Dagblaðið - 02.03.1981, Qupperneq 10
10
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. MARZ 1981.
Erlent Erlent Erlent Erlent
Ný áætlun um f ramleiðslu neyzluvöru í Sovétríkjunum:
Neytendur í Sovétríkj-
unum gerast kmfuharðir
—viljafjöl-
breyttar
vörur
samkvæmt
nýjustu tízku
— segir talsmaður skæruliða. „Stefnum að lýðveldi,
ekki kommúnistaríki”
„Við fáum alþjóðlegan peningastyrk og cfnað fólk I El Salvador aðstoðar okkur
einnig.”
og það er mikilvægasta aðstoð
okkar,” segir talsmaðurinn.
Talsmaðurinn frá E1 Salvador,
sem heldur til i Stokkhólmi, segir
jafnframt að hann óttist íhlutun
Bandaríkjamanna. Það er
nauðsynlegt að umheimurinn, sér-
staklega bandamenn Bandaríkja-
manna í Vestur-Evrópu, aðvari
Ronald Reagan við slíkri íhlutun.
Um borgararstyrjöldina, sem nú
geisar í landinu segir talsmaðurinn að
hann sé sannfærður um að skæru-
liðar fari með sigur af hólmi.
íhlutun Bandaríkjamanna myndi
lengja styrjöldina um tíu-tuttugu ár.
En skæruliðar munu að lokum sigra.
Hér munu Bandaríkjamenn fá nýtt
Víetnam ef landið tekur sig ekki
saman.
Það er ekki rétt að E1 Salvador
muni verða kommúnistaríki strax
og við erum laus við herforingja-
stjórnina. Hugur okkar stendur til
lýðveldis. Við viljum koma á valda-
dreifingu í landinu og íbúar landsins
eiga að ráða hvers konar stjórnkerfi
skuli viðhaft. Þegar hreyfing okkar
kallar sig byltingasinnaða er það
vegna þess að við viljum breyta því
stjórnkerfi sem er í E1 Salvador í dag.
Það er ekki það sama og Bandaríkja-
menn kalla kommúnistaríki.
magnið ráðið í léttaiðnaðinum og
það hefur leitt til þess að fram-
leiðandinn hefur ráðið á markaðnum
undir reglunni: „Taktu það sem til
er.”
En nú er það neytandinn sem
ræður ferðinni. Frá árinu 1981
verður innleitt nýtt kerfi sem á fyrst
og fremst að hvetja til betri og
nýtízkulegri framleiðslu.
Eitt helzta atriði áætlunarinnar
varðandi framleiðslu neyzluvöru er
endurbygging margra léttaiðnaðar-
fyrirtækja og endurbætur á tækniút-
búnaði þeirra og þá fyrst og fremst
vefnaðar- og klæðaverksmiðja.
Áætlað er að 1.5-falda
framleiðslu húsgagna, sjónvarpa,
leirtaus, isskápa, þvottavéla o. s.frv.
Auk þes er lögð áherzla á það i
áætluninni að brátt verði hafin
framleiðsa á nýjum gerðum þessarar
vöru, sem verða í senn fullkomnari
og fallegri.
Við lausn þessa vandamáls hafa
Sovétrikin hugsað sér að að færa sér í
nyt yfirburði hinnar alþjóðlegu
verkaskiptingar, og þá aðallega við
Comecon-löndin, og eru uppi á-
ætlanir um slíkt samstarf á mörgum
sviðum, t.d. baðmullarframleiðslu,
framleiðslu gerviefna o. fl. Einnig
verður aukið samstarf við sósíalísku
löndin í framleiðslu nýrra tegunda
sjónvarpstækja, útvarpstækja,
myndsegulbanda og annarrar fram-
leiðslu.
Hvíta bók Bandaríkjamanna um El Salvador sögð byggja
áósannindum:
„HÖFUM KEYPT ÖLL
OKKAR VOPN Á
SVÖRTUM MARKAÐI”
„Fullyrðing Ronalds Reagan
Bandaríkjaforseta um að El Salvador
fái vopn frá Austur-Evrópu er ekki
rétt. Næstum öll hergögn eru keypt á
svörtum markaði,” segir talsmaður
Lýðræðisbyltingarsambandsins FDR
í E1 Salvador. Hann segir að
fullyrðing Bandarikjastjórnar þessa
efnis sé aðeins þáttur í herferð þeirra
gegn kommúnistadraugnum.
,,Hin svokallaða Hvíta bók
Bandaríkjamanna (sem átti að sanna
að Sovétmenn stæðu bak við
skæruliða vinstri manna i E1
Salvador) er helber lygi,” segir tals-
maður FDR á Norðurlöndum.
„Við fáum alþjóðlegan peninga-
styrk og efnað fólk í El Salvador
aðstoðar okkur einnig. Fyrir þessa
pæninga kaupum við vopn,” segir
talsmaðurinri.
FDR er stærsti byltingaflokkur í
E1 Salvador og meðal stuðnings-
manna eru kristilegir demókratar og
sósíalistar.
,,Við þurfum ekki alþjóðaaðstoð
til þess að vinna gegn herforingja-
stjórninni. Fólkið stendur með okkur
„Fólkió stendur með okkur.’
Það er liðinn sá tími þegar
sovézkur kaupandi var ánægður með
alla neyzluvöru sem á boðstólum var.
Það má segja að núna séu vandamál
tengd framleiðslu neyzluvöru það
málefni sem verður fyrir mestri
gagnrýni í sjovézkum blöðum, þó að
sovézkar verzlanir séu fullar af fötum
og skóm, segulböndum, ísskápum og
sjónvarpstækjum.
Það er komið upp áhugavert á-
stand á sovézkum markaði. Neyt-
andinn hefur mikla peninga milli
handanna og nóg er af vöru á
boðstólum. Hér er um það að ræða
að ekki er samræmi milli framboðs
og eftirspurnar. Það vantar á
markaðinn þær vörur sem neyt-
andinn vill kaupa, þ.e.a.s. fjölbreytt-
ar vörur samkvæmt nýjustu tízku
sem fullnægja smekk hvers ogeins.
Sú kauphækkun sem orðið hefur í
Sovétríkjunum hefur gjörbreytt
kröfum kaupandans en laun hafa
tvöfaldazt á síðastliðnum 15 árum.
Félagsfræðingar, sem fylgjast með
útgjöldum vegna heimilishalds, hafa
komizt að þeirri niðurstöðu að
nokkrir útgjaldaliðir heimilis-
bókhalds hafa hækkað mjög. Það
eru útgjöld til kaupa á heimilis-
tækjum, sjónvarpstækjum, útvarps-
tækjum, hljómflutningstækjum,
húsgögpum, leirtaui og fleiru. En
getur sovézkur iðnaður fullnægt
eftirspurn eftir þessari vöru? Við
skulum taka dæmi en það er
framleiðsla á svo hversdagslegum
hlut sem ísskápum.
Framleiðsla ísskápa hófst síðar i
Sovétríkjunum heldur en í flestum
hinna þróuðu iðnaðarlanda, eða i
upphafi sjötta áratugarins. En það
var farið svo örl af stað að Sovétríkin
eru komin í eitt af efstu sætunum í
heiminum hvað snertir framleiðslu
þeirra. Núna skila fjögur lönd,
Sovétríkin, Bandaríkin, Ítalía og
Japan, um það bil 70% af ísskápa-
framleiðslu heimsins. Árið 1965 voru
framleiddir 11 ísskápar á hverja
sovézka fjölskyldu en árið 1980 voru
þeir 80 á hverja fjölskyldu. Margar
tegundir eru á markaðnum eða um
40. Ýmsar tegundir hafa ekki aðeins
orðið eftirsóttar á innanlands-
markaði.heldur einnig erlendis.
„Bírjúsa” ísskápurinn, sem
framleiddur er í Krasnojarsk í
Austur-Síberíu, er fluttur út til Bret-
lands, Belgíu, Hollandv. irlands og
margra hinna sósialisku landa. Þessi
tegund er í öðru sæti í Bretlandi af
innfluttum ísskápum og er seld þar
undir merkinu Snow Cup og keppir
með góðum árangri við framleiðslu
bandarískra, japanskra og vestur-
evrópskra fyrirtækja.
Það má segja að ástandið í þessu
efni sé hagstætt og það sama má
segja um framleiðslu Ijósmyndavéla,
úra o. fl., en þvi miður eru enn marg-
ar framieiðslugreinar sem geta ekki
stært sig af því að bregðast fljótt við
Það vantar á markaðinn þær vörur sem ne.vtandinn vill kaupa.
kröfum neytandans. Þar má nefna
fataiðnað, skóiðnað og húsgagna-
iðnað. Til að ráða bót á þessu er í
bígerð að gera heildaráætlun um
eflingu og endurbætur á framleiðslu
neyzluvöru. Þessi áætlun er í for-
gangsröð í „Drög að efnahagsáætlun
fyrir árin 1981-1985 og fram til
1990”.
Uppbygging samræmis í
framleiðslu og eftirspurn er beint
tengd breytingum í vélabúnaði
sovézks iðnaðar. Hér er um það að
ræða að um langan aldur hefur