Dagblaðið - 20.05.1981, Side 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1981.
3
REYKINGAR A SUNDSTODUM
—slíkur sóðaskapur ætti ekki að líðast
SiONVARP
— Buska:
Mjög
skemmti-
leg mynd
— vel til fundið hjá
sjónvarpinu að hafa
myndina svona
snemma á dagskránni
Móðir hringdi:
Ég vil þakka sjónvarpinu fyrir
alveg frábæra laugardagsmynd, sem
var Buska, eða sagan af Öskubusku
færð í nútímabúning.
Ég horfði á þessa mynd með
stelpunum mínum og við höfðum
allar mjög gaman af.
Þetta skemmtilega ævintýri var
ekki aðeins fært í nútímabúning á
mjög skemmtilegan og aðgengilegan
hátt heldur var söguþræðinum breytt
þannig að endirinn er t.d. miklu eðli-
legri en í ævintýrinu.
Einnig fannst mér það vel til
fundið hjá sjónvarpinu að hafa
myndina svona snemma á dag-
skránni, þannig að það var hægt með
góðri samvizku að leyfa yngri börn-
unum að horfa á myndina.
Sjónvarpið mætti gjarnan halda
áfram þessari stefnu. Takk fyrir.
Þessi mynd er ekki úr Busku heldur
annarri skemmtilegri söngvamynd,
Hárinu.
Hringið>'sl,,1f
:iiikl.l3og_
mÍlliW
„Smáauglýsingaþjónusta"
heitir ein þjónustudeildin okkar.
Setjir þú smáauglýsingu i
Dagblaðið getur þú beðið um
eftirtalda þjónustu hjá smá-
auglýsingaþjónustu blaðsins
þér að kostnaðarlausu:
Tilboðamóttöku í síma. Við
svörum þá í síma fyrir þig og
tökum við þeim tilboðum
sem berast.
Upplýsingar í síma. Við
veitum fyrirspyrjendum upp-
lýsingar um það sem þú aug
lýsir, þegar þeir hringja til
okkar.
Að sjálfsögðu aðstoðum við
þig, ef þú óskar þess, við að
orða auglýsingu þína sem
best.
i Njóttu góðrar þjónustu
ókeypis.
IBIAÐW
er smáauglýsingablaðið
Þverholti 11 - Sími 27022
Opiðtil kl. 10í kvöld
Mlldll sóöaskapur fylgir reykingum
og þær ættu alls ekki að liðast á
sundstöðum.
DB-mynd Hörður.
Sundlaugargestur hringdi:
Ég brá mér í sund um helgina. Eftir
smásundsprett kom ég mér vel fyrir
og ætlaði að láta sóiina baka mig. En
í stað þess að fá á mig þennan eftir-
sótta brúna lit fékk ég yfir mig ösku
eins og Hekla væri að gjósa í næsta
nágrenni. Einn af þeim sem hugsar
bara um sjálfan sig hafði kveikt sér í
sígarettu og púaði hana með auð-
sjáanlegri ánægju.
Það er alveg furðulegt hvað þetta
reykingafólk gengur langt í frekjunni
og sóðaskapnum. Þessu fólki hefur
liðizt nógu lengi að menga umhverfið
fyrir okkur hinum. En að reykja þar
sem hópur fólks er í sólbaði er full-
langt gengið.
Raddir
lesenda
Hefur þú verið
viðstaddur
barnsfœðingu?
Guðmundur Grimsson bOstjóri: Nei,
en það er aldrei að vita hvað maður á
eftir.
Spurning
dagsins
Friðrik Sophusson bilstjóri: Ég á fimm
börn. Alltaf þegar konan fór að eiga,
þá fór ég að sofa.
Jón Helgason bUstjóri: Nei, það var
ekki komið i tízku þegar konan mín
átti.
tvar Gunnlaugsson sjómaður: Nei, það
hefégekki verið.
Óskar Gunnarsson stýrlmaður: Já, það
er sú mesta lifsreynsla sem ég hef lifað.
CecU Vlðar Jensen vélstjóri: Nei, en ég
væri ekki frá því ef þannig stæði á.