Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 02.03.1981, Qupperneq 21

Dagblaðið - 02.03.1981, Qupperneq 21
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. MARZ 1981. 21 AÐEINSI EINA V/KU A STELLUM OG KERAM/K ALLT______ BÍLUNN ÓNÝTUR OG ÞRÍR í SLYSADEILD Big band '81 er skipað tuttugu hijóðfæraleikurum, bæði áhuga- og atvinnumönnum. Talsverður aldursmunur er á elztu og yngstu hljóðfæraleikurunum. Björn R. Einars- son, sem er á bezta aldri, mun vera aldursforseti. Yngstur er Sigurður Flosason, ný- orðinn sautján ára. Myndina tók þjónn á Hótel Sögu. Big band ’81 efnir til Jazzleika í kvöld: Hyggja á hljómleika á mánaðar fresti „Þessi hljómsveit, Big band '81, hefur verið til i um það bil tvö ár. Hópurinn hittist einu sinni í viku og tekur lagið. Það má því segja að bandið sé tómstundagaman okkar,” sagði Reynir Sigurðsson tónlistarmaður í samtali við blaðamann DB. Big band '81 gengst fyrir jazzhljómleikum að Lækjarhvammi á Hótel Sögu i kvöld. Skemmtunin hefur hlotið nafnið Jazz- leikar. „Þetta er nú ekki alveg í fyrsta skipt- ið sem við komum fram,” sagði Reynir. „Við lékum eitthvað á skemmtunum fyrir forsetakosning- arnar, þá höfum við komið fram í Ameríska bókasafninu, í Klúbbnum og Félagsstofnun stúdenta. Það er hins vegar dálítið erfitt að ná allri hljóm- sveitinni saman, því að í henni eru margir atvinnumenn, sem eru í vinnu á misjöfnum tímum. Við erum þó að hugsa um að gera hljómleika eins og Jazzleika að föstum mánaðarlegum viðburði, til dæmis á fyrsta mánudegi hvers mánaðar. Ætlunin er að bjóða upp á nýtt pró- gramm í hvert skipti.” Á Jazzleikum í kvöld koma fram, auk Big bands '81, Tradkompaníiö, Básúnukvartettinn og tríó Kristjáns Magnússonar. Liðsmenn þeirra hljóm- sveita eru að sjálfsögðu í Big bandinu. Jazzleikum lýkur svo með allsherjar djammi. Á dagskrá Big bands '81 verða ýmis swing lög í stíl Count Basie og Elling- tons. Einnig tekur hljómsveitin fyrir ýmis nýrri lög í jazzrokk útsetningum. -ÁT- —eftir að hafa ekið á hest á þjóðvegi nyrðra Þrír menn voru fluttir i slysadeild á Akureyri eftir að fólksbifreið var ekið á hest á þjóðveginum við Miðsamtún i Kræklingahlíð norðan Akureyrar um hálfellefuleytið á laugardagskvöldið. Mennirnir voru allir skrámaðir og einn brákaðureða jafnvel brotinn á hendi. Dimmt var vegna veðurs auk nátt- myrkursins og sást ekki hesturinn á veginum. Við áreksturinn drapst hesturinn en bíllinn fór út af veginum eftir að hafa lent á hestinum og valt tvær veltur og staðnæmdist á hjólum. Billinn er talinn ónýtur nema í ein- hverja varahluti. Var um að ræða Cort- ina-bifreið árgerð 1970. í tilfellum sem þessum fellur bíllinn óbættur hjá garði, af hálfu trygginga- félaga, en hesturinn sem á þjóðvegin- um var er að fullu bættur. Eru islenzk lög sérstæð hvað varðar veru dýra á þjóðvegum. Víðast annars staðar fellur ábyrgðarskyldan öll á eigendur dýr- anna. -A.St. OR HOFÐABAKKA 9 SÍMI 85411 Dalvik: Rækjutogarinn á þorskveiðum Rækjutogarinn Dalborg frá Dalvík kom til heimahafnar á fimmtudags- kvöldið með 90 tonn af þorski eftir fimm daga veiðiferð. Þetta er fyrsta þorskveiðiferð Dalborgar og verður framhald á þorskveiðunum til vors. Dalborgin veiddi þorsk i fyrravetur og landaði á Húsavík. í júní fór skipið á rækjuveiðar sem stóðu fram í nóvem- ber. Og nú er Dalborgin enn komin á þorsk sem fyrr segir. DB hefur áður greint frá því að aðal- vélin í togaranum Björgvin frá Dalvík er ónýt og skipið verður frá veiðum til vors. Vandræði eru að afla nægs hrá- efnis fyrir fiskvinnsluhúsin á Dalvik til að halda uppi framleiðslu og fullri at- vinnu. -Jón Baldvinsson, DalvíkAARH Hrapaði á annan tug metra við Glym — Brákaðist á baki og var flutt í sjúkrahús á Akranesi Bandarísk kona búsett á Keflavíkur- flugvelli hrapaði niður í gil við fossinn Glym í Botnsdal í Hvalfirði um fimm- leytið á laugardag. Meiddist konan á baki en meiðslin þó talin minni og ekki eins alvarleg og ætlað var i fyrstu. Þarna voru þrír Bandaríkjamenn á ferð á laugardaginn og við fossgilið hrasaði konan og hrapaði á annan tug metra að því er gizkað er á. Var beðið um aðstoð og komu bæði Borgarness- og Akranesslögreglan á vettvang og læknir var með í för frá Akranesi. Einnig var Slysavarnafélagið beðið aðstoðar og var Hannes Hafstein búinn að kalla út lið til að flytja konuna slös- uðu með þyrlu frá slysstað, en siðar kom i ljós að þess var ekki nauðsyn. Þá var björgunarsveitin Brák í Borgarnesi tilbúin til að senda sigmenn á staðinn og síga niður í gilið ef á þyrfti að halda. Þeirrar aðstoðar var heldur ekki þörf. Konan var flutt til sjúkrahússins á Akranesi í bil og höfðu björgunarað- gerðirnar þá staðið í tæpar tvær stundir. -A.St. Smurbrauðstofan BJORNiNN Njóisgötu 49 - Sími 15105 Q\0*& Saltkjöt og baunir Lítið við í verslunum okkar Stórmarkaðurinn Skemmuvegi 4a KRON Fellagörðum KRON Snorrabraut KRON Stakkahliö KRON Dunhaga KRON Tunguvegi KRON Langholtsvegi KRON Álfhólsvegi KRON Hliðarvegi BH KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR 0G NÁGRENNIS

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.