Dagblaðið - 02.06.1981, Síða 28
*
Landlæknir vararvid Spánarferðum—íbili:
ÞURFTIAÐ FÁ SÚREFN-
ISGJÖF Á SJÚKRAHÚSI
ems og allt ætlaði upp úr mér í hóstahviðunum, segir kona sem telur sig haf a
fengið óþekktan öndunarfærasjúkdóm á Spáni
21 hef ur látizt syðra, 2500 á sjúkrahúsi
„Ég tel þaö engan vafa að ég fékk
þennan sjúkdóm. Ég hef aldrei
fengiö öndunarerfiðleika eða asma
áður,” sagði Þórdís Brynjólfsdóttir i
morgun. Hún kom frá Mallorka á
Spáni 26. mai sl. eftir þriggja vikna
ferð. Landlæknir varaði í gær við
öndunarfærasjúkdómi á Spáni er
einkum hefði orðið vart í Madrid en í
minna mæli í öðrum héruðum
landsins.
Landiæknir ráðleggur eldra fólki,
ungbörnum, fólki með hjarta- og
lungnasjúkdóma og fólki með of-
næmi fyrir sýklalyfjum að velja ekki
Spán sem sumarleyfísland, a.m.k.
ekki í bili. Landlæknir bendir þó á,
að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
telur ekki nauðsynlegt að stöðva
ferðir til Spánar.
„Þetta byrjaði nokkrum dögum
eftir að ég kom út,” sagði Þórdís.
Óþægindin byrjuðu í hálsi og froða
kom upp úr mér. Þessu fylgdi mikill
soghósti þannig að það var eins og
allt ætlaði upp úr mér þegar ég hóst-
aði. Ég leitaði þegar til læknis og var
undir læknishendi allan timann á
Spáni. Ég var sárlasin með hita og á i
þessu enn. Ég leitaði til læknis hér
heima og fór í rannsókn, myndatöku
og blóðsýni var tekið. Niðurstöður
þeirrar rannsóknar liggja ekki fyrir
enn. Ég er betri i öndunarfærunum
og lungun eru hrein, en er slæm í
raddböndunum og mæðin.
Önnur kona í hópnum veiktist
einnig og var flutt í sjúkrahús á Spáni
og þurfti að fá súrefnisgjöf.”
„Þetta er svo nýskeð að þetta
hefur ekki haft áhrif enn,” sagði örn
Steinsen skrifstofustjóri Útsýnar í
morgun. „Næsti hópur fer á okkar
vegum til Spánar 4. júni. Afpantanir
hafa ekki borizt en á það reynir i dag.
Tilkynning landlæknis getur auð-
vitað haft áhrif og alvarlegar af-
leiðingar. Málið verður rætt í dag en
við eigum von á skeyti frá heilbrigðis-
yfirvöldum á Spáni.”
„Það hefur ekki borizt eitt einasta
tilfelli um þetta frá sólarströndum,”
sagði Steinn Lárusson forstjóri Úr-
vals í morgun. „Þessi tilkynning
hlýtur að trufla fólk eitthvað, en í
morgun fór full vél frá okkur til
Spánar án þess að menn hefðu áður
hringt vegna málsins. Ferðaskrif-
stofur eiga bágt i málinu og ekki er
hægt að útvega ferðir annað.”
í Reutersfrétt i gær sagði að 21.
fórnarlamb veikinnar hefði látizt og
2.500 manns hefðu tekiö veikina.
Faraldur þessi hefur ekki verið
greindur enn.
- JH
Þessi mynd var tekin I gœr úr TF-ERR, flugvéi Eliesers Jónssonar, og séryfir Nýjabœjarfjali. Fremst eru snarbrattar hlíðarnar sem snúa að Austurdal i Skagafirði.
Á innfelldu myndinni eru JC-menn mættir við Gamla flugturninn á Reykjavlkurfiugvelli, reiðubúnir I leitarflug. DB-myndir Egill Sigurðsson og S.
VIRÐIST SEM JORDIN
HAFIGLEYPT TF-ROM
— eftir geysiumfangsmikla leit eru menn engu nær um af drif vélar og manna
Eftir geysiumfangsmikla leit að
TF-ROM frá miðvikudagskvöldi í
siðustú viku eru menn engu nær um
afdrif hennar og mannanna um borð.
Þó er talið ósennilegt að hún hafi
farið í sjóinn.
í dag er síðasti dagur skipulagðrar
leitar og er þess vænzt að meira en
fjörutíu flugvélar leiti. Er ætlunin að
fljúga mun þéttar en hingað til hefur
verið gert. Minnast menn margra
fyrri leita þar sem oft hefur reynzt
mjög erfitt að greina flugvélarflak úr
lofti. í einu tilviki höfðu leitarflug-
vélar flogið sex sinnum yfir staðinn'
þar sem flakið var áður en það
fannst.
Ekkert hefur verið leitað á landi
frá laugardegi heldur hafa göngu-
menn verið í viðbragðsstöðu ef eitt-
hvað skyldi finnast.
Fjðldi JC-manna var í morgun
mættur á Reykjavfkurflugvelli.
Munu þeir sitja um borð í leitarflug-
vélum.
-KMU
frjúlst, áháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1981.
Á manndráps-
fleka út
af Kjalamesi
— var bjargað tvo daga f
röðaf sportbátum
Uppi varð fótur og fit, bæði á
laugardag og á sunnudag, er það frétt-
ist fyrri daginn að heimatilbúinn fleka,
sem á voru tveir strákar, hefði rekið frá
landi. Aftur skeði svipuð saga á sunnu-
dag, er annan strákanna rak aftur frá
landi á sömu manndrápsfleytunni.
Fyrri daginn var Slysavarnafélagið
að fara af stað er fréttist um bát frá
Snarfara á umræddum slóðum. Kom
hraðbáturinn fleyi piltanna að landi.
Á sunnudag kom skúta til hjálpar og
kom flekanum að landi. Nú er búið að
ganga svo frá fleyinu, að það fer ekki
aftur á sjó. Strákurinn, sem á sunnu-
dag rak frá landi, kvaðst reyndar hafa
verið að færa flekann út fyrir nes eitt á
Kjalarnesi til að eyðileggja hann, er
hann rak frá landi hjálparlaust. -A.St.
IVIKU HVERRI
ÍDAG
ER SPURNINGIN:
í hvaða dálki, á hvaða blaðsíðu er
þessi smáauglýsing í blaðinu í dag?
Til sölu stórglæsilegur
hraðbátur, 21 fet, með 75 hestafla
Chrysler mótor. Sjón er sögu rík-
ari. úppl. ísíma 92-2163.
Hver er auglýsingasími Dagblaðs-
SJÁ NÁNAR Á BAKSÍÐU
BLAÐSINS Á MORGUN.
Vinningur I þessari viku er
Apple-tölva frú Radíóbúðinni,
Skipholti 19, Reykjavlk. 1 dag er
birt ú þessum stað I blaðinu spurn-
ing, tengd smúauglýsingum blaðs-
ins, og nafn heppins úskrifanda
dregið út og birt I smúauglýsinga-
dúikum. Fylgist vel með, úskrif-
endur, fyrir næstu helgi veróur
einn ykkar glœsilegri tölvu rikari.
c ískalt
Seven up.
r>r
hressir betur.