Dagblaðið - 02.03.1981, Page 26

Dagblaðið - 02.03.1981, Page 26
26 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. MARZ 1981. ((■■H Menning Menning Menning Menning Fflamaðurinn tal ar til hjartans The Elephant Man Leikstjóri: David Lynch Loikendur: Anthony Hopkins, John Hurt, Anne Bancrof t og John Gieigud Sýningarstaður Regnboginn „The Elephant Man” er engin venjuleg kvikmynd. Hún er alls ekki hryllingsmynd, heldur mjög óvenju- leg kvikmynd um mannlegar þjáning- ar, vonsku og gæsku manna, og síðast en ekki síst kvikmynd um reisn mannssálarinnar. Ég sagði að „The Elephant Man” væri ekki hryllings- mynd, samt segir myndin.sögu sem á köflum er svo átakanlega að maður er ekki samur eftir að hafa horft á. Það er enginn vafi i mínum hugaþeg- ar ég segi að ,,The Elephant Man” sé með áhrifamestu og mannlegustu kvikmyndum, sem vestræn kvik- myndagerð hefur alið af sér. „The Elephant Man” fjallar, eins og flestum er eflaust kunnugt, um John Merrick, mann sem var svo hræðilega vanskapaður í útliti, að sumt fólk flúði ásjónu hans og aðrir gerðu það að féþúfu. Fólki til fróðleiks og til að hafa í huga, er sjálfsagt að benda á, að kvikmyndin er enginn skáldskapur. „The Elephant Man” er sannsöguleg kvik- mynd, en náttúrulega mikið dramatíseruð, t.d. er öll fortið Merricks þurrkuð út í myndinni, fyrir aukin áhrif sögunnar. Líf viðundurs Enginn maður getur sett sig í spor manns eins og John Merricks, sem varð að þola eins mikla niðurlægingu og einn maður getur þolað. Rúmlega tvítugur að aldri varð Merrick að vinna fyrir sér sem viðundur, vinalaus og einangraður líkt og dýr i dýragarði. Læknirinn Treves rífur Filamanninn upp úr niðurlægingunni og hjálpar honum að ná þeirri and- legu reisn, sem fyrir hendi var, en viðbjóðslegar aðstæður bældu niður. í stuttu máli er þetta efni mynd- arinnar. Máske ekki merkilegt efni, en framkvæmt af unaðslegri smekkvísi, sem er aðstandendum myndarinnar til mikils sóma. Leikstjórinn David Lynch („Eraserhead” — ósýnd hér á landi), ber mesta ábyrgð á, hversu vel tekst til meðþessa kvikmynd. Lynch hefur tekið þá ákvörðun að kvikmynda myndina í svart/hvítu og fengið til liðs við sig gamlan kvikmyndatöku- mann og hryllingsmyndaleikstjóra, Freddie Francis, til að sjá um þá hlið. í sameiningu skapa þeir mjög eftir- minnilega og myndræna kvikmynda- töku. Sum atriði myndarinnar sýna jafnvel augljós tengsl tökunnar við þýskar expressionista kvikmyndir, t.d. öll litið lýst atriði i Jcarnivalinu. Eins og ég hef áður sagt fórnar Lynch mörgu sannsögulegu um John Merrick fyrir aukin áhrif sögunnar, t.d. var Merrick málari, áður en sjúkdómur hans neyddi hann til að leggja þá iðn á hilluna. Hann byrjaði ekki bara upp úr þurru eins og myndin gefur í skyn. Einnig innleiðir Lynch inn í myndina yfirnáttúrulega hugmynd, sem gengur í gegnum alla myndina. Lynch gefur i skyn að Merrick hafi orðið fyrir nokkurs konargetnaði frá fílurn. Kvik myndir Niðri í minnsta smáatriði Þrátt fyrir gæði sín væri „The Elephant Man” ekki sú kvikmynd, sem hún er, ef ekki kæmi til frábær leikur allra leikara. Vitaskuld mæðir mikið á John Hurt í sínu ó- þekkjanlega gervi. Sögusagnir frá framleiðendum myndarinnar segja, að það hafi tekið sex tíma að búa Hurt undir tökur og að hann haft átt mjög erfitt með að tala í gegnum gervið. Vissulega verður framsögn Hurts ekki dæmd af þessari mynd, dæmi um gæði hennar höfum við úr öðrum myndum. Hins vegar er leikur hans með höndunum, og sér í lagi með augunum, sem gera Merrick mannlegri en hægt er að lýsa. Aðrir leikarar eru ekki af verri endanum, og mæðir þar mest á Anthony Hopkins.nafn sem tryggir gæði. Hopkins sýnir okkur áreynslulaust læknirinn Treves, sem bjargar Merrick frá fríksýningum, en verður síðan að ákveða fyrir sjálf- um sér, hvort hann hefur aðeins fært fríksýningarnar frá slömmunum til burgeisanna. Aðrir leikarar eru engir senuþjófar, en hjálpa þóáþreifanlega til að gera „The Elephant Man” að John Merrick/Fflamaðurinn í fötum, hönnuðum til að fela stórkostlegan vanskapnað. minnisstæðri kvikmynd. Ég sagði hér fyrr, að „The Elephant Man” væri engin venjuleg kvikmynd og ég stend við það. „The Elephant Man” er nefnilega nokkrum gæðaflokkum yfir þeim kvikmyndum, sem eru sýndar að öllu jöfnu í kvikmyndahúsum bæjarins. Aðstandendur myndarinnar hafa skapað verk, sem er í senn raunverulegt og mannlegt, og á fullt erindi við hvern sem er. / Styrtdö og fegrið líkamann Dömur og herrar! Ný 4ra vikna námskeið hefjast 4. marz. Leikfimi fyrir konur á öllum aidri. Hinir vinsælu HERRATÍMAR í hádeginu. Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum. Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Sértímar fyrir eldri dömur og þær sem em slæmar í baki eða þjást af vöðva- biólgum. Vigtun — mæling — sturtur — Ijös — gufuböð — kaffi — Innritun og upplýsingar alla virka daga frá kl. 13-22 í síma 83295. Júdódei/d Ármanns Ármúia 32 cr íþinit tri&jantfi 0 Jjienáur ■ M .-V ’ 6U0 rjtfimir&ðruleysi' UlþesssdsádU miq ulð btðscta áy/at *kki bwjtl ] KlRRKtfl dd bret/faþ^ sem ég g«t brcyil oyV/Tj Ul þe/s ðógrvnoþordniilfcj fyéÍMtn tmh *éruUt)íisb*wnni * ‘li Sendum í póstkröfu. ÚR OG SKARTGRIPIR JÓN OG ÓSKAR LAUGAVEGI70. SÍMI24910. í Fágætar Kjar- valsmyndir til sýnis Nokkuð langt er síðan Kjarvals- myndir hafa hangið uppi að Kjarvals- stöðum, en nú hefur verið bætt úr því svo 'im munar. Um helgina var þar opnuðsýningá 150myndum, þaraf80 verkum eftir Kjarval, en auk þess eru þarna 30 úrvalsmyndir eftir Gunnlaug Scheving, Höskuld Björnsson, Guð- mund Einarsson frá Miðdal og Ásgrim Jónsson. Það er ótrúlegt til þess að hugsa að öll þessi verk voru í eigu þeirra Ragnars heitins Ásgeirssonar og Grethe konu hans. Ragnar Ásgeirsson kynntist Jóhannesi Kjarval í Danmörku árið 1915 er hann var þar við nám í garð- yrkju en þá var Kjarval á akademíunni í Kaupmannahöfn. Varð þetta upphaf langrar vináttu þeirra, svo og list- söfnunar Ragnars, sem varaði til dauðadags hans árið 1973. Það eru afkomendur þeirra Grethe og Ragnars, sem lánað hafa verkin, en áður hafa þau gefíð Kjarvalsstöðum teikningar eftir Kjarval. Frú Eva Ragnarsdóttir sagði DB að faðir hennar hefði haft einlæga ást á listaverkum og hafi jafnvel eytt sinum siðasta eyri á stundum til að geta eignast verk eftir Kjarval og aðra listamenn sem hann dáði. Auk þess gerði Ragnar margt til að greiða götu listamanna, m.a. stóð hann fyrir því að islenska ríkið keypti hina frægu „hausa” Kjarvals frá 1926—8. Sagði frú Eva að í fórum fjölskyldu hennar væru hundruð bréfa frá Kjarval og öðrum listamönnum, en nokkur þeirra eru einnig til sýnis. Sýningin að Kjarvalsstöðum verður opin fram aðpáskum. -AI.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.