Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 02.03.1981, Qupperneq 19

Dagblaðið - 02.03.1981, Qupperneq 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. MARZ 1981. 19 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir „Hroðaleg útreið Islands gegn Israel Eins og Israelsmenn sæju Sýr- lending í hverjum Islendingi! Frá Magnúsi Gíslasyni, Orléans. íslenzka landsliðið fékk háðulega út- reið gegn ísrael i B-keppninni i Orléans á laugardag. Sex marka tap, 19—25, eftir 12—8 í hálfleik fyrir ísrael. Úrslit- in sýna auðvitað að við erum ekki lengur i hópi beztu þjóða heims i hand- knattieik. Við erum greinilega þrepi neðar en þeir beztu og máttum raun- verulega þakka fyrir að hanga i B-riðli eftir slælega frammistöðu. Hefðum eflaust fallið i C-riðil ef við hefðum verið i hinum riðlinum. Það var ekki heil brú í leik íslenzka liðsins. Sama hvort það var i vöm eða sókn eða á bekknum. Alls staðar sama máttleysið og ráðleysið með örfáum undantekn- ingum, m.a. markvarzla þeirra Einars Þorvarðarsonar og Kristjáns Sig- mundssonar. Alvep sama hvað reynt var. Ávallt fundu Israelsmenn glufur í vörn. Eins i sókninni. Linuspil slakt, hornin klippt út. Skotin máttlaus hjá fiestum og oftast beint á markvörð. Fum og fát i leikn'm langtimum saman f 47 sóknarlotun. Rétt í byrjun sýndi ísl. liðið sæmi- Engar skýringar á hel- förinni til Frakklands Frá Magnúsi Gíslasyni, Orléans. Árangur islenzka liðsins í B- keppninni f Frakklandi hefur valdið vonbrigðum, gífurlegum vonbrigðum. Sigur vannst í tveimur fyrstu leikjunum, en síðan seig mjög á ógæfuhlið. Andstæðingar okkar gjör- þekktu íslenzkan handknattleik i þess- ari helför til Frakklands eins og sumir vilja nefna hana. Hvað brást? Við báðum þá Gunnstein Skúlason, liðs- stjóra, Axel Axelsson og Júlíus Hafstein, formann HSÍ, að svara þvi. „Ástæðurnar eru vafaiaust margar. Fyrst skal nefna að við vorum ekki reglulega vel undirbúnir, þó eins og ástæður leyfðu. Keppnisförih til Vestur-Þýzkalands þjónaði ekki tilgangi, þar sem Víkingana vantaði. Ekki næg samþjálfun. Því hefur verið fleygt að félágarígur milli Valsmanna og Víkinga sé á- stæðan, en ég visa því alveg á bug. Slíkt hefur ekki komið fram að því ég bezt veit. Við þurfum að setjast niður og ræða alla förina, þegar heim kemur. Reyna að finna út hvað kom fyrir. Greinilegt að við höfum ekki hörku í slíka keppni. Það var óvenjulítið um brottvikningar ísl. leikmannanna í leikjunum. Við þurftum ekki að nota einn einasta íspoka af þeim 15, sem við vorum með. Það segir sína sögu,” sagði Gunnsteinn. ,,Ég kann enga skýringu á þessu tapi við ísrael,” sagði Axel Axelsson. Er nokkur, sem getur gefið hana? Ég hef tekið þátt í undirbúningnum frá í haust. Allir þar lagzt á eitt. Kannski flugum við of hátt, þegar við héldum í B-keppnina og gleymdum lending- unni.” Július Hafstein var að reyna að semja um landsleiki við Svía þegar við náðum í hann. „Þessi ósigur var salt í sárið, og það er greinilegt að íslenzkur ands- blaki röruggurumsigur ar Ungmennafélagið Bjarma úr Fnjóskadal í heimsókn og fóru gestirnir með sigur af hólmi, 3—i. Er nú ljóst að keppnin í Norðausturlandsriðlinum mun verða æsispennandi á milli UMSE, ÍMA og Bjarma. Staðan í 1. deild karla er nú þessi: Þróttur 13 13 0 39—7 26 ÍS 14 10 4 34—19 20 Víkingur 13 6 7 25—26 12 Fram 14 3 11 15—37 6 UMFL 12 1 11 10—34 2 Næstu leikir verða á miðvikudag. Þá leika Víkingur og Fram í Hagaskóla kl. 18:30, síðan HK og Samhygð, hvort tveggja deildarleikir, og loks verður einn bikarleikur, á milli Víkings og Hveragerðis. Víkingar leika því tvo ieiki sama kvöldið. -KMU handknattleikur er að fjarlægjast sterk- ustu þjóðirnar. Slíka flengingu er erfitt að útskýra en það þurfa allir sem einn — hinn almenni áhorfandi ekki siður — að ná okkur upp úr þessari niður- lægingu,” sagði Júlíus. POLVERJAR FORU LÉTT MEÐ TÉKKA —Sigruðu 23-16 í úrslitum B-keppninnar Frá Magnúsi Gíslasyni, París. Þrír frægir kappar lögðu öðrum fremur grunn að stórsigri Póllands 23—16 í úrslitum B-keppninnar í gær. Þeir voru hreint stórkostlegir Szynczak, markvörður, Klempel og Waszkiewicz. Tékkar áttu ekkert svar við leik þeirra. Pólland náði snemma forustu og undir lok fyrri hálfleiksins var Waszkiewicz óstöðvandi. Skoraði fjögur mörk i röð. Staðan í hálfleik 13—11 fyrir Pólland. Klempel og félagar hans gerðu svo út um leikinn fyrst i s.h. Skoruðu fjögur fyrstu mörkin, 17—11 og öruggur sigur Póllands var í höfn. Síðan mátti sjá 19—12 á stigatöflunni, 21—14 og lokatölur 23—16. legan leik og þá örlaði á þeim krafti, sem mátti stundum sjá gegn Pólverj- um. Siggi Sveins, Páll Bj. og Þorbergur héldu forustu fyrir ísalnd með góðum mörkum, 5—4, eftir 10 mín. En þá hrundi ísl. liðið eins og spilaborg. ísra- el skoraði sex mörk í röð. Baráttuvilji ísraelsmanna var eins og þeir sæju Sýr- lending í hverjum íslendingi eða væru að berjast í sex daga stríðinu. Þorbergur reyndi nær algjörlega á eigin spýtur að brúa bilið með sínum þrumufleygum en þeim var jafnóðum 'svarað með sýningaratriðum ísraels- manna. Beniguz rak endahnútinn á upphlaupin með vængjalausu svifi inn í teiginn og blakaði knettinum í mark. Beinlinis niðrandi að sjá meðan isl. varnarmennirnir stóðu sem grónir við gólfið. Sama bragð áfram i s.h. ísraels- menn beinlínis hæddu vörn okkar manna með því að leyfa sér baksend- ingar inn í teiginn og skoruðu. Páll Bj. og Þorbergur rembdust eins og rjúpur við staur en mörk þeirra vógu lítið gegn þeim ósköpum sem voru að ske. Þegar átta mín. voru til leiksloka var munurinn orðinn 10 mörk,_25—15. Þá loks vaknaði landinn og sýndi sitt rétta andlit. Með hraða og snerpu skoraði Bjarni tvö mörk, Þorbergur og Steindór eitt hvor. Smáfjörkippur, sem kom of seint. Lokatöiur 19-25. Niður- lútur yfirgaf ísl. hópurinn íþróttahúsið í Orléans en þar voru 2500 áhorfendur vitni að einum lélegasta leik íslands um árabil. Mörk íslands í leiknum skoruðu Þor- bergur 9/3, Páll Bj. 4, Siggi Sveins 2, Bjarni 2, Guðmundur 1 og Steindór eitt. Axel Axelsson og Stefán Halldórs- son léku ekki með og Ólafur H. Jóns- son skoraði ekki mark í sínum síðasta landsleik. . Pmm KRISTIN M. LAGÐI KARLANA AÐ VELLI - sigraði þá alia með yf irburðum á jaf nréttismáti TBR í gær Konur hasla sér völl á æ fleiri sviðum eins og kunnugt er. Stöðugt eru gerðar Kristin Magnúsdóttir lætur sér ekki nægja að vera í sérflokld meðal kyn- systra sinna heldur ræðst hún einnig til atlögu við karlana — og fer með sigur af hólmi. kröfur um jafnrétti kvenna og karla. I íþróttum hafa konur þó verið hófsamar i jafnréttismálum hingað til. Þær láta sér t.d. nægja að kasta sérstakri kvennakúlu i kúluvarpi og i flestum iþróttagreinum er keppni karla og kvenna aðskilin. Svo er einnig í bad- minton, nema þegar um tvenndar- keppni er að ræða. Meira að segja eru leikreglur í badminton mismunandi í kvenna- og karlakeppninni, því i hverri lotu i einliðaleik kvenna er leikið upp i 11 punkta meðan karlarnir verða að keppa upp i 15. Nú um helgina fór fram í húsi TBR svonefnt jafnréttismót í badminton. Keppt var í einliðaleik og tviliðaleik i meistara-, A- og B-flokki, og voru konur og karlar í sama flokki. Sökum kvenlegar hógværðar kepptu konurnar þó einum flokki neðar en þær eiga vanda til, meistaraflokkskonur í A- flokki o.s.frv. Úrslit urðu sem hér segir: B-flokkur Haraldur Gylfason í A sigraði Erling Bergþórsson ÍA 15/10og 15/5. Guðjón Sverrisson og Fritz H. Berndsen TBR sigurðu Harald Gylfason í A og Erling Bergþórsson í A 15/2, 12/15 og 15/4. A-flokkur Hér kepptu sterkustu konurnar okkar við A-flokksleikmennina. Kristín Magnúsdóttir TBR íslands- meistari í badminton tók sig til og sigraði alla sína andstæðinga i einliða- leik og flesta með yfirburðum. Og með stöllu sinni, Kristínu Berglind TBR, sigraði hún einnig í tviliðaleik. Kristín sigraði Gunnar Björnsson TBR i úrslit- um 15/12 og 15/13 en hafði áður lagt að velli þá Ara Edwald TBR, Hjalta Sigurðsson Selfossi og Ólaf Ingþórsson TBR. í tvíliðaleiknum sigruðu Kristínarnar þá Bjarna Lúðvíksson Gróttu og Gunnar Björnsson TBR í úrslitum, 15/9 og 15/9. Má segja að í þessu móti hafi karlpeningurinn verið tekinn í kennslustund í A-flokki. Meistaraflokkur í einliðaleik sigraði Broddi Kristjáns- son TBR Jóhann Kjartansson 15/5 og 15/3. Átti Jóhann enga möguleika i leiknum, heldur var um hreina ein- stefnu að ræða. í tvíliðaleik sigruðu Víðir Bragason íA og Sigfús Ægir Árnason TBR, þá Brodda og Jóhann 9/15, 15/9 og 15/12. Viggó skoraði fimm Viggó Sigurðsson átti mjög góðan leik með Bayer Leverkusen, þegar liðið gerði jafntefli 13—13 við TUS Essen í Essen á föstudag. Viggó skoraði fimm mörk fyrir lið sitt og var aðalmaðurinn að venju í sóknarleiknum. Leverkusen er um miðja deild. Dankersen tapaði enn og er f mikilli fallhættu en Axel Axelsson byrjar nú að leika með Dank- ersen á ný —fer til Minden frá Frakklandi. Sigurður Gunnarsson lék ekki með Leverkusen gegn Essen — hefur enn ekki komizt i liðið eftir meiðslin i haust. Magnús Gíslason skrífarfráHM Þorbergur markhæstur ísland skoraði 115 mörk f leikjunum sex i B-keppninni. Þau skiptust þannig milli einstraka leikmanna: Þorb. Aðalsteinsson, Viking, 37/11 Sig. Sveinsson, Þrótti, 14/3 Páll Björgvinsson, Víking, 12 Bjarni Guðmundsson, Val, 11 Axel Axelsson, Fram 10/4 ÓlafurH. Jónsson, Þrótti, 9 Steindór Gunnarsson, Val, 8 Stefán Halldórsson, Val, 6 Guðm. Guðmundsson, Víking 4 Steinar Birgisson, Viking 2 Páll Ólafsson, Þrótti, 1 Þorbjörn Guðmundsson, Val 1 Svíarnirnáðu 3. sætinu Pólverjar unnu stórsigur á Tékkum í keppninni um 1. sætið á B-keppninni. Lokatölur 23-16 fyrir Pólverjana eftir að þeir höfðu haft yfirburði allan tim- ann. Svíar sigruðu Dani 23—21 i leikn- um um 3. sætið og þar var það Olovs- son sem fór á kostum hjá Svíunum. Skoraði 10 markanna. Michael Berg skoraði flest fyrir Danina, eða 6 talsins. Þrátt fyrir sigur gegn íslendingunum tókst Frökkum ekki að komast í A- keppnina. Þeir töpuðu fyrir Sviss, 18— 21, og áttu aldrei möguleika. ísraelar unnu íslendinga eins og allir vita 25— 19 i keppninni um 7. sætið og þá unnu Búlgarir Hollendinga 25—20 eftir framlengdan leik i leiknum um 9. sætið. Norðmenn ráku lestina i keppn- inni. Þeir töpuðu 17—22 fyrir Austur- rikismönnum í leiknum um 11. sætið. Sigurður Sverrisson Bikarmeistarar Diisseldorf úrleikíár V-þýzku bikarmeistararnir sl. tvö ár, Fortuna Dusseldorf, voru slegnir úr keppninni á laugardag af 2. deildar- liði Herthu Berlin. Hertha sigraði 2—1 á heimavelli sinum með mörk þeirra Killmaier og Remark. Klaus Allofs skoraði eina mark Fortuna 20 mínútum fyrir leikslok. Þá fékk Hamborg reisupassann i bikarnum er liðið tapaði óvænt fyrir 2. deildarliði Eintracht Braunschweig, 3—4, eftir framlengdan leik. í hinum leikjunum tveimur sigraði Eintracht Frankfurt Stuftgart 2—1 og Kaiserslautern sigraði Borussia Mönchengladbach 3—1. Þetta er f fyrsta skipti siðan 1963 að tvö lið úr 2. deildinni komast i undan- úrslit bikarsins i V-Þýzkalandi. í gær var svo dregið i undanúrslitin og þar mætir Hertha Frankfurt og Braunschweig Kaiserslautern. í Bundcsligunni fór einn leikur fram, 1860 Miinchen sigraði Núrnberg 2—1 á útivelli.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.