Dagblaðið - 10.07.1981, Síða 8
8 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ1981.
(M Erlent Erlent Erlent Erlent )]
■
Ekkert lát á óeirðunum í Bretlandi:
„Egætlaaðnáí
Maggie Thatcher”
hrópaði unglingur sem veif aði rýtingi og reyndi að ryð jast inn í brezka þingið
Til götuóeirða kom í sjö hverfum í
London í gærkvöldi og i norðvestur-
hluta Manchester. Lögreglan sagði i
morgun að tekizt hefði að dreifa
óeiröaseggjunum.
I London reyndi unglingur að
ryöjast inn i þinghúsið. Hann var
handtekinn eftir að hafa ógnaö
tveimur embættismönnum þingsins
með rýtingi sem hann hafði veifaö
um leið og hann hrópaði: „Ég ætla
að ná i Maggie Thatcher.”
Margaret Thatcher forsætisráð-
herra hafði áður greint stormasöm-
um þingfundi frá þvi að háþrýsti-
vatnsslöngur kynnu að verða notaðar
til að koma í veg fyrir óeirðir og grip-
deildir þeldökkra jafnt sem hvitra
unglinga, sem nú hafa staðið sam-
fleytt i sjö kvöld í Bretlandi.
Hópar unglinga efndu til óeirða t
sjö hverfum London í gærkvöldi og
gerðu tilraunir til að ræna úr verzlun-
um.
í Manchester köstuðu unglingar
grjóti að lögreglu og reyndu að
setjast um lögreglustöð í Moss Side
hverfmu sem er byggt fólki af ýmsum
kynþáttum. Þetta var þriðja kvöldið
sem til óeirða kom í þessu hverfi.
Fjölmennt lögreglulið kom þegar í
stað á vettvang og tókst aö koma i
veg fyrir að atburðir miðvikudags-
kvöldsins endurtækju sig þegar um
eitt þúsund unglingar réðust að lög-
reglustöðinni, sumir vopnaðir hey-
kvíslum eða bogum.
Yfirleitt hafa óeirðirnar undan-
farin kvöld beinzt að lögreglunni eða
farið hefur verið ránshendi um verzl-
anir. Undantekning frá þvi var i
Southail hverfinu i London siðast-
liðið föstudagskvöld. Þar kom til
bardaga á milli hvitra unglinga og
unglinga af asiskum uppruna.
Brezka ríkisstjórnin hélt margra
klukkustunda langan fund i gær
um óeirðirnar. Thatcher forsætisráð-
herra sagði að i athugun væri að setja
ný lög sem fælu i sér aukna vernd
fyrir lögregluna. Hún neitaði þvi að
óeirðirnar mætti rekja til hins mikla
Margaret Thatcher.
atvinnuleysis í landinu og sagöi að
hér væri einungis um það að ræða að
glæpamenn stæðu að baki óeirðun-
um.
Sir Ian Percival, embættismaður
stjómarinnar, mun i dag halda til
Liverpool tU að kynna sér hvað oUi
óeirðunum miklu þar um siðustu
helgi er 250 lögregluþjónar siösuöust.
Eitraða bruggið á Indlandi:
mu r
FJOLDILATINNA
ERNÚYFIR300
í gær voru teknar grafir fyrir fórnar-
lömb bruggeitursins í Bangalore á Ind-
landi. Þegar hafa 311 manns látiö lifið
af völdum hins ólöglega mjaðar og
læknar reyna nú að bjarga lifi 135
manna sem liggja þungt haidnir á
sjúkrahúsum eftir að hafa neytt
bruggsins.
Indverska fréttastofan PTI segir að
lik hinna látnu verði grafrn í röð i
kirkjugarði í Bangalore, höfuðborg
Karnataka-héraðs.
í gær létu 86 manns lífið af vöidum
bruggdrykkju og ennþá var verið að
flytja fólk til sjúkrahúsa eftir að það
hafði drukkið hið eitraða brugg.
Lögreglan segir að um hundraö
menn hafi verið handteknir fyrir að
selja bruggið en höfuðpaurarnir gangi
enn lausir.
Frímúrarahneykslið á Ítalíu:
VORU NÖFN LEYNI-
REGLUMANNA KUNN
FYRIR FIMM ÁRUM?
ítaiskur þingmaður sagði í gær að
listi yfir félaga í leynilegu frímúrara-
reglunni, sem varð stjórn ítaliu að falli
i maí siðastliðnum, hefði þegar veriö
komin í hendur yfirvaldanna fyrir
fimm árum.
Næstum eitt þúsund frammámenn í
ítölsku þjóðfélagi reyndust vera á list-
anum yfir félaga í hinni ieyniiegu frí-
múrarareglu P-2. Listinn fannst I húsi
stórmeistara reglunnar, Licio Gelli,
fyrir tveimur mánuðum.
Ríkisstjórn landsins sagði af sér
aöeins einni viku eftir að listinn fannst
og i ljós kom að á honum voru meöal
annarra þekktra manna i embættis-
mannakerfi ftallu þrir ráðherrar.
Það var þingmaðurinn Constantino
Belluscio sem skýrði neðri deild ítalska
þingsins (Camera) frá því í gær að yfir-
völd i Flórens sem voru að rannsaka
starfsemi hægrisinnaðra skæruliða
hefðu komizt yfir lista sem haföi að
geyma nöfn félaga í leynistúkunni P-2
þegar árið 1976.
,,Nöfn félaga stúkunnar hafa þeir
sem kært hafa sig um getaö fengið. Ef
P-2 var leyniregla, hvers vegna var þá
ekki fyrr gripið til aðgerða gegn félög-
um hennar?” spurði þingmaðurinn.
ftalskir frimúrarar á fundi. Nú hefur sú fullyrðing komið fram að þegar árið 1976 hafi
ftölsk yfirvöld vitað um nöfn félaga I leynireglunni P-2.
Óhugnanlegt morð í Stokkhólmi:
Myrt eftir 3 mánaða
kynferðislega kúgun
Ástandið I nokkrum borga Bretlands hefúr að undanförnu likzt ástandinu eftir loftárás. Sjö undanfarin kvöld hefur komið til
óeirða I einhverri af stærstu borgum Bretlands. Ymsir halda þvi fram að höfuðástæðan til óeirðanna sé hið mikla atvinnuleysi
i landinu en þvi neitar Thatcher forsætisráðherra.
1 þrjá mánuöi lá þrjátiu ára gömul
kona hlekkjuð við rúm i íbúð í Stokk-
hólmi. Dag eftir dag mátti hún þar þola
kynferðislega misbeitingu. Munnur
hennar var limdur aftur með límbandi.
Hún hafði þannig enga möguleika á að
kalla á hjálp. Eftir níutíu daga sam-
fellda skelfingu var hún myrt með
byssusting. Ekki fyrr en tiu dögum
síðar vöknuðu grunsemdir hjá ná-
grönnunum og þeir kölluðu á lögregl-
una. Morðinginn hefur náðst og hefur
þegar verið dæmdur í lifstiðarfangelsi
fyrir verknaðinn, sem fyllt hefur íbúa
sænska höfuðstaðarins óhugnaði.
Meðan á skelfingartíma sænsku kon-
unnar stóð var hár hennar klippt af,
hún var pyntuð og henni nauðgað af
nokkrum karlmönnum, auk þess sem
kona tók einnig þátt í að pynta hana.
Lögreglan telur að pyntingarnar sem
konan sætti hafi átt rætur sinar að
rekja til eiturlyfjaneyzlu, þó ekki sé
nein sönnun fyrir þvi að þeir er mis-
buðu konunni svo hrottalega hafi verið
í eiturlyfjavímu er þeir gerðu það.
Þrítugur karlmaöur læsti konuna
inni í íbúðinni í janúarmánuði siðast-
liðnum. Á þessu tímabili komu nokkrir
menn og ein kona í ibúðina. Þau gátu
ótrufluð komið fram vilja sinum gagn-
vart konunni, sem lá bundin við rúmið
og gat enga björg sér veitt. Konan vissi
að fólk var i næstu íbúðum en hún
hafði enga möguleika á að gera vart við
sig og íbúana grunaði ekki að neitt mis-
jafnt ætti sér stað hjá nágrannanum.
Dag eftir dag, viku eftir viku, mánuð
eftir mánuð var hún pyntuð og henni
nauðgað. Þjáningar hennar héldu
áfram fram til 6. apríl, þrem mánuðum
eftir að hún var læst inni í íbúðinni.
Þann dag, eða kannski daginn áður,
var andlit hennar máiaö rautt og allt
hár klippt af henni. Hún var með lím-
band fyrir munninum og gat sér enga
björg veitt er maðurinn er pyntað haföi
hana i þrjá mánuði samfleytt gekk
fram með byssusting og stakk hana þri-
vegis. Eitt lagið lenti (hjarta konunnar.
Lík konunnar var skilið eftir í rúminu.
Tiu dögum síðar brauzt lögreglan inn
i íbúðina eftir að grunsemdir höfðu
vaknað hjá nágrönnunum. 21. apríl var
morðinginn handtekinn og dæmdur
fyrir morð, pyntingar og mannrán.
Hann var dæmdur til lifstiðarfangelsis.
Konan sem var með í hópnum var
einnig ákærð fyrir morð en var sýknuð
í réttinum.