Dagblaðið - 20.05.1981, Side 7
DAGBLAÐIÐ. MÍÐVIKUDAGUR 20. MAÍ1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
D
Erlendar
fréttir
Bandaríska
tölvukerfið
úrelt
Kunnur bandarískur sérfræðingur,
Milton Socolar, sagði i gær að banda-
ríska tölvukerfið sem vara ætti við
kjarnorkuárás hefði gengið sér til húð-
ar fyrir löngu og koma þyrfti upp nær
algjörlega nýju kerfi.
Pólverjar
fá gjaldf rest
Vestur-þýzkir bankar hafa ákveðið
að veita Pólverjum gjaldfrest á 2,37
milljarða dollara skuld en þó ekki á.
eins hagstæðum kjörum og Pólverjar
höfðu óskaðeftir.
Irski lýðveldisherinn hefur hótað
ítrekuðum hermdarverkum gegn
brezka hernum í kjölfar árásar á
brezkan herflutningavagn í gær. Þá
sátu liðsmenn IRA fyrir brynvörðum
herflutningavagni Breta nærri
Camlough á Norður-lrlandi og
sprengdu hann í loft upp, með þeim
afleiðingum að fimm brezkir her-
menn biðu bana.
írski lýðveldisherinn skýrði frá þvi
i gær aö þessi árás væri hefnd fyrir
það að félagar IRA i Maze-fangelsinu
hefðu verið látnir deyja í hungurverk-
fallinu. „Margar slikar (sprengjur)
munu fylgja í kjöifarið,” sagði í til-
kynningu IRA.
Sprengingin í gær var ákaflega
öfiug og er talið að hér hafi verið um
að ræða öflugustu jarðsprengju sem
sprengd hefur verið á Norður-ír-
landi. Talið er, að hún hafi verið um
þúsund pund enda lék allt á reiði-
skjálfi í meira en kllómetra fjarlægð
þegar hún var sprengd. Brezku her-
mennirnir munu allir hafa látizt sam-
stundis.
Hungurverkfall IRA-manna í
Maze-fangeisinu heldur áfram. Auk
þeirra Sands og Hughes sem þegar
hafa látið lífið er Raymond
McCreesh, 24 ára gamall, ákaflega
hætt kominn enda hefur hann ekki'
neytt matar í 60 daga.
Bobby Sands. Hann varð fyrstur
lRA-manna í Maze-fangelsinu til að
svelta sig til bana. Hefndaraðgerðlr
IRA eru nú hafnar vegna þess að
brezka stjórnin gekk ekld að kröfum
Sands og félaga hans og leyfði þelm
að deyja.
llllllliíÍi'jÍÍll
;
ipisÉÉty M1S
:: ’■ :: ::: :
- -
ÍMi
- .
fSsm
Lennon og Yoko í Danmörku árið 1978.
Lennon þoldi
ekkijapönsku
— Hann var ákaf lega af brýðisamur,
segir Yoko Ono í blaðaviðtali
Yoko Ono, ekkja Bítilsins John
Lennon, hefur skýrt frá því i blaða-
viðtali að hinn látni eiginmaður
hennar hafi verið með ólíkindum
afbrýðisamur. Hann vildi að þau
hjón væru sem eitt hold og einn
hugur. Honum var illa við að Yoko
gæfi sig á tal við aðra karlmenn og
hann gat alls ekki þolað að hún talaði
japönsku vegna þess að á þeim
brautum gat hann ekki fylgt henni.
,,Ég varð alltaf að fara með
honum inn á salerni i stúdíóum vegna
þess að hann óttaðist að ég færi á
brott með einhverjum öðrum karl-
manni,” sagði Yoko í blaðaviðtalinu.
Hún segir að Lennon hafi verið
ákaflega hamingjusamur áöur en
hann var myrtur og sjálf hafi hún
verið að hugleiða það, nokkrum
dögum áður en maður hennar var
myrtur, hvort lífið gæti haldið áfram
að vera svona dásamlegt.
Ætlaði
að myrða
Waldheim
Mehmet Ali Agca, sem sýndi Jó-
hannesi Páli II. páfa banatilræði á Pét-
urstorgi síðastliðinn miðvikudag hefur
lýst því yfir við yfirheyrslur, að hann
hafi ætlað sér að myrða Elísabetu Eng-
landsdrottningu og Kurt Waldheim,
framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna. Hann hafi hætt við að myrða
Elísabetu af því að hún er kona og
Waldheim hafi sloppið vegna þess að
hann hafi ekki átt fyrir flugfarinu til
NewYork.
Mehmet Ali Agca. Lögreglan telur að öfgasamtök i Tyrklandi hafi mútað honum til
að myrða páfann. Hún leggur ekki mikinn trúnað á frantburð hans.
VIÐ
BJÚÐUM
4
GERÐIR
auglýsir:
A 2
HENTUGT/
SUMARBÚSTAÐ/
OGÞARSEMLÍT/D
PLÁSS
ER
Gerð: KP-2
BEHANETTE
rafmagnse/dunartæki
frá
Gerfl: PX
Gerfl KPH.
GerðA-2: Tvœrhellur. 14,5 cm, 1500 vött,
og 18 cm, 1200 v. Ofh. Rúmmúl: 20 lltrar.
Fylgihlutir: 1 pannu, 1 bökunarplata og 1
rist. Verð kr. 1.498,50.
KP-2: Tvœr hellur. 14,5 cm, 1000 v, 18
cm, 1200 v. Verð kr. 578,30.
PX: 14,5 cm, 1500 vött. Hella. Verð kr. 352,00.
KPH: 22 cm, 2000 vött. Hella. Verð kr. 532,00.
GOTT VERÐ - LITTU INN HJA OKKUR
Austurveri
Simi 84445 — Háaieitisbraut 68