Dagblaðið - 05.03.1981, Blaðsíða 14
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981.
DAGBLAÐiPvEIMMTUDAGUR 5. MARZ.198J,.
íþróttir
Sþróttir
iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
jþréttir
Iþróttir
Iþróttir
Lið úr 3. deild í undanúrslit?
Newport gerði jafntefli í Jena í Evrópukeppni bikarhafa. Feyenoord tapaði íSofia
Það ótrúlega gæti skeð. Newport
County, bikarmeistarar Wales, gætu
orðið fyrsta liðið úr 3. deild til að
komast f undanúrslit i Evrópukeppni. í
Evrópukeppni bikarhafa i gærkvöld
gerði Newport, sem hefur átt afar litlu
gengi i 3. deild ensku knattspyrnunnar
að fagna, jafntefli við bikarmeistara
Austur-Þýzkalands, Carl Zeizz og það
í Jena.
Austur-þýzka liðið byrjaði með
miklum látum og ekki munaði miklu að
það skoraöi tvívegis á fyrstu þremur
minútunum. En það var ekki. Jena
náði þó forustu með marki Raab en 16
þúsund áhorfendum tii mikillar furðu
jafnaði Tynan fyrir Newport. 1—1 í
hálfleik. í síðari hálfleiknum skoraði
Raab aftur en á síðustu mínútu leiksins
tókst Tynan að jafna í 2—2. Newport
ætti að hafa vissa möguleika til að
sigra á-heimavelli.
Feyenoord tapaði
Feyenoord Péturs Péturssonar lék í
Sofia við bikarmeistara Búlgaríu,
Slavia. Búlgarska liðið sigraði 3—2 í
spennandi og skemmtiiegum leik.
Tsvetkov náði forustu fyrir Slavia á 8.
mín. en Daninn Ivan Nielsen jafnaði
fyrir Feyenoord á 20. mín. Slavia
komst svo í 3—1 með mörkum
Tsvetkov á 64. mín. og Aliev á 68. mín.
Vermoylen minnkaði muninn í 3—2 á
79. mín. og Feyenoord ætti að hafa
allgóða möguleika á að komast í und-
anúrslit Evrópukeppni bikarhafa.
Áhorfendur í Sofia voru 10 þúsund.
Staðan er hins vegar ekki eins góð
hjá þýzku bikarmeiksturunum Fortuna
Dússeldorf. Þeim tókst ekki að nýta
heimavöll sinn til sigurs í gær gegn
Benfica frá Portúgal. Jafntefli varð 2—
2 að viðstöddum 35 þúsund áhorf-
endum eftir að Fortuna hafði haft yfir
í hálfleik 2—1. Welzl og Dusend
skoruðu mörk þýzka liðsins en þeir
Carlos Manuel og Humberto fyrir
Benfica.
Áfall West Ham
Ensku bikarmeistararnir, West
Ham, urðu fyrir miklu áfalli á heima-
velli gegn Dynamo Tblisi. Úrslit 1—4.
West Ham var með alla sína beztu
menn, Alan Devonshire komst í gegn-
um læknisskoðun um miðjan dag i
gær. Framan af sótti Lundúnaliðið
miklu meira en um miðjan hálfleikinn
skoraði sovézka liðið tvívegis úr
skyndisóknum. Fyrst Chivadze á 25.
mín. Síöan Shengelia á 32. mín. Hreint
frábær mörk. í byrjun síðari hálfleiks
lagaði David Cross stöðuna í 1—2.
Það var þó skammgóður vermir.
Gutsaev og Shengelia skoruðu fyrir
Dynamo. Áhorfendur 34.957 og fyrsta
tap West Ham á heimavelli síðan í
fyrstu umferð deildakeppninnar í ágúst
var staðreynd.
HMV
l'). túl 11. aijt. ‘ iti.its I'»<|. \, ió lí( l,i
Éy held ég rækist
illa í flokki
vitlLil víö
OL-il lltinlt Simonanion
Þungunarvarnir án
óþæginda
PARÍS
PARÍS
Úr líni og litum
Kryddjurtir
IMy tinnthaliln^iitjci tjt?ríst á Islaiuii:
EITRI BLANDIIM ÁST
Graeme Souness — átti frábæran leik með Liverpool í gær-
kvöld.
Guðjón til Þórs
Þórsarar á Akureyri hafa svo gott sem tryggt sér Guðjón
Guðmundsson frá FH og eru yfirgnæfandi iikur á að hann leiki
með Akureyrarliðinu i sumar. Guðjón lék flesta leiki FH sl.
sumar, sem miðvörður — traustur og uppbyggjandi leik-
maður. Hann hefur að undanförnu verið að reyna að komast á
samning i HafnarFtrði, sem rafvirki, en ekki tekizt. Hins vegar
mun honum standa til boða samningur á Akureyri og má telja
næsta öruggt að hann taki boðinu.
Þar með missa FH-ingar, þriðja leikmanninn frá síðasta
keppnistímabili, en áður höfðu þeir Valþór Sigþórsson og
Valur Valsson gengið i önnur félög. Valþór til liðs við sina
gömlu félaga i Eyjum og Valur til Vals.
-SSv.
Þrír úrvalsdeildarleik-
ir komu út með tapi
„Þegar farið er yfir leikina i vetur í úrvalsdeildinni kemur í
Ijós að þrir þeirra stóðu ekki undir sér fjárhagslega,” sgði
Stefán Ingólfsson, formaður KKÍ, er DB spurði hann um
aðsóknina að úrvalsdeildarleikjunum á keppnistimabilinu, sem
er að Ijúka. „Aðsóknin innan höfuðborgarinnar hefur farið
minnkandi, en alls staðar vaxandi utan hennar. Þá kemur það
í Ijós að í mörgum tilvikum eru leikir i 1. deild betur sóttir en
úrvalsdeildarleikir og má skýra það með meiri spennu í I.
deildinni I vetur,” sagði Stefán.
-SSv.
Búlgörsku hermennimir
skotnir niður á Anfield
— Liverpool sigraði CSKA 5-1 — jaf ntef li íTblisi og Milano en Bayem sigraði
Englandsmeistarar Liverpool sýndu
aila sina gömlu snilldartakta, þegar
þeir skutu hermenn CSKA frá Sofiu
niður i gærkvöld á Anfield i Evrópu-
bikarnum, keppni meistaraliða. Úrslit
5-1 og með þeim hlýtur Liverpool
nokkuð örugglega að hafa tryggt sér
rétt i undanúrslitin. Síðari leikur lið-
anna verður i Búlgariu 18. marz.
Miðherji Liverpool, David Johnson,
komst ekki gegn um læknisskoðun í
gær og Bob Paisley kom á óvart, þegar
hann valdi Steve Heighway í hans stað.
Það reyndist þó rétt val. Heighway var
„höfuð vizkunnar” í Liverpool-liðinu.
Átti þátt í þremur markanna en stjarna
leiksins var þó Graeme Souness.
Skozki landsliðsmaðurinn var hreint
óstöðvandi. Skoraði þrjú af mörkum
Liverpool.
Það fyrsta skoraði hann eftir 16 mín.
við mikinn fögnuð 37.255 áhorfenda.
En aðeins þremur mín. síðar varð
Liverpool fyrir áfalli. Fyrirliðinn, Phil
Thompson, haltraði af velli, lét Ray
Kennedy hafa fyrirliðamerkið — en svo
kom Colin Irwine inn I stað Thomp-
sons. Næstu mín. á eftir var vörn
Liverpoo! allt annað en sannfærandi.
Alan Hansen urðu á mistök og tvívegis
fengu búlgörsku leikmennirnir gullin
tækifæri, sem þeir misnotuðu. Ray
Clemence varði snilldarlega. Á síðustu
mín. hálfleiksins tókst svo Sammy Lee
að skora annað mark Liverpool.
Liverpool byrjaði vel í síðari hálf-
leik. Souness skoraði þriðja markið en
svo gaf liðið eftir um tíma. Clemence
varði frábærlega á 55. mín. en þremur
mín. síðar kom hann engum vörnum
við. Yonchev geystist inn fyrir vörn
Liverpool eftir langsendingu fram og
skoraði. 3-1 og það heyrðist ekki stuna
á Anfield. pn áhorfendur náðu fljótt
gleði sinni aftur. Á 62. mín. skoraði
Terry McDermott fjórða mark Liver-
pool og Souness það fimmta á 79. mín.
5-1 og vissulega hafði Liverpool mögu-
leika á aö auka markatöluna. Tókst
ekki og það var einmitt aðalmarkaskor-
ari liðsins, Kenny Dalglish, sem fór illa
með allgóð færi. Leikurinn í gær var
hinn 110. hjá Liverpool í Evrópu-
keppni.
Gott hjáReal
Real Madrid ætti einnig að hafa alla
möguleika á að komast i undanúrslit
Evrópubikarsins eftir markalaust jafn-
tefli við Spartak Moskvu í Tblisi í
Georgia. Ekki var hægt að leika í
Moskvu vegna vetrarveðráttu þar.
Moskvuliðið sótti miklu meira í leikn-
um en fór illa með tækifærin. Madrid-
liðið var mjög hættulegt í skyndisókn-
um. Carlos Santillana, miðherji Real,
Jafntefli Standard
en Lokeren tapaði
— íUEFA-keppninni ígærkvöld.
Ipswich vann stórsigur á St.Etienne íFrakklandi
„Ipswich-liðiö er bezta lið, sem ég
hef séð. Það minnir á Ajax-liöið hol-
lenzka upp úr 1970 með Johan Crijuff i
broddi fylkingar. Er bara enn betra,”
sagði framkvæmdastjóri franska
liðsins St. Etienne eftir að Ipswich
hafði unnið stórsigur á liði hans i
UEFA-keppninni f gærkvöld. 1-4 og
það f St. Etienne.
Stórsigur Ipswich og þó náði franska
liðiö forustu með marki Hollendingsins
Johnny Rep snemma leiks. Paul
Mariner jafnaði fyrir Ipswich og staðan
í hálfleik var 1-1. í siðari hálfleiknum
var Ipswich-liðið alveg óstöðvandi.
Skoraði þrjú mörk án svars. Arnold
Múhren náði forustu, 1-2. Síðan
skoraði Mariner aftur og John Wark
undir lokin með miklum þrumufleyg
utan vítateigs. Eftir þessi úrslit má telja
öruggt, að enska liðið komist í undan-
úrslit. Áhorfendur40 þúsund.
Námskeið
Sfðasta námskeið Golfskóla Þor-
valdar Ásgeirssonar á þessu stárfsári
hefst í Ásgarði f Garðabæ 14. marz
næstkomandi. Námskeiðið er fyrir
byrjendur og allar nánari upplýsingar
um það eru veittar í sima 14310.
Sennilega gerir AZ ’67 frá Alkmaar í
Hollandi það einnig. Hollenzka liðið
sigraði Lokeren, lið Arnórs Guðjohn-
sen, með 2-0 í Alkmaar í gærkvöld.
Hollenzki landsliðsmaðurinn Tol
skoraði strax á 9. mín. og átta mín.
síðar kom Welzl AZ ’67 í 2-0. Þá
stefndi i stórsigur hollenzka liðsins en
það merkilega skeði, að fleiri urðu ekki
mörkin í leiknum. Alkmaar-liðið hefur
ekki tapað leik á leiktímabilinu og afar
ólíklegt að Lokeren geti unnið upp
þennan mun á heimavelli sínum í
Belgíu.
Meiri óvissa er í sambandi við það
hver hin tvö liðin í undanúrslitum
UEFA-keppninnar verða. Standard
Liege lék við Köln á heimavelli sínum i
Liege. Þar voru 50 þúsund áhorfendur
og spenna mikil. Hvorugu liðinu tókst
að skora. Ásgeir Sigurvinsson lék ekki
með Standard en hann verður hins
vegar með í síðari leik liðanna í Köln
18. marz. Standard náði frábærum ár-
angri á útivelli í umferðinni á undan,
gegn Dynamo Dresden, þar sem Ásgeir
lék aðalhlutverkið. Áhorfendur 13.400.
Þá léku einnig í UEFA-keppninni í
gærkvöld, Grasshoppers Zúrich, Sviss,
og franska liðið Sochaux. Leikið var í
Zúrich. Ekkert mark var skorað í leikn-
um og ætti franska liðið því að hafa
öllu betri möguleika á því að komast í
undanúrslit.
Miðvikudagsliðið nálgast 1. deildina
Sheffield Wednesday jók möguleika
sína á að komast i 1. deild á ný, þegar
liðið gerði jafntefli i Cardiff f 2. deild í
gærkvöld. Ekket mark skorað i
leiknum. Lið Jackie Charlton hefur nú
37 stig eftir 31 leik f 2. deildinni. West
Ham er efst með 49 stig. Notts County i
öðru sæti með 41 stig, þá Sheff. Wed.
með 37 stig, Grimsby og Derby gafa 36
stig eftir 32 leiki.
Einn leikur var f 3. deild. Blackpool
og Millwall gerðu jafntefli 0—0.
Blackpool-liðið lék nú sinn fyrsta leik
undir stjórn Allan Brown og það var
ekki nógu gott aö fá ekki bæði stigin
gegn Millwall. í 4. deild voru tveir
leikir. Bradford vann efsta liðið
Southend 2—1 á heimavelli, en Peter-
borough og Wimbledon gerðu jafntefli
1—1. I skozku úrvalsdeildinni var einn
leikur. St. Mirren sigraði Airdrie 2—1 á
leikvelli sfnum f Love Street f Paisley.
DRAUMABIKARURSLITIKVÖLD
—er Valur og Njarðvík leiða saman hesta sína í úrslitaleik bikarkeppninnar
íkörfuknattleik
„Það verður gaman að fá tækifæri
til að klekkja á Njarðvikingunum
svona f lok vertiðarinnar,” sagði Torfi
Magnússon, fyrirliði Valsmanna, á
blaðamannafundi sem KKÍ boðaði í
vikunni f tilefni úrslitaleiks bikar-
keppninnar sem fram fer f Laugardals-
höllinni kl. 20 í kvöld. Þar mætast tvö
sterkustu liðin f körfuknattleiknum
dag, Valur og Njarðvík -
sannkallaður draumaúrslitaleikur.
Þrátt fyrir yFirburðasigur Njarð-
víkinga á íslandsmótinu í vetur erj
engum blöðum um það að fletta að
Valsliðið stendur Suðurnesjaliðinu lítt I
eða ekki að baki. í þeim fjórum leikj-!
um, sem liðin léku í úrvalsdeildinni íi
vetur skildu þau jöfn, hvort um sig
vann tvo sigra. Einmitt í síðustu viður-
eigninni unnu Valsmenn stórsigur, en
e.t.v. er ekki svo mikið að marka hann
því Njarðvíkingar höfðu þá þegar
tryggt sér sigur á íslandsmótinu.
Reyndar er það mál manna að
körfuknattleikurinn, sem Valur sýndi í
þeim leik, hafi verið sá bezti sem
íslenzkt félagslið hefur náð að sýna í
vetur, þannig að á öllu má sjá að það
verður heiftarleg barátta i kvöld.
Bæði liðin munu tjalda sínum beztU;
mönnum og allar líkur eru á að meiðsli
þau sem Jónas Jóhannesson, hinn
sterki miðherji þeirra Njarðvíkinga,
varð fyrir í leik gegn ÍS í fyrri viku,
muni ekki koma í veg fyrir að hann
leiki. Jónas er einn allra sterkasti
hlekkurinn í Njarðvíkurliðinu og fáir
leikmenn hérlendis sýna jafnmikla;
grimmd i fráköstum og hann.
Það veröur þó líklega mikið undirj
þvi komið hvernig útlendingunum íj
liðunum tekst upp, hvernig úrslitin
ráðast í kvöld. Danny Shouse hefur
reynzt sá leikmaður sem fæstir hafa
getað stöðvað og undir hans forystu
hefur Njarðvikurliðið haft umtalsverða
yfirburði í vetur gegn öllum liðum
nema Val. Valsmönnum tókst að hefta
hann verulega síðast er liðin mættust
með geysilega „agressívum” varnar-
leik.
„Við vinnum þennan leik með allt
að 10 stiga mun,” sagði Jón Viðar
Matthíasson, Njarðvíkingur, og var
borubrattur. ,,Ég vil nú ekki nema
slíkar tölur,” sagði Torfi. „Við
vinnum þetta með 4 stigum,” bætti
hann svo við.
Undanfarin tvö ár hefur sama liðið
unnið bæði deild og bikar. KR vann
tvöfalt 1979 og Valur 1980 og reyndar
þrefalt þá. Sl.fimm ár hafa lið skipzt á
um að vinna bikarinn — aldrei sama
liðið tvisvar i röð. Spurningin er því
hvort Valsmenn brjóta þá hefð og
halda bikarnum, eða þá hvort
Njarðvíkingar viðhalda reglunni og
vinna tvöfalt. -SSv.
komst tvivegis í opin færi og átti
hörkuskot í markið. Markvörður
Spartak, Renat Daseyev, varði frábær-
lega. Áhorfendur 1 Tblisi 80 þúsund.
Leikmenn Bayem Múnchen voru
langt frá sínu bezta gegn Banik
Ostrava, Tékkóslóvakíu, á ólympíu-
leikvanginum í Múnchen. Sigruðu þó
2-0 og áhugi á leiknum virtist sáralitill.
Aðeins 18 þúsund áhorfendur. Janson
og Paul Breitner, vítaspyrna, skoruðu
mörk Bayern. Þá tókst Inter Milano
heldur illa upp á heimavelli gegn Rauðu
stjörnunni frá Belgrad. Caso skoraði
fyrir Inter í fyrri hálfleik en Repcic
jafnaði í þeim síðari. Áhorfendur
80.000.
-hsím.
Blakliö
Víkings
íham
Einn leikur fór fram i 1.
deild karla, i íslandsmótinu i
blaki f gærkvöldi. Vikingar,
sem hafa verið f miklum bam að
undanförnu, unnu Framara
örugglega 3—0, 15—3, 15—8,
og 15—4 og stóð leikurinn yfir i
50 minútur.
Varnarleikur liðanna réð úr-
slitum. Völlur Fram var eins og
svarthol, boltinn virtist leita i
gólfið hjá þcim.án þess að þeir
fengju við ráðið á meðan
Vikingar vörðust af öryggi.
Haldi Vikingsliðið áfram á
sömu braut er ekki að efa að
það mun fara langt með Þrótt
þegar liðin mætast um aðra
helgi.
-KMU.