Dagblaðið - 10.07.1981, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1981.
9
d
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
i)
I
REUTER
i
Glemp
settur
inní
embœtti
ígœr
Jozef Glemp, hinn nýi yfirmaður
rómversk-kaþólsku kirkjunnar i Pól-
landi, var formlega settur inn í embætti
í gær sem erkibiskup af Gniezno og
Varsjá. Við það tækifæri hét hann þvi
að leita eftir samvinnu við alla þegna
þjóðfélagsins.
Hinn 52 ára gamli erkibiskup, sem
útnefndur var af Jóhannesi Páli II.
síðastliðinn þriðjudag, endurtók þá
yfirlýsingu sína að hann kæmi til með
að fylgja þeirri stefnu sem fyrirrennari
hans, Stefan Wyszynski, hefði mótað.
Glemp sagði að samskipti ríkis og
kirkju í Póllandi þrúðust í rétta átt
„vegna þess að við virðum hvor
annan”.
„Hlutverk mitt verður að leita eftir
frekari samvinnu og ég er bjartsýnn.
Við eigum í erfiðleikum nú um stundir
en viö trúum því að sú stund muni
koma að þjóðin geti sagzt hafa sigrazt á
erfiðleikunum.”
Mannrétt-
indabrot-
um fœkkar,
segirHaig
Alexander Haig, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að Banda-
rikjastjórn stæði ekki lengur gegn því
að alþjóðleg bankalán yrðu veitt til
Argentinu, Chile, Paraguay og Uru-
guay vegna þess að mannréttinda-
brotum hefði fækkað mjög i þessum
löndum að undanförnu.
Frú Peron
hélt til
Spánar
ígœr
Maria Estela Peron, fyrrverandi for-
seti Argentínu og þar áður magadans-
mær, hélt í gær til Spánar i sex vikna
leyfi eftir að hún var laus úr fangelsi.
Hún hafði „setið inni” undanfarin
fimm ár vegna ákæru um að hafa mis-
notað opinbera sjóði.
Lafði
Diana
lofar
ekki
„hlýðni”
Lafði Diana Spencer mun ekki lofa
að vera „hlýðin” eiginmanni sínum
þegar hún gengur aö eiga Karl prins 1
St. Pauls dómkirkjunni í London 29.
júli næstkomandi, öfugt við það sem
venjan hefur verið við konungleg brúð-
kaup. Heimild innan hinnar konung-
legu hirðar sagði að ákveðið hefði verið
að sleppa sögninni að „hlýða” eftir að
Karl og Diana höfðu rætt málið við dr.
Robert Runcie, erkibiskup af Kantara-
borg, sem taka mun þátt í hjónavigslu-
athöfninni.
$ VERÐLAUNAGRIPIR OG FÉLAGSMERKI ^
4*
jr
Magnús E. Baldvinsson
Laugavegt 8 — Reykjavik — Simi 22804
$
v88jg^y////inn\\\\\N^ss^>
Fyrstu verkföllin f flugsögu varsjárbandalagsríkja:
Lech Walesa gagn-
rýnir verkföllin
— „Qkkur miðar ekkert ef við höldum áf ram á þessari braut”
Lech Walesa, leiðtogi Einingar,
samtaka hinna óháðu verkalýðs-
félaga i Póllandi, hefur gagnrýnt síð-
ustu verkföllin (Póllandi.
Starfsmenn ríkisflugfélagsins LOT
stöðvuðu vinnu í fjórar klukku-
stundir i gær til að mótmæla því að
rikisstjórn landsins hafði ekki fallizt
á tilnefningu þeirra í embætti fram-
kvæmdastjóra flugfélagsins.
Stjórnin hafði í þess stað tilnefnt
sinn mann í starfiö, hershöfðingja
nokkum úr flughernum. Stjórnin
sagði að vegna núverandi erfiðleika
pólsku þjóðarinnar væri ekki hægt
að þola ógnun við eðlilega starfsemi
flugfélagsins.
Verkalýðsleiðtogar i LOT neituðu
að fallast á tilnefningu stjómarinnar
og hafa hótað allsherjarverkfalli hinn
24. júlí ef stjórnvöld verða ekki við
kröfum þeirra.
Walesa sagði á fundi í Gdynia í
gær að sú staðreynd að verkföllin
ættu sér stað svo nærri þingi Komm-
únistaflokksins gæti veriö túlkað á
þann hátt að verkalýðssamtökin
væru að reyna að koma i veg fyrir að
þingið yrði haldið.
„Ef við höldum stöðugt áfram á
þessari braut þá mun okkur ekki
miða neitt,” sagði Walesa.
Mieczyslaw Rakowski, aðstoðar-
forsætisráðherra Póllands, sagði í
gær að verkföll núna rétt fyrir
flokksþingið gerði aðstæður allar
mun erfiðari og skapaði nýja póli-
tíska spennu. Hann sagði að Komm-
únistaflokkurinn og þjóðin öil þörfn-
uðust nú stefnu sem fæli í sér sam-
vinnuogfrið.
Verkfallið var hið fyrsta sem um
getur i almenningsflugi í löndum
Sovétblakkarinnar og kom illa niður
jafnt á innanlands- og utanlandsflugi
Pólverja.
fréttir
AUar lfkur eru nú taldar á að Menachem Begin, sem hér sést i hópi stuðningsmanna,
verði áfram forsætisráðherra ísraels. Endanleg úrslit liggja nú loks fyrir og hlaut
Likud-bandalag Begins 48 þingsæti eða einu sæti meira en Verkamannaflokkurinn og
var hér um að ræða jöfnustu kosningar i sögu tsraeisrikis. Begin hefur þegar lýst þvi
yfir að hann hafi tryggt sér meirihluta á þingi með aðstoð Þjóðlega trúarflokksins (6
þingsæti) og Agudat Israel (4 þingsæti) og Tami-flokksins (3 þingsæti).
ffijj " * .: ..JKm
■HHR 'w " . « L '
B f|P|j
| H
r.Æ ?■ ; lii
Stuóningsmenn hungurverkfallsmanna i Maze-fangelsinu fara i kröfugöngu um
götur Dubiin.
Þrír hafa fallið
í óeirðum í Belfast
— í kjölfar dauða IRA-mannsins
Joseph McDonnell
Fimmtán ára piltur var skotinn til
bana í Belfast i gær og kona lézt á
sjúkrahúsi eftir að hafa særzt i götu-
óeirðum sem urðu í kjðlfar frétta um
að IRA-fanginn Joseph McDonnell
hefði látizt í Maze-fangelsinu af
völdum mótmælasveltis. Þar meö hafa
flmm fangar svelt sig til bana í fangels-
inu.
Þrir hafa nú látið lífið í óeirðum eftir
að fréttist um lát McDonnells. Piltur-
inn, sem féll í gær, varð fyrir skoti er
lögregla og brezkar hersveitir svöruðu
skotum leyniskyttu. Ekki var ljóst
hvort pilturinn sem Iézt hefði átt ein-
hvern hlut að máli þar.
ER SIÐASTA
VÍGIÐ FALLIÐ?
—Julie Andrews „topplaus”
„Þetta var reglulega mikil upplifun
fyrir mig.” Það er Julie Andrews,
leikkonan heimsþekkta sem allir
þekkja fyrir túlkun sina á Mary
Poppins, sem hefur þetta að segja um
leik sinn i kvikmynd þar sem hún
kemur í fyrstasinn fram „topplaus”.
Að leikkonur beri brjóst sin í kvik-
myndum telst engan veginn til tíðinda
á siðari árum en Julie Andrews hefur
i hugum almennings allt frá þvi hún
varð heimsþekkt fyrir leik sinn i kvik-
myndinni Sound of Music, verið
fulltrúi siðprýðinnar í heimi kvik-
myndanna.
Nú hefur hún afklæðzt þessari
ímynd siðprýðinnar og má þá ef til
vill segja að siðasta vigið sé fallið
þeim efnum. Það var í kvikmyndinni
S.O.B. sem Julie Andrews beraði
brjóst sín og voru gagnrýnendur á
einu máli um að henni hefði tekizt vel
upp og fékk hún mikið lof fyrir leik
sinn, eins og raunar oftast áöur.