Dagblaðið - 22.05.1981, Qupperneq 5

Dagblaðið - 22.05.1981, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. MAl 1981. ! 7 Kvað er á seyðium helgina? Bókvikunnar: Ævisaga AlbertsCamus eftir Herbert R. Lottmann —var nefndur „samviska nútímamannsins” meðan hann lifði Herbert R. Lottmann — Camus, a biography, 753 bls. Útgefandi: Picador Verð: 101.10 kr. (pappírskilja) Bókaverslun Snœbjarnar Ekki veit ég hvernig því er varið í dag en á mínum menntaskóla- og háskólaárum gerðumst við margir hallir undir exístentíalismann eða tilvistarstefnuna án þess þó að við botnuðum í henni, gerðum okkur grein fyrir innviðum hennar og ann- mörkum. Okkur fannst að stefna með svona flottu nafni hlyti að teljast til háspeki og við smjöttuðum á nöfn- um þeirra Sartres, Camus. Heideggers og kannski Kirkegaards gamla. Auð- vitað lásu menn þessa höfunda lika, sérstaklega Sartre (Veru og óveru. Velgjuna) og Albert Camus (Pláguna, Ókunna manninn, Fallið og Mýtuna um Sysiphus). Svo liðu tímar og er ég kynntist verkum Camus betur fór ég að meta hann ofar öðrum spámönnum tilvistarstefnunnar, bæði sem höfund og manneskju, auk þess sem hörmu- legur dauði hans í bílslysi árið 1960, aðeins 46 ára að aldri, varpaði rómantískum ljóma á verk hans. Samt held ég að ég hafi aldrei fengið glýju í augun af þeim ljóma. Aðdráttarafl Camus sem rithöfundar var og er hinn siðferðilegi grunnur sem hann byggir öll sín verk á. Ég man hreinlega ekki eftir öðrum nútímahöfundi sem hugsaði eins oft og eins djúpt um grundvallarhugtök siðfræðinnar, umfram allt réttlæti, sannleika og ábyrgð. Hvernig á að lifa lífinu? í skáldsögum sínum og ritgerðum er Camus æ ofan í æ að spyrja sjálf- an sig og lesendur sína: Hvernig fer nútímamaðurinn að því að lifa rétt- látu lífi, andspænis þeim öflum sem vilja ráða gerðum hans? En þrátt fyrir staðfastan trúnað við réttlætið og sannleikann er það fyrst og fremst hinn listræni sannleikur sem átti hug hans. En sannleikur listarinnar hefur þjóðfélagslega skírskotun og er líka eins konar réttlætismál. Hingað til hefur margt verið á huldu um Camus, manninn og list hans og því hafa alls kyns þjóðsögur orðið til og gert trúgjörnum lesanda ýmsa skráveifu. Skort hefur ævisögu hans, bæði ítarlega og óvil- halla, en þar sem Camus var mjög umdeildur í Frakklandi meðan hann var á lífi hafa menn verið tregir til að gera honum skil þar í landi. Nú hefur hins vegar Bandaríkja- maður, Herbert R. Lottmann, tekið af Frökkum ómakið og skrifað mikinn doðrant um ævi Camus, hreint ágæta bók sem að nákvæmni til jafnast á við ævisögu Hemingways eftir Carlos Baker og er auk þess skrifuð af lipurð. Vegna þess að Lottmann er utangarðsmaður í menningarlífi Frakka hafa bæði vinir Camus og óvinir veitt honum aðgang að ýmsum þeim upplýsingum sem ekki hafa legið á lausu. Nú er ekki lengur rúm fyrir þjóðsögurnar. Vinslit Camus og Sartres Ævisaga Camus er ótrúlega viðburðarík. Ljóst er af bókinni hvaða þýðingu uppvöxtur hans í Alsir hafði fyrir hann sem rithöfund, hvernig pólitísk vitund hans þróaðist, hve skipulega hann tókst á við þau listrænu og siðferðilegu vandamál sem hann stóð andspænis hverju sinni. Bók Lottmanns fjallar sérstaklega rækilega um stríðsárin, þátttöku Camus í andspyrnuhreyfingunni og tilurð blaðsins Combat og það hugar- víl sem átökin í Alsír höfðu í för með sér fyrir hinn franska Alsirbúa, Camus. Og loksins liggur Ijóst fyrir hvers vegna leiðir þeirra Camus og Sartres skildu árið 1952, eftir árangursríkt samstarf bæði i andspyrnuhreyfing- unni og eftir stríðið. Sartre hafði færzt nær kommúnistum en Camus hélt fast í sinn ídealisma, siðferði- legan þankagang og andúð á stalín- isma. En þótt þessi vinslit hefðu legið í loftinu lengi, þá voru þau engu að síður sársaukafull fyrir báða aðila. En í bók Lottmanns er Albert Camus sem sagt lifandi kominn: listamaðurinn, utangarðsmaðurinn, húmanistinn og hugsuðurinn. -AI. Albert Camus. með drcifingu límmiöans um að „Beltiö geti bjargað þér”. 1 þessu sambandi vill Byggðarlagsnefnd J. C. Víkur sérstaklega benda á: Aö notkun bilbeltanna hefur meginþýðingu í árekstrum, einkum þeim sem verða innanbæjar og í þéttbýli, þó fiestir hafi talið þýðingu þeirra mikil- vægasta úti á þjóðvegunum. Bilbeltin koma i veg fyrir eða draga stórlega úr hættu á meiðslum i umferðaróhöppum. Að hegðan i umferðinni er einskis einkamál. Hver og einn er jafnmikilvægur sjálfum sér, fjölskyldu sinni og þjóðfélaginu öllu. Auk þeirrar röskunar sem umferðarslysin valda fjölskyldum þeirra sem í hlut eiga eru þau aðstandendum og þjóöfélaginu geysilega kostnaðarsöm. Dreifing miðanna hófst fimmtudaginn 21. mai og er það von nefndarinnar að miðarnir veröi límdir á mælaborðiö eöa annars staðar í bifreiöina þar sem þeir geta vakið athygli. Reisigilli Hjúkrunarheimiiis aldraðra í Kópavogi Laugardaginn 23. maí kl. 15:30—17:30 halda aöstandcndur Hjúkrunarheimilis aldraöra I Kópa- vogi reisigilli í tilefni þess aö húsiö er nú fullreist og fokhelt að hluta og til að sýna og kynna stuðnings- fólki stöðu framkvæmda. Af þessu tilefni verður byggingin fánum skreytt og Hornaflokkur Kópa- vogs mun leika á staðnum undir stjórn Bjöms Guðjónssonar. öllum sem stutt hafa bygginguna og velunnurum Hjúkrunarheimilisins er hér með boðiö til sam- kvæmisins og ekki sízt Kópavogsbúum, sem allir hafa staöiö aö baki fjársöfnunarinnar af fádæma samheldni. Búizt er við fjölmenni í reisigillið og vonandi verður þetta fjölmennasta reisigilli sem haldið hefur veriö hérlendis til þessa. Er það vel við hæfi því sjaldan munu jafnmargir hafa lagzt á eitt við almenna söfnun fyrir byggingarframkvæmdum á íslandi. Rösklega eitt á er nú liðiö síðan Ragnhildur Guðbrandsdótir tók fyrstu skóflustunguna að Hjúkrunarheimili aldraðra i Kópavogi. Síðan hefur verið unniö af fullum krafti, almennt söfnunarfé hefur streymt inn og ekkert lát orðið á fram- kvæmdum. Stefnt er að því aö taka Hjúkrunar- heimiliö i notkun á fyrsta ársfjórðungi næsta árs og veröur þar rúm fyrir 38 manns. Siglfirflingar syflra minnast afmœlis Siglufjarðar með fjölskyldufagnaði á sunnu- dag Stglfirðingafélagiö f ReykJavBt og négranni 20 ára Siglfirðingar búsettir á höfuðborgarsvæðinu minn- ast afmælis kaupstaðarréttinda Siglufjarðar með fjölskyldufagnaöi á sunnudaginn kemur, 24. maí, í veitingahúsinu Glæsibæ. Slíkar samkomur hafa veriö haldnar árlega á vegum Siglfiröingafélagsins í Reykjavik og nágrenni en félagið er 20 ára á þessu ári. Á fjölskyldufagnaðinum hittast ungir og aldnir Siglfirðingar og velunnarar Siglufjaröar syðra. Fjöldi kvenna innan vébanda félagsins annast undir- búning, bakstur og framreiöslu á kaffi og meðlæti á þessari samkomu milli kl. 15 og 18 en þær konur sem ekki hefur veríð haft samband við en heföu áhuga á aö gefa kökur með kaffinu eru vinsamlegast beðnar aö koma þeim í veitingahúsiö i Glæsibæ fyrír hádegi á sunnudaginn. Veröi veitinga verður mjög i hóf stillt og sem fyrr munu ellilífeyrisþegar fá veitingar ókeypis á fjöl- skyldufagnaðinum. Siglufjörður hlaut verzlunarréttindi 20. mai 1818 og kaupstaöarréttindi 100 árum síöar eöa 20. maí 1918. Þessara timamóta er árlega minnzt á Siglufirði og jafnframt hefur sú venja skapazt aö Siglfirðinga- félagiö haldi fjölskyldufagnað sinn á sunnudegi sem næst 20. maí ár hvert I Reykjavik. Á félagaskrá Siglfiröingafélagsins eru nú um 1100 manns og tekur unga fólkið ekki síður þátt í starf- scminni en hinir eldri. Formaður Siglfirðingafélags- ins í Reykjavík og nágrenni er Ólafur Ragnarsson. „List gegn her" Samtök herstöðvaandstæðinga á Suðurlandi hyggja á menningarvöku undir nafninu „List gcgn her” helgina 23. og 24. mai. Menningarvakan hefur aðsetur sitt í Félagsheimili ölfusinga í Hveragerði og verður opin báöa dagana frákl. 14—22. Sýnd veröa myndverk eftir: Sigurö Þórmundar- son, Ólaf Th. Ólafsson, Hildi Hákonardóttur, Klöru Hallgerði Haraldsdóttur, Ástu Guörúnu Eyvinds- dóttur, Hinrik óskarsson og Pétur Friörik Arthúrs- son. Samfelld dagskrá, sem hefst á laugardag kl. 20 og sunnudag kl. 15, verður flutt af eldfjörugum her- stöðvaandstæðingum og koma þar meðal annarra fram: Rúnar Ármann Arthúrsson, Sigurgeir Hilmar Friöþjófsson, Þorvaldur Þorvaldsson, Hjörtur Hjartarson og sönghópur herstöðvaandstæöinga á Suöurlandi. Hestamannafólagið Sörli í Hafnarfirði í tilefni af ári fatlaðra hyggst hestamannafélagið Sörli i Hafnarfirði efna til ,,Dags fatlaðra” laugar- daginn 23. maí nk. Þann dag munu félagar þess teyma undir fötluðum á svæði félagsins við Kaldár- selsveg kl. 15. Þeim sem óska eftir að nýta sér þetta boð er bent á að æskilegt er að tilkynna þátttöku i sima 53418 — 51990 — 52658 föstudaginn 22. mai. (Þeir sem ekki eiga þess kost aö tilkynna þátttöku á þeim tima eru eigi að siður velkomnir). Fólag einstœflra foreldra heldur flóamarkað í kjallara hússins að Skeljanesi 6 (leið 5 á leiðarenda) laugardaginn 23. mai kl. 14. Húsgögn, nýr og notaöur fatnaður o.fl. o.fl. á boð- stólum. Ferðalög Ferflaáœtlun m.s. Fagraness, sumarið 1981 Áætlun frá 27. júni til 15. september. ísafjarflardjúp: AUa þriöjudaga, brottför frá Ísa- firði kl. 8. 11 —12 tima ferð. Viökomustaðir: Vigur, Hvitanes, ögur, Æðey, Bæir, Melgraseyri, Vatns- fjörður, Reykjanes, Arngerðareyri og Eyri. Alla föstudaga, brottför frá ísafiröi kl. 8. Um það bil 5 tima ferð. Viðkomustaðir: Vigur, Æðey og Bæir. Jökulfirflir: í júlimánuöi eru fyrirhugaðar ferðir i Jökulfirði. Nánari upplýsingar á skrifstofu. Yfir sumarmánuðina fer m/s Fagranes með hópa i Isafjarðardjúp, Jökulfirði og Hornstrandir, eftir því sem eftirspurn er og skipið gétur annað. Leitið upplýsinga og pantiö sem fyrst á skrifstofunni. Hornstrandir: Viðkomustaðir: Aðalvik og Hornvik. 4., 10., 18., 24. og 31. júli. 3., 8. og 15. ágúst. Ráðgerðar eru fleiri ferðir i ágúst ef eftirspurn er næg. Berjaferflir: í ágúst og byrjun september. Nánar auglýst síöar. Sjóstangaveifliferflir: Nánari upplýsingar um þær feröir á skrifstofu. Nánari upplýsingar um brottför allra ferða er á skrifstofunni, simi 94-3155. Úr lcikritinu Dr. Jón Gáli>ur scni lxikl'élaK FliótsdaLshéraós sýnir um þcssar inundir i li! el'ni 15 ára afmælisins. Um heluina keniur úl snælda meó loi’um iir leikrilinu o" leuleai afmælisrit leikfélajtsins. Leikfélag Fljótsdalshéraðs 15 ára: Bandalag leik- félaga þingar á Hallormsstað —sérstök hátíðarsýning á Dr. Jón Gálgur og snælda gefin út í tilefni afmælisins „Við erum að halda upp á 15 ára einnig mikið um að vera. Hingað afmæli Leikfélagsins og verðum með koma um fjörutíu manns frá leik- sérstaka hátíðarsýningu í tilefni þess félögum víðs vegar af landinu. á laugardag. Ennfremur verður hér Sveitarstjórnin hefur verið okkur um helgina haldið þing Bandalags innan handar við að gera þingið veg- íslenzkra Leikfélaga á Hallroms- legt, meðal annars með því að bjóða stað,” sagði Einar Rafn Haraldsson, til matar. Heilmikil þingstörf verða leikstjóri Leikfélags Fljótdalshéraðs, þarna, námskeið í stjórnun leikfélags í samtali við DB. og kvöldvökur. Þá er stefna Banda- Á laugardag kl. 18 sýnir leikfélagið lagsins að auka hlut áhugaleikfélag- leikrit sitt, Dr. Jón Gálgur, í Vala- anna í útvarpi og sjónvarpi. skjálf. „Þetta verður áttunda sýning Leiklistarlíf hér er mjög mikið en á leikritinu,” sagði Einar Rafn. aðsókn að leikritinu hefur þó verið „Áður höfum við sýnt hér, á Borgar- dræm. Sömu sögu er að segja frá firði eystra, Reyðarfirði og Eskifirði. öðrum leikfélögum hér á Austur- Leikritið er eftir Odd Björnsson og landi. Ég held að kenna megi um koma um tuttugu manns fram í því. mikilli vipnu á útgerðarstöðunum,” Um helgina kemur út snælda með sagði Einar Rafn Haraldsson. lögum úr leikritinu en þau eru eftir 7 Leikfélag Fljótsdalshéraðs nefur höfunda héðan, alls 19 titlar. Einnig sýnt tvö leikrit árlega, annað fyrir létum við taka leikritið upp á mynd- fullorðna, hitt fyrir börn. „Við segulbandsspólu. Núna er verið að höfum einnig verið með kabarett- vinna hana. Hugsanlegt er að við sýningu annað hvert ár og hefur hún leigjum hana út en aðallega hugsum jafnan hlotið miklar vinsældir. Þá er við okkur hana sem heimild,” sagði efnið heimasmíðað og fjallað um EinarRafn. innansveitarmál.” „Á þingi bandalagsins verður -ELA.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.