Dagblaðið - 02.03.1981, Side 20

Dagblaðið - 02.03.1981, Side 20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. MARZ 1981. 20 FX-310 BÝÐURUPP Á: ■ Algebra og 50 vísindalegir möguleikar. • Slekkur A sjðlfri sér og minn- ið þurrkast ekki út. • Tvœr rafhlöður sem endast i 1000 tima orkunotkun. • Almenn brot og brotabrot. • Aðeins 7 mm þykkt í veski. • 1 árs ébyrgð og viðgerðar- þjónusta. Verö: 487,- B-811 BÝÐURUPPÁ: • Klukkutímo, mín., sek. • Ménaðardag, vikudag. • Sjélfvirka dagatalsleiðréttingu um ménaðamót. • Rafhlöðu sem endist i ca 5 ár. • Er högghelt og vatnshelt. • Ljóshnappur til aflestrar i myrkri. • Ryðfritt stél. • 1 érs ébyrgð og viðgerðarþjón- usta. Verð: 544,50 CASIO-EINKAUMBODIÐ BANK ASTRÆTI8, SÍMI27510. bjoða þér bollu? Köhuval LAUGARASVEG 1 32060 Bollit dagurinn Sendum BODDl-HLUTIR Eigum fyrirKggjandi bretti i eftirtalciar bifreiðar: Audi ’80, Passat, Golf, Fiesta, Cor- olla 20, Renault 4-5, M. Benz ’68- ’77, Saab 96-99, Volvo 144 ’67-’74, Volvo 244 ’75, Simra 1100 og 130, Old R. ’67-’77, Escort ’72-’77, Fiat 125p, 127, 128, 131 og 132, Lada 1200, BMW ’67-’74, 2ja dyra. Hurðarbyrði fyrir Lada og Fiat 127. Stuðarar og grill i margar gerðir o.fl. Varahlutir - Ármúla 24 - Sími 36510. Tilkynning frá Tryggingastofnun ríkisins VARÐANDI FÆÐINGARORLOF Konur, sem alið hafa börn eftir 1. okt. 1980 og ekki hafa fengið greiðslur i fæðingarorlofi, kynnið yður reglur um fæðingarorlof hjá Trvgginga- stofnun rfkisins eða bæjarfógetum og sýsiumönnum. Tryggingastofnun ríkisins íþróttir jþróttir Ipswich-vélin hikst- aði ekki í Coventry — Ipswich sigraði 0-4 en Aston Villa vann líka. Fyrsti sigur Liverpool í sjö leikjum og Man. Utd. tapaði í fyrsta sinn íveturáheimavelli Ipswich og Aston Villa gefa ekki eftir í baráttunni um enska meistaratitiiinn. Bæði sigruðu á laugardag á útivöllum. Ipswich vann glæsilegan sigur i Coven- try — fyrsti sigur liðsins þar í sjö ár — en Villa vann nágranna sína frá Wolverhampton eftir baráttuleik. Sigurmark Villa og eina mark leiksins skoraði Peter Withe sjö min. fyrir leikslok. Þá unnu Englandsmeistarar Liverpool sinn fyrsta sigur i sjö leikj- um, Southampton á heimavelli, 2-0, og i fyrsta sinn i fjóra mánuði gat Liver- pool verið með alla þekktustu leikmenn sina. En höldum þá fyrst til Coventry þar sem Ipswich kom i heimsókn og leik- menn liðsins hafa áreiðanlega ekki verið öruggir um sigur. Ipswich hefur gengið illa í Coventry og i vetur hefur miðlandaliðið verið sterkt lið á heima- velii. Framan af var Coventry betra liðið: Skoraði mark, sem þó var dæmt af, en á 30. mín. varð skyndileg breyt- ing. Hollendingurinn Thjissen splundr- aði vörn Coventry og Alan Brazil skor- aði. í byrjun síðari hálfleiks lék Thjis- sen sama leik. Eric Gates skoraði. Síðan tók hinn Hollendingurinn i ips- wich-liðinu við. Lék Steve McCall frír og þriðja mark Ipswich var staðreynd. Miðvörðurinn Russel Osman skoraði fjórða markið. Mikil spenna var í leik Úlfanna og Aston Villa. Morley fékk tvö sæmileg tækifæri í f.h. til að skora fyrir Villa en tókst ekki. Þá kom að Úlfunum en Hibbitt og Carr nýttu ekki færi sín og 35 þúsund áhorfendur farnir að reikna með markaiausu jafntefli. Á 82. mín. komst Andy Gray einn inn fyrir vörn Villa og það virtist nokkuð öruggt að hann mundi skora hjá sínum gömlti félögum. En markakóngurinn mikli spyrnti knettinum yfir markið hjá Rimmer. Það reyndist dýrt fyrir Ulf- ana. Á næstu mín. fékk Villa horn- spyrnu. Morley gaf fyrir. Evans kom knettinum til Withe, sem stökk hæst og skallaði i markið. En lítum þá á lirslit- 1. deild Arsenal-Middlesbro 2—2 Coventry-Ipswich 0—4 C. Palace-Everton 2—3 Leicester-Nottm, For. 1 — 1 Liverpool-Southampton 2—0 Man. Utd.-Leeds 0—1 Norwich-Brighton 3—1 Stoke-Man. City frestað Sunderland-Tottenham I —I WBA-Birmingham 2—2 Wolves-Aston Villa 0—1 2. deild Bristol Rov.-Cardiff 0—1 Cambridge-Shrewsbury 3—I Grimsby-Blackburn 0—0 Notts Co.-Bristol City 2—1 Oldham-Newcastle 0—0 Orient-Luton 0—0 Preston-Chelsea I—0 QPR-Sheff. Wed. 1—2 Swansea-Bolton 3—0 Watford-West Ham 1—2 Wrexh'am-Derby 2—2 3. deild Brentford-Blackpool 2—0 Burnley-Chester I—0 Carlisle-Oxford 0—0 Colchester-Charlton 2—0 Exeter-Millwall 2-0 Gillingham-Plymouth 0—1 Newport-Chesterfield 5—1 Portsmouth-Hull 2—1 Reading-Rotherham 1 — 1 Sheff. Utd.-Huddersfield 2-2 Swindon-Barnsley 2—0 Walsall-Fulham 1—2 4. deild Bournemouth-Peterbro 4—1 Bury-Wigan« 0—0 Darlington-Port Vale frestað Halifax-Crewe frestað Hereford-Hartlepool 3—1 Lincoln-Wimbledon 0—0 Mansfield-Aldershot frestað Southend-Doncaster 0—0 Stockport-Scunthorpe 2—0 Torquay-Tranmere 2—1 York-Northampton frestað Frost og snjókoma olli þvi að ekki var hægt að leika alla leikina. Liverpool sigraði I fyrsta sinn i sjö leikjum og sá sigur kom á þýðingar- miklu augnabliki, Evrópuleikurinn við CZKA Sofia á miðvikudag á Anfield. Liverpool var með alla sína beztu leik- menn og vann nokkuð öruggan sigur. Ray Kennedy skoraði með þrumufleyg á 13. mín. Colin Irwine kom inn fyrir David Johnson, sem meiddist. Átti hörkuskot á markið á 61. mín. Peter Wells varði en knötturinn hrökk út i teiginn. Terry McDermott skoraði. Southampton lék oft vel upp að vítateig en þá rann allt út í sandinn. Ray Clem- ence hafði sáralítið að gera í mark Liverpool. Kevin Keegan, sem rétt fyrir leikinn komst í gegnum læknisskoðun, hafði sig lítið í frammi. Lék sinn fyrsta leik á Anfield frá vorinu 1977, þegar hann hélt til Hamburger SV. WBA hlaut heppnisstig gegn Birm- ingham. Fékk þó óskabyrjun, þegar Moses skoraði eftir aðeins fjórar minútur. Frank Worthington jafnaði á 43. min. og Ainscow kom Birmingham yfir i byrjun s. h. Ali Brown, sem kom inn fyrir Regis, jafnaði í 2-2 á 71. mín. Frábær markvarzla Godden kom í veg fyrir, að Birmingham næði báðum stig- unum í leiknum. Leicester hafði einnig nokkra yfir- burði gegn Forest en tókst þó ekki að knýja fram sigur. Peter Shilton varði tvivegis vel frá Jim Meirose, sem lék með Leicester þrátt fyrir brákaðan kjálka frá leiknum við Tottenham. Steve Lynex, sem keyptur var frá Birmingham fyrir hálfum mánuði, náði forustu fyrir heimaliðið á 44. min. Það nægði ekki. Forest var skárra liðið í s.h. og Colin Walsh jafnaði rétt fyrir leikslok. Leicester hefur hlotið sjö stig af síðustu lOmögulegum. Man. Utd. tapaði í fyrsta sinn á heimavelli á leiktímabilinu og það fyrir Leeds. Brian Flynn skoraði eina mark leiksins. Sú mikla taugaspenna, sem nú rikir í Manchester gagnvart Dave Sexton, stjóra United, virðist líka hafa sett leikmenn liðsins úr sambandi. Tottenham sýndi góðan leik i Sunder- land en tókst ekki að sigra. Garth Crooks skoraði snemma leiks fyrir Lundúnaliðið en lan Bowyer tókst að jafna skömmu fyrir leikslok. Fjörugur leikur var á Highbury. Frank Stapleton náði forustu fyrir Arsenal en David Armstrong jafnaði fyrir Middles- brough. Arsenal komst aftur yfir með marki John Hollins úr vítaspyrnu. Rétt í lokin jafnaði David Shearer. Það var einnig spenna á Selhurst Park. Peter Eastoe náði forustu fyrir Everton en Hilaire jafnaði. Everton komst síðan í 1-3 með mörkum McMahon og Varadi og sú forusta hefði getað orðið meiri. Everton misnotaði tvær vítaspyrnur i leiknum en Clive Allen skoraði úr einni fyrir Palace. Lundúnaliðið reyndi mjög að jafna lokakaflann en tókst ekki. Norwich hlaut þýðingarmikil stig i fallbaráttuleiknum við Brighton — hvort sem það nú bjargar liðinu eða ekki. Mick McGuire skoraði fyrir Nor- wich á 9. min. og síðan komst liðið í 3-0 með mörkum Dave Watson, ungs nýliða, og Justin Fasanu. Átta mín. fyrir leikslok skoraði Míke Robinson eina mark Brighton. Mark McGuire liið fyrsta, sem Norwich skorar á þessu ári. Fyrstu stigin, sem liðið hlýtur. Í 2. deild heldur West Ham sínu striki. Sigraði Watford 1-2 í norðurbæ Lundúnaborgar. David Crows skoraði bæði mörk West Ham en Malcolm Poskett fyrir Watford. Notts County bætir stöðugt stöðu sína í 2. deild. O’Brien, vitaspyrna, og Trevor Christie skoruðu mörkin gegn Bristol City. Lið Jackie Charlton — Sheffield Wednes- day — er komið í þriðja sætið. Vann óvæntan sigur gegn OPR á laugardag. laylor skoraði bæði mörk liösms — Stainrod fyrir QPR. Enn tapar Chelsea, nú fyrir liði annars heims- meistara frá 1966, Preston Nobby Stiles. Alex Bruce skoraði eina markið í ieiknum. Hins vegar vann Swansea loks. Leighton James, maðurinn, sem lék íslenzka landsliðið svo grátt hér á Laugardalsvelli í HM-leiknum við Wales, var í stuði. Skoraði öll þrjú mörk Swansea. í 3. deild er Charlton efst með 47 stig. Rotherham er í öðru sæti með 46 stig. Þá Portsmouth og Huddersfield með 43 stig og Barnsley 42. í 4. deild er Southend efst með 53 stig. Lincoln hefur 49 stig, Doncaster 42 og Mans- field 41. Staðan er nú þannig: I. deild Ipswich 31 19 10 2 58—25 48 A. Villa 31 20 6 5 53—26 46 Liverpool 32 13 14 5 54—37 40 WBA 31 14 11 6 43—30 39 Nottm. For. 31 14 9 8 48—33 37 Arsenal 32 12 13 7 47—3 9 37 Southampton 31 14 8 9 60—50 36 Tottenham 32 12 11 9 57—51 35 Man.Utd. 32 8 16 8 37—29 32 Everton 30 12 7 11 46—39 31 Middlesbro 31 13 5 13 45—42 31 Leeds 32 12 7 13 27—41 31 Man. City 31 11 8 12 42—43 30 Birmingh. 32 10 10 12 42—48 30 Stoke 31 8 13 10 36—46 29 Coventry 32 10 8 14 38—51 28 Sunderland 32 10 7 15 40—40 27 Wolves 31 9 8 14 31—43 26 Brighton 32 9 5 18 38—56 23 Norwich 32 8 6 18 35—61 22 Leicester 32 9 3 20 23 —49 21 C. Palace 32 5 5 22 39—67 15 2. deild West Ham 32 21 7 4 62—26 49 Notts. Co. 31 14 13 4 42—29 41 Sheff. Wed. 30 15 6 9 42—30 36 Grimsby 32 12 12 8 35—26 36 Blackbu rn 31 12 12 7 33—25 36 Derby 32 12 12 8 48—43 36 Chelsea 32 13 9 10 44—31 35 Swansea 31 12 10 9 46—36 34 Cambridge 31 15 4 12 38—41 34 QPR 32 12 9 11 42—30 33 Luton 30 12 8 10 44—38 32 Orient 30 II 9 10 41—39 31 Newcastle 30 10 II 9 21—34 31 Watford 32 10 9 13 34—36 29 Bolton 32 11 6 15 50—51 28 Wrexham 31 9 10 12 29—34 28 Oldham 32 8 10 14 26—38 26 Preston 31 7 12 12 28—48 26 Cardiff 30 9 7 14 33—45 25 Shrewsbury 32 6 12 J4 29—37 24 Bristol City 31 5 12 14 20—37 22 Bristol Rov. 32 2 12 18 24—51 16 -hsim. fámmm■ HALLUR SÍMONARSON. Einvígi Atletico og Barcelona Keppnin i spænsku 1. deildinni er nú að snúast upp i einvígi á milli Atletico Madrid og Barceiona eftir að þeir fyrrnefndu höfðu haft yfirburöa- forystu i allan vetur. Barcelona vann stórsigur á Hercules um helgina, 6—0 á sama tima og Atletico sigraði Real Murcia 2—0 á útivelli. Úrslitin á Spáni: Barcelona-Hercules 6—0 Salamanca-Real Betis 2—0 R. Zaragoza-R. Sociedad 0—1 Real Madrid-Las Palmas 3—0 Valladolid-Osasuna 2—1 Almeria-Valencia 1—0 Atl. Bilbao-Sporting Gijon 1—1 Sevilla-Espanol 2—0 Real Murcia-Atl. Madrid 0—2 Staðan er nú þannig á toppnum: Atl. Madrid Barcelona Valencia 26 15 7 4 42—28 37 26 16 3 7 57—30 35 26 13 6 7 47—32 32 Sp. Gijon Real Madrid Real Sociedad1 26 11 9 6 42—28,31 26 13 5 8 46—29 31 26 13 5 8 35—24 31

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.