Dagblaðið - 26.08.1981, Síða 2

Dagblaðið - 26.08.1981, Síða 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1981. Bflakaup: Tregleg fyrirgreiðsla í Reykjavík —enda ekki með helmings útborgun 5663—4193 skrifar: Þann 8. ágúst fórum við suöur til Reykjavíkur til þess að kaupa bíl. Við eyddum 6 timum á einni bílasölunni, eftir að sölumaðurinn hringdi fyrir okkur, en hann mátti eiginlega ekkert vera að þessu af þvi að við vorum ekki með 40.000 kr. útborgun í 80— 100.000 kr.bíl. Siðan var okkur ráðlagt að lita við hjá Bíla- og búvélasölunni á Selfossi. Leizt okkur vel á bíl þar er einnig hentaði okkar fjárhag. Sölumenn- irnir voru líka hinir liðlegustu og hringdu út um allar trissur fyrir okkur. Þeir héldu jafnvel bilasölunni opinni til kl. 20 til þess að við gætum náð tali af eigandanum. Vil ég þakka þessari ágætu Bíla- og búvélasölu fyrir mjög liðlega þjón- ustu. Ég vil einnig benda fólki á að koma þarna viö og líta á spjald- skrána. Það sakar ekki. Helmings-útborgun lágmark DB hafði samband við nokkra bilasala, sem sögðust ekki furöa sig á að treglega hefði gengið með fyrir- greiðsluna i þetta skiptið, því helm- ings-útborgun væri algjört lágmark. Seljendur væru ekki til viðtals um lægri útborgun, hvað svo sem kaup- endum kynni að finnast um það. Annað heyrði til algjörra undantekn- inga — nema maökur væri i mys- unni. -FG. HUGMYNDAFLUG MORGUNBLAÐSINS Kjósandi skrifar um leiðara Morgunblaðsins og Flugleiðir. Kjósandi skrifar: Þau vöktu athygli mína leiðaraskrif Morgunblaðsins um Flugleiðamálin svokölluð. Vart geta menn hent reiður á hver sé meining leiðarahöfundar sem er nafnlaus á ferðað venju. Á bak við skrif hans um „höfuð- skepnur” samgangna í landinu, þ.e. stjórn Flugleiða hf., þann 23. ágúst sl. kemur fram augljóst þekkingar- leysi á aðdraganda ófarnaðar Flug- leiða. Ekki virðist leiðarahöfundi ljóst í hvorn fótinn skuli stigið, svo að ekki styggist kjósendur og kavalerar hertogadæmis Flugleiða. Sá er þetta ritar getur ekki komizt hjá að hnjóta um setningarugl og mistúlkanir í leiðaranum. Þar er hermt upp á samgönguráðherra lof- orð um 3ja miUjón dollara styrk. En alþjóð er kunnugt að sá styrkur væri háður því að samsvarandi styrkur væri veittur af hálfu Luxemborgar- manna. Leiöarahöfundur Morgunblaðsins litur á sig sem Albaníu í stórvelda- stríði miUi fjármálaráðherra og sam- gönguráðherra. Fremur líkist hann þó Gorgi iitia í Brekkukotsannáli. Vart verður því trúað að árvökum mönnum komi ekki spánskt fyrir sjónir fálmkenndar yfirlýsingar Flug- leiða. Rekstrarskýrsla félagsins virðist hafa níu líf og er breytileg eftir því hverjir hana túlka og við hvaða aðstæður hún er rædd. Er leiðarahöfundi Morgunblaðsins ekki ljóst, aö i stjórn Flugleiða komu tveir fulltrúar ríkisins, að undan- gengnum kaupum ríkisins á hluta- bréfum Flugleiða? En sú var hug- mynd stjórnarformanns Flugleiða aö eðUlegt væri að ríkið yrði eignaraðUi að „einkafyrirtækinu”! Slíkt ætti nú ekki að slá I takt við stefnu Morgun- blaðsins en flest verður hey I harðind- um! Af leiðaraskrifum Morgunblaðsins virðist helzt mega ráða spumingu þess um, hvemig draga megi saman seglin á hljóðlátan hátt, svo að al- menningur ,,láti í friði” stjórn Flug- leiða, meðan bún túlkar margfræga skýrslu sína. Réttilega var minnzt á í leiðara Mbl. að starfsmönnum var sagt upp eftir áratuga þjónustu við fyrirtækið en það gleymdist að taka það fram að aðrir voru ráðnir í staðinn. Slíkar voru spamaðarráðstafanir fyrir- tækisins! Þegar ráðherrar gagnrýndu for- ráðamenn Flugleiða fyrir uppsagnir starfsmanna félagsins tók Morgun- biaðið upp hanzkann fyrir Flugleiðir í leiöara og sagði forystumenn félags- ins „hafa haft þrek til þess að gera það, sem alltof fátitt væri i fari íslenzkra stjórnmálamanna”, — væntaniega það að framkvæma fjöldauppsagnir. Nú er eftir að sjá hver er með og á móti hverjum! Enginn þarf þó að velkjast í vafa um almenningsálitið. Breytingar í miðbænum: Torfusamtökin heimaskíts- mát með byggingu útitaflsins Siggi flug er ósáttur við frammistöðu Torfusamtakanna. DB-mynd: H.V. Siggi flug, 7877-8083, skrifar: Þá er bæjarstjórnarmeirihlutinn búinn að gera Torfusamtökin heima- skítsmát með byggingu útitaflsins við Lækjargötu. Ég verð nú að segja það að þetta hefur tekizt miklu betur heldur en ég þorði að vona en óhögguð stendur sú staðreynd að Arnarhólsbrekkan hefur heldur en ekki breytt um svip. Á ég þar við alla brekkuna frá styttu Ingólfs og suður fyrir Bókhlöðu en þessa brekku ætluöu Torfusamtökin svonefndu að vernda, en ekki bara brekkuna fyrir framan Bernhöftshús- in, ef ég hef skilið þessi samtök rétt. Það er verið að breyta miðbænum, það er augljóst mál, en af þessum örlitla miðbæ má ekkert skerða, hann er mjög lftið en viðkvæmt svæði og öll skerðing á honum ætti að vera algerlega forboðin. Það hefur heyrzt að gera eigi nokkrar brýr í víkina fyrir norðan og vestan gömlu Iðnó, en þetta svæði ætti einnig að vera nokkurs konar forboðinn ávöxtur. Tjörnina má ekki minnka um einn fermetra, hún er nógu lítil samt. Ef farið verður að skerða Tjörnina veröur hún að „drullupolli” í stað þess að vera perla höfuðborgarinnar. Þaö þarf lika að fara ákaflega var- lega í það að hrófla við húsunum í Tjarnargötu en norðurendi þessarar götu hefur af vangá verið eyðilagður. Lærum af reynslunni og gerum ekki sömu vitleysuna tvisvar. Mér datt þetta (svona) í hug. -v»v* ~K tutt og skýr bréf Enn einu sinni minna lesendadálkar DB alla þá. er hygnjast senda þiettinum linu. að láta fylgja fullt nafn. , heimilisfany. simanámer (ef um þaá er aó rœða) <>e \ nafnnúmer. Þetta er litilfyrirhöfn fyrir hréfritara ttkkar oy til mikilla þæyinda fyrir DB. Lesendur eru jafnframt minntir á að hréf eiya að ieru stutt og skýr. Áskilinn er fullur réttur til að stytta hréfoK umorða til að spara rúm og koma efni hetur til skila. Bréf cettu helzt ekki að rera lenfiri en 200—300 orð. Símatlmi lesendadálka DB er milli kl. 13 ok 13 frá mánudöKum tilfiistudana. r Itrekuð aðvörun: Gætið ykkar að manni á hvítum station- bfl — reynirað tæla krakka upp íbílinntil sín Ingi skrifar: Ég tók eftir lesendabréfi í DB 15. ágúst þar sem fimm stelpur vara við manni á hvítum bil, sem hefur veitt þeim eftirför. Hér er um Toyota station að ræða en ekki Mözdu. Hann skiptir um bíla en heldur sig við hvíta stationbíla. Það er ekki ofsagt að ástæða sé til þess að vara við þessum manni. Hann hefur verið á hvítum stationbilum í minnst þrjú ár, ef ekki lengur. Þessi náungi er miöaldra, meðal- maður á hæð, þybbinn, alskeggjaður (ég sá hann að vísu síðast fyrir mánuði). Hann er jafnframt dökk- skolhærður, dálítið tileygður og gengur yfirleitt með dökk gleraugu. Fyrir þremur árum var ég á leið í gegnum gamla kirkjugarðinn og þá var þessi maður þar. Hann gaf sig á tal við mig og lagði skyndilega á mig hendur. Með naumindum tókst mér að rífa mig lausan og sleppa en hann ætlaði sér að leggja mig niður. Ég hef þvi grun um að sami maður hafi komið viö sögu er ráðizt var á dreng í vesturbænum, því þá var aug- lýst eftir hvítum stationbil. Þessi náungi er auk þess alltaf á rúntinum og ég hef oft mætt honum á leiðinni milli Reykjavikur og Hafnar- fjaröar. Þar reynir hann að ná í krakka sem eru að húkka sér far.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.