Dagblaðið - 10.07.1981, Page 1
7. ÁRG. — FÖSTUDAGUR10. JÚLÍ1981 —152. TBL. RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI27022.
Kista Olafar ríku á Skarði fundin undir altari Skarðskirkju?
KISTAN ER MJOG FUIN,
NÁNASTÍ EINNIKLESSU
ftiiiíiifnmii
gullof inn þráður úr fatnaði f undinn
og grænblá perla. Farið ofan íkist-
una í dag
„Kistan er mjög fúin, nánast i einni
klessu. Það hefur verið lagt grjót yfir
hana og hún hefur pressazt við það.
Ennþá höfum við ekki fundið nein
bein, ætli þau séu ekki bara horfin,”
sagði Guðmundur Ólafsson fornleifa-
fræðingur í samtali við DB i morgun.
Guðmundur fór 1 gær að Skarði á
Skarðsströnd ásamt tveimur gröfurum
til að kanna fornleifafund þar. Er lag-
færingar stóðu yfir á kirkjunni á
Skarði kom i ljós kistuhorn. Þjóð-
minjasafninu var gert viðvart um fund-
inn og fóru þremenningarnir þegar á
staðinn ásamt blaðamanni DB.
Gamlar sögur segja að Ólöf rika liggi
undir altarí i Skarðskirkju og þótti
mönnum trúlegt að þarna væri komin
kista hennar. Guðmundur vildi þó ekki
fullyrða neitt slíkt að svo komnu máli.
„Við höfum verið að hreinsa grjótið
frá kistunni og það sem við höfum
fundið er gullofinn þráður úr fatnaði
og grænblá perla sem við vitum ekki
hvort hefur verið saumuð við fatnað
eða eitthvað annað,” sagði Guð-
mundur ennfremur.
„Við munum halda áfram að grafa í
kríngum kistuna og fara eitthvað ofan í
hana. Það kemur ekki til að hún verði
tekin upp. Ætli við verðum ekki í þessu
eitthvað fram yfir hádegi og þá ætti
þetta að skýrast nánar. Síðan förum
við í bæinn með það sem við höfum
fundið og það verður rannsakað frek-
ar. Einnig munum við mynda staðinn
og teikna hann upp. Ég þorí ekki að
segja um hversu merkilegur fundur
þetta er ennþá en það mun skýrast
fljótlega,” sagði Guðmundur Ólafsson
fomleifafræðingur. .
Skarðskirkja. Eins og sjí má, er unniö
að miklum endurbótum á kirkjunni.
Fornleifafræðingamir að störfum undir
kirkjuveggnum, Guðmundur Ólafsson,
undir veggnum, Barði Valdimarsson, á
brúninni, og að baki þeim sr. Ingiberg
Hannesson.
— sjananar
fréttirog
myndirá bls.5
IGuðmundur Ólafsson hreinsar ofan af
kistunni.
Vinna flutt úr landi
fyrir milljónir króna
Séð eftir kirkjugólfinu f Skarðskirkju. Fornleifafræðingamir era við vinnu undir gólfi kirkjunnar. t lltla boxinu, efst á mynd-
inni, má sjá gullþræðina ór klæðnaði þeim sem fannst við kistuna. Neðst i hægra horninu er Kristinn Jónsson, bóndi á
Skarði, undir kirkjuveggnum þar sem kistan er. DB-myndir Kristján Már Unnarsson.
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja stendur nú i viðræðum við Hos-
by-hús sf. á Akureyri um gerð sumar-
húsa fyrir bandalagið. Hosby-hús sf.,
sem hefur umboð fyrir danskar hús-
einingar, gerði tilboð i verkið ásamt
um 20 öðrum fyrirtækjum en öllum
þessum tilboðum var hafnað af bygg-
ingarnefnd BSRB. Slðan var ákveðið
að taka upp viðræður við umboðs-
aðila dönsku húseininganna og ríkir
mjög mikil óánægja meðal islenzku
sumarhúsaframleiðendanna með þá
ákvörðun. Telja þeir að með þvi sé
verið að flytja úr landi, vinnu fyrir
milljónir nýkróna, og benda á að þeir
séu með jafngóð sumarhús en á
mun lægra verði.
-ESE.
sjá bls. 11