréttir
þess efnis að Bandaríkjastjórn hefði i
hyggju að senda 30 hemaðarráð-
gjafa I viðbót. Hann neitaði einnig aö
staöfesta fréttir um aö Bandaríkin
hygðust fljótlega veita E1 Salvador 25
milljónir dollara i aðstoð.
William Dyess, talsmaður utan-
rikisráðuneytisins, lagði áherzlu á að
hernaðarráðgjafarnir sex myndu
aðeins sjá um viðhald og þjálfun en
ekki fara á vígvöllinn með hermönn-
um stjórnar E1 Salvador.
Stjórn Ronalds Reagan hefur ekki
farið dult með þá fyrirætlun sína að
auka efnahags- og hernaðaraðstoð
viö stjórn E1 Salvador, sem á í blóð-
ugu stríði við vinstrisinnaða skæru-
liða.
Bandaríkjamenn hafa haldið því
fram að skæruliðarnir séu búnir
vopnum frá stuðningsrikjum Sovét-
ríkjanna, einkum Kúbu.
Sovétmenn hafa neitað ásökunum
Bandarikjamanna um að þeir sendi
vopn til skæruliða I E1 Salvador.
Bandarikjastjórn telur sig hafa lagt fram sannanir fyrír þvi að Sovétríkin og liðum. Á sfðastliðnu ári er talið að þrettán þúsund manns hafi fallið I El Salvador
stuðningsrlki þeirra styðji við bakið á skæruliðum I El Salvador með vopnasend- og ekki hefur dregið úr mannfallinu það sem af er þessu ári.
ingum. Myndirnar sýna vopn er stjórnarhermenn i El Salvador hafa náð af skæru-
Afríkuríkin vilja
algert viðskipta-
bann á Suður-A fríku
til að tryggja sjálfstæði Namibíu
Svörtu Afríkuríkin munu í dag hefja
baráttu fyrir þvi að algert viðskipta-
bann verði sett á Suður-Afríku þegar
allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna
kemur saman i dag til að fjalla um
framtíð Namibíu (Suðvestur-Afríku).
Afrikuríkin, sem eru orðin óþolin-
móð vegna fjölmargra misheppnaðra
tilrauna til að tryggja Namibíu sjálf-
stæði, vilja að þingið krefjist tafar-
lausra aðgerða öryggisráðsins. Leggja
Afríkurikin til að þær verði í formi al-
gers banns á Suður-Afríku, sem fer
með völd í Namibíu I óþökk og á snið
við samþykktir Sameinuðu þjóöanna.
Búizt er við því, að ýmsir fulltrúar vest-
rænna ríkja muni óska eftir meiri tíma
til að koma vitinu fyrir stjórn Suður-
Afríku með öðrum hætti.
Erlendar
fréttir
Samið
á N-Sjálandi
Ríkisstjórn N-Sjálands hefur komizt
að samkomulagi við verkalýðs-
hreyfinguna i landinu um að binda
enda á víðtæk verkföll sem staðið hafa
ií landinu i eina viku. Til allsherjarverk-
falls kom í landinu eftir að stjórnvöld
létu handtaka nokkra verkfallsverði.
Skæruliðar baska
réðust á lögreglu
Árás skæruliða baska á hóp
lögreglumanna í eftirlitsferð í gær er
áfall fyrir hófsamari baska, sem
aöeins nokkrum klukkustundum
áður höfðu án skilyrða óskað eftir
vopnahléi.
Þrír lögregluntenn særðust, einn
af þeim alvariega, er skæruliðarnir
vörpuðu sprengju að bifreið þeirra
og skutu á hana úr vélbyssum fyrir
utan Bilbao I gær. Skæruliðarnir eru
taldir úr hópi öfgamanna innan
aöskilnaðarhreyfingar baska, ETA.
Þetta var fyrsta ofbsldisverk Baska
frá þvi aö stjórnarbyltingar-
tilraunin var gerð á Spáni síðast-
liðinn mánudag. Sifelld hermdarverk
baska vot u einmitt meginástæðan til
bytlingartilraunar þjóðvarðliðanna,
sem höfðu spænska þinghúsið á sínu
valdi f sautján klukkustundir áður en
þeirgáfust upp.
Spænskir fjölmiðlar sökuðu að-
skilnaöarsinna baska um að bera á-
byrgð á stjórnarbyltingartilrauninni.
Þessum ásökunum svaraði
aðskilnaðarhreyfmgin með loforði
um að gripa ekki til vopna nema
herinn reyndi á ný að taka völdin eða
að snúið yrði við blaði I sjálf-
stjórnarmálum baska.
Pólskir bændur á markafli.
Ströng matarskömmtun í Póllandi:
Dregið úr sykur-
skammti Pólverja
Pólska stjórnin minnkaði i gær
sykurskammt landsmanna um helm-
ing en kvaðst mundu auka kjöt-
skammtinn í næsta mánuöi.
Vegna hins gífurlega matvæla-
skorts í landinu voru fyrirhugaðar
viðræður við verkalýðsfélögin um
tímabundna skömmtun á smjöri.
Hin opinbera fréttastofa Póllands,
Pap, segir, að áður boðuð kjöt-
skömmtun muni koma til fram-
kvæmda 1. apríl næstkomandi.
Áætlunin um kjötskömmtunina, sem
unnin er í samráði við verkalýðs-
félögin, gerir ráð fyrir að sérhver full-
orðinn Pólverji fái 3,5 kíló af kjöti og
kjötvörum á hverjum mánuöi.
Námumenn munu þó fá 5 kíló og
börn milli tíu og tólf ára munu fá 2,7
kíló.
Skömmtunin, sem verkamenn
kröfðust, var ákveðin eftir mánaða-
samningaþóf og hamstur sem bók-
staflega tæmdi verzlanir af öllum
matvörum. *