Dagblaðið - 02.03.1981, Síða 15

Dagblaðið - 02.03.1981, Síða 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. MARZ 1981. 15 Jón Sigurbjörnsson og fleiri 1 óperunni Þrymskviðu sem flutt var fyrir nokkrum árum f Þjóðleikhúsinu. smiðjuþilinu, en inni í smiðjunni var rökkur og Jaessi munur á birtunni, skjannahvítt úti en dimmt inni, hefur á einhvern undarlegan hátt greypt sig í huga mér og aldrei yfirgefið mig. í ruslabing við smiðjudyrnar fann ég litinn hamarshaus. Ég fór með hann inn og sýndi smiðnum, Jóni Stefánssyni, sem enn er á lift. Hann tók við hamarshausnum án þess að segja orð, hann var afar þögull og hsegferðugur, og ég fór aftur út að leika mér. Stuttu seinna kom Jón út úr myrkri smiðjunnar og rétti mér hausinn með nýgerðu skafti á. Síðan hvarf hann aftur inn í smiðjuna og þögnina.” Smámennum er smátt skammtað Að gefa barni verkfæri, það má leggja út af því. Og þegar talið snýst aftur að menningarmálum þjóðar- innar og sérstaklega að hlut sjón- varpsins í þvi efni er Jón ómyrkur í máli. HoVium finnst sjónvarpið ekki rétta íslenzkum listamönnum verk- færi. Auðvitað er hann dálítið sár af því að sjónvarpið sýndi að hans dómi mjög lítinn áhuga á því að filma ball- ettinn Blindisleik. ,,En eru þeir ekki svo félitlir,” segjum við í afsökunarskyni þótt við séum sammála Jóni um það að sam- vinna sjónvarpsins við leikhúsin sé átakanlega ósýnileg. „Smámennum eru alltaf skammt- aðir smáaurar,” segir Jón og verður eins og jökulfljót í leysingu. „Ef fólk liti upp til sjónvarpsmanna fyrir stór- huga menningarpólitík og frumlega sköpun þá fengju þeir meira fé.” Hann bendir á hve mikil tækifæri liggja ónotuð. „Það þyrfti að fá menn til að sýna þjóðinni málverk gömlu meistaranna, eins og Ásgrím til dæmis, og síðan samtíðina. Nú eru allir komnir með dýrindis litsjónvörp og þetta er kjörið efni — ekki dýrt.” Alltaf til nógir peningar í poppið „Það er ekki af hégómaskap, minnsta kosti ekki tintómum, sem mig langaði að fá Blindisleik í sjón- varpið. Ég hefði haft af því tekjur sem hefðu gert mér fært að minnka við mig kennslu og vinna að tónlist. ” Svo segir hann að popp-tónlistin fái stórar fjárveitingar hjá sjónvarp- inu. „Það var eytt 40 milljónum í prógramm um Hauk Morthens, 70 milljónum í söngvakeppnina og þetta eru bara plötuauglýsingar!!!” Það er þó fjarri því að Jón Ásgeirs- son láti fálæti sjónvarpsmanna alvar- lega á sig fá. Það er hugur í honum og hann hefur mikið á prjónunum. Hann ætlar að ráðast í aðra óperu og hefur fengið Friðrik Guðna Þór- leifsson Hornstrendings til að semja með sér texta upp úr Fornaldarsögum Norðurlanda. Aðalhetjan er Norna- Gestur sem segir bardagasögur af langri ævi sinni en hann varð þrjú hundruð ára gamall, eins og elztu menn muna. Þar koma riddarar til skjalanna og möttull einn sem þeir notuðu til að sannreyna hvort konur þeirra hefðu gamnað sér með hesta- sveinunum meðan riddararnir voru úti að striða. „Tómt grin,” segir Jón og segir okkur að lokum frá kórverki sem hann hyggst semja við texta upp úr gömlum annálum og eru þeir öllu alvarlegri. Þar segja örstuttar setn- ingar frá hungri og drepsóttum sem næstum höfðu gjöreytt þjóðinni í lok fimmtándu aldar. „En það sem ég skrifa næst verður þó selló-konsert sem búið er að panta hjá mér,” segir Jón. Er það pöntun frá sinfóníunni? spyrjum við. „Nei, það er pöntun frá konunni minni,” segir Jón, og þar með þykj- umst við hafa tafið hann nógu lengi og sláum botninn í samtalið. -IHH. Ur ballettinum Blindisleik. „Það sem einkennir Jón Ásgeirsson er þor til að leggja við atlögu við verkefni, sem enginn tslendingur hefur unnið áður... og það hefur orðið til þess að við eignuðumst bæði óperu og ballett,” sagði Eyjólfur Melsted fyrir hönd dómnefndar, sem veitti Jóni verðlaun fyrir Blindisleik. -DB-mynd: Bjarnleifur. lEjnsTPEDim BOHfiPlOKKftR Viö erum meö sérstaka kynningardeild á bókamarkaöinum í Ársölum viö Bílds- höföa og kynnum þar þrjá einstæða bókaflokka meö allt aö 55% afslætti. HVAÐ GERÐIST A ÍSLANDI 1979 Þessi merki bókaflokkur hóf göngu sína fyrir síöustu jól. Fyrsta bókin nefndist HVAÐ GERÐIST Á ÍSLANDI 1979 Næsta bók fjallar um áriö 1980 og árlega mun bætast bók í flokkinn. Nú getur þú gerst áskrifandi þessa stórfróðlega og yfir- gripsmikla bókaflokks og notiö sérstakra áskriftarkjara og jafnframt keypt fyrstu bókina meö 25% kynningar- afslætti. Þessar bækur vaxa aö verö- mæti meö árunum. Fylgist meö frá byrjun. Kynniö ykkur sértilboö okkar á bókamarkaöinum, komið viö í kynningardeild fyrirtækisins. LOND OG LANDKONNUN Könnunarsaga veraldarinnar í fjórum litprentuðum bindum fyrir aðeins 100 krónur. Mannkynssagan er ekki bara morö og dráp undir stjórn frægra hershöföingja, heldur einnig og ekki síöur saga þeirra sem af óbugandi kjarki og brennandi þrá til þess aö kanna ókunna stigu lögöu af staö út í óvissuna og færöu út landamæri heims- ins og þekkingarinnar. Viö bjóöum fjögur bindi bókaflokksins LOND OG LANDKÖNNUN meö 55% af- slætti á sléttar 100,00 krónur. I LEIT AÐ HORFNUM HEIMI Fjögur litprentuö bindi fyrir aöeins 44 krónur. í þessum einstæöa bóka- flokki eru bækurnar Fall og eyöing Troju, Hin sagnfræöi- legu ævintýri víkinganna, Leyndardómar Faraóanna og Hin týnda borg Inkanna. Þessar bækur bregða skemmtilegu Ijósi á liðna tíö og eiga erindi í öll heimilis- bókasöfn. Viö bjóöum fjögur bindi meö 55% afslætti á aöeins 44,00 krónur. ÖRN&ÖRLYGUR Síöumúlall, sími 84866 SGS

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.