Dagblaðið - 20.05.1981, Blaðsíða 1
f
i
i
i
i
\
*
*
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
7. ÁRG. —MIÐVIKUDAGUR 20. MAl 1981 - 112. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGRKIÐSLA ÞVKRHOLTI 11—AÐALSÍMI 27022.
Útvarpsumræðumar í gærkvöldi:
Hart deilt um efnahags- og orkumálin
Hjörleifur Guttormsson orkuráð-
herra taldi orkufrumvarp sitt marka
tímamót en stjórnarandstæðingar
töluðu um „afturhaldssöng Hjör-
leifs”. Ráðherrar hældu sér af
miklum árangri í baráttunni við verð-
bólguna en andstæðingar þeirra
sögðu aðgerðir stjórnarinnar vera
hálfkák eitt og fölsun vísitölunnar.
Hart var deilt í útvarpsumræðun-
um í gærkvöldi. Svavar Gestsson
félagsmálaráðherra vitnaði til nýrra
talna um að kaupmáttur launa yrði
meiri en búizt hefði verið við, þegar
samningar voru gerðir síðastliðinn
vetur, eða 96,6 í samanburði við 100
árið 1979 í stað 96,0 sem spáð hefði
verið í nóvember.
Gunnar Thoroddsen forsætisráð-
herra sagði að dregið hefði úr spennu
og meira jafnvægi ríkti. Hann vitn-
aði til þess að tekizt hefði að halda
genginu óbreyttu í 5 mánuði.
Geir Hallgrímsson (S) sagði að
Alþýðubandalagið væri að einangr-
ast málefnalega og tímaspursmál
væri, hvenær „lýðræðissinnar”
tækju höndum saman um að útiloka
þann flokk frá stjórn.
Kjartan Jóhannsson (A) ræddi um
„íhaldssama nei- og núllstefnu
Alþýðubandalagsins”, sem réði ferð-
inni í stjórnarsamstarfinu. Hann
greindi frá nýjum tillögum Alþýðu-
flokksins í orkumálum, sem DB
greindi frá í gær. Hann sagði að þær
verksmiðjur sem stjórnin er með til-
lögur um skiptu engu varðandi orku-
frekan iðnað. Því máli hefði stjórnin
ekki tekiðá.
Steingrímur Hermannsson ráð-
herra sagði að spáð væri 8% vísitölu-
hækkun 1. ágúst. Því yrði að halda
visitöluhækkun 1. nóvember um
10%, ætti takmarki ríkisstjórnar-
innar að verða náð. Pálmi Jónsson
landbúnaðarráðherra lagði til að út-
reikningsdögum vísitölu yrði fækkað
ítvoáári.
-HH.
fríálst
úháð
daublað
Fróðlegar upplýsingar gefnar á Alþingi:
Risna Landsbankans 300
Hvergi í opinberum rekstri á íslandi
er meiri risnukostnaður en í Lands-
banka fslands. Risna þar á árinu 1980
nam samtals 73.233.000 krónum eða
rúmri hálfri annarri milljón króna á
viku hverri allt árið.
Upplýsingar þessar komu fram í
skriflegu svari fjármálaráðherra við
fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur al-
þingismanns um sundurlíðaðan kostn-
að ýmissa opinberra stofnana á sl. ári.
Eru svörinhiðfróðlegastaplagg.
Engar skýringar eru við þennan ótrú-
lega háa risnukostnað Landsbankans
en fróðir menn geta sér þess til að inni-
falin ' honum séu veiðileyfí banka-
stjóra bankans og gesta þeirra, inn-
lendra og erlendra.
Næsthæst í risnuaf opinberum stofn-
unuin er utanrikisráðuneytið með 37,9
milljónir króna, hálfdrættingur við
Landsbankann. Þá kemur Seðlabank-
inn með 30,1 milljón króna, þá
menntamálaráðuneytið með 29,8 millj-
ónir króna og síðan (öllum á óvart)
heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið
með 26,5 milljónir tæpar.
Næst í röðinni er Sjónvarpið með
18,2 milljónir í risnu og þá loks Lands-
virkjun með 18 milljónir. Rafmagns-
veitur ríkisins fylgja í kjölfarið með
17,8 milljón króna í risnu. Forsætis-
ráðuneytið er með 14,3 milljón króna
risnukostnað og þar á eftir er röðin
komin að Pósti og síma með 11,7 millj-
ónir króna risnukostnað eða m.ö.o.
tæpa hálfa aðra milljón króna á mán-
uði hverjum.
Fróðlegar upplýsingar koma einnig
fram í svari fjármálaráðherra varðandi
yfirvinnu 1 ríkisstofnunum. Þannig eru
yfirvinnugreiðslur t.d. hjá Orkustofn-
un 67,73% af öllum launagreiðslum
stofnunarinnar. Næsthæst hlutfall yfir-
vinnu miðað við heildarlaunakostnað
„Margarslikar
munukoma
íkjölfariö”
— segja IRA-menn um
sprenginguna á Norð-
ur-lrlandi fgær
-sjá erlendarfréttir
bls.6-7
hefur Flugmálastofnun, 54,25%, þá
kemur Landsvirkjun með 48,63% allra
launagreiðslna í yfirvinnu, Rarik með
44,65%.
Engin ríkisstofnun greiðir hærri laun
en Póstur og sími. Launagjöld í því
fyrirtæki voru 13,3 milljarðar króna
árið 1980. „Yfirvinna” í þeirri stofnun
nam 3400 milljónum króna og var 33
sinnum hærri en liðurinn „föst yfir-
vinna” hjá fyrirtækinu.
-A.St.
Dagstjarnan úr Keflavlk 1 Reykjavikurhöfn í morgun: ráúizt i vaklmanninn í hcfndarskyni.
FOLSKULEG ARAS A VAKT
Fjórir ungir menn réðust fólskulega
á vaktmann um borð i skuttogar-
anum Dagstjörnunni frá Keflavík,
rétt fyrir miðnætti. Dagstjarnan (hét
áður Rán og var gerð út frá Hafnar-
firði) liggur við Faxagarð í Reykja-
vik og var lögreglunni tilkynnt um
DB-mynd: Sig. Þorri.
MANN UM B0RDIT0GARA
fjórir menn réðust á hánn í hefndarskyni
árásina kl. 23.54.
Árásin á vaktmanninn virðist hafa
veriö gerð í hefndarskyni að sðgn
Guðmuijdar Hermannssonar að-
stoðaryflrlögregiuþjóns í morgun.
Einn eöa fleiri fjórmenninganna
höfðu v^rið reknir burt af skipinu og
var skipstjóri um borð er það gerðist.
Hann var síðan farinn frá borði er
fjórmenningarnir sneru til baka og
veittust að vaktmanninum.
Vaktmaðurinn var sleginn og
vankaðist hann og var fluttur á slysa-
deild. Guðmundur vissi ekki frekar
um meiðsli vaktmannsins í morgun,
en taldi að þau hefðu ekki verið
alvarleg.
Tveir árásarmannanna náöust í
nótt og sitja þeir í gæziu. Málið er í
rannsókn en ölvun mun hafa átt sinn
þátt í framvindu mála. -JH.
þúsund á dagárið 1980
—risnukostnaður 15 ráðuneyta og 18 ríkisstofnana tæpar400 milljónir yfir
árið eða nokkuð á aðra milljón króna á hverjum degi