Dagblaðið - 20.05.1981, Qupperneq 18
18
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. MAl 1981.
Spáð er hœgri breytilegH átt vlðast
hvar en búast má við skúrum á ein-
stðku staö, annars verður yfirleitt
þurrt.
Kiukkan 8 var vestan 2, skýjað og 5
stig í Reykjavflt, austan 2, skýjað og 2
stig á Gufuskálum, haegvlðri, skýjað
og 1 stig á Galtarvita, norðan 2,
skýjað og 6 stig á Akureyri, vastan 2,
skýjað og 4 stig á Raufarhöfn, sunn-
an 2, láttskýjað og 3 stig á Dalatanga,
vastan 2, skýjað og 8 stig á Hðfn og
sunnan 2, þoka og 7 stig á Stórhðfða.
( Þórshðfn var skýjað og 8 stig,
skýjað og 12 stig í Kaupmannahðfn,
skýjað og 12 stig í Osló, skýjað og 9
stig í Stokkhólmi, skýjað og 13 stig I
London, láttskýjað og 16 stig í
Hamborg, skýjað og 16 stig I Parfs,
skýjað og 16 stig f Madrid, skýjað og
13 stig í Lissabon og láttskýjað og 11
stig í Naw York.
V /
Eirikur Jónsson, Sólheimum 34, lézt í
Landakotsspítala 18. maí sl.
Auður Guðmundsdóttir, Fornhaga 19,
lézt I Borgarspítalanum 18. maí sl.
Guðráður Davið Bragason, Miðvangi
27 Hafnarfirði, sem lézt af slysförum
16. maí sl., verður jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 22.
maí kl. 14.
Aðalbjörg Jónsdóttir fv. símritari,
Kaplaskjólsvegi 55, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 21.
maí kl. 10.30.
Sigriður Ásgeirsdóttir gullsmiður,
Hlíðarvegi 35 ísafirði, sem lézt 14. maí
sl„ verður jarðsungin frá ísafjarðar-
kirkju fimmtudaginn 21. maí kl. 14.
Guðrún Halldórsdóttir frá Berserks-
eyri, Grettisgötu 20A, verður jarðsung-
in frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
21. maí kl. 13.30.
Guðleifur Guðmundsson trésmiður,
Miklubraut 86, sem lézt 13. maí sl„
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
föstudaginn 22. maí kl. 13.30.
Ftitidsr
AA-samtökin
í dag, miðvikudag, vcrða fundir á vcgum AA-sam-
takanna sem hér segir: Tjarnargata 5 (s. 91-12010)
kl. 12 (opinn), 14, 18 og 21. Grensás, Safnaðarheim-
ili kl. 21, Hallgrímskirkja kl. 21. Akranes (93-2540)
Suðurgata 102 kl. 21. Borgarnes, Skúlagata 13, kl.
21. Fáskrúðsfjörður, FélagshLlnilið Skrúður, kl.
20.30. Höfn, Hornafirði. Miótún 21, kl. 21.
Keflavik (92-1800), Klappaist 7 Enska, kl. 21.00.
Á morgun, fímmtudag, s ;rða fundir í hádeginu
sem hér segir: Tjarnargata 5, græna húsið, kl. 14.
Tiikyftitmgar
Þörungamjöl fyrir heimilis-
garöa í blómaverzlanir
Þörungavinnslan hf. að Reykhólum er um þessar
mundir að dreifa þörungamjöli fyrir heimilisgarða i
blómaverzlanir. Hér er um nýjung aö ræöa að þvi
leyti aö mjölið verður á boðstólum í 10 kg neytenda-
umbúöum, sem á veröa prentaðar ýmsar upplýs-
ingar um hvernig eigi að nota mjölið.
Þeir sem notað hafa þang og þara til áburðar, t.d.
i kartöflugarða, eru sannfærðir um gildi þess. Hér er
um að ræða lífrænan áburð, mjög snefilefnaríkan
og fullan af bætiefnum sjávarins. Reynslan bendir
til þcss að þörungamjöl bæti frjómagn jarövegs og
flýti fyrir vexti plantna. Aöaláhrifin felast þó 1 því
að auka næringargildi, bragðgæði og lengra
geymsluþol ávaxta.
Hér er því komið tækifæri fyrir hina fjölmörgu
áhugamenn um blóma- og plönturækt að ná sér í
þann áburö sem sett gæti punktinn yfir i-ið í garð-
rækt sumarsins og tryggt gómsæta og heilnæma
uppskeru aö hausti.
Eins og áöur sagði verður þörungamjölið á boð-
stólum i helztu blómaverzlunum Reykjavíkur en
Samband ísl. samvinnufélaga mun sjá um dreifing-
unaútumland.
Gróðursælt sumar!
Hf. Skallagrimur
ÁÆTLUN AKRABORGAR
í janúar, febrúar, mars, nóvember og
desember:
Frá Akranesi
Kl. 8,30
— 11,30
— 14,30
— 17,30
Frá Reykjavík
Kl. 10,00
— 13,00
— 16,00
— 19,00
i april og október verða kvóldferðir a sunnudógum. — i
maí, júni og september verða kvöktterðir á föstudogum
og sunnudögum. — í júlí og ógúst verða kvöldferðir alla
daga, nema laugardaga.
Kvoldferðir eru frá Akranesi kl. 20,30
ogfráReykjavíkkl. 22,00.
Afgreiðsla Akranesi sími 2275
Skrifstofan Akranesi sími 1095
Afgreiðsia Rvik simi 16050
Simsvari í Rviksími 16420
Talstoðvarsamband við skipið og afgreiðslur á Akranesi og Reykja-
vik FR^bylgja, rás 2 Kallnúmer Akranes 1192. Akraborg 1193.
Reykjavik 1194
Lánskjaravísitala
Með tilvisun til 39. gr. laga nr. 13/1979 hefur Seðla-
bankinn reiknað út lánskjaravisitölu fyrir júni-
mánuð 1981.
Lánskjaravisitala 245 gildir fyrir júnímánuð 1981.
Amnesty-fólk
á leiksýningu
Þann 28. maí nk. eru 20 ár frá því aö brezki lög-
fræðingurinn Peter Benenson birti grein í sunnu-
dagsblaðinu Observer og vakti athygli á kjörum
pólitískra fanga í heiminum sem hann kallaði
gleymda fanga. Grein Benenson vakti heimsathygli
og í kjölfar hennar voru samtökin Amnesty Inter-
national stofnuð. Islandsdeild þeirra samtaka hyggst
minnast þessara timamóta á morgun, fimmtudaginn
21. maí, en þá ætla félagsmenn aö sækja sýningu
Þjóöleikhússins á Haustinu í Prag sem sýnd er á litla
sviðinu. Sýning þessi er einkar athyglisverð og vel af
hendi leyst. Hér er um tvo einþáttunga að ræða sem
þótt ólíkir séu eru tengdir innbyrðis. Verkin lýsa
aöstæðum andófsmanna í Tékkóslóvakíu, en annar
höfundanna situr nú þar í fangelsi vegna skoðana
sinna en hinn er landflótta. Þótt verkin skírskoti
þannig til tékknesks raunveruleika og beri merki
tékkneskrar bókmenntahefðar hafa þau einnig víð-
feðmara gildi. Áhorfandinn gleymir því ef til vUl
ekki að lýst er aðstæðum í Tékkóslóvakíu en honum
er jafnframt Ijóst að skeyti höfunda hitta valdhafa
alls staöar þar sem skoðana- og tjáningarfrelsi eru
sett óhæfileg takmörk.
Að leiksýningu lokinni verða tæplega klukku-
stundar umræöur um verkin og efni þeirra.
Umræöum stýrir Friðrik Páll Jónsson fréttamaður
og til þátttöku hefur verið fengið leikhúsfólk og
ýmsir aðrir sem þessi efni hafa kynnt sér.
Leiksýningin er auglýst sem venjuleg sýning af
hálfu leikhússins og öllum heimill aðgangur.
Félögum í Amnesty, sem tryggja vilja sér miða, er
bent á að þeir geta snúið sér til miðasölu Þjóðleik-
hússins og fengið miða með þvi að visa til þátttöku
sinnar i samtökunum.
Fálag einstœöra foreldra
heldur flóamarkað í kjallara hússins að Skeljanesi 6
(leið 5 á leiðarenda) laugardaginn 23. maí kl. 14.
Húsgögn, nýr og notaður fatnaður o.fl. o.fl. á boð-
stólum.
Styrktu gott málefni
Þessar þrjár vinkonur héldu fyrir skömmu hluta-
veltu i Samtúni 12. Þær fengu 200 kr. i ágóða og létu
þær peninginn renna til Sjálfsbjargar, félags lam-
aðra og fatlaðra i Reykjavík. Stúlkurnar heita f.v.
María Baldursdóttir, Sólveig Daníelsdóttir og
Guðný Matthíasdóttir.
FERÐASTYRKUR TIL RITHÖFUNDAR
j fjárlögum 1981 er 4 þús. kr. fjárveiting til að styrkja rithöfund til
dvalar á Norðurlöndum.
Umsóknir um styrk þennan óskast sendar stjórn Rithöfundasjóðs ís-
lands, Skólavörðustíg 12, 101 Reykjavík, fyrir 10. júní 1981. Umsókn
skal fylgja greinargerð um hvernig umsækjandi hyggst verja styrknum.
Reykjavík, 11. mai 1981
RITHÖFUNDASJÓÐUR ÍSLANDS
HVER ER SÖKUDÓLGURINN?
Meö hækkandi sól og björtum
kvöldum minnkar áhugi minn á sjón-
varpsglápi til muna (hefur þó aldrei
verið mikill). Samt horfði ég þó á
sjónvarpið í gærkvöldi þar sem hinn
æsispennandi læðingur var á dag-
skrá. Ekki fannst mér málið skýrast
heldur jafnvel vérðff flóknara en
hinn stálkaldi Harvey, sem sjaldan
stekkur bros eða sýnir merki um að
tilfinningar bærist í brjósti hans,
leysir örugglega vandann í næsta
þætti. Einn galli við þessa þætti er
hversu stuttir þeir eru og held ég að
heppilegra væri að sýna þá með
styttra millibili.
í gærkvöldi var okkur leyft að
lita á gamlar ljósmyndir einu sinni
enn. Ekki hef ég horft á alla þessa
þætti en sá þó fyrstu þættina og
fannst gaman að þeim, en nú finnst
mér vera komið nóg i bili og vona ég
að myndaalbúmið fari að verða búið.
Bandariski hagfræðingurinn Milt-
on Friedmann var síðastur á dagskrá
sjónvarps í gærkvöldi og fjallaði
hann um frelsið til að velja. Orða-
flaumur hans var ógurlegur en virki-
lega þarf að grípa hvert einasta orð til
að ná þvi sem hann er að segja. Ekki
hef ég hugsað mér að rekja hér né
fjalla um kenningar hans, til þess eru
örugglega aðrir betur fallnir. Áður en
þátturinn hans byrjaði var okkur lof-
að umræðuþætti í næstu viku um
kenningar hans og bíð ég spennt eftir
honum. Því ég held að þættir sem
þessir hafi engan tilgang nema á eftir
fari umræður um efnið. Ekki er
heldur annað en sanngjarnt að fleiri
en Milton fái að koma skoðunum
sínum á framfæri.
Útvarpið í gærkvöldi fór alveg
fyrir ofan garð og neðan hjá mér,
þ.e.a.s. ég sleppti því alveg, enda
fannst mér ekkert vera á dagskránni
sem ég hafði sérstakan áhuga á nema
þá kannski eldhúsdagsumræðurnar.
En svo nennti ég ekki að hlusta á
blessaða stjórnmálamennina lof-
syngja sig og sína og niðurníða aðra
og benda á hvér annan sem sökudólg-
inn mikla. Eða vill það ekki oft verða
svo þegar svona umræður fara fram?
Ný plata: „Árný trúlofast"
Út er komin fjögurra laga plata, Árný trúlofast.
Lögin og textarnir eru eftir þá félaga Hrein Laufdal
og Ingjald Arnþórsson. Á plötunni leika LeóTorfa-
son, Gunnar Sveinarsson, Jón Berg, Pétur Hall-
grimsson, Sigfús Arnþórsson, Ingjaldur Arnþórsson
og Hreinn Laufdal. Útgefandi er Studio Bimbo á
Akureyri.
Aðalfundur
Nemendasambands
Menntaskólans á Akureyri
var haldinn aö Hótel Esju fimmtudaginn 5. marz sl.
Þetta var 7. aöalfundur sambandsins, en það var
stofnað 6. júní 1974. Markmið þess er m.a. að skapa
tengsl milli fyrrverandi nemanda MA og stuðla að
sambandi þeirra við nemendur og kennara skólans.
Þess vegna verður vonagnaður haldinn að Hótel
Sögu föstudaginn 5. júní nk. Þar gerir fólk sér
glaðan dag og rifjar upp minningar frá skólaárun-
um.
Ragna Jónsdóttir formaður gaf ekki kost á sér til
endurkjörs. Stjórnina skipa nú: Formaður Ragna
Ragnars, ritari Sigríður Guömundsdóttir, fulltrúi 25
ára stúdenta, gjaldkeri Þorsteinn Jónsson, fulltrúi
10 ára stúdenta, Sigríöur S. Jónsdóttir, fulltrúi 40
ára stúdenta og Ingi Viðar Ámason. í varastjórn
eru: Gunnlaugur Kristjánsson, fulltrúi 5 ára stúd-
enta, Pétur Guömundsson, Vilhjálmur G. Skúlason
og Héðinn Finnbogason. Endurskoðendur: Ragnar
Hafliðason og Þorsteinn Marinósson.
Samið við Spánverja
um hvalveiðistöðvar
Nýlega var undirritaður í Reykjavík samningur
milli íslands og Spánar um gæzlumenn í hvalveiði-
stöðvum.
Hér er um að ræða sams konar samning og gerður
var milli íslands, Noregs og Kanada áriö 1972 um að
skipzt yrði á eftirlitsmönnum við hvalveiðar.
Samningurinn er gerður á grundvelli ákvæða
alþjóðasáttmálans um skipan hvalveiða frá árinu
1946.
Samninginn undirrituðu Steingrimur Hermanns-
son sjávarútvegsráðherra og Juan Prat Coll, vara-
fiskimálastjóri Spánar.
Finnar heiðra
Sigurjón Guðjónsson
Forseti Finnlands hefur sæmt Sigurjón Guðjónsson
fv. prófast riddarakrossi fyrsta stigs finnsku orð-
unnar Hvita rósin.
Sendiherra Finnlands, Lars Lindeman, afhenti
orðuna við athöfn í Norræna húsinu þann 11. apríl
sl. Við athöfnina nefndi hann sérstaklega hina miklu
þýðingu sem Sigurjón Guðjónsson hefur haft fyrir
menningartengsl Finnlands og íslands.
Sigurjón Guðjónsson hefur verið mjög virkur
félagi í Finnlandsvinafélaginu Suomi í áratugi og í
stjórn þess um árabil.
Aðalfundur Rithöfunda-
sambands íslands
Aöalfundur Rithöfundasambands íslands var hald-
inn í apríl sl. og lauk þar með 7. starfsári þess eftir
sameiningu rithöfundafélaganna tveggja, Félags
fslenzkra rithöfunda og Rithöfundafélags íslands, i
ein sameiginleg hagsmunasamtök árið 1974. Félagar
eru nú 217 talsins.
Á fundinum voru kjörnir tveir menn í aðalstjórn,
þau Úlfur Hjörvar og Ása Sólveig, og varamaður
Anton Helgi Jónsson. Fyrir í stjórn eru: Njörður P.
Njarðvík formaður, Þorvaröur Helgason varafor-
maður, Pétur Gunnarsson og Guðmundur Steins-
son. Félagslegir endurskoðendur voru endurkjömir:
Ási í Bæ og Jónas Guðmundsson.
Rithöfundaráð skipa auk ofannefndra sjö
stjórnarmanna: Guöbergur Bergsson, Olga Guðrún
Árnadóttir, Valdís Óskarsdóttir og Þorgeir Þorgeirs-
son. Varamenn: Elias Mar, Guðrún Helgadóttir,
Hjörtur Pálsson og Þórarinn Eldjárn.
Fulltrúi Rithöfundasambandsins i stjórn Banda-
lags íslenzkra listamanna er Þórarinn Eldjárn.
Menntamálaráðherra hefur skipað nýja stjórn
Launasjóðs rithöfunda til þriggja ára samkvæmt til-
nefningu stjórnar Rithöfundasambandsins. Stjórn-
ina skipa: Guðrún Bjartmarsdóttir, Heimir Pálsson,
Reykjavík, og Tryggvi Gíslason, Akureyri.
Helztu verkefni sambandsins á liðnu starfsári eru
samningamálin. Nýr samningur hefur veriö gerður
við Þjóðleikhús. Samningar standa yfir við Félag
íslenzkra bókaútgefenda um útgáfusamning fyrir
þýðingar og einnig er verið að semja við Rikisút-
varpið. Samningum við Námsgagnastofnun hefur
veriö sagt upp og ganga þeir úr gildi 1. júlí. Þá
standa einnig yfir samningar við MÍFA-tónbönd,
Akureyri, um afnot höfundarréttar við útgáfu tón-
banda (hljóðbóka). Langar og miklar samningaviö-
ræður hafa átt sér stað við menntamálaráðuneyti og
fjármálaráðuneyti um greiðslur fyrir ólöglega fjöl-
földun í skólum og er árangurs aö vænta i náinni
framtíð. Þá hefur stjórn Rithöfundasambandsins
tekið þátt i samningu nýs frumvarps til laga um
gjaldtekju af auðum hljómböndum ásamt STEFi og
Sambandi flytjenda og hljómplötuframlciðenda.
Virka flytur úr Árbœ
á Klapparstfg
Á laugardag var opnuð að Klapparstíg 25—17 verzl-
unin Virka, en hún hafði áður verið til húsa við
Hraunbæ í Árbæ, eða sl. 4 ár, en nú var starfsemin
að sprengja allt utan af sér svo nauðsynlegt var að
flytja í stærra og betra húsnæði.
Vörurnar sem seldar eru í Virku eru allar fiuttar
inn af eigendum verzlunarinnar beint frá Bandaríkj-
unum. í Virku fæst allt til hnýtinga, svo sem garn í
fjölmörgum litum, leiðbeiningablöð og hringir og
kúlur til skrauts. Einnig fæst allt til bútasaums, efni
og leiöbeiningablöð, einnig er hægt að kaupa pakka
þar sem nákvæmar leiðbeiningar eru gefnar um
saumaskáp og að sjálfsögðu fylgir efni með í pakk-
anum. Mikið úrval er af bómullarefnum í Virku og
eru einungis seld efni sem eru 100% bómull og eru til
á milli 300 og 400 tegundir af efnum. Einnig fást i
Virku handklæöi og ýmsir hlutir i eldhús svo sem
pottaleppar o.fl.
Eigendur Virku eru hjónin Guðfinna Helgadóttir
og Helgi Þór Axelsson. Guðfinna hefur haft nám-
skeið í hnýtingum og bútasaum sl. 4 ár og hefur hún
ekki getað annað eftirspurn. Húi\ lærði i Bandaríkj-
unum og fer þangaö einu sinni til tvisvar á ári til að
fylgjast með því nýjasta á markaðnum í sambandi
viö hnýtingar og bútasaum.
Á myndinni má sjá þau hjónin í verzluninni þar
sem þau láta fara vel um sig i körfuhúsgögnum sem
fást að sjálfsögðu í Virku.
Iþróttlr
Ýmislegt
íslandsmótið í
knattspyrnu 1981
Miðvikudagur 20. mai
Akranesvöllur
ÍA — ÍBV, 1. deild, kl. 20.
Kaplakrikavöllur
FH — Valur, 1. deild, kl. 20.
Melavöllur
Fram—Vikingur, 1. deild, kl. 20.
Minningarkort Hjúkrunar-
heimilis aldraðra í Kópavogi
eru seld á skrifstofunni að Hamraborg I. sínii 45550.
og einnig i Bókabúðinni Vedu og Blómaskálanuni við
Nýbýlaveg.
20. maí minnzt ó Siglufirði
Eins og undanfarin ár er 20. maí minnzt á Siglufirði
því að þann dag árið 1918 hlaut bærinn kaupstaðar-
réttindi. Hátíðahöldin verða með svipuðu sniði og
áður. Sigurður Gunnlaugsson, fyrrverandi bæjarrit-
ari og bamfæddur Siglfirðingur, mun halda sýningu
á verkum sinum, sem unnin eru af miklum hagleik
og fjölbreytni. Sýningin verður í sýningarsal hins
nýja Ráðhúss Siglufjarðar og verður opnuð kl. 17 i
dag, 20. mai, með leik Lúðrasveitar Siglufjarðar.
í kvöld verður hátíöarsamkoma í Nýja Bíói kl.
21.00 með eftirfarandi dagskrá:
1. Hátíðin sett: Ingimundur Einarsson bæjarstjóri.
2. Hátíðarræða: Alfreð Jónsson oddviti, Grímsey.
3. Lúðrasveit Siglufjarðar leikur, stjórnandi Atli
Guðlaugsson.
4. Karlakórinn Vísir syngur, stjórnandi Guðjón
Pálsson.
5. Jón Óskar rithöfundur les úr verkum sínum.
6. Dixieland hljómsveit leikur nokkur lög.
Framkvæmdastjóri 20. maí nefndar er Elias Þor-
valdsson.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Ferðamanna-
Nr. 93-19. mal 1981 gjaldeyrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Saia
1 Bandarfkjadollar 6,832 8,850 7,535
1 Storlingspund 14,293 14,331 16,764
1 Kanadadollar 6,702 6,717 6,289
1 Dönsk króna 0,9479 0,9604 1,0454
1 Norsk króna 1,2047 1,2079 1,3287
1 Sœnsk króna 1,3979 1,4016 1,6417
1 Finnsktmark 1,6848 1,6890 1,7479
1 Franskur franki U383 U396 1,3635
1 Belg. franki 0,1830 0,1835 0,2019
1 Svissn. franki 3,3474 3,3562 3,6918
1 Hoilenzk florina 2,8787 2,8857 2,9543
1 V.-þýzkt mark 2,9796 2,9874 3,2861
1 Itöbk Ifra 0,00699 0,00800 0,00880
1 Austurr. Sch. 0,4216 0,4227 0,4650
1 Portug. Escudo 0,1126 0,1129 0,1242
1 Spánskur peseti 0,0749 0,0751 0,0826
1 Japanskt yen 0,03106 0,03113 0,03424
1 irskt Durtd 10,886 10,914 12,006
SDR (sérstök dréttarróttindi) 8/1 8,0423 8,0836
Simsvari vegna gengisskréningar 22190.