Dagblaðið - 09.07.1981, Page 4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 9. JULÍ1981.
DB á ne ytendamarkaði
Sumarréttir úr tómötum og gúrkum
Níi er sá tlmi árs sem tómatar of
agúrkur eru hvaö ódýrast. Því er til-
valið aö nota þetta góða grænmeti
eins mikiö og mögulegt er. Uppskrift
dagsins, reyndar eru þær tvær, eru
einmitt af réttum úr tómötum og
agúrkum. Tómatar hafa meira að
segja lækkað um nærri helming í
verði nú nýlega.
Uppskriftirnar eru úr bókinni
Grænmeti er góðmeti sem Sðlufélag
garðyrkjumanna gaf út fyrir nokkr-
um árum.
Agúrkubátar mað laxaaalatl:
1 stór agúrka.
KRYDDLÖGUR:
4 msk. edlk
3 msk. salatolia
salt
plpar
sykur
LAXASALAT:
75 gr reyktur lax eða síld
50 gr rækjur
1 harðsoðið egg
u.þ.b. 1 tsk. rifin plparrót
SKRAUT:
steinselja
Kljúfið agúrkuna eftir endilöngu
og skafið kjarnann úr með teskeið.
Skerið gúrkuna f 4—5 sentimetra
ianga bita.
KRYDDLÖGUR:
Hrærið eða hristið saman edik, sal-
atoliu, salt, pipar og sykur. Látið
agúrkubitana liggja i kryddleginum 1
u.þ.b. 15 mfnútur. Snúið bitunum
öðru hverju og takiö þá siðan upp úr
leginum. Látið vökvann renna af og
raðiö þeim á fat.
LAXASALAT:
Skeriö lax og egg i litla teninga og
leggið i skál ásamt rækjum.
Dreifið piparrótinni yfír og hellið
kryddleginum saman við. Látið salat-
ið liggja um stund i kryddleginum.
Setjiö salatið síðan f agúrkubátana
þar sem kjarninn var. Skreytið með
steinseljugreinum. Berið réttinn
fram, t.d. sem forrétt eða á kalt borð
með snittubrauði.
Tómatar fylltlr
með túnflskealati:
8—10 stórir, þroskaðir tómatar
Uppskrift
dagsins
TÚNFISKSALAT:
200 gr agúrka
1 dós (165 g) túnfiskur
2 msk. kapers
150—200 gr oliusósa (mayonnalse)
1 tsk. sinnepsduft
1 tsk. franslct slnnep
2—3 msk. smásaxað dill - ,
salt
pipar
sitrónusafi
SKRAUT:
dUl
Skerið sneið ofan af tómötunum
þar sem stilkurinn hefur setið. Holið
þá með teskeið og látið vökvann
renna af þeim. Afhýðið agúrkuna,
skerið hana eftir endilöngu og skafið
kjarnann úr. Skerið hana i litla ten-
inga. Hetlið vökvanum af túnfiskin-
um og skerið hann í bita. Hrærið út í
olfusósuna: sinnepi, söxuðu dilli,
salti, pipar og sftrónusafa. Blandið
ennfremur saman við agúrkutening-
unum, túnfiskinum og kapers.
Setjið salatið i tómatana. Leggið dill-
grein ofan á hvern tómat til skrauts.
í staðinn fyrir túnfisksalat má nota
ýmis önnur salöt, t.d. rækjusal-
at, krækiingasalat, humarsalat,
ávaxta- eða grænmetissalat, fisk-,
kjöt- eða kjúklingasalat.
-DS.
Risa-
vaxin
agúrka
Gísli Sjgurbjörnsson í Ási í Hvera-
gerði heimsótti okkur um daginn með
þessa risavöxnu agúrku. Gúrkan
hafði gleymzt þegar siðast var tínt,
orðið eftir og vaxið svona hressilega.
Hún vó 1 kiló og 900 grömm og
hefði samkvæmt þvi átt að kosta 78
krónur og 85 aura hefði hún verið
seld á algengu gúrkuverði. Það mun
ekki vera óalgengt i Ási að grænmeti
nái þar miklum vexti þó þetta sé eins-
dæmi. En dæmi eru til um 400
gramma tómat. Grænmetið fer allt til
neyzlu á borðum fólks sem dvelst að
Ási og á sjúkrahús verði afgangur.
Gúrkan stóra bragðaðist ljúflega
hér á ritstjórninni. Hýði hennar vai
örlítiö trénað en að öðru leyti var hún
ótrénuð. Einn starfsmanna ritstjórn-
ar orðaði það svo að hún væri ,,út-
lenzk” á bragðið þvi hún var fremur
bragðdauf.
-DS.
Upplýsingaseðill;
til samanburðar á heimiliskostnaði!
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega scndið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- |
andi í uppiýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar j
fjölskvldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki cigið þér von um að fá nytsamt heimilis-
tæki. 11
Nafn áskrifanda
Heimili
Gúrkan stóra var meðalmanni
nóg sem heil máltið. Kristján Már
fær sér hér vænan bita. Á Inn-
felldu myndinnl sést að gúrkan
ekkert trénuð eða hol að inn-
an elns og við bjuggumst þó hálf-
partinn við.
DB-myndir Elnar Ólason.
;i Sími
'I ----
i Fjöldi heimilisfólks-----
.•jKostnaður í júnímánuði 1981
i Matur og hreinlætisvörur kr.
i Annað kr.
! Alls kr.
i
VIKW
„Asíur” úr agúrkum
I Margir hafa komið að máli við
| okkur um að birta einu sinni enn
I uppskrift er við höfum verið með að
sultuöum asfum. Það eru agúrkur
sultaðar á einfaldan hátt. — Birtum
l við því uppskriftina eina ferðina
1 enn:
I 15 agúrkur
| 1 litri edlk
1/2 Iftri vatn
, k 5 stk. laukar (meðalstórir)
u/ 1 pakki asiukrydd, má vera melra
750 gr sykur
1 hnefi gróft salt
Gúrkurnar eru flysjaðar, klofnai
og kjarnarnir teknir úr. Grófa saltini
stráð yfir og gúrkubitarnir látnii
liggja yfir nótt. Þá er lögurinn útbú-
inn. Takið gúrkubitana upp úr salt-
ieginum og látið þá út í löginn og
einnig laukinn, flysjaðan og skorinn i
sneiðar. Þetta er látið vera á köldum
stað í sjö sólarhringa og hrært í einu
sinni á dag með trésleif. Þá er allt hit-
að vel upp að suðu, en má ekki sjóða
og síðan látið á tandurhrein glös. Ef
vill má láta rotvarnarefni út í, eina
msk. í litra af vökvanum.
KUóið af agúrkum kostar núna
um 24 kr. I. flokkur og um 16 kr. II.
flokkur. Ekkert mælir á móti því aö
nota II. flokk i sýrðar asiur. Bragðið
er nákvæmlega það sama.
_________