Dagblaðið - 20.05.1981, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. MAf 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Popp-
punktar
Vinnslu cr nú um þuð hil að
Ijúku ú fyrstu sólóplötu Debbie
Harry, sönpkunu i hljómsveitinni
Blondie. — Upptöku á henni
stjórna sem kunnupt er diskókónp■
arnir Alile Rodgers op Bernard
Edwardes. — Þeirsem heyrt hafa
áranpurinn sepja að lög pliitunnar
hljómi mjöf’ vel ng uðruvisi en ann-
að sem Dcbbie hcfursungið hingað
til. Meðal annurs verður á plötunni
lag sem nefnist MUitary Rap. Þuð
er ísvuköUuóum „rap’’stil, líkt og
lagið Rapture með Blondie. Þvi er
spúð miklum vinsaidum á diskó-
tekum.
Talandi um Debbie Harry, þá
var henni hoðið að syngja titillagið
við nýjustu James Bond-biómynd-
ina For Your Eyes Onty. Hún
hafnaði þvi tilboði umsvifalaust svo
að skozka söngkonan Sheena
Easton var fengin til verksins í
staðinn.
Og talandi um Sheenu Easton:
Hún átti nýtega lag i fyrsta swti
bundaríska vinswldalistans, Morn-
ing Train. Aðdáendur Sheenu
kannast áreiðanlega við lagið undir
nafninu Nine To Five. Astwðan
fyrir þvi að skipt var um nafn á lag-
inu, erþað vargefið út i Bandarikj-
unum, er einfiild. Fyrir nokkru var
annað Nine To Five-lag á toppn-
um þar vestra, samið og sungið aj
Dolly Parton. Þar sem Parton
lagið náði vinswldum þur á undan
þótti vissast að breyta nafninu á
lagi Shcenu Easton svo að þuð ylli
engum ruglingi.
Þeir sem hyggjast kaupa sér
gamlar hljómplötur með Rod
Stewart í London á nwstunni
munu komast að þvi að þwr eru á
óvenjulega hagstwðu verði, aðeins
£2.80. Að undanförnu hefur mikið
horið á því að fiuttar vwru inn
ödýrar og ómerkilegar plötur með
stjörnunni. Utgáfusamsteypan
WEA ákvað því að Iwkka verðið á
plötunum A Night On The
Town, Atlantíc Crossing og
Blondes Have More Fun til að
mwta keppninni.
Ekki liggur Ijóst fyrir hvaða lug
af pliitunni Bully For You með B.
A. Robertson verói valið nwst á
litla plötu. Tvö koma helzt til
greina; titillagið og Maggie. Hið
siðarncfnda er titillag sjónvarps-
þáttar sem BBC 2 hefur sýnt að
undanjörnu og hefur hlotið góðar
viðtökur. Maggie þessi eraf verka-
munnawttum en gengur mennta-
hrautina. Efni textans segir nokk-
uð til um hvuð fjallað er um í þátt-
unum.
I bígerð er i sumar að gera sjðn-
varpsþwtti í Englandi um skozka
rokktónlisturmenn. Þarna koma
fram menn eins og Jack Bruce, B.
A. Robertson, Sheena Easton,
Rod Stewart og fleiri. Meira að
segja verður einn þáttur helgaður
hljómsvcitinni Bay City Rollers.
B. A. Kohertson sagói, erhann var
staddur hér á landi I slðustu viku,
að gerð þáttanna yrði scnnilega
ekki lokið fyrr en slðast I júli.
Hann verður þvi upptekinn fram
að þeim tíma og getur því hvorki
samið lög fyrir sjálfan sig né aðra á
meðan. Upp úr þvi fer hann
vwntanlega að huga að nýrri LP-
plötu.
Nýjasta 45 snúninga platu
hljómsveitarinnar Jam mun inni-
hulda lógin Funeral Pyre og
Disguises. Hún er vwntanleg á
markaðinn i Englandi þann 22.
mai. Hljómsveitin verður að heim-
an á útgáfudaginn.
Bobby Ewing heitir Patrick Duffy
— er mesta gæðablóð en þreyttur á því
Bobby Ewing heitir í rauninni
Patrick Duffy og er sagður gull af
manni og hamingjusamur fjölskyldu-
faðir að auki. Eiginkonan, Carlyn, er tíu
árum eldri og setti það dálítið fyrir sig i
fyrstu. Patrick vildi ekki hlusta á slíkar
léttvægar mótbárur; sagðist alltaf hafa
verið meira fyrir þroskaðar konur. Alla
vega virðast þau hafa átt vel saman því
þau hafa verið gift í átta ár, eiga tvo
drengi og segjast vera hamingjusöm.
Þegar þau kynntust var hún ein af
fimm dansmeyjum, hver annarri
faliegri, og hann ætlaði sér að kynnast
þeim öllum eftir röð. Svo fór þó að
fyrsta stúlkan i röðinni gómaði hann og
hefur haldið lionum síðan. Kunnugir
segja það allóvanalegt í Hollywood.
Þetta á þó að standa til bóta, sagði
ólyginn okkur. Peningana er Bobby að
vísu alinn upp við að hafa en snertingin
við valdið sem þeim fylgir á að spilla
honum með tímanum. Þannig verður
Patrick að ósk sinni og hlutverkið
verðurbragðmeira.
Patrick Duffy, sem leikur Bobby
Ewing i Dallas, ásamt konu sinni,
Carlyn.
Annars var Patrick ekkert yfir sig hrif-
inn af Bobbyhlutverkinu fyrst framan
af í Dallas. Honum finnst þreytandi að
leika svona gæðablóð og segist vel geta
verið jafnandstyggilegur og hver annar í
þáttunum.
Carios Reutemann hirti ekki um að aka sigurhring eða láta kampavínið freyða að
sigri sínum í Zolder loknum. Tvö alvarleg slys urðu í tcngslum við keppnina. í bæði
skiptin voru viðgerðamenn eknir niður. Rcutemann var sjálíur valdur að öðru slysinu.
Heimsmeistarakeppnin í kappakstri í Zolder
í Belgíu:
Enn sigrar
Reutemann
— keppninni var hœtt eftir 55 hringi vegna veðurs
Argentínumaðurinn Carlos Reute-
mann hefur nú tólf stiga forskot í
heimsmeistarakeppninni í Formula 1
kappakstri. Hann sigraði i keppninni í
Zolder í Belgíu á sunnudaginn. Þegar
stjórnendurnir stöðvuðu keppnina eftir
55 hringi af sjötíu var Reutemann um
það bil hálfri mínútu á undan Frans-
manninum Jacques Laffite.
Keppnin í Zolder einkenndist af
stanzlausum hrakföllum. Reutemann
ók til dæmis niður viðgerðamann frá
Osella-liðinu við æfingar á föstudag. Á
sunnudaginn varð annar viðgerðamað-
ur fyrir slysi. Hann var að dytta að ein-
hverju í Arrows bíl ítalans Riccardo
Patrese er félagi hans úr Arrows liðinu,
Sigfried Stohr, kom aðvífandi og ók á
bíl Patreses. Viðgerðamaðurinn brotn-
aði á báðum fótum og meiddist einnig á
höfði. Hvorugur Arrows bíllinn .var
með í keppninni.
Stjórnendur Zolder-keppninnar
ákváðu að stöðva kappakstursbllana á
55. hring. Þá var komin úrhellisrigning
og slysahættan orðin mun meiri en I
upphafi. Án efa var það skynsamleg
ákvörðun. Nóg var að tveir viðgerða-
menn lægju alvarlega slasaðir á sjúkra-
húsi þó að lifi og limum ökumannanna
væri ekki hætt einnig.
Reutemann neitaði að keppninni
lokinni að aka sigurhring eða sprauta
kampavíni eins og venja er. Hann sagði
að slysið með Arrows viðgerðamann-
inn „og önnur atvik” hefðu eyðilagt
siguránægju sína. „Þetta er búinn að
vera bölvaður leiðindadagur,” sagði
Reutemann um leið og hann hraðaði
sér í burtu.
Með sigri sinum á sunnudaginn sétti
Carlos Reutemann nýtt met í Grand
Prix keppninni. Hún var sú fimmtánda
í röð sem Reutemann tókst að vera í
einu af sex efstu sætunum. Þar með var
slegið met landa hans, Juan Manuel
Fangio, frá fyrstu árum sjðtta áratug-
arins.
Af þeim 22 bílum sem hófu loka-
keppnina i Zolder á sunnudaginn luku
níu keppni. Röð þeirra var þessi:
1. Carlos Reutemann
(Argentína)
2. Jacques Laffite
(Frakkland)
3. Nigel Mansell
(Bretland)
4. Gilles Villeneuve
(Kanada)
5. Elio de Angelis
(Ítalía)
6. EddyCheever
(Bandaríkin)
7. JohnWatson
(Bretland)
8. Didier Pironi
(Frakkland)
9. Bruno Giacomelli
(ítalfa)
1 klst. 16:31.61
1:17:07.67
1:17:15.30
1:17:19.25
1:17:20.81
1:17:24.12
1:17:33.27
1:18:03.65
1:18:07.19
Reutemann fór hringinn á beztum
tíma í 37. umferð. Tími hans þá var ein
mínúta 23.30 sekúndur. Meðalhraðinn
á hringnum var 184.192 kílómetrar á
klukkustund.
Staðan í heimsmeistarakeppninni
eftir sunnudaginn er þessi:
1. Carlos Reutemann
(Argentína) 34 stig
2. Nelson Piquet
(Brasilía) 22 stig
3. AlanJones
(Ástralía) 18 stig
4. Riccardo Patrese 10 stig
5. Jacques Laffite(Frakkland) 7 stig
6. Elio de Angelis (Ítalía) 5 stig
7. Nigel Mansell (England) 4 stig
Alain Prost (Frakkland)
9. Mario Andretti (Bandaríkin) 3 stig
Hector Rebaque (Mexíkó)
Marc Surer (Sviss)
Gilles Villeneuve (Kanada)
13. Rene Arnoux (Frakkland) 2stig
Eddie Cheever (Bandaríkin)
Didier Pironi (Frakkland)
16. Andrea de Cesaris (Ítalía) 1 stig
Patrick Tambay (Frakkland)
John Watson (Bretland)
Mandy Rice-Davis
afvegaleiddi
— leikur Maddy sem afvegaleiðir
Mandy Rice-Davies, er mikla at-
hygli vakti upp úr 1963 vegna aðildar
sinnar að brezka Profumo-hneyksl-
inu, er í sviðsljósinu á nýjan leik.
Hún leikur Maddy í gamanleiknum
Óhreinn þvottur eftir Tom Stoppard.
Hlutverkið Maddy ætti að hæfa
henni einstaklega vel þvi Maddy af-
vegaleiðir háttsettan brezkan stjórn-
málamann.
Annars vitum við fjarska lítið um
dömuna, nema þá það að henni héfur
ekki vegnað allt of vel, hvorki sem
eiginkonu né eiganda matsölustaðar.
Við vitum heldur ekki hvar hún fékk
þessi einstaklega ljótu nærföt né
hvað kemur henni til þess að láta sjá
sig í þeim.
Mandy Rice-Davis, sem við minn-
umst úr brezka Profumo-hneykslinu,
er nú orðin 36 ára og leikur Maddy
sem afvegaleiðlr háttsettan brezkan
stjórnmálamann.
Börn f Bremen læra tannburstun með sýnikennslu, siðan fá þau að sjá tilraunir
sínar á myndsegulbandi og árangurinn er betri tannhirða.
Það er leikur að læra
— eða lært af leik
Skólatannlæknir nokkur, dr.
Wolfgang Schlamp, ferðast á milli
leikskóla i Bremen, Þýzkalarldi, og
kennir börnunum að bursta tennur
með allsérstakri sýnikennslu.
Hann kemur með sett af risatönn-
um og jafnrisavaxinn tannbursta sem
rollingunum er kennt að beita rétt við
hirðingu umræddra tanna. Síðan er
allt saman tekið upp á myndsegul-
bandstæki svo börnin fái að sjá sig að
verki.
Árangurinn á að vera með miklum
ágætum því áhugi á hirðingu tanna,
ásamt framkvæmdum í því sam-
bandi, á að hafa stóraukizt. Enda er
sagt að það sé leikur að læra, og allir
vita að börn læra bezt ef hægt er að
gera þaðmál að leik.