Dagblaðið - 02.03.1981, Page 18
18
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. MARZ 1981.
íþróttir
Framarar
í úrvalsdeild
áný
— en Þórsarar vilja ekki
fallaátakalaust
Framarar endurheimt'i úrvalsdeildar-
sæti sitt í körfunni um helgina er þeir
rótburstuðu Grindvikinga 104—79 i
Njarðvík. Á sama tima sigruðu Kefl-
vikingar Skallagrim 95—90 í Borgar-
nesi, en sigurinn dugði þeim ekki. Geta
þeir nagað sig i handarbökin fyrir að
tapa leik við Þór á Akureyri fyrir
skemmstu.
Þór og Skallagrímur verða nú að
leika tvo aukaleiki um hvort liðið fellur
í 2. deildina. Þórsarar hafa hins vegar
gefið upp alla von í kærumálinu gegn
Grindavik og ætla ekki að gefa sig fyrr
en i fulla hnefana. Hafa þcir hug á að
sækja málið eins langt og kostur er.
Hvort svo það dugar þeim verður að
koma í Ijós siðar.
-SSv.
Ármann
á leið í 3. deild
Tvcir leikir fóru fram i 2. deild
karla i handknattleik um helgina. A
Akureyri sigraði KA Þór 25—18 í
slökum leik. Þórsarar höfðu yfir-
höndina framan af en i hálfleik hafði
KA forystu, 10—8. Síðari hálf-
leikurinn var svo að mestu eign KA,
sem jók muninn jafnt og þétt. Flest
mörk KA skoraði Gunnar Gíslason,
átta talsins. Erlingur og Þorleifur voru
með 4 hvor. Fyrir Þór skoraði Sig-
tryggur Guðlaugsson 5, en Sigurður
Sigurðsson 4. KA á góða möguleika á
að komast í 1. deild, en á eftir erfiða
leiki syðra gegn Tý og ÍR m.a. í hinum
leiknum sem fram fór sigraði Aftureld-
ing Ármann 24—19 og má þar með
telja vonir Ármenninga um að halda
sér i deildinni harla litlar.
-SSv.
Lundbackvann
Vasa-gönguna
Svíinn Sven-Aake Lundbáck sigraði
í gær í 58. Vasagöngunni, sem fram fór
að vanda i Mora í Sviþjóð. „Þetta er í
fyrsta og eina skipti sem ég mun keppa
í þessari göngu, en það er dásamleg
tilfinning að hafa sigrað,” sagði hann
aðlokinni göngunni.
Hann gek hina 85,8 km löngu vega-
lengd á 4 klukkustundum, 29 mínútum
og 32 sekúndum. Hann varð tveimur
mínútum á undan landa sinum, Bengl
Hassis. Þriðji varð Ingibjörn Lunde-
vall frá Sviþjóð og Frakkinn Jean-Paul
Pierrat, sem sigraði i Vasagöngunni
1978, varð fjórði.
Bandarikjamp.ðurinn Bill Koch varð
fyrstur af þeim keppendum, er komu
ekki frá Evrópu. Hann varð i 7. sæti.
Sigurvegarinn frá i fyrra, Walther
Mayer frá Austurriki, varð 18.
Keppendur i göngunni voru nú um
12.000 talsins, þar af 200 konur, sem
fengu loks að taka þátt í henni. Sú
þeirra er varð hlutskörpust heitir
Meerli Bodelid frá Sviþjóð og varð i
411. sæti — klukkustund á eftir sigur-
vegaranum.
Einvígi
Keppnin í frönsku 1. deildinni er að
snúast upp í algert einvigi á milli
Nantes og St. Etienne. Nantes sigraði
Lille 3—0 á útivelli um helgina á sama
tíma og St. Etienne vann Valenciennes
1—0 — einnig á útivelli. Nantes hefur
44 stig, St. Etienne 43 og síðan kemur
Bordeaux með 38 og Mónakó með 37.
íþróttir Sþróttir Íþróttir íþrótt
íslandsmeistarar Vikings eftir sigurinn á Fram í gærkvöld.
DB-mynd Friðþjófur.
Víkingur varð meistari!
—rauf þriggja ára sigurgöngu Vals á innanhússmeistaramótinu í knattspymu.
Valur meistari í kvennaflokki
Víkingar urðu íslandsmeistarar í
innanhússknattspyrnu f gærkvöld er
þeir sigruðu Framara veröskuldað
6—3 i úrslitaleik mótsins eftir að
staðan hafði verið jöfn, 2—2, í hálf-
leik. Það var mál manna að
Víkingarnir væru vel að sigrinum
komnir — þeir hefðu að öllu jöfnu sýnt
beztu knattspyrnuna. Þeir lögðu m.a.
Valsmenn, íslandsmeistarana sl. þrjú
ár, að velli, 10—9, i tvíframlengdum
leik. Leikurinn var talinn sá bezti á
mótinu. Geysilega vel leikinn og
spennandi.
í úrslitaleiknum var mikil spenna
framan af en svo skoruðu Víkingarnir
Standard fékk
Ijótan skell!
Standard Liege fékk heldur betur á
baukinn i belgisku 1. deildar-
keppninni um helgina er liðið mætti
Antwerpen. Antwerpen sigraði 5—1 og
átti Standard aldrei vonarglætu.
Lokeren, sem sýnt hefur meiri
stöðugleika undanfarið, notaði
tækifærið sem gafst og skauzt upp fyrir
Standard með 5—3 sigri yfir
Molenbeek. Úrsiit urðu annars þessi í
Belgfu:
Waregem-Berchem 3—0
FC Liege-Beerschot 0—1
Beringen-Courtrai 1—1
Lokeren-Molenbeek 5—3
FC Brugge-Lierse 3—1
Gent-Beveren 1—0
Antwerpen-Standard 5—1
Anderlecht-CS Brugghe 2—1
Waterschei-Winterslag frestað
Ásgeir Sigurvinsson lék ekki með
Standard þar sem hann var að ljúka
leikbanni. Karl Þórðarson og félagar í
La Louviere gerðu jafntefli á útivelli
við St. Niklaas, 1 — 1.
Anderlecht 23 19 2 2 45—13 40
Beveren 23 14 4 5 38—19 32
Lokeren 23 13 4 6 50—26 30
Standard 23 12 5 6 43—32 29
FC Brugge 22 11 3 8 49—31 25
Gent 23 9 6 8 38—31 24
Lierse 22 8 7 7 35—30 23
Antwerpen 22 8 7 7 32—34 23
Molenbeek 23 10 3 10 33—36 23
Waregem 23 8 6 9 30—31 22
Winterslag 22 10 2 10 28—34 22
Courtrai 23 7 5 11 25—35 19
CS Brugge 23 6 5 11 35—52 17
Waterschei 21 7 2 12 40—50 16
FC Liege 22 6 4 12 29—43 16
Valsmenn halda
afmælishátíð
Körfuknattleiksdeild Valsmanna
gengst fyrir heljarmiklu skemmtikvöldi
i kvöld í Laugardalshöllinni og er þetta
fyrsti liðurinn i hátiðahöldum í tilefni
af 70 ára afmæli félagsins, sem er í ár.
Margt verður til gamans gert en dag-
skráin hefst kl. 19.30 með leik Vals og
KR í 3. flokki. Að þeim leik loknum
mun formaður Vals, Pétur Svein-
bjarnarson, halda stutta ræðu, en
síðan tekur við „nýstáriegur
kappleikur” eins og Halldór
„Henson” Einarsson komst að orði í
gærkvöld. Munu þar etja kappi saman
glímumenn og lyftingakarlar og er
ætlunin að þeir leiki handknattleik.
Þar á eftir munu Valur og Fram
ieika innanhússknattspyrnu. Að þeim
leik loknum mun Baldur Brjánsson
frenja töfrabrögð eins og honum einum
er lagið (það er heizt að Jói Ámunda
geti haft roð við honum) og lokaatriði
skemmtunar þessarar er viðureign
Valsmanna og stjörnuliðs Jóns Sig-
urðssonar. Innan vébanda þess kennir
margra grasa og má búast við
hörkuleik.
-SSv.
3 mörk í röð og erðu út um leikinn
Lárus Guðmunsdson skoraði þrívegis.
Magnús Þorvaldsson tvívegis og
Heimir Karlsson einu sinni. Fyrir Fram
skoraði Guðmundur Steinsson tvö og
Guðmundur Torfason eitt. Pétur
Ormslev lék ekki með Frömurum og
munar um minna.
Úrslitaleikurinn í kvennaflokknum
var hins vegar öllu meira spennandi.
Þar áttust við Valur og Akranes og
sigruðu Valsstúlkurnar 2—1 í
æsispennandi viðureign þar sem
knötturinn var langtimum saman inni í
þeirra eigin vítateig. Þrátt fyrir ákafa
sókn tókst Skagastúlkunum aðeins að
skora einu sinni — Laufey Sigurðar-
dóttir, sannkallaður baráttujaxl. Þær
Ragnheiður Víkingsdóttir og Bryndís
Valsdóttir tryggðu Val sigurinn.
Eins og venjulega var keppt í
flokkum á mótinu og þetta innanhúss-
mót er eitt bezt skipulagaða mót sem
fram fer almennt. Tímaáætlun stóðst
geysilega vel og allt skipulag eins og
bezt verður á kosið. Það kom einna
helzt á óvart hversu KR-ingar komu illa
út úr mótinu. Þeir hafa undanfarin ár
verið á meðal beztu innanhússliðanna,
með leikmenn á borð við Elías
Guðmundsson og Sæbjörn
Guðmundsson innan sinna raða, en nú
brást allt. Þeir fengu 1—7 skell gegn
Skagamönnum og síðan 2—10 burst i
hausinn gegn Víkingi. Staðan í hálfleik
í þeim leik var 1—1!
Það kom því í hlut KR að leika um
fallsæti í B-riðilinn en með 11—4 sigri
yfir Ármanni var A-riðilssætið tryggt.
Ármenningar og Óðinn féllu í B-riðil.
Upp úr B-riðli koma í þeirra stað
Fylkir og KS. Niður úr B-riðli féllu
Léttir og ÍK og í þeirra stað komu
Selfoss ogTýr.
-SSv.
Þróttarar Isl
meistarar f
—eiga samt þrjá leiki eftir—Víkingur næ
í 1. deild kvenna
Þróttur varð íslandsmeistari í 1.
deild karla i blaki er liðið vann Fram
með þremur hrinum gegn engri í
íþróttahúsi Hagaskóla á laugardag.
Með sigri sínum yfir Fram komst
Þróttur i 26 stig en ÍS, sem var eina
liðið sem náð gat Þrótti, getur aðeins
náð 24 stigum. Reyndar töpuðu Stúd-
entar fyrir Vikingum um helgina.
Þróttarar eiga þrjá leiki eftir og
þeirra markmið nú er að vinna mótið
með fullu húsi stiga. En hætt er við því
að það verði erfitt leiki þeir ekki betur
en þeir gerðu gegn Fram. Að vísu
þurftu þeir ekki að sýna neinn stórleik
til að vinna Fram, getumunur liðanna
er það mikill. Úrslit í hrinunum urðu
15—7, 15—lOog 15—11.
Víkingar syndu nýja hlið á sér og
unnu Stúdenta glæsilega á laugardag.
Ef litið er á hrinuúrslitin sem urðu 16—
14, 16—14, 13—15 og 15—6, virðist
leikurinn hafa verið hnífjafn. En Vík-
ingar áttu skiiinn stærri sigur því þeir
sýndu afbragðsleik og höfðu leikinn al-
gerlega í höndum sér. Sókn þeirra á
Stúdentana var mjög stíf enda smass-
arnir, þeir Páll Ólafsson, Hannes
Karlsson, Gunnar Straumland og
Sigurður Guðmundsson, í miklu stuði.
Uppspilið sem þeir fengu var einnig
mjög gott og í vörninni var liðið sam-
stillt.
Einn leikur fór fram í 1. deild kvenna
um helgina, Víkingur vann Breiðablik
3—0 og er nú fátt sem getur stöðvað
Vikingsstúlkurnar. t
í 2. deild fenguNorðfjarðar-Þróttar-