Dagblaðið - 10.07.1981, Qupperneq 24
Lögreglan og íbúar á Selfossi í rollustríði:
Lætur sírenuna ganga á
nóttunni til að fæla féð
—og íbúar vestan Ölf usárbrúar geta
ekki sofið
—vilja enn afhenda sýslumanni féð
„Bæjaryfirvöld hafa liklegast
fengið lögregiuna til að reka féð hér
úr görðunum því undanfarnar tvær
nætur höfum við ekki fengið svefn-
frið fyrir lögreglunni. Hún kemur
hingað um miðja nótt og lætur eitt-
hvert sírenugelt væla uppundir Eins og skýrt var frá í blaðinu í gær
klukkutíma. í nótt komu þeir um urðu læti á Selfossi á þriðjudags-
hálffjögur og vælan var í gangi til kvöld þegar íbúar vestan við Ölfusár-
klukkan að verða hálffimm,” sagði brú smöluðu fé yfir brúna. Leið
Guðmundur Finnbogason f samtali þeirra lá heim til sýslumanns sem
við DB1 gær. hunzað hefur kærur fbúanna vegna
ágangs búfjár í garða þeirra. Er svo
komið að annar hver garður vestan
viðbrúnaerírúst.
„Ég er viss um að iögreglan er að
hefna sín á okkur íbúunum fyrir það
að þeir skuli settir i þetta starf. Það er
alveg gjörsamlega óþolandi að fá
ekki svefnfrið á næturnar. Konan
min sagði i nótt að af tvennu illu væri
betra að láta eyðileggja garðinn en
hlusta á vælið í lögreglunni hér fyrir
utan húsið,” sagði Guðmundur enn-
fremur.
„Sýslumanninum verður afhent
féð í garðinum sínum ef þessar að-
gerðir halda áfram og ekki verður
eitthvað gert alveg á næstunni.”
-ELA.
ÚRSLITÍ BISKUPS-
KJÖRIKUNN í DAG
Taining atkvæða I biskupskjöri hefst
í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu kl.
14idag.
Eins og fram hefur komið er búizt
við að sr. Ólafur Skúlason dómprófast-
ur verði hlutskarpastur í fyrri umferð-
inni en séra Pétur Sigurgeirsson vigslu-
biskup fylgi fast á eftir. Séra Arn-
grímur Jónsson, prestur i Háteigssókn,
hefur einnig lýst því yfir að hann muni
ekki skorast undan, sýni prestar og
fuiltrúar leikmanna honum það traust
að kjósa hann biskup. Fullvíst er taiið
að einhver þessara þriggja verði næsti
biskup Íslands. Fái enginn meirihluta
atkvæða verður kosið á ný á milli
þeirra þriggja sem flest atkvæði hljóta
og nægir þá einfaldur meirihluti til
sigurs.
-GAJ
Ollu meira ónæði en þeir vildu
komast hjá
Sautján tímar liðu frá því Flugfisk-
bátur fór úr höfn Snarfara i fyrrakvöld
þar til hann sást á reki við Engey í gær.
Ætluðu tveir menn sem um borð voru
að koma snemma nætur aftur í land en
rafmagnsieysi aftraði þeim. Þó þeir
væru með blys um borð notuðu þeir
þau ekki til aö valda ekki ónæði i
landi!!
En þeir hefðu sparað mikið tilstand
ef þeir hefðu skotið blysi. Flugvélar
voru farnar að leita að þeim, skip að
svipast um, leitarflokkur Gæzlunnar
var tilbúinn að hefja leit og sjódeild
Ingólfs I Reykjavik var kominn i
slöngubáta og björgunarbátinn Gísla
Johnsen til leitar. Sást þá til bátsins af
Sætúninu við Engey. Var farið á
slöngubát út og báturinn dreginn til
hafnar. ,,Svona sparnaður i notkun
blysa er dýrt spaug og alrangur,” sagði
Hannes Hafstein. -A.St.
Þyrlan tók tvívegis bensín á flugi
Þyrla Varnarliðsins sótti veikan
danskan sjómann um borð I flutninga-
skipið Grönland í nótt langt suðaustur I
haf. Sérstök eldsneytisvél var I för með
þyrlunni að venju í langflugi og tók
þyrlan tvivegis bensín á sínu langa
flugi. Maðurinn komst undir læknis-
hendur kl. 2.45 í nótt og hafði björgun-
arflugið þá tekið fjórar klukkustundir.
Grönland var 100 sjómilur suður af
Stokksnesi og 170 mílur austsuðaustur
af Eyjum. Hafði skipstjórinn verið í
sambandi við lækni í Færeyjum sem
ráðlagði sjúkraflug frá íslandi. Gekk
flugið vel. Þyrlan var yfir skipinu kl.
00.42 og sjúklingurinn um borð kl.
01.15. Hannes Hafstein hjá SVFÍ hafði
milligöngu um þetta flug. -A.St.
KRONUHÚSIÐ VARD VINNUVELUNUM 0FVIÐA
Það getur verið þungt I þeim pundið,
gömlu húsunum í Reykjavík. í nótt var
gerð tilraun til þess að flytja Krónuhús-
ið svokallaða á Vesturgötu 18 til fram-
tíðarheimkynnanna á Bókhlöðustign-
um en húsið reyndist of þungt þannig
að hinar stórvirku vinnuvélar urðu frá
að hverfa.
Krónuhúsið komst I fréttirnar hér á
árunum er bræðurnir Þórður og Jón
Sturlaugssynir seldu borginni það á
eina krónu. Þeir höfðu þá um nokkurt
skeið reynt að selja húsið á frjálsum
markaði en ekki tekizt og tóku það þvi
til bragðs að koma húsinu I hendur
borgaryfirvalda. Þar sem þeir eru
kaupmenn vildu þeir ekki gefa húsið,
heldur seldu það á eina krónu. Borgin
bætti svo um betur og seldi húsið á
rúmar 32 milljónir króna og má þvi
segja að fé skattborgaranna hafl verið
vel ávaxtað að þessu sinni.
- ESE / DB-mynd S.
Byggingarnef nd samþykkti með sex samhljóða atkvæðum:
SNYRTING FYRIR FATLAÐA
0G ÚTITAFLIÐ EINFALDAÐ
frjálst, áháð dagblað
FÖSTUDAGUR10. JÚLÍ1981.
Slitnaði upp úr
viðrædum við EBE
„Krefjast
minni
veiða
okkar”
— segirHannes
Hafstein, formaður
íslenzku nefndarinnar
„Við töldum ekki grundvöU fyrir
frekari viðræðum þar sem fulltrúar
Efnahagsbandalagsins gerðu sér svo
háar hugmyndir um sinar veiðar,”
sagði Hannes Hafstein, formaður is-
lenzku viðræðunefndarinnar við EBE,
í viðtaU við DB í morgun. Upp úr við-
ræðunum slitnaði i gær eins og DB
skýrði þáfrá.
„Við vorum ekki reiðubúnir til að
ákveða um næsta fund. Þvi býr hver að
sínu að sinni,” sagði Hannes. Hann
sagði að EBE hefði stóraukið karfa-
veiðar siuar á þessu svæði siðustu 1—2
árin. Ef gert væri ráð fyrir að veiða
mætti 85 þúsund tonn af karfa f ár,
stefndi I að EBE tæki 45% að óbreyttu.
EBE hefði í viðræðunum gert kröfu um
35—40% aflahlutfaU af karfa. Islend-
ingar hefðu talað um 15% handa EBE.
Hannes sagði að EBE teldi sig eiga
35% „eignarhlut” af loðnuaflanum á
svæðinu. Þeir hefðu kannski verið tU-
búnir að selja eitthvað af þeim hlut
fyrir annað.
„Þegar við leggjum saman er greini-
lega um ofveiði að ræða og á ég þar
einkum við karfann,” sagði Hannes
Hafstein. „Efnahagsbandalagið krefst
þess að við minnkum okkar veiðar að
sama skapi og þeir auka sínar.”
-HH.
\
Askrifendur
DB athugið
Einn ykkar er svo Ijónheppinn
aö fá aö svara spurningunum I
leiknum „DB-vinningur í viku
hverri”. Nú auglýsum við eftir hon-
um á smáauglýsingasíðum
blaðsins i dag.
Vmningur I þessari viku er ÍÖ
gíra Raleigh reiðhjól fró Fólkan-
um, Suðurlandsbraut 8 I Reykja-
vlk.
Fylgizt vel með, óskrijentlur,
fyrir nœstu helgi verður einn ykkar
glæsilegu reiðhjóli rikari.
c ískalt
Seven up.
óf ullnægjandi lausn, segir Magnús Skúlason, arkitekt
Byggingarnefnd Reykjavíkur
samþykkti í gær með sex samhljóða
atkvæðum aö áfram skyldi unnið að
endurgerð Bankastrætis 2 og að
snyrtiaðstaðan í húsinu skyldi stækk-
uö um tæplega 90 fersentimetra. Þá
var ennfremur ákveðið á fundi
nefndarinnar aö halda áfram fram-
kvæmdum við útitaflið, en þó verður
heldur dregið úr þeim.
Magnús Skúlason sat hjá við at-
kvæðagreiðsluna um Bankastræti 2 í
byggingarnefnd og lét hann gera
bókun út af því máli. I samtali við
DB 1 morgun sagði Magnús að hann
teldi að snyrtingin væri alls ófull-
nægjandi fyrir fatlaða. „Það er í
augsýn bakhús fyrir Bankastræti 2 og
þar verður um fullkomna snyrtiað-
stöðu að ræða. Þá er rangt að vera að
hreyfa til innveggi I friðuðu húsi eins
og gert verður nú í framhaldi af sam-
þykkt byggingarnefndar. Veitinga-
húsið Torfan fékk undanþágu frá
ákvæðunum um snyrtingu fyrir fatl-
aða og ég sé ekki af hverju ekki var
hægt að veita undanþágu einnig
núna,” sagði magnús.
Um útitaflið sagði Magnús að
ákveðið hefði verið að fella niður
tröppurnar sem fyrirhugaðar voru i
miðri brekkunni. Þá á að breyta
hellulagningunni og hafa gras inn á
milli steinanna I kringum taflið.
„Það heitir „armerað” gras á fræði-
máli,” sagði Magnús Skúlason arki-
tekt.
-SA.
W
hressir betur.