Dagblaðið - 10.07.1981, Qupperneq 4
Verðskyn fólks virðist vera raeira,
en litið brenglað, sagði Þrúður
Ingólfsdóttir er hún hringdi til okkar
á neytendasíðunni.
Á dögunum keypti ég mér lakkrís-
reimar með marsipani innan í.
Kostaði stykkið 75 aura. Ég var'
ekkert að hugsa út i þetta um leið og
ég keypti lakkrtsinn. Á eftir fór ég að
hugsa um málið og þá rann upp fyrir
mér að það voru hvorki meira né
minna en 75 gamlar krónur sem hver
lakkrisrúlla kostaði! — Ég hef tekið
eftir svo mörgu sem mér finnst
óheyrilega dýrt!
Ég er hrædd um að fólk láti bjóða
sér einum of miklar verðhækkanir.
Það hefur hreinlega giatað verðskyn-
inu. —
Ég heyrði á dögunum um föður
sem var við skál. Hann ætlaði að gefa
barni sínu aura til þess að kaupa sér
eitthvað I „sjoppunni”. Rétti hann
barninu „smápeninga” sem hann var
með í vasanum. Þegar betur var aö
gáð voru „smápeningarnir” áttatíu
krónur.
Skyldi þessi sami faöir hafa gefið
barninu sínu átta þúsund gamlar
krónur til að fá sér „gott í sjopp-
unni”? Sennilega ekki.
Við erum algeriega sammála
Þrúði. — Fólk, (við erum engin
undantekning) hefur gjörsamlega
glatað verðskyni slnu. Þótt það sé
kannski ekki heppilegt að vera sifellt
með gömlu krónurnar í huganum er
það sennilega nauðsynlegt enn um
sinn. Fyrir áramót fannst okkur við
fá lítiö fyrir fimm þúsund kallinn
þegar farið var í matarbúð dl að
verzla. Munum að hundrað kallinn I
dag er það sama og tveir fimm
þúsund kallar fyrir áramót. Okkur
finnst við ekki fá nokkurn skapaðan
hlut fyrir hundrað kall!
Dettur lesendum neytendasíðunnar
eitthvert gott ráö i hug sem verða
mætti til þess að efla verðskyn al-
mennings.
Látið heyra í ykkur. Hjálpumst að
við að auka og efla verðskyn hver
annars.
-A.BJ.
Ný verðskrá hárgreiðslu:
Nýja verðið nær
ekki því sem áður
tíðkaðist
Það vakti mikla athygli snemma í
vor þegar birt var á neytendasíðunni
verðskrá hárgreiðslustofa. Var annars
vegar birt það verð sem leyfilegt var
og hins vegar það verð sem var raun-
verulega á stofum í Reykjavík. Kom i
Ijós að munurinn var geysilegur. Núna
á Jónsmessunni tók gildi ný verðskrá
og talsvert hærri. Þó nær þessi nýja
verðskrá ekki því að vera jafnhá og
verðið var áður en hún var sett á'
sumum stofum. Þykir okkur þó ekki
líklegt að þær stofur hafi ekki hækkað!
verð sitt eða geri það innan tíðar.
Fólk ætti þvi að. klippa út þessa
verðskrá og hafa hana með sér næst
þegar fariö er I klippingu. Sé verðið
hærra en skráin kveður á um á að
biðja um kvittun og kæra umsvifa-
laust til Verðlagsstofnunar nema nátt-
úrlega menn endilega vilji greiða of
mikið fyrir þjónustuna. Athugið það
líka að i skránni stendur að efnis-
notkun skuli vera í samráði við við-
skiptavin.
-DS.
Verðlagsstofnun hefur ákveðið eftirfarandi hámarksverð fyrir hárgreiðslu-
meistara.
Klipping:
Mótun..........................................................kr. 6,95
Skæraklipping (formklipping)...................................kr. 42,25
Sérstök klipping skv. sérstakri beiðni viðskiptavinar..........kr. 52,80
Hárþvottur:
Hárþvottur.....................................................kr. 16,40
Hárlagning:
Lagning, daggreiðsla (ótúperað) ...............................kr. 37,15
Upprúllun og úrgreiðsla:
1. Á stuttu hári.............................................kr. 57,50
2. Á síðu hári...............................................kr. 62,80
Permanent:
Fyrirstutthár................................................kr. 97,95
Fyrirsítthár ................................................kr. 115,95
(í ofangreindum verðum er innifalin vinna, orka, handklæði, pappír, plast-
hanskar, slá og önnur þjónusta, þó ekki efni, hárþvottur og hárnæring).
Efni Stutt hár Sítt hár
Hárlakk kr. 6,60 kr. 8,75
Næring kr. 13,20 kr. 17,50
Sjampó kr. 3,80 kr. 5,05
Lagningarvökvi kr. 6,60 kr. 8,75
Hárvatn kr. 5,35 kr. 7,10
Permanentefni kr. - 47,30 kr. 62,90
(Innifalið í verði efna er vinna við ísetningu. Notkun efna á að vera í sam-
ráði við viðskiptavin).
Ofangreind verð eru hámarksverð, hvar sem vinnan er framkvæmd.
Eftirvinna greiðist með 40% álagi, nætur- og helgidagavinna með 80%
álagi á ofangreinda taxta.
Reykjavik, 10. júní 1981.
\ Verðlagsstofnun.
Ef við athugum verð á sælgæti, það er snúum því yfir I „gamla” verðið, getur verið um skuggalegar upphæðir að ræða. —
Ein þunn lakkrisreim kostar 75 aura. Það eru 75 gamlar krónur! Ein rúlla af lakkris flitil) kostar 1,25 kr. Það eru 125
gamlar kr. o.s.frv. DB-mynd Gunnar Örn.
Leiga á viðlegubúnaði:
TJALDIÐ KOSTAR 30-110
KRÓNUR A SÓLARHRING
Fyrir þá sem fara I útilegu einu
sinni á sumri er dýrt spaug að kaupa
sér tjald og allan viðleguútbúnað. Nú
á seinni árum hefur verið hægt að fá
þetta allt saman leigt þó það séu aðai-
lega útlendingar sem notfæra sér þá
þjónustu. Við Umferðarmiðstöðina i
Reykjavik er rekin tjaldaleiga sem er
um leið leiga á hvers konar viðlegu-
búnaði, reiðhjólum, skellinöðrum,
gúmmíbátum og fleiru þess háttar.
Leigunni stjórnar Einar Eiriksson og
sagði hann að þar væri hægt aö fá
leigðar allar stæröir af tjöldum og
greitt visst fyrir hverja stærð á
sólarhring. öll tjöldin eru meö
himni.
Ódýrustu tjöldin, tveggja manna,
kosta 80 krónur fyrsta sólarhringinn
en sfðan 30 krónur á sólarhring eftir
það. Ef leigt er I 5—6 sólarhringa er
þó síðartalda leigan látin nægja.
Dýrustu tjöldin eru 8 manna. Þau
kosta 110 krónur fyrsta sólarhringinn
en siðan 55 krónur á sólarhring-
eftir það.
Eins og fyrr sagði er síðan hægt að
leigja allan viðlegubúnað. Dýna
kostar 8 krónur á sólarhring, svefn-
poki 10, primus 15 og pottasett 5.
Tjaldvagnar eru einnig til leigu. Þá
Einar Eirfksson, stjórnandi Tjaldaleigunnar, veifar hér bæklingi um það sem
Leigan býður upp á. Verðið er i dollurum enda mest útlendingar sem nota sér
þjónustuna. DB-mynd Sigurður Þorri.
er ekki hægt aö fá til skemmri tíma
en 4 sólarhringa og kostar þá sólar-
hringurinn 120 krónur.
Tjaldaleigan er opin alla virka
daga frá 9 til 6 og af og til um helgar.
Ekki á að vera þörf á þvi að panta
fyrirfram nema um sérstakar helgar
éins og verzlunarmannahelgina.
Siminn er 13072.
-DS.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ1981.
DB á ne vtendamarkaði
VK> H0FUM GLATAÐ
ÖLLU VERÐSKYNI
Hverniggetum
við öðlazt
það aftur?
Kindahakksveizla:
Kostar aðeins 29,90 kr. kg
Hægt er að kaupa kindahakk á
29,90 kr. þessa dagana. Mikil kjðt-
framleiðsla hefur verið að undan-
förnu og i stað þess að flytja
umframbirgðir til útlanda var-
ákveðið að lækka veröið innanlands
og efna til kindahakksveizlu fyrir
landsmenn. Verðlækkunin á hakkinu
er 30%.
Uppskrift
dagsins
Búinn hefur verið til uppskrifta-
bæklingur með fimm mismunandi
hakkuppskriftum. Ótal rétti má búa
til úr hakki, hvort sem það er kinda-
hakk eða annað kjöthakk. Við ætlum
að prófa þetta ódýra hakk í tilrauna-
eldhúsinu og segjum frá niðurstöðun-
um siðar.
—A.BJ.