Dagblaðið - 20.05.1981, Page 10
10
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1981.
NEMENDALEIKHÚSIÐ Morðið á Marat Sýning í kvöld kl. 20. Sýning fimmtudagskvöld kl. 20. Miðasala í Lindarbœ frá kl. 17 alla daga nema laugardaga. Miðapantanir í síma 21791. FÁAR SÝNINGAR
PLEXIGLAS
Acryl-gler í háum gæðaflokki.
Eigum fyrirliggjandi Plexiglas í glæru og
ýmsum litum, t.d. undir skrifstofu-
stóla, á svalir, sólveggi og handrið, í ljósaskilti,1
gróðurhús, vinnuvélar og fleira
— Skerum og beygjum.
AKRON H/F
Síðumúla 31
Sími 33706
Almennur félagsfundur
r
1
TAFLFÉLAGI REYKJAVlKUR
verður haldinn að Grensásvegi 46, Reykjavík,
mánudaginn 25. maí 1981, ki. 20.
DAGSKRÁ:
Umræður um val fulltrúa Taflfélags Reykjavíkur
á aðalfund Skáksambands íslands.
F.H. TAFLFÉLAGS REYKJAVÍKUR
GUDFINNUR KJARTANSSON.
STYRKUR
TIL HÁSKÓLANÁMS í FRAKKLANDI
Laus er til umsóknar einn styrkur til náms í raunvísindum við háskóla í
Frakklandi háskólaárið 1981—82.
Umsóknunt um styrkinn, ásamt staðfestum afritum prófskirteina og
meðmælum, skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 101
Reykjavík, fyrir 3. júni nk. — Umsóknareyðublöðfást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
13. mai 1981.
1981
Aðalfundur
Sölusambands íslenzkra fiskframleiðenda verður haldinn í
hliðarsal Hótel Sögu miðvikudaginn 10'júní nk. og hefst
kl. lOárdegis.
Dagskrá samkvæmt fclagslögum
Lagabreytingar
Stjórn Sölusambands íslenzkra fiskframleiðenda.
Launafólk Akureyri:
Lýðrœði í verkalýðs-
hreyfingunni?
Opinn fundur í Nýja bíói, Akureyri, laugar-
daginn 23. maí kl. 14. Á fundinum tala m.a.
Hákon Hákonarson, forseti Alþýðusambands
Norðurlands, Magnús E. Sigurðsson, formaður
Félags íslenzkra bókagerðarmanna, Hjördís
Hjartardóttir, Áhugasömum félögum í BSRB,
Guðmundur Sæmundsson, Einingu, og Gunnar
Hallsson, Félagi verzlunar- og skrifstofufólks
Akureyri.
Skemmtiatriði. Almennar umræður. Allir
launþegar eru velkomnir á fundinn.
Áhugahópur um aukið lýðræði
í verkalýðshreyfingunni.
Eykst kostnaður og
versnar þjónustan?
—eða tryggir Læknaþ jónustan sf. að hægt verður að senda
sjúka til læknis þrátt fyrir uppsagnir?
„Félagið er stofnaö til að tryggja
að þjónusta læknanna sé fyrir
hendi,” sagði Jóhann heiðar Jó-
hannsson læknir og formaður ný-
stofnaðs félags, Læknaþjónustunnar
sf., í viðtali við DB í gær. Eins og þar
kom fram hefur félagið sent út taxta
sinn og selja sérfræðingar týna sinn á
420 krónur og aðstoðarlæknar á 295
krónur.
Með þessu móti geta sérfræðingar
fengið allt að 70—80 þúsundum
króna i laun á mánuði. Inni í þessu
eru falin launatengd gjöld þannig að
laun samkvæmt taxta þessum rynnu
ekki öll í vasa læknisins.
Þröstur Ólafsson, aðstoðarmaður
fjármálaráðherra, sagði í DB í gær að
taxti Læknaþjónustunnar yrði ekki
samþykktur. Fjármálaráðuneytið
semur við Læknafélagið um kaup og
kjör.
Uppsagnir lækna eru nú byrjaðar
að taka gildi og halda áfram að gera
það næstu daga. Kemur þetta niður á
þjónustu við sjúklinga eða eykur
þetta verulega kostnað við læknis-
þjónustu hér á landi? DB leitaði til
landlæknis, framkvæmdastjóra ríkis-
spítalanna og formanns Læknaþjón-
ustunnar f gær og fara svör þeirra hér
áeftir.
- JH
Ólafur Ólafsson landlæknir:
Landlæknisembættið
kemur inn í málið
ef þjónustan versnar
— réttast að setjast niður og sem ja um
vandamálið
„Landlæknisembættið kemur
varla inn í þessar deilur nema ef þjón-
ustan við fólkið versnar,” sagði
Ólafur Ólafsson landlæknir í gær.
„Þá verður að skoða málið og reyna
að bæta úr.
Tilvik sem þessi hafa gerzt áður og
af reynslu sem þá hefur fengizt hefur
fólk ekki orðið líða vegna verri
þjónustu lækna. Yfirlæknar hafa
verið menn til þess að segja, hvenær
sérfræðinga væri þörf, þannig að
þjónusta væri viðunandi. Hins vegar
er ekki hægt að segja nú hvernig þessi
mál þróast.
Menn hafa veriðað gera þetta að
fjölmiðlamáli i stað þess að semja.
Réttast er að setjast niður og semja
um vandamálið eins og gert er í okkar
þjóðfélagi í stað þess að skiptast á
skoðunum í fjölmiðlum.”
- JH
Ólafur Ólafsson landlæknir: „Tilvik
sem þessi hafa gerzt áður og af
reynslu sem þá hefur fengizt hefur
fólk ekki orðið að liða vegna verri
þjónustu iækna.”
Jóhann Heiðar Jóhannsson, for-
maður Læknuþjónustunnar sf.: „Ég
á von ó þvi aö ef kjarasamnlngar
takast þi detti þetta taxtamál Lækna-
þjónustunnar niður.”
DB-mynd Sigurður Þorri.
Jóhann Heiðar Jóhannsson, formaður
Læknaþjónustunnar sf.:
Takist kjarasamningar
detta taxtamál Lækna-
þjónustunnar sf. niður
„Okkur hefur ekki borizt svarbréf
fjármálaráðuneytisins þannig að
erfitt er að svara til um viðbrögð við
þvi nú,” sagði Jóhann Heiðar Jó-
hannsson læknir, formaður Lækna-
þjónustunnar sf., í gær.
„En samkvæmt því sem haft er
eftir Þresti Ólafssyni, aðstoðarmanni
fjármálaráðherra, í DB í gær, þar
sem sagt er að taxti Læknaþjónust-
unnar verði aldrei samþykktur og að
viðræður hafi farið fram við lækna
fyrir helgi, þá er um tvö mál að ræða.
Samningaviðræður hafa ekki verið í
gangi síðan í vetur og þær eru ekki á
vegum Læknaþjónustunnar heldur
Læknafélagsins. í vetur var öllum
kröfum hafnað og síðan hafa við-
ræður ekki átt sér stað. Það hefur
heldur ekki verið farið fram á
viðræður.
Ég á von á því að ef kjarasamn-
ingar takast þá detti þetta taxtamál
Læknaþjónustunnar niður. Þetta
félag er fyrst og fremst sett á lagg-
irnar til þess að veita þjónustu nú,
eftir að uppsagnir hafa tekið gildi.”
- JH
Davíð A. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ríkisspítalanna:
Það sem gera þarf er
að koma á viðræðum
— til þess að leysa hnutmn. Þá leysist taxtamál læknanna
„Rikisspítalarnir hafa ekki tekið
endanlega ákvörðun um þetta taxta-
mál Læknaþjónustunnar en það
verður gert mjög fljótlega,” sagði
Davíð Á. Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri ríkisspítalanna, í gær.
„Kostnaður við notkun þess taxta
sem hefur verið tilkynntur hefur ekki
verið reiknaður út en ef læknar væru
notaðir áfram l jafnmiklum mæli og
verið hefur þýddi það gífurlega
kostnaðaraukningu.”
Nú hafa fréttir stangazt á um það
hvort þeir læknar sem haga sagt upp
störfum og eiga samkvæmt því að
vera hættir séu enn við störf. Eru
þessir læknar enn að vinna?
„Annar þeirra sérfræðinga sem
áttu að vera hættir var kallaður út á
mánudag. Þaö var ekki rætt um það
á hvaða kjörum hann ynni, enda
sinna flestir læknar sjúklingum
sínum án þess að ræða peningamál
áður.
Annars er öll umræða um þetta
mál óþörf. Það sem gera þarf er að
koma af stað viðræðum og leysa
hnútinn. Ég efast þá ekki um að þetta
taxtamál Iæknanna leysist.
Fjármálaráðuneytið er samnings-
aðili við læknana en ekki við. Við
greiðum þvi læknum það kaup sem
um er samið. Samningaviðræður
verða því að hefjast að frumkvæði
ráðuneytisins.”
- JH