Dagblaðið - 02.03.1981, Blaðsíða 36

Dagblaðið - 02.03.1981, Blaðsíða 36
Verkfalli undinnanna á farskipum af lýst: 12 AUKAFRÍDAGAR OG AUKIN HEILSUGÆZLA —meðal þeirra kjaraatríða sem undirmenn náðu í nýja samningnum Nýr kjarasamningur undirmanna á farskipum var undirritaður í gær hjá ríkissáttasemjara og verkfalli þeirra þar með aflýst. Verkfallið hófst 24. febrúar og höfðu nokkur kaupskip stöðvazt í höfn af þeim sökum. Guðmundur Hallvarðsson for- maður Sjómannafélags Reykjavíkur sagði í morgun um nýja samninginn að menn mættu vel við hann urm, annað væri ósanngjamt að segja. Undirmenn greiða nú atkvæði um samninginn. - Lýkur allsherjarat- kvæðagreiðslu 20. marz. Minna má á að í desember hafði verið gengið frá kjarasamningi undirmanna sem samningamenn þeirra og skipa- félaganna samþykktu, en hann var felldur í allsherjaratkvæðagreiðslu og var þá enn setzt við samningaborðið. Nýi samningurinn felur í sér 11.5% kauphækkun, auk þess sem nú eiga undirmenn rétt á 12 sér- stökum frídögum eftir eins árs starf sem þeir geta bætt við orlof sitt eða notfært sér á öðrum tímum, að eigin vali. Þá eru ný ákvæði sem varða kaffi- eða matmálstíma á nóttunni þegar unnið er við losun eða lestun. Heilsugæzlumálin þokuðust líka á- fram með samningnum. Samnings- aðilar munu ásamt Erni Bjarnasyni skólayfirlækni vinna úr hugmyndum um hvernig bæta megi læknis- þjónustu við sjómenn. Hingað til hafa þeir aðeins getað fengið einfalda berklaskoðun án þess að þurfa eins og aðrir að verma stóla á biðstofum lækna tímunum saman. Nú er ætlazt til að innan árs fari allir sem samningurinn nær til í mun víðtækari heilsufarsrannsókn, þar sem m.a. skal könnuð sjón, heyrn, blóð og margt fleira hjá viðkomandi manni.^Að fenginni reynslu verður tekin ákvörðun um framhaldið, en á hinum Norðurlöndunum er slíkt „heilsutékk” sjómanna skylda. -ARH. Rannsóknar- í náms- og kynnisförtil Vestur- Þýzkalands Vararannsóknarlögreglustjóri ríkisins, Þórir Oddsson, og Svar Hannesson rannsóknarlögreglu- maður fóru utan um helgina til Þýzkalands til þess að efla þekkingu sina, meðal annars í rannsóknar- aðferðum sakamála. Þeir verða lengst af 6—7 vikna námstima í Frankfurt. Hefur þetta tækifæri gefizt fyrir góða samvinnu vestur-þýzku rannsóknarlög- reglunnar og hinnar íslenzku, þegar tilefni hafa orðið til, og góðrar milligöngu sendiherra íslands, PétursEggerz. -BS. Bolla, bolla, bolla: Bolludag- urinnídag Bolludagurinn er í dag, þaðfer ekkerl á milli mála. Bakarar landsins hafa staðið með sveittan skallann við baksturinn og heimilin láta sitt ekki eftir Hfitija. Ljósmyndarinn brá sér í Kökuval I morgun og þar var allt þakið bollum sem og I öðrum brauðgerðum. DB-mynd Sigurður Þorri. Lundur í Lundarreykjadal: Tvær kýr dauðar til viðbótar —af völdum jarðskriðunnar sem féll á útihúsin í janúar Tvær mjólkandi kýr til viðbótar þeim er fórust þegar aurskriða féll á útihúsin að Lundi í Lundarreykjadal eru nú dauðar. Annarri var fargað nokkruni dögum eftir óhappið, þann 26. janúar, en hinni fyrir skömmu. Hvorug náði sér eftir náttúruhamfar- irnar þegar jarðskriðið jafnaði við jörðu fjós, hlöðu og áfast hesthús. Húsin voru steinsteypt en stóðust þó engan veginn þunga jarðvegsins sem fór af stað liklega vegna samspils frosts og þíðu. Þorbjörn Gíslason bóndi að Lundi missti því alls 11 af 13 mjólkandi kúm sem hann átti og tvö hross að auki. Hann sagði í sam- tali við DB í gær að nautgripirnir sem lifðu náttúruhamfarirnar væru á Hóli í sömu sveit að undanskilinni einni mjólkandi kú sem er á Odds- stöðum. Tjón hans er tilfinnanlegt þó að tryggingar bæti það að einhverju leyti. Byggingarnar voru gamlar og matiðáþeim þvílágt. Unniö að björgunarstörfum eftir skriðufallið á Lundi. DB-mynd Sigurður Þorri. „Afurðatjónið er tilfinnanlegast,” sagði Þorbjörn. „Ég bjóst við að fá 3.000 lítra af mjólk á mánuði, en auðvitað fæst ekki nema brot af því.” Þorbjörn stefnir að því að byggja upp á Lundi og ætlar að hefja fram- kvæmdir með vorinu. -ARH frfálst, úháð dagbJað MÁNUDAGUR 2. MARZ 1981. Óvæntuppákoma áFriðriksbergi: Maðurnokkur gaf forsetan- umeigin handrit Á hátíðarfundi Vigdísar Finnboga- dóttur forseta íslands í ráðhúsinu á Friðriksbergi, sem haldinn var af norrænu félögunum og Dansk-islansk samfund, var óvænt uppákoma. Maður nokkur stóð upp, gekk beint að forseta íslands og rétti henni lítinn pakka. Tveir lífverðir sem stöðugt fylgdu forsetanum höfðust ekkert að, þannig að Vigdís tók við pakkanum. Reyndir diplómatar í Kaupmanna- höfn sögðu að slíkt ætti ekki að geta gerzt, því ekki hefði verið vitað hvað var í pakkanum. Víðast hvar annars staðar en í Kaupmannahöfn hefðu líf- verðir þegar í stað yfirbugað manninn og í versta falli hefði maðurinn verið skotinn. Pakkinn var ekki opnaður á fundinum, en þegar innihaldið var kannað kom í ljós að það var saklaust. Maðurinn hafði gefið henni handrit eftirsjálfan sig. -JH/EJ Kaupmannahöfn. 8. helgarskákmótið: Enn sigr- aði Helgi Alþjóðlegi skákmeistarinn Helgi Ólafsson sigraði á enn einu helgarskák- mótinu, sem fram fór í Vík í Mýrdal um helgina. Hann hlaut 5,5 vinninga, af 6 mögulegum. Gamia kempan, Bragi Kristjánsson kom mjög á óvart með því að hljóta 2. sætið. Hann hlaut 5,5 vinninga eins og Helgi en varð lægri á stigum. Bragi, sem lítið hefur teflt á skákmótum undanfarin ár, gerði sér lítið fyrir og lagði stórmeistarann Guðmund Sigurjónsson að velli í 5. umferð. Jón L. Árnason varð í 3. sæti með 5 vinninga. Hann gerði jafntefli við Helga i lokaumferðinni. Með sama vinningafjölda komu síðan Margeir Pétursson, Sævar Bjarnason, Magnús Sólmundarson og Árni Á. Árnason. Síðan komu meðal annarra stórmeist- arinn Guðmundur Sigurjónsson og íslandsmeistarinn Jóhann Hjartarson með 4,5 vinninga. 1 flokki keppenda 14 ára og yngri sigraði Arnór Björnsson með 4 vinninga og í kvennaflokki urðu efstar og jafnar Ólöf Þráinsdóttir og Sigurlaug Friðþjófsdóttir með 3 vinninga. Keppendur á mótinu voru 102 og var þetta langfjölmennasta helgar- skákmótið til þessa. Að sögn Jóhanns Þóris Jónssonar, mótsstjóra, var aðbúnaður í Vík í Mýrdal allur til mikillar fyrirmyndar. -GAJ. 4 5 5 i i 4 4 4 Krefjast alls- herjaratkvæða- greiðslu BSRB ” „Við stefnum að því að fá undir- skriftir 7% félagsmanna BSRB, eða 1050. Félagarnir eru alls um 15 þúsund,” sagði Pétur Pétursson út- varpsþulur í gær. Hann er í forystu fyrir hópi manna, sem krefst allsherjar- atkvæðagreiðslu félaga BSRB vegna nýgerðra viðaukasamninga. „Undirtektir hafa verið góðar,” sgði Pétur. í gær voru komnar undir- skriftir 600 manna. „Við munum af- henda undirskriftalistana á skrifstofu BSRB í dag. Sjö prósent talan er margheilög og vel við hæfi nú um þessi mánaðamót er 7% kjaraskerðing kemur til framkvæmda hjá laun- þegum.” -JH. » í

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.