Dagblaðið - 14.07.1981, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1981
DB a ne ytendamarkaði
SSSS? Stjörnuflokkurinn má
ekki vera með 5 mm fitulag
Kona af Héraði hafði samband við
neytendasiðuna og bað um að fá
birtar þær reglur sem gilda um flokk-
un kjöts. Sagðist hún hafa keypt sér
1. flokks dilkaskrokk sem vó 10 kíló
og 400 grömm. Fannst henni það
vera fulllftil þyngd til að setja í fyrsta
flokk. Einnig langaði hana að vita
hvernig nautakjöt væri flokkað.
Til að byrja með verður að segjast
eins og er að kjötmatsmaðurinn
virðist hafa verið í fullum rétti með
að flokka kjötið á þennan hátt. Ekki
er tekið neitt fram í reglum um það
hvað skrokkar þurfi að vera þungir
til að komast í fyrsta flokk.
Þær reglur, sem kjöt er flokkað
eftir núna, eru úr reglugerð númer 44
frá árinu 1977. Þar er nákvæmlega
tilgreint hvernig flokka skuli dilka-
kjöt (merkt D), kjöt af veturgömlu
(merkt V), kjöt af sauðum (merkt S),
kjöt af ám (merkt Æ) og kjöt af
hrútum (merkt H). Dilkakjötið er lík-
lega það sem flestir kaupa og varðar
þvi mest um skiptinguna á því. Það er
fiokkað í fimm flokka eftir fitu og út-
liti. Auk þess er hver flokkur merktur
með tölu sem kveður á um þyngd
þess sem í hann fer. í heild litur þetta
svona út:
Aö 12,5 kg 13-16 kg
Ekki farið eftir?
Stimplar, sem kveða á um þessa
flokkun, eiga að vera á öllu kjöti sem
keypt er. En það vita líklega fleiri en
einn og jafnvel fleiri en tveir að það
kjöt, sem neytendur fá, er ekki
flokkað nákvæmlega eftir þessum
reglum. Stjörnuskrokkar eru iðulega
spikfeitir og viðurkenna forráða-
menn landbúnaðar það að sum
sláturhús úti á landi setji kjöt, sem
ætti au fara í 0 flokk, i stjörnuflokk.
Er það alveg furðulegt að þetta skuli
geta gengið átölulaust. En líklega er
það fyrst og fremst neytendum að
kenna. Þeir láta bjóða sér þetta.
Nautakjöt
Kjöt af nautgripum er flokkað i
ungkálfakjöt (merkt UK), alikálfa-
kjöt (merkt AK), ungnautakjöt
(merkt UN), nautakjöt (merkt N) og
kýrkjöt (merkt K). Neytendur græða
hins vegar sáralitið á því að vita þetta
því langoftast er það kjöt, sem keypt
er, þannig tilreitt að allir stimplar eru
af því skornir. Enda hafi sumir kjöt-
kaupmenn fengið það orð á sig að
selja kýrkjöt sem fyrsta flokks nauta-
16,5— 19 ke 19,5—22,5 kg 23kgog þyngri
1. flokkur*
Vel holdfyllt læri
og bak. Fitulag
ekki yfir 4 mm á
miðjum bakvöðva. DI *6
I. flokkur
Vel holdfylltir,
miðlungsfita, galla-
lausir i útliti..... DI 6
II. flokkur
Sæmilega holdfyllt-
ir, lítil fita, galla-
litlir.............. DII 6x
II. flokkur 0
Holdgóðir skrokk-
ar, mikil fita. Fitu-
lag yfir 10 mm á
baki og milli 10. og
II. rifs og aftan
við bóg............. DII 0 6
III. flokkur
Allir holdrýrir fitu-
litlir, marðir, gall-
aðir eða með mjög
gula fitu........... DIII 6xx
DI *2 DI *8
DI 2 DI 8
DII 2x DII 8x
DII 0 2 DII 0 8
DIII2xx DIII8xx
DI *4
DI 4 DIT
DII 4x DII Tx
DII 0 4 DII 0 T
DIII 4xx DIIITxx
Upplýsingaseðill
til samanbuiðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamk,j»a sendið okkur þennan svarseðil. Þannij* eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt heimilis-
tæki.
Nafn áskrifanda
Áður en kjötið fer út úr sláturhúsinu á það að vera vandlega merkt með flokkunarmerki og heilbrigðisstimpli.
DB-mynd Hörður.
kjöt. Það er að minnsta kosti undar-
legt að kýrkjöt merkt og selt sem slíkt
sést nær aldrei á markaði þó landiö sé
fullt af kúm sem auðvitað ganga úr
sér. Meira að segja hafa neytendur
haldið þvi fram að hafa fengið
hrossakjöt i stað nautakjöts og jafn-
vel hvalkjöt. En slíkt er nær ómögu-
legt aö sanna. Heyrt hef ég um fólk
sem fór með slíkt kjöt í greiningu í
Rannsóknastofnun landbúnaðarins.
En slfkt er fyrirhafnarmikið og getur
oft á tiðum verið erfitt að greina
kjötið, jafnvel fyrir færustu sérfræð-
inga.
Ungneytakjötið skal vera af
skrokki sem ekki er eldri en 2 1/2 árs
og vegur meira en hundrað kíló.
Nautakjötið á hins vegar að vera af
eldri gripum en 20 mánaða og ekki
eldri en 4 ára til þess að sleppa í fyrsta
flokk. Það skal enginn segja mér að
eftir þessu sé nákvæmlega farið. En
þegar neytandinn fær kjötið, án þess
að beinin fylgi með, getur hann
ósköp litið sagt um þyngd grípsins í
heild.
Svín og hross
Hrossakjöt er flokkað i folaldakjöt
(merkt FO), trippakjöt (merkt TR)
og hrossakjöt (merkt HR).
Svínakjöt er flokkað í grísakjöt
(merkt SV I), gyltukjöt (merkt SV II)
og galtakjöt (merkt SV III). Hver
flokkur er síðan flokkaður í lið A, B
og C eftir gæðum kjötsins.
- DS
HRESSANDIHVÍTÖL í
SUMARHITANUM —ódýrara en mjólkin
Hér áður fyrr var hvítöl nær ein-
göngu keypt fyrir jólin og þá gjarnan
kallað „jólaöl”. Nú er hvítöl hins
vegar drukkið allan árins hring. Við
prófuðum hvitöl frá Agli á dögunum
og var það sérlega hressandi og
bragðgott.
Ekki sakar að verðið á því er hag-
stætt, miðað við ýmsa svaladrykki
sem á boðstólum eru. Hvítöl er fáan-
legt i „lausu” og kostar þá lítrinn 5
kr. Það er einnig til i flöskum af
sömu stærð og pilsner- og malt-
flöskur en þá er það mun dýrara,
kostar kr. 4,50 eins og malt og
pilsner.
Má geta þess að hvitölið er 60
aurum ódýrara pr. lítra en mjólk í
eins lítra umbúðum.
Sykurinnihald í hvítölinu er 3,5%,
þ.e. í hráefninu. Það getur hins vegar
hækkað eitthvað í tilbúningi en ekki
lá fyrir endanlegt sykurmagn. Það
inniheldur einnig lifandi ger þannig
að það er bráðhollt.
-A.Bj.
Verðkönnun
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks-
Kostnaður í júnímánuði 1981
Matur og hreinlætisvörur kr.-
Annað kr.----
Alls kr.....
m YIK IX
l
Gerð 9. júní 1981
Vörutegund:
Sykur, 2 kg......................
Hveiti, 5 lbs....................
Cakó, 200 og 100 gr..............
Molasykur, 1/2 kg.........' . . . .
Barnamatur (bananar).............
ORA baunir, 1/2 dós..............
ORA baunir, 1/1 dós..............
Mayonese, 600 ml..................
Egg. 1 kg........................
Cerios, 198 gr...................
Saltkex, Ritz, 200 gr............
Ávaxtasulta, bl. (Sanitas).......
Ljósaperur, 75 w.................
Coke, 1 líter....................
Uppþvottalögur, Hreinol..........
Handsápa, Lux, 90 gr.............
Handsápa, Lux, 145 gr............
Hamborgahryggur, 1 kg (kinda) .
Lambalæri, 1 kg..................
Hangikjöt, 1 kg (læri)...........
Londonlamb, 1 kg.................
Höfn K.Á. Vörumark.
15.10 15.70 13.70
13.50 13.40 13.15
16.20 7.95 6.85
7.10 6.70 6.00
3.80 3.30
7.25 7.45 6.45
10.65 11.05 9.55
15.15 15.20
33.95 36.00
9.20 9.90 8.40
12.50 12.80 11.20
6.45 9.10
6.45 6.80 6.25
9.15 9.65
6.90 6.90
3.65 3.60 3.30
5.75 5.70 5.20
58.90 ■ 56.50
44.90 44.90
52.40 52.00
78.00
Selfoss:
Vörumarkaðurinn
með lægst verð
en minnstúrval
Við greindum frá því á dögunum
að blaðið Dagskrá á Selfossi hefði
gert verðkönnun á sjoppum og
bakarium á Selfossi. En Dagskrá
gerði einnig könnun í matvöruverzl-
unum og fer hún hér á eftir. Eins og
sjá má er Vörumarkaðurinn með
áberandi lægst verð á nær öllum
vörum, en hann hefur jafnframt
minnsta vöruúrvalið. Höfn og Kaup-
félag Árnessýslu virðast hafa nokkuð
svipað verð og vöruúrval.
- DS